Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 4. júlí 2012 Miðvikudagur Hagvöxtur mestur á Íslandi Oddný G. Harðardóttir fjármála­ ráðherra sat fund norrænna fjár­ málaráðherra sem haldinn var í Ósló í vikunni. Fram kom að hvergi á Norðurlöndum mælist hagvöxtur meiri en hér á landi, en fjármálakerfi allra Norður­ landanna hafa þó gengið gegn­ um erfiðleika síðustu misserin. Ljóst er þó að Norðurlandaþjóð­ irnar eru talsvert betur settar en ríki sunnar í Evrópu. Ráðherr­ arnir hafa áhyggjur af efnahags­ erfiðleikum Evrópusambands­ ríkjanna og ræddu um viðbrögð ráðamanna við þeim. Jafnframt var fjallað ítarlega um fyrirhug­ aða innleiðingu nýrra reglna um eigið fé fjármálastofnana innan ESB og á EES­svæðinu. Oddný G. Harðardóttir hélt er­ indi um mikilvægi menntunar á tímum efnahagslægða og kynnti jafnframt stefnu ríkisstjórnarinnar um grænt hagkerfi. Benti hún á að unnið hafi verið að eflingu græns hagkerfis þrátt fyrir efnahags­ þrengingar á Íslandi. E rlendir blaðamenn og ljós­ myndarar veittu Tom Cruise eftirför á bílum á laugardag þegar ekið var með hann um borgina. Lífverðir og ökumenn Cruise beittu ýmsum klækjabrögðum til að reyna að losna við pressuna. Mik­ il eftirspurn er eftir myndum af leikar­ anum, sérstaklega eftir að eiginkona hans, Katie Holmes, sótti um skilnað frá honum fyrir bandarískum dóm­ stólum í síðustu viku. Eltingaleikur í Reykjavík Heimildir DV herma að ekið hafi verið frá Hilton hótelinu við Suður­ landsbraut í Reykjavík og krókaleið ekin niður í Skeifu þar sem skipt var um bíl. Þaðan var svo keyrt inn í Vogahverfið í Reykjavík með báða bílana og blaðamennina í humátt á eftir þar sem silfurlitaður Toyota Land Cruiser­jeppi var stöðvaður í Skeiðarvogi, fyrir utan Menntaskól­ ann við Sund, þar sem ekki var hægt að komast framhjá. Heimildarmað­ ur DV segir að lífvörður Cruise hafi sagt að bíllinn væri bilaður og að þess vegna hafi hann stöðvað en við það komst svört Cadillac Escalade­ jeppabifreið leikarans undan. Ekki liggur fyrir hvaða fjölmiðl­ ar það voru sem eltu Cruise en fjöl­ miðlar frá Bretlandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum hafa setið um leikarann síðustu vikurnar hér á landi. Verðmætar myndir Mikil eftirspurn hefur verið eft­ ir fréttum og myndum af hverju því sem Tom Cruise og Katie Holmes hafa tekið sér fyrir hendur eftir að Holmes sótti um skilnað frá Top Gun­leikaranum. Hún er núna stödd í New York­borg í Bandaríkjunum en Cruise hefur verið við tökur á kvik­ myndinni Oblivion hér á landi. Nýjar myndir og fréttir af parinu hafa selst fyrir milljónir króna til er­ lendra fjölmiðla. Einn af ljósmynd­ urunum sem elt hefur Tom Cruise hér á landi, Ian Lawrence, sagði í samtali við Fréttablaðið 22. júní síð­ astliðinn að hann hafi fengið jafn­ virði 12 milljóna króna fyrir mynd af giftingu Cruise og Holmes. „Það er meðal verð fyrir góða fréttamynd,“ sagði Lawrence. Eftirspurn eftir myndum af Cruise hefur snaraukist frá því að Holmes sótti um skilnað og er ljóst að verðið á myndum hefur hækkað eftir það. Íslenski ljósmyndarinn Júlíus Sig­ urjónsson, sem starfar hjá Morgun­ blaðinu, náði að talið er, síðustu ljós­ myndunum af Holmes og Cruise saman en þær myndir eru komnar í umboðssölu hjá fyrirtækinu Splash­ news. Þær hafa meðal annars birst á miðlunum TMZ, The Sun og ACES­ howbiz. Eltu Tom Cruise á bílum í Reykjavík n Tom Cruise hundeltur af erlendu pressunni n Skipti um bíl í Skeifunni og komst undan með klækjum Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Skyldi þetta vera síðasta myndin? Líkt og kunnugt er eyddu Tom Cruise og Katie Holmes síðustu dögum sínum sem opinbert par hérna á Íslandi. Þá náðust nokkrar myndir af þeim þar sem þau voru á gangi um Þingholtin og allt virtist leika í lyndi. Hér sést hvar þau rölta saman niður Laugarveginn, rétt fyrir hádegismat og þetta er líklegast ein af síðustu myndunum af parinu. M y n d B iR n a Þ ó R M u n d sd ó t ti R Fá 13,9 milljónir frá ríkinu Íslenska ríkið var dæmt til að greiða hjónunum og bændunum Sigurði Hauki Jónssyni og Fjólu Helgadóttur bætur upp á 13,9 milljónir króna, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll á mánudag. Bæturnar fá hjón­ in vegna niðurskurðar á sauðfé á bænum Skollagróf, sem er í eigu hjónanna. Riða greindist í fénu árið 2007 og fyrirskipaði Matvælastofnun að fénu skyldi fargað, en hjónin áttu 350 kindur. Sigurður segir að í ferl­ inu hafi Matvælastofnun meðal annars brotið gegn andmælarétti stjórnsýslulaga. „Þetta er allt hið skrítnasta mál, við fengum ekki einu sinni tækifæri til að tjá okkur um málið. Síðan er það þannig að sumir dýralæknar halda að þessi sjúkdómur sé ekki riða – heldur alzheimer,“ segir Sigurður Hauk­ ur um málið. Hann segir að málið hafi tekið alltof langan tíma í ferl­ inu. Auk þess fá hjónin 600.000 krónur í bætur fyrir málskostn­ að. „Það mun ekki duga fyrir lög­ mannskostnaði,“ segir Sigurður. 1 Hilton Hotel Nordica Tom Cruise gisti á Hilton hótelinu í Reykjavík þegar hann var ekki við tökur. 2 Skeifan Eftir að Cruise lagði af stað frá Hilton stoppaði hann í Skeifunni, þar sem hann skipti um bíl. 3 Skeiðarvogur Cruise komst undan blaðamönnum og ljósmyndurum þegar lífvörður lokaði fyrir umferð á götunni. suðurlandsbraut Miklabraut Langholtsvegur Við tökur Í nýjustu myndinni, Oblivion.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.