Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Page 23
Afmæli 23Miðvikudagur 11. apríl 2012 11. apríl 2012 30 ára Fueangfa Haraldsson Varmadal 3, Reykjavík Ástvaldur Anton Guðjónsson Lyngmóum 1, Garðabæ María Hjartardóttir Hringbraut 103, Reykjavík Finnur Freyr Eiríksson Laugarnesvegi 76, Reykjavík Ómar Tamzok Hjarðarhaga 38, Reykjavík Arna Ýr Kristinsdóttir Miðtúni 37, Ísafirði Steinn Sigurðsson Háabergi 17, Hafnarfirði Guðmundur Gauti Sveinsson Stakkahlíð 17, Reykjavík Hrannar Már Ásgeirsson Stekkjarbergi 10, Hafnarfirði Haukur Örn Einarsson Eyjabakka 11, Reykjavík Arnar Óðinsson Flókagötu 31, Reykjavík Viðar Elías Ingason Eyjahrauni 34, Þorláks- höfn 40 ára Marcela Soto Nunez Þinghólsbraut 54, Kópavogi Alena Harbistóva Seljabraut 54, Reykjavík Jón Guðfinnsson Nýbýlavegi 90, Kópavogi Huginn Helgason Sóleyjargötu 1, Vest- mannaeyjum Gunnar Óli Erlingsson Ásbúð 98, Garðabæ Eydís Ásta Waage Marinósdóttir Háagerði 17, Reykjavík Sædís Harpa Skjaldardóttir Unufelli 35, Reykjavík Dagný Ragnarsdóttir Stekkholti 9, Selfossi Jósavin Heiðmann Hreinsson Snægili 10, Akureyri Guðlaugur Eggertsson Smáratúni 2, Selfossi 50 ára Árni Jón Reginsson Selbraut 3, Seltjarnarnesi Bertha Sigríður Eronsdóttir Reykjavegi 53, Mosfellsbæ Trausti Sigurðsson Stekkjarbergi 7, Hafnar- firði Hrönn Einarsdóttir Háahvammi 7, Hafnarfirði Bjarni Arnarson Miðvangi 99, Hafnarfirði Margrét Ásgeirsdóttir Grundarási 7, Reykjavík Brynja Siguróladóttir Stapasíðu 21b, Akur- eyri Hrefna Gunnarsdóttir Blikabraut 10, Reykjanesbæ Kolbrún Gunnarsdóttir Holtsgötu 33, Reykjanesbæ Magnús Guðmundur Ólafsson Ægisbyggð 24, Ólafsfirði Kristinn Hreinsson Stekkjartúni 10, Akureyri Sigurður Grétarsson Grasarima 17, Reykjavík Elín Böðvarsdóttir Hjallabraut 1, Hafnarfirði Árni Bjarnar Eiðsson Einholti 12b, Akureyri Lárus Erlendsson Hringbraut 23, Hafnarfirði Róbert Vilhjálmsson Laugavegi 39, Reykjavík 60 ára Sigurður Rúnar Magnússon Hraunbæ 42, Reykjavík Hallveig Thordarson Brekkutúni 11, Kópavogi Árni Jón Hannesson Þorláksgeisla 27, Reykjavík 70 ára Valgeir Friðþjófsson Þinghólsbraut 26, Kópavogi Hrafnhildur Magnúsdóttir Brautarholti 3, Selfossi Erla H. Isaksen Lómasölum 4, Kópavogi 75 ára Jón Tómasson Hafnarstræti 21, Akureyri Skúli Reynir Einarsson Vesturbergi 91, Reykjavík Björn Thoroddsen Strandgötu 73, Hafnarfirði Helga Árnadóttir Sóleyjargötu 13, Akranesi 80 ára Jón Þórarinn Tryggvason Brimnesbraut 21, Dalvík Per Sören Jörgensen Vallholti 2, Ólafsvík Jón Thors Miðleiti 5, Reykjavík 85 ára Hjördís Guðmundsdóttir Rjúpnasölum 10, Kópavogi 90 ára Hólmfríður Þóra Guðjónsdóttir Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík 103 ára Hlíf Böðvarsdóttir Dalbraut 27, Reykjavík 12. apríl 2012 30 ára Michal Mikolaj Tosik-Warszawiak Suður- hvammi 5, Hafnarfirði Hernan Gabriel Silva Sarmiento Sigtúni 47, Reykjavík Signý Hrund Svanhildardóttir Berjarima 11, Reykjavík Auður Elísabet Jóhannsdóttir Laugalæk 19, Reykjavík Anton Örn Sigurðsson Löngumýri 59, Garðabæ Jelena Raschke Tjarnargötu 36, Reykjanesbæ Mylene Arteche Lumawag Vesturbergi 78, Reykjavík Karen Ýr Lárusdóttir Arnarási 9, Garðabæ Kolbrún Stella Karlsdóttir Hrauntúni 37, Vestmannaeyjum Hólmfríður Gísladóttir Reynimel 58, Reykjavík Bogi