Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 29
Hefur
fyrir forminu
Fyrirsætan og leik-
konan Molly Sims
viðurkenndi í viðtali
að þurfa að hafa
mikið fyrir útlitinu.
„Ég fæddist ekki
svona! Ég þarf að
hreyfa mig í 60 til 90
mínútur, allavega,
fimm daga vikunnar
og borða trefjaríkan
en fitusnauðan mat.“
Fólk 29Miðvikudagur 11. apríl 2012
M
argar af flottustu Hollywood-
stjörnunum þurfa að leggja
virkileg hart að sér til að við-
halda stinnum og lögulegum
líkama. Leikkonan og fyrir-
sætan Molly Sims segist þurfa að mæta
í ræktina fimm daga vikunnar og hreyfa
sig þar í meira en klukkutíma ef hún ætli
að halda sér í formi. Leikkonan Jessica
Biel hefur einnig sagt frá hörkupúlinu
sem hún leggur á sig.
n Fræðstu um það hvernig
stjörnurnar halda sér í formi
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Stjörnurnar
halda sér
í formi
Fer aldrei í megrun Jennifer Lawrence úr
Hunger Games segist eiga bágt með að þola fólk
sem segist elska líkamsrækt. Í viðtali við tímaritið
Glamour sagðist leikkonan hafa átt auðvelt með
að koma sér í form fyrir kvikmyndina. „Þeir sáu um
allt fyrir mig. Ég fékk einkaþjálfara og lista yfir það
sem ég átti að borða og hvenær,“ sagði Jennifer
sem segist fara reglulega í ræktina en hún hafi
aldrei farið í megrun. „Það er ekki hægt að æfa
þegar maður er svangur!“
Ánægð með sig Leikkonan Jessica Alba segist
alltaf hafa haft áhyggjur af líkamanum áður en hú
n
varð mamma. „Ég frelsaðist þegar ég varð ófrísk.
Nú hef ég lært að taka líkama mínum eins og hann
er og mér er meira sama um það hvernig ég lít út.“
Með flottar línur Leikkonan
Sofia Vergara sagði In Style-
tímaritinu að hún hefði oft
fengið hlutverk út á útlit sitt. „Ég
skammast mín ekkert fyrir það.
Útlitið hefur opnað margar dyr.
Hins vegar veit ég líka að ef ég
hefði ekkert annað væri ég löngu
farin úr bransanum.“
Stolt af bumbunni Söngkonan Jessica
Simpson segist aldrei hafa verið stærri. „En
mér er sama. Ég vil sýna bumbuna mína,“ sagði
söngkonan sem viðurkennir að hafa gefið eftir
löngun sinni í óhollan mat á meðgöngunni.
„Ég ætla ekki að taka þátt í þessum fáránlega
þrýstingi frá Hollwood um að bæta ekkert á mig
á meðgöngunni. Ég tek bara á mínum málum
seinna.“
Öskrar í ræktinni Leikkonan Emma Stone segist
taka sund fram yfir hlaup. Hún var með einka-
þjálfara fyrir kvikmyndina Spider Man sem lét
hana lyfta lóðum. „Ég komst að því að ég er með
brjálaðan lítinn karl inni í mér sem fær útrás þegar
ég lyfti þungum hlutum. Annars væri ég alltaf til í
að sofa frekar en að fara í ræktina.“
Alltaf svöng Leikkonan Juli-
anne Moore segist líta á sig sem
granna manneskju. „Iðnaðinum
finnst það samt ekki. Ég hata að
vera í megrun og ég hata að þurfa
að pæla í skammtastærðum. Ég
er alltaf svöng og ég held að allar
leikkonur séu alltaf svangar.“
Brjáluð fyrirhöfn Victoria‘s Secret-fyrirsætan
Adriana Lima hefur ekki farið leynt með vinnuna
sem liggur að baki grönnum líkama hennar. Fyrir-
sætan segist leggja sérstaklega hart að sér fyrir
stórar tískusýningar. Hún mætir tvisvar á dag í
ræktina og lifir aðallega á fljótandi fæði og drekkur
ekkert tólf tímum fyrir sýninguna.
Harka Leikkonan Jessica Biel
hefur viðurkennt að halda sig við
strangt æfinga- og næringar-
plan. „Ég verð eiginlega að fara
laga mannorð mitt. Að vera
svona mikið útivistar- og heilsu-
frík – það er bara leiðinlegt. Ég
verð að fara taka upp á einhverju
óheilbrigðu,“ sagði leikkonan í
gríni.
Með ofnæmi Miley
Cyrus svarar fyrir sig.
Ekki mEð
lystarstol
n Miley óánægð með slúðrið
M
iley Cyrus er
skelegg í við-
brögðum sínum
við orðrómi um
að hún sé með lystar-
stol og segir fjölmiðlum
frá því að hún sé með
ofnæmi fyrir glúteni og
mjólk.
„Ég hef engar áhyggj-
ur af þyngdinni, aðeins
heilsunni,“ sagði söng-
og leikkonan og setti
ofan í við slúðurpress-
una. „Glúten er drasl
hvort sem er,“ bætti töff-
arinn Miley við.