Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Side 19
Neytendur 19Miðvikudagur 11. apríl 2012 Heilkornabrauðin eru langbest Minnst helm- ingur heilkorn Landssamband bakarameistara hefur lýst því yfir að þeir sem nota merkið Veldu heilkorn þurfi að upp- fylla sömu kröfur og þær sem gilda í Danmörku um merkið Vælg fuldkorn först. Samkvæmt þeim skal heilkorn vera 50 prósent af þurrefni og 30 prósent af heildarþyngd tilbúins brauðs. Í 100 grömmum má fita vera að hámarki 7 grömm, sykur 5 grömm og salt 0,5 grömm. Þá skulu trefjar ekki vera undir 5 grömmum. Lands- samband bakarameistara hefur lagt mikla áherslu á að ekkert sé kallað heilkornabrauð nema það uppfylli þessar kröfur en með því geta neyt- endur treyst því að heilkornabrauð uppfylli hollustukröfurnar. Þess má geta að neytendur ættu að geta fengið innihaldslýsingar á því brauði sem keypt er í bakaríum. Heilkorna- trygging Á umbúðir morgunkornsins Honey Nut Cheerios og Cocoa Puffs hefur verið sett merkið Heilkornatrygging. „Samkvæmt framleiðanda Cocoa Puffs er heilkornamaís efst í innihaldslýsingu. Þar segir að 6,75 grömm af heilkornum séu í hverjum meðalskammti sem er 27 grömm. Í meðalskammti fást einungis 2 grömm af trefjum en það er sama magn af trefjum og í tveimur fransk- brauðsneiðum og í sama skammti eru 10 grömm af sykri eða um það bil 4 sykurmolar. Í Honey Nut Cheerios er efst í innihaldslýsingu heilkornið heilir hafrar. Meðalskammtur gefur einnig bara 2 grömm af trefjum og 9 grömm af sykri,“ segir Elísabet og bætir við að miðað við að þessar vörur séu með heilkornastimpli séu 2 grömm af trefjum heldur lítið magn. Henni þykir vafasamt að þessar vörur séu með slíkan stimpil og eðlilegra væri að vörur sem gæfu yfir að minnsta kosti 5 grömm af trefjum í skammti fengju að vera með slíka merkingu. Svona flokk- ast brauðin: n Orkuríkast: Hvítt brauð og Heimilisbrauð n Próteinríkast: Lífskorn n Kolvetnaríkast: Hvítt brauð og Heimilisbrauð n Trefjaríkast: Lífskorn, Heilkorna- brauð, Heilkornakubbur, Heil- kornaflatkökur Heilkornabrauð frá Gæðabakstri Elísabet: „Uppskriftin er svipuð og að Lífskorni Myllunnar en inniheldur ekkert rúgmjöl heldur einungis heilkorna hveiti og hvítt hveiti. Um 50 prósent af mjöli brauðsins eru úr heil- kornum og er jafn mikið af trefjum í því og Lífskorninu. Tvær brauðsneiðar innihalda um 207 hitaeiningar og 6,5 grömm af próteinum.“ Næringargildi Næringargildi í í 100 gr. einni sneið Orka (kkal) 230 103,5 Prótein (g) 7,2 3,24 Kolvetni (g) 41,5 18,675 Viðb. sykur (g) 1,2 0,54 Fita (g) 2,4 1,08 Mettuð (g) 0,4 0,18 Trefjar (g) 6,9 3,105 Natríum (mg) 429 193,05 Innihald: Vatn, heilt hveiti (heil hveitikorn, askorbinsýra), hveiti, ger, durum hveiti, rapsolía, salt, hveitisúrdeig, hunang, þrúgusykur, bindiefni (mónó- og díglýseríð mónó- og díasetýl- víns), askorbinsýra, maltað hveiti, hveitiglúten. Hjá Gæðabakstri fengust þær upplýsingar að rúmlega 50 prósent af mjölinu í þeim vörum sem merktar eru sem heilkornavörur sé heilkornamjöl. Heimilisbrauð frá Myllunni Elísabet: „Þetta brauð er mjög algengt á borðum Íslendinga. Það kemur nokkuð á óvart að það er nánast jafn trefjalítið og hvíta franskbrauðið. Uppskriftirnar eru nánast þær sömu en Heimilisbrauðið inniheldur lítið magn af brotnum hveitikornum. Hveitikornin sem sjást í brauðinu gefa það í skyn að brauðið sé úr heilhveiti eða heilkornum en svo er ekki. Tvær brauðsneiðar innihalda um 213 hitaeiningar; 7,2 grömm af próteinum en aðeins 2,4 grömm af trefjum.