Helgason Stóra-Kálfalæk 1, Borgarnesi Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir Stóra-Dal, Hvolsvelli Hrafnhildur Hlín Karlsdóttir Höfðagötu 29, Stykkishólmi Þorleifur Árni Björnsson Framnesvegi 6, Reykjavík Ívar Örn Árnason Stangarholti 6, Reykjavík 40 ára Lakkana Langkarat Vallengi 5, Reykjavík Bjarni Jónasson Kvistahlíð 1, Sauðárkróki Haraldur Unason Diego Safamýri 36, Reykjavík Ingibjörg Hildur Eiríksdóttir Strandgötu 85, Hafnarfirði Hanna Margrét Kristleifsdóttir Sóltúni 28, Reykjavík Erla Björk Birgisdóttir Fálkahrauni 10, Hafnarfirði Kolbrún Kristín Birgisdóttir Ástjörn 7, Selfossi Erla Hrönn Matthíasdóttir Grundargerði 1g, Akureyri Friðrik Friðriksson Bræðraborgarstíg 34, Reykjavík Hafþór Svanur Jónsson Strandaseli 4, Reykjavík Jóna Dóra Óskarsdóttir Sunnuflöt 36, Garðabæ Smári Björn Guðmundsson Austurkór 103, Kópavogi Aðalsteinn Finnbogason Funalind 1, Kópavogi Guðmundur Sigurðsson Fjóluhvammi 13, Hafnarfirði 50 ára Sigmundur V. Garðarsson Garðabraut 10, Akranesi Guðlaug Gísladóttir Hryggjarseli 2, Reykjavík Paul Andrew Fawcett Svöluási 2, Hafnarfirði Vilija Konciute Smárabarði 2m, Hafnarfirði Árni Baldvin Sigurpálsson Norðurgötu 21, Sandgerði Agnar Þór Árnason Björtusölum 6, Kópavogi Oddur Friðrik Vilmundarson Baugakór 19, Kópavogi Jórunn Dóra Hlíðberg Vallargötu 17, Reykja- nesbæ 60 ára Elisabeth Lagerholm Þrastarási 71, Hafnarfirði Jóna Þuríður Tómasdóttir Kálfhólum 6, Selfossi Þóranna Ingólfsdóttir Árbakka 8, Selfossi Ágúst Þórarinsson Jakaseli 1, Reykjavík Svavar Valtýr Valtýsson Áreyjum, Reyðar- firði Aðalbjörg Steindórsdóttir Klúku, Hólmavík Guðmundur Bjarnason Jóruseli 20, Reykjavík Svanhildur Kristjánsdóttir Rafstöðvarvegi 35, Reykjavík Karl Halldór Karlsson Skeljagranda 1, Reykjavík Sigrún Ögmundsdóttir Hjallabraut 68, Hafnarfirði Fidelia Ásta Emmanúels Blikahólum 4, Reykjavík 70 ára Þóra Magnúsdóttir Svínavatni, Selfossi Þórunn B. Jónsdóttir Forsölum 1, Kópavogi Sigurrós Arthúrsdóttir Álftamýri 40, Reykjavík Hrafnhildur Ingólfsdóttir Gullsmára 11, Kópavogi Helga Halblaub Vesturbergi 75, Reykjavík Alda Vilhjálmsdóttir Hagaflöt 11, Akranesi Sigríður Svava Gunnarsdóttir Efstalandi, Þorlákshöfn Finnbogi Björnsson Melbraut 6, Garði 75 ára Þorbjörn Sigurðsson Fornastöðum, Blönduósi Guðbjartur Kristinsson Aðalgötu 21, Reykjanesbæ Guðný Guðnadóttir Hnotubergi 21, Hafnar- firði Erla Þorgerður Ólafsdóttir Víðivangi 1, Hafnarfirði Guðmundur Jónsson Hólabraut 12, Hafnar- firði Stella Björk Baldvinsdóttir Baldursgarði 3, Reykjanesbæ 80 ára María Anna Óladóttir Miðholti 3, Þórshöfn Róbert Sigurjónsson Austurvegi 5, Grindavík Rafn Jónsson Höfðaholti 2, Borgarnesi 85 ára Björg Ólafsdóttir Dalseli 12, Reykjavík Afmælisbörn Til hamingju! H aukur er fæddur Sigl- firðingur en alinn upp hér og þar. „Ég ólst upp á Sigló, í Eyj- um, Reykjavík og í Svíþjóð. Er fín landablanda og með þekkingu víða frá. Kláraði grunnskólann í Svíþjóð, það var fínt, ég fór létt með sænsk- una og var fljótur að komast inn í lífið þarna. Skólinn var öðruvísi, þarna var mötuneyti með ókeypis hlaðborði í stað- inn fyrir sjoppurnar sem mað- ur var vanur hérna. Svo var fullt af afþreyingu í skólanum þannig að ekki var neinn tími fyrir sjoppuhangs og þess vegna