Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Blaðsíða 29
Fólk 29Miðvikudagur 4. júlí 2012
að „koma siðferði á“. Ekki er átt við sið-
ferði í hefðbundnum skilningi heldur
vísindakirkjusiðferði sem hefur verið
harðlega gagnrýnt. Til að mynda af
prófessor Stephen A. Kent sem hefur
rannsakað kirkjuna hvað mest. Hann
segir siðferði kirkjunnar í raun byggjast
á því að eyða mótstöðu eða eyða áhuga
fólks á öllu öðru en Vísindakirkjunni.
Grimmir lögfræðingar
Það er ljóst að Holmes býst ekki
við neinu öðru en hörðum deilum
í dómsal en hún hefur ráðið til sín
teymi þekktra lögfræðinga. Má
þar helst nefna Allan Mayefsky
sem sérhæfir sig í skilnaðarmálum
frægra. Auk hans hefur hún ráðið
til sín lítt þekktan lögfræðing sem
heitir Jonathan Wolfe. Sá er hins
vegar sagður snillingur í því að
þefa uppi falin auðæfi en það þykir
benda til þess að Holmes ætli ekki
aðeins að sækjast eftir fullu forræði
yfir Suri heldur einnig meira fé en
kaupmáli hjónanna kveður á um –
en kaupmálinn fyllir litlar 100 blað-
síður.
tom vildi senda suri
í vísindakirkjubúðir
Suri Suri er ástæðan
fyrir skilnaðinum að
sögn fjölmiðla. Hjóna-
bandið er sagt hafa verið
sýndarleikur í nokkur ár.
B
andaríski verðlaunablaða-
maðurinn Anderson Cooper
kom út úr skápnum nýverið.
Anderson sagði frá samkyn-
hneigð sinni í löngum tölvupósti til
Andrew Sullivan, blaðamanns hjá
Entertainment Weekly, sem hafði
spurt hann beint út um kynhneigð-
ina.
Enn fremur útskýrði hvers vegna
hann hefði haldið einkalífinu út af
fyrir sig hingað til og hvers vegna
hann kæmi út úr skápnum á þessum
tímapunkti. Helstu áhyggjur hans
voru áhyggjur af öryggi fréttateym-
isins og sú skoðun hans að einkalíf
blaðamanns – stjórnmálaskoðanir,
trú og aðrir þættir lífs hans – ættu
ekki heima í opinberri umræðu.
Nýlega hafi hann þó áttað sig á því
að þögn hans gæti gefið einhverj-
um ástæðu til að halda að hann
hefði eitthvað að fela sem hann
skammaðist sín fyrir.
„Þetta olli mér vanlíðan því
þetta er hreinlega ekki satt,“ skrifar
hann. „Staðreyndin er sú að ég er
samkynhneigður, hef alltaf verið
það, verð það alltaf og ég gæti ekki
verið hamingjusamari, sáttari við
sjálfan mig eða stoltari.“
Óttaðist öryggi
samstarfsmanna
n Anderson Cooper kom út úr skápnum með stæl
Kominn út úr skápnum Anderson
hélt samkynhneigðinni leyndri af ótta
við að stofna fréttateymi sínu í hættu.
A
ndy Griffith sem lék hinn
bráðvinsæla Matlock í sam-
nefndum þáttum sem sýnd-
ir voru á RÚV á áttunda og
níunda áratugnum, er látinn, 86 ára
að aldri.
Andy kom af fátæku heimili
og svaf til dæmis í skúffu í nokkra
mánuði því það var ekki til vagga
eða rúm handa honum og um tíma
þurfti hann meira að segja að búa
hjá ættingjum vegna peningaleysis
foreldra sinna. Hann fór samt í
skóla og gekk alltaf vel að læra og
hafði mikinn áhuga á söng.
Andy lék í sinni fyrstu kvikmynd
árið 1957 en hún hét A Face In The
Crowd en hann hafði áður leikið í
tveimur sjónvarpsþáttum sem náðu
ekki miklum vinsældum. Hann
fór svo að leika í The Andy Griffith
Show þar sem hann lék skerfara í
bænum Mayberry en þessir þættir
voru sýndir frá 1960 til 1968 og voru
mjög vinsælir.
Matlock-þættirnir fóru svo í loft-
ið árið 1986 og náðu mjög miklum
vinsældum víða um heim, ekki síst
á Íslandi. Gerðar voru níu seríur af
Matlock og voru þættirnir fram-
leiddir til ársins 1995.
Andy Griffith var þrígiftur, síðast
Cindi Knight en þau höfðu verið gift
frá árinu 1983.
Andy Griffith allur
n Sló í gegn sem Matlock
Andy Griffith Er Íslendingum góðkunnur
enda Matlock-þættirnir vinsælir mjög á
sínum tíma.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox