Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Síða 11
viðurkenndur í undirheimum Fréttir 11Miðvikudagur 4. júlí 2012 Þingsályktun um tjáningarfrelsi: Óska eftir ábendingum frá almenningi Mennta- og menningarmálaráðu- neytið óskar eftir athugasemdum og ábendingum frá almenningi um þingsályktun þess efnis að Ís- land skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Þann 16. júní 2010 samþykkti Alþingi þingsályktun þess efnis að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Í greinargerð með tillögunni er lýst framtíðar- sýn fyrir Ísland sem framsæknum vettvangi fyrir skráningu og starf- semi alþjóðlegra fjölmiðla og útgáfufélaga, sprotafyrirtækja, mannréttindasamtaka og gagna- versfyrirtækja. Mennta- og menningarmála- ráðherra var falið að vinna að framgangi þingsályktunarinn- ar. Skipaður hefur verið stýrihóp- ur, sem er ætlað að hafa forsögn um að leiða vinnu ráðuneytisins við greiningu og úttekt á lagaum- hverfinu hér á landi og erlendis með tilliti til efnis þingsályktunar- innar og eftir atvikum gera tillög- ur um ný lög eða lagabreytingar á þessu sviði. Þingsályktunin og nánari upp- lýsingar eru á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. WOW air stundvísast Rúmlega níu af hverjum tíu brott- förum Icelandair, Iceland Express og WOW air stóðust áætlun á seinni hluta júnímánaðar. Í mín- útum talið var seinkunin að jafn- aði mjög lítil. Ferðasumarið fer því miklu betur af stað, þegar horft er til stundvísi á Keflavíkurflugvelli, en á síðasta ári. Í júní í fyrra voru til að mynda aðeins 44,5 prósent brottfara á flugvellinum á tíma. Þetta kemur fram á vefnum turisti. is sem birtir reglulega upplýsingar um stundvísi íslenskra flugfélaga og ferðaskrifstofa. Þar kemur fram að komutímar WOW air hafi staðist oftar en hjá hinum tveimur félögunum og ný- liðarnir voru því stundvísasta fé- lagið í Keflavík á seinni hluta júní- mánaðar. Eins og áður er mikill mun- ur á umsvifum félaganna þriggja. Icelandair flaug til dæmis sjö sinn- um oftar en Iceland Express og ellefu sinnum oftar en WOW air til og frá landinu seinni tvær vikur júnímánaðar samkvæmt upplýs- ingum á vef Túrista. n Eineltisfórnarlamb segist loks hafa verið tekið sem jafningja innan glæpaheimsins n Einelti er áhættuþáttur þegar kemur að afbrotum og óreglu getur haft á fólk og ýmis úrræði séu til staðar fyrir fórnarlömb þess, eins og Stígamót. „Við vitum af Kvenna- athvarfinu sem skjóli fyrir nauð- staddar konur og börn. Það eru möguleikar fyrir einstaklinga sem hafa lent í erfiðri reynslu að vinna úr þessum aðstæðum og tilfinning- um. Við vitum einnig að kynferðis- brot og sifjaspell geta haft langvar- andi áhrif á þolendur. Hins vegar veit samfélagið minna um áhrif eineltis, hvað það getur haft mikil áhrif langt fram eftir aldri. Það er mikilvægt að fórnarlömb eineltis fái líka vettvang og eitthvert skjól til að vinna úr reynslu sinni.“ Samspil margra þátta Nú hefur fjöldi fólks átt erfiða æsku og lent í einelti án þess að fremja nokkurn tímann lögbrot. Helgi seg- ir að ekkert samasemmerki sé milli eineltis og afbrota. Það sem skilur á milli er að margir þolendur nái að vinna sig út úr þeirri reynslu með að- stoð nærumhverfisins eins og fjöl- skyldunnar. „Þetta er stór áhættu- þáttur, en það er ekki þannig að allir sem lagðir eru í einelti endi uppi sem alræmdir ofbeldismenn á Hrauninu, sambandið er ekki svona sterkt þarna á milli. Hins vegar getur eineltið orðið að fótakefli síðar á unglingsárum og