“ Næringargildi Næringargildi í í 100 gr. einni sneið Orka (kkal) 267 106,8 Prótein (g) 9 3,6 Kolvetni (g) 51 20,4 Viðb. sykur (g) 0 0 Fita (g) 3 1,2 Mettuð (g) 0,3 0,12 Trefjar (g) 3 1,2 Natríum (mg) 550 220 Innihald: Hveiti, vatn, brotið hveitikorn, repjuolía, salt, ger, bindiefni (E481), mjölmeð- höndlunarefni (E300), sojalesitín (E322). Heilkornaflatkökur frá Gæðabakstri Elísabet: „Þetta er mjög góður kostur fyrir þá sem vilja auka heilkorn í mataræðinu og minnka hitaeiningafjölda. Flatkökurnar innihalda heilkornahveiti, hvítt hveiti, sigtað rúgmjöl og haframjöl. Tvær brauðsneiðar innihalda um 166 hitaeiningar; 5,5 grömm af próteinum og 6 grömm af trefjum.“ Næringargildi Næringargildi í í 100 gr. einni sneið Orka (kkal) 166 83 Prótein (g) 5,5 2,75 Kolvetni (g) 27,5 13,75 Viðb. sykur (g) 0,4 0,2 Fita (g) 2,6 1,3 Mettuð (g) 0,3 0,15 Trefjar (g) 6 3 Natríum (mg) 473 236,5 Innihald: Vatn, heilt hveiti (heil hveitikorn, askorbinsýra), hveiti, sigtað rúgmjöl, haframjöl, repjuolía, ertutrefjar, salt, kartöfluduft, bindiefni (natríumalgínat, pektín), lyftiefni (dínatríumdífosfat, natríumkarbónat), þrúgusykur, askorbinsýra. Hjá Gæðabakstri fengust þær upplýsingar að rúmlega 50 prósent af mjölinu í þeim vörum sem merktar eru sem heil- kornavörur sé heilkornamjöl. Flatkökur frá Gæðabakstri Elísabet: „Uppskriftin er nokkuð lík Heilkornaflatkökunum frá sama framleiðanda. Þær innihalda hvítt hveiti og rúgmjöl en það er hvorki heilkornahveiti né haframjöl í þeim. Tvær brauðsneiðar innihalda um 210 hitaeiningar; 7,7 grömm af próteinum og 4,6 grömm af trefjum.“ Næringargildi Næringargildi í í 100 gr. einni sneið Orka (kkal) 210 105 Prótein (g) 7,7 3,85 Kolvetni (g) 39,9 19,95 Viðb. sykur (g) 2,2 1,1 Fita (g) 4,6 2,3 Mettuð (g) 0 0 Trefjar (g) 4,6 2,3 Natríum (mg) 280 140 Innihald: Vatn, hveiti, heilhveiti, rúgmjöl, jurtaolía, salt, bindiefni (E471, E472e), lyftiefni (E500). Hvítt brauð frá Myllunni Elísabet: „Franskbrauðið inniheldur aðeins hvítt hveiti og er þess vegna trefjalítið. Tvær franskbrauðsneiðar innihalda um 194 hitaeiningar; 6,2 grömm af próteinum en aðeins 2,0 grömm af trefjum.“ Næringargildi Næringargildi í í 100 gr. einni sneið Orka (kkal) 243 97,2 Prótein (g) 7,8 3,12 Kolvetni (g) 47,6 19,04 Viðb. sykur (g) 0,4 0,16 Fita (g) 2,5 1 Mettuð (g) 0,3 0,12 Trefjar (g) 2,5 1 Natríum (mg) 510 204 Innihald: Hveiti, vatn, repjuolía, salt, ger, sykur, bindiefni (E481), mjölmeðhöndlunarefni (E300). Heilkornakubbur frá Gæðabakstri Elísabet: „Kubburinn er aðeins frábrugðinn Heilkornabrauðinu frá sama framleiðanda. Það er próteinríkara og inniheldur rúgmjöl líkt og Lífskornið frá Myllunni. Kubburinn inniheldur nánast jafn mikið af trefjum og Lífskornið og Heilkornabrauðið. Tvær brauðsneiðar innihalda um 210 hitaeiningar; 8,7 grömm af próteinum og um 6 grömm af trefjum.“ Næringargildi Næringargildi í í 100 gr. einni sneið Orka (kkal) 233 104,85 Prótein (g) 9,7 4,365 Kolvetni (g) 39,5 17,775 Viðb. sykur (g) 4,2 1,89 Fita (g) 2,6 1,17 Mettuð (g) 0,9 0,405 Trefjar (g) 6,8 3,06 Natríum (mg) 454 204,3 Innihald: Vatn, hveiti, heilmalað hveiti, heilt hveiti (heil hveitikorn, askorbinsýra), heil- malaður rúgur, sykur, ger, hveitiglúten, súrdeigsduft úr hveiti, hörfræ, salt, maltað bygg, repjuolía, appelsínutrefjar, eplatrefjar, þrúgusykur, bindiefni (mónó- og díglýseríð mónó- og díasetýlvíns), askorbinsýra, maltað hveiti. Hjá Gæðabakstri fengust þær upplýsingar að rúmlega 50 prósent af mjölinu í þeim vörum sem merktar eru sem heilkornavörur sé heil- kornamjöl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.