Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 27
É g er mjög spennt að sjá útkomuna. Þetta er mitt fyrsta alvöru sjónvarps- verkefni,“ segir Guðrún Dís Emilsdóttir, umsjóna- kona þáttarins Flikk - Flakk, nýs sjónvarpsþáttar sem hef- ur göngu sína í Ríkissjón- varpinu á fimmtudaginn. Í þættinum mun Gunna Dís, sem er þekktari sem útvarps- kona í morgunþættinum vin- sæla Virkum morgnum á Rás 2, flakka um landið og flikka upp á hafnarsvæði. Þórhallur Gunnarsson á hugmyndina en að sögn Gunnu Dísar er þátturinn ekki byggður á erlendri fyrir- mynd. „Einhverjir eiga ef- laust eftir að líkja þessu við Extreme Makeover: Home Edition. Og mér þá við Ty. En þetta er allt annars eðl- is. Hér er ekki verið að breyta einhverri íbúðarholu heldur heilu hafnarsvæð- unum á aðeins tveimur dögum. Þarna verður ekkert svona „move that bus og allir falla grátandi á hnén“ en ég vona svo sannarlega að það verði hlegið og að einhverj- ir upplifi smá vá-tilfinningu. Breytingin verður líka um- talsverð og það er magn- að að sjá bæjarbúa taka sig saman og hjálpast að með þetta. Er maður ekki alltaf veikur fyrir samtakamætti og því fallega í mannlegu eðli? Það er svo krúttlegt.“ Gunna Dís óttast ekki samanburð við sjónvarps- þætti Andra Freys, sam- starfsmanns síns úr Virkum morgnum. „Eflaust eiga ein- hverjir eftir að bera okkur saman og það er allt í lagi en það er algjörlega engin samkeppni okkar á milli. Við erum mjög samstíga í útvarpinu og styðjum við bakið á hvort öðru í okkar sjónvarpsþáttum. Það er ekki þannig að eins dauði sé annars brauð. Við sam- gleðjumst og hjálpumst að. Annars held ég að það að bera okkur saman sé eins og að bera saman epli og appelsínur.“ Gunna Dís verður minna í tiltektinni en meira í því að hitta skemmtilegt fólk. „Ég verð meira áhorfandi og hvet fólk áfram. Svo verð ég bara að gera það sem mig langar til að gera á þessum stöðum og lendi í ýmsum ævintýrum og hitti mikið af skemmti- legu fólki og dýrum.“ indiana@dv.is Fólk 27Miðvikudagur 4. júlí 2012 Langar að þekkja Kalla betur n Davíð Berndsen og Karl Berndsen eru frændur D avíð Berndsen er staddur í Belgíu þessa dagana og náði DV tali af honum. Þar er hann staddur nýrrar Bernd- sen-plötu sem hann er með í smíðum, en nóg að gera þessa dagana hjá honum: „Við erum nýbúin að klára plötuna hennar Þórunnar Antoníu en við sömdum öll lögin á henni saman.“ Davíð er búinn að vera á ferð og flugi en hann var fyrir stuttu í Berlín þar sem hann spilaði á tónleikum. „Ég er að vinna í nýju Berndsen-plötunni, Planet Earth, með Hermigervli en hann er „pródúserinn“ minn og við vinnum mikið saman,“ en Hermigervill er þekktur í íslenskum tón- listarheimi og hann heitir Sveinbjörn Thorarensen. Davíð býr um þessar mundir í Portúgal ásamt kærustu sinni en þau munu flytja til Hollands í nóvem- ber og segir Davíð að þau séu farin að leita sér að íbúð en það sé alls ekki hlaupið að því að fá húsnæði þar. „Ég er að fara í eins árs nám í Hollandi og Guð- rún, kærastan mín, ætlar að skoða það að fara í frekara nám og bara lifa lífinu.“ Davíð og Kalli Berndsen eru með sama eftirnafnið og hafa verið uppi vangaveltur um hvort þeir séu skyldir. Davíð staðfestir að þeir séu svo sannarlega frændur. „Ég vildi að ég þekkti hann bet- ur en ég hef bara hitt hann einu sinni á djamminu og þá spurði ég hann hvort ég þyrfti ekki að koma til hans í förðun og þá svaraði hann; „Ó nei, þú ert sko flottur“, og síðan hef ég ekki hitt hann aftur eftir það,“ segir Davíð Berndsen að lokum. kidda@dv.is Gunna Dís með sjónvarpsþátt Guðrún Dís Segir enga samkeppni á milli hennar og Andra Freys þegar kemur að sjónvarpsþáttum þeirra. n Útvarpskonan lætur reyna á samtakamátt og mannlegt eðli Gerir nýja plötu Berndsen er að gera plötuna Planet Earth með Hermigervli. Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 MMC MONTERO LTD Árgerð 2003, ekinn 113 Þ.km, 3,8l bens- ín, sjálfskiptur, leður. Verð 1.790.000 - TILBOÐ 1.190.000!!!. Raðnr. 284106 - Vertu snöggur á staðinn! FORD EXPLORER LTD 4X4 Árgerð 2006, ekinn 86 Þ.km, leður, sjálfskiptur, mjög gott eintak. Verð 2.790.000. Raðnr. 283890 - Jeppinn er á staðnum! DAEWOO MUSSO DIESEL SJÁLFSKIPTUR 09/2000, ekinn 204 Þ.km, nýupptekið heed, nýtt í bremsum, nýr vatnskassi, Í góðu standi og útiliti. Verð 590.000. Raðnr. 283688 - Á staðnum! MMC Pajero Sport GLS turbo. Árgerð 2007, ekinn 112 Þ.km, dísel, 5 gírar. Verð 2.490.000. Rnr.310103. TOYOTA Corolla w/g sol Árgerð 2005, ekinn 100 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 1.290.000. Rnr.310178. BMW M5 Árgerð 2000, ekinn 106 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 3.190.000. Rnr.250251. FORD F150 SUPER CAB HARLEY-DAVIDSSON 4WD Árgerð 2006, ekinn 76 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 3.330.000. Raðnr. 284091 - Pikkinn er á staðnum, klár í allt! FORD EXPEDITION EDDIE BAUER 4X4 V8 - 8 MANNA 10/2005, ek- inn 120 Þ.km, leður, sjálfskiptur. Mjög gott verð 2.390.000. Raðnr. 321878 - Jeppinn er á staðnum! CHRYSLER TOWN - COUNTRY LX Árgerð 2008, ekinn 46 Þ.km, sjálfskipt- ur, 7 manna Sto & go sætakerfi. Verð 2.980.000. Raðnr. 283847 - Bíllinn er á staðnum! Tek að mér Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-8704 eða á manninn@hotmail.com Funahöfða 1, 110 Reykjavík S. 567 4840 www.hofdahollin.is Flutningar Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti- vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur ,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690 FORD Explorer sport trac 4x4 premium. Árgerð 2007, ekinn 72 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 2.990.000. Rnr.270288. PEUGEOT 508 sw hdi 12/2011, ekinn 9 Þ.km, dísel, sjálfskipt- ur. Verð 4.990.000. Rnr.282035. NISSAN Navara 4wd double cab at le. Árgerð 2009, ekinn 63 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 3.990.000. Rnr.282096. Tilboð Hjólhýsi til sölu T.E.C. TRAVEL KING.460 T.D.F Hjólhýsi árg 2007 til sölu. Ýmsir aukahlutir, Markísur sólarsella fortjald verð 2,8 upplýsingar í síma 555-2659 eða 692-0011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.