jafnvel langt fram á fullorðinsár. Þetta er stór áhættuþáttur. Einelti og reynsla af því tagi ýtir undir áhættuna að einstaklingar verði ofbeldishneigð- ir eða lendi á braut áhættuhegðun- ar eða afbrota. Þetta er áhættuþáttur en ekki þar með sagt að sú verði endi- lega raunin. Það eru ekki rétt skila- boð að segja að sá sem lendir í einelti eða beitir því sjálfur muni enda sem síbrotamaður á Litla-Hrauni. Sam- bandið er ekki svona klippt og skorið. Þetta er samspil margra þátta og vægi hvers og eins mismunandi. Að beita eða vera lagður í einelti, margvíslegir fjölskyldu- og persónuleikaþættir, geta undir ákveðnum kringumstæð- um búið til snjóbolta sem menn ráða einfaldlega ekki við. En sem betur fer er það þó þannig að flestir einstak- lingar sem lagðir eru í einelti ná að vinna sig út úr því.“ n Börkur Birgisson er margdæmdur afbrotamaður. Hann er með marga dóma á bakinu og nær sakaferill hans aftur til ársins 1996 þegar hann réðst á konu í söluturni í Hafnarfirði og barði hana ítrekað í höfuðið. Hann var svo árið 2005 dæmdur í 7 og hálfs árs fangelsi fyrir að ráðast á mann með öxi á veitingastaðn- um A. Hansen í Hafnarfirði. Fólk sem þekkti Börk í æsku hefur sagt frá því að hann hafi verið lagður í einelti. „Honum leið alls ekki vel í skóla. Ég held hann hafi átt erfitt með nám. Og hann var til dæmis oft niðurlægður og lagður í einelti. Kannski var það þess vegna sem það gerðist að þegar hann fór að drekka braust út þessi magnaða reiði. Hann fór að venja komur sínar á veitingastað í Hafnarfirði sem unglingur og þegar hann var í glasi var hann oft ofbeldishneigður,“ segir sá sami sem þekkir Börk frá æskuslóðum hans í Hafnar- firði. Annar einstaklingur sem kynntist Berki eftir að hann komst á fullorðinsár segir að honum hafi verið tíðrætt um að hann hafi gengið illilega í skrokk á þeim sem höfðu lagt hann í einelti í æsku. Guðgeir Guðmundsson var á dögunum dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að hafa veist að Skúla Sigurz á lögfræðistofunni Lagastoð og stungið hann ítrekað og fyrir að hafa stungið Guðna Bergsson þegar hann reyndi að koma Skúla til bjargar. Guðgeir var með hreina sakaskrá og hafði aldrei gerst sekur um ofbeldisbrot né önnur brot. Í sálfræðimati Sigurðar Páls Páls- sonar, sem gert var á Guðgeiri vegna málsins, kemur fram að Guðgeir hafi verið lagður í einelti í æsku. Eineltið ásamt öðrum áföllum sem hann varð fyrir hafi mótað hugsunarhátt hans. Lífsviðhorf hans eru þannig að hann telur engum treystandi og heldur að fólk muni svíkja hann. Hann hefur lítið sjálfsmat og neikvæðan og þynglyndislegan hugsunarhátt. Hann bælir svo niður reiði og gremju þar til hann springur. Af sálfræðimatinu að dæma er Guðgeir mjög mótaður af eineltinu sem hann varð fyrir í æsku. Viðurkenndi hann að í aðstæðum þar sem hann teldi svínað á sér, komi hugsanir um ofbeldi upp í hugann. Helgi Gunnlaugsson segir Guðgeir vera gott dæmi um mann sem sé fastur í þessu viðhorfi og hafi ekki fengið þá hjálp sem hann hefði þurft til þess að vinna sig út úr eineltinu. „Hann hefur ekki fengið aðstoð eða umhverfið ekki almennilega áttað sig á því hvað var á ferðinni eða eitthvað slíkt. Það þarf að vinna með þessar tilfinningar, eins og vantraust og tortryggni.“ Réðst á mann með öxi Réðst á lögmann Börkur Birgisson Margdæmdur glæpamaður er fórnarlamb eineltis Guðgeir Guðmundsson Mótaður af upplif- un sinni af eineltinu sem hann varð fyrir í æsku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.