þrifust ekki neinar sjoppur nálægt skólanum,“ segir hann brosmildur og rifjar upp hversu mikill munur var á grunnskólum þessara landa. Þegar hann var lítill ætlaði hann að verða He-Man, eins og prinsinn og ofurhetjan, en ekki var auðgert að komast inn í ævintýri æskunnar þannig að trésmíði varð fyrir valinu. „Þegar ég var yngri smíðaði ég mikið og byggði mér kofa úti um allt. Það lá því fyrir að verða húsasmiður og nú smíða ég sem sagt lúxusútgáfuna af kofunum,“ segir hann og hlær. Spurður um daginn sem stendur upp úr telur hann það vera tímann á Karíbahafs- ströndinni í Mexíkó. „Þetta var svolítið rosalegt þarna, ég kafaði meðal annars niður í dýpsta helli heims og ég held svei mér þá að ég sé ennþá með hellu eftir það. Fór líka inn í frumskógana þarna, það var ótrúlegt, sjálflýsandi flug- ur og endalaust af forvitni- legum kvikindum. Gaman að fara langt út fyrir ferðamanna- staði til að skoða. Ég gæti al- veg hugsað mér að búa í svona skógi þegar ég verð gamall, bara sparka í næsta tré og það er kominn hádegismatur Kannski að ég endi þar,“ segir glaðlyndur ferðalangurinn. „Ég þarf engu að kvíða með aldurinn, ég er svo unglegur og á líka bara góð ár fram undan. Þetta verður bara gleði. Af- mælið verður haldið hátíðlegt og glösum lyft fyrir komandi árum. Það verður skálað fyrir tímamótunum og ekkert skilið eftir í því.“ E lín er Reykjavíkur- dóttir og alin upp í borginni og Hamborg í Þýskalandi. „Ég var mjög fljót að aðlagast þegar ég kom út níu ára gömul. Það var gott að vera í Hamborg og margt sérlega skemmtilegt. Ég varð unglingur í Hamborg og eignaðist mikið af vinum þar, þannig að í raun varð miklu erfiðara að koma heim en fara út. En tíminn þar var dásamlegur. Það var auðvitað allt miklu strangara en hér og alvöru agi á öllu og við urðum að vera mjög kurteis í skólan- um. Stundum held ég að rétt væri að senda öll íslensk börn að minnsta kosti einn vetur til Þýskalands í skóla. Fyrir utan að samfélagið ytra er agaðra er þetta að mörgu leyti svipað fyrir unglinga. Á kvöldin héng- um við oft í félagsmiðstöðinni í skólanum eða á lestarstöð- inni, fórum mikið í heimsókn- ir hvert til annars og stórir hópar voru alltaf velkomnir á hvert heimili enda höguðu allir sér eins og vænst var. Á helgum var skógurinn vinsæll og gaman að fara í skógarferð- ir og framandi fyrir litla stelpu sem varla hafði séð tré fram að þessu nema bjöllum hlaðið á jólum,“ segir Elín þar sem hún situr með Kristínu vinkonu sinni í Hafnarfirðinum og báðar hafa brugðið prjónum. Þegar hún var lítil stúlka í Reykjavík og ekkert farið að líða að því að fölskyldan flytti af landi brott þar sem faðir hennar myndi selja Þjóðverj- um íslenskan fisk fyrir Sam- bandið var hún alveg viss um hvað hún ætlaði að leggja fyrir sig þegar hún yrði stór. „Ég ætlaði að verða snyrti- og förðunarkona. Lakka neglur og mála konur og gera þær að enn meiri skvísum. En það varð nú ekki. En ég fór að starfa í snyrtivöruverslun og var þá komin í snertingu við æskudrauminn. Starfið mitt núna er á leikskóla með börn- um sem nú eiga sína drauma um störf framtíðarinnar. Það er yndislegt að sjá hvernig þetta endurtekur sig.“ Eftirminnilegasti dagur Elínar var fyrir tíu árum og stendur henni ljóslifandi fyr- ir sjónum. „Það var óvænt af- mælisgleði þegar ég varð fer- tug. Mér var sagt kvöldið áður að ég yrði sótt fyrir hádegið. Það mætti hér einkabílstjóri að sækja mig, fyrir í bílnum voru tvær vinkonur mínar. Stefnan var tekin á Keflavík og mér leist ekkert á þetta, hef aldrei verið mikið fyrir eitt- hvað óvænt. Suður frá bættust fleiri vinkonur í hópinn. Þetta byrjaði samt allt sætt þarna í Keflavíkinni, við áttum fínan hádegisverð með raddbanda- liðkun og fleiru skemmtilegu. Næst fóru þær með mig á snyrtistofu svo enn komst ég í snertingu við æskudrauminn. Þar fórum við vinkonurnar allar í ómælt dekur með konu- kokteilum og rífandi stemn- ingu. Þær skemmtu sér allar vel yfir því hvað ég kveið allt- af fyrir í hvert skipti sem eitt- hvað nýtt stóð til, enda var ég alveg viss um að þær ætluðu að hrekkja mig eitthvað veru- lega. En svo fóru þær með mig heim aftur og þegar ég kom hérna inn eftir þessa þjakandi óvissuferð varð ég orðlaus og á þó ekki vanda til þess. Hér beið mín afmælisveisla, hér voru allir mínir vinir og líka hinir. Borð svignuðu undan veisluföngum. Hér voru stór- ar skálar með alls konar litum vökva sem sá til þess að fólk söng og dansaði til morguns. Þarna hætti ég að kvíða fyrir en eiginlega var ég þrátt fyrir allt neydd í veisluna mína. En mikið óskaplega var hún skemmtileg, það er gott að eiga góða vini. Nú verð ég að sjá um veisl- una sjálf en það mun verða gaman, ég hlakka til að mæta nýjum áratug. Ég mun prjóna mig í gegnum hann eins og alla hina. Það verður haldið upp á afmælið með opnu húsi og alvöru partíi,“ segir Elín sem prjónaði húfu á meðan þetta spjall stóð og Kristín, sú sem með fleirum neyddi hana í afmælið sitt fyrir áratug, klár- aði að prjóna hálsmen á með- an. Haukur Örn Einarsson húsasmiður, 30 ára 11. aprílAfmælisbarnið Verður kannski gamall í frumskógi Fjölskylda Hauks n Foreldrar: Íris Hauksdóttir húsmóðir f. 1962 Einar Ásmundsson vélsmiður f. 1959 n Sambýliskona: Ingibjörg Rósa Jónsdóttir nemi f. 1985 n Þeirra barn: Íris Björg Hauks- dóttir f. 2008 n Systkin: Rebekka Margrét Hilmarsdóttir f. 1997 Ingibjörg Einarsdóttir f. 2000 Stórafmæli Neydd í eigin afmælisveislu Elín Böðvarsdóttir, leikskólakennari og prjónakona, 50 ára 11. apríl Eftirminnilegur tími „Þetta var svolítið rosalegt þarna, ég kafaði meðal annars niður í dýpsta helli heims.“ Fjölskylda Elínar n Foreldrar: Böðvar Valgeirs- son forstjóri f. 1942 Jónína Ebenezersdóttir hjúkrunarritari f. 1943 n Maki: Einar Ragnarsson rafeindavirki f. 1960 n Barn: Sonja Ragnarsdóttir tækniteiknari f. 1960 n Hennar barn: Gabríel Grétar Árnason f. 2000 n Barn: Jónína Ragnarsdóttir húsmóðir f. 1984 n Maki: Ebenezer Seyi Fakolade öryggisvörður f. 1982 n Hennar börn: Ismael Gariba f. 2003 Nadia Elín Gariba f. 2005 Jayden Fakolade f. 2011 n Barn: Ebenezer Þórarinn Einarsson nemi f. 1988 n Kærasta: Birna Rún Eiríks- dóttir nemi f. 1993 n Systkin: Annette Enberg Nilsen afgreiðslukona f. 1960 Hrefna Böðvarsdóttir sál- fræðingur f. 1966 Ebenezer Þórarinn Böðvarsson tölvunarfræðingur f. 1970 Hlakkar til að mæta nýjum áratug „Ég mun prjóna mig í gegnum hann eins og alla hina,“ segir Elín Böðvarsdóttir hress í bragði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.