Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Page 10
10 Fréttir 18. júlí 2012 Miðvikudagur
É
g varð strax rosalega hrifin af
honum,“ segir Úlfhildur Stef-
ánsdóttir, heimilismaður á Sól-
heimum, um þær tilfinningar
sem bærðust í brjósti hennar
þegar hún leit unnusta sinn, Magnús
Helga Vigfússon, augum í fyrsta sinn.
Hún segir framkvæmdastjóra Sól-
heima hafa, um leið og hann komst
að hrifningu Úlfhildar, spurt hana
hvort hún væri alveg viss um hvort
Magnús væri rétti maðurinn fyrir
hana. Þá segist hún hafa svarað um
hæl: „Ég skal hundur heita ef ég næli
ekki í þennan mann.“
Gerður brottrækur
Magnús Helgi hóf störf á Sólheim-
um árið 2005. Þau Úlfhildur felldu
hugi saman stuttu síðar og hann
flutti í kjölfarið inn í íbúð henn-
ar að Sólheimum. Árið 2006, á að-
fangadag, trúlofuðu þau sig og allt
virtist vera í blóma. Árið 2008 fór
svo að síga á ógæfuhliðina. Magnús
missti vinnuna á Sólheimum og fór
að upplifa sig sem „óvelkominn að-
skotahlut“. „Ég var augljóslega ekki
velkominn þarna. Þeir sögðu mér
að ég þyrfti að vinna fyrir þá – frítt –
eða fara eitthvað annað á daginn,“
segir Magnús sem segist hafa unnið
ókeypis fyrir Sólheima til ársins 2011.
Þá var hann gerður brottrækur vegna
verknaðar sem hann framdi í janúar
2011. Magnús komst þá yfir Olís-kort
í eigu Sólheima, tók það og notaði til
að taka bensín á eigin bíl. Samtals
tók hann bensín fyrir 125.000 krónur.
Auk þess að reka hann úr íbúð sinni
kærðu stjórnendur Sólheimar Magn-
ús, sem hlaut í kjölfarið tveggja ára
skilorðsbundinn fangelsisdóm og
sekt.
„Ég hafði átt í fjárhagserfiðleik-
um. Þú trúir ekki hvað ég sé mik-
ið eftir þessu; ég er miður mín. Ég
missti ekki bara ástina mína, held-
ur einnig marga bestu vini mína;
ég missti líf mitt!“ Segir Magnús
fullur iðrunar. Þann 27. septem-
ber 2011 var hann kallaður á fund
og, að eign sögn, sagt að hypja sig
á brott. Síðan þá hefur parið verið
aðskilið.
Á Sólheimum vegna óreglu
Úlfhildur fluttist á Sólheima árið
1997, þá tvítug, að skipun fóstur-
foreldra hennar. Hún hafði lengi átt
við áfengis- og vímuefnavandamál
að stríða. „Eftir tíunda bekk fór allt í
bál og brand; ég fór í undirheimana.
Ég sprautaði mig reyndar aldrei en
drakk mikið og dópaði,“ segir Úlf-
hildur sem greind er með væga
þroskahömlun. Magnús er, að sögn
systur Úlfhildar, á svipuðu andlegu
þroskastigi og Úlfhildur, en hefur
ekki verið greindur. Úlfhildur segist
hafa verið vansæl á Sólheimum frá
fyrsta degi, eða þar til hún kynntist
Magnúsi. „Maggi er mér allt,“ seg-
ir hún. Nú, þegar Magnús er ekki
lengur á Sólheimum, upplifir Úlf-
hildur sig sem fanga. Hún segir
að stjórnendur Sólheima hafi sett
ferðafrelsi hennar þröngar skorður.
„Ef ég má ekki hitta manninn minn
og má ekki fara af svæðinu, hvað má
ég þá?“
Vill flytja til Magnúsar
„Ég vildi náttúrulega helst flytja með
Magga þegar hann var rekinn burt,
en þar sem ég er hvorki með sjálfræði
né fjárræði þá gat ég það ekki. Þetta
er svo ósanngjarnt; við erum trúlof-
uð en ég má samt ekki fara með hon-
um.“ Fósturforeldrar Úlfhildar fara
með forræði yfir henni. Úlf hildur
segir þau vilja halda henni á Sól-
heimum hvað sem það kostar; jafn-
vel þótt það þýði að hún og ástmaður
hennar séu aðskilin. „Þetta stoppar
allt hjá þeim,“ segir Úlfhildur sem á
engan draum heitari en að flytja til
Magga á Selfoss, fyrst þau mega ekki
vera saman á Sólheimum.
„Það er ekkert að þér“
Viku áður en Magnúsi var gert að
flytja, lést systir Úlfhildar, og segir Úlf-
hildur að líf hennar hafi hrunið í kjöl-
farið. „Eftir að systir mín lét lífið og
Maggi er gerður brottrækur, þá fer ég
að hugsa; bíddu – hvað á ég eiginlega
að gera núna? Allt sem ég unni mest
er horfið úr lífi mínu.“ Í kjölfarið fór
Úlfhildi að líða illa. „Ég svaf mjög illa
á nóttunni og byrjaði að hafa áhyggj-
ur af öllu og engu,“ segir hún og kveðst
oftsinnis hafa talað við forsvarsmenn
Sólheima um að hana vantaði sár-
lega hjálp. „En ég fékk hana ekki!“
Úlfhildur segist hafa minnt starfs-
menn Sólheima ítrekað á það, að hún
þyrfti á sálfræðiaðstoð að halda en
þeir hafi gefið lítið fyrir þær óskir og
svarað: „Það er ekkert að þér.“
Reyndi að svipta sig lífi
„Ég vildi að foreldrar mínir og forsvars-
menn Sólheima myndu sjá hvað ég
elska þennan mann mikið. Ég myndi
fórna lífi mínu fyrir að fá að vera með
honum, þó það væri annars staðar en í
þessu jarðlífi,“ segi Úlfhildur sem í maí
síðastliðnum leið svo illa í eigin skinni
að hún ákvað að svipta sig lífi. „Ég tók
stóran skammt af pillum sem ég átti, í
von um að enda þetta.“ Hún var í kjöl-
farið flutt á bráðamóttökuna þar sem
lyfj unum var dælt upp úr henni og lífi
hennar þannig bjargað.
n Úlfhildi og Magnúsi meinað að vera saman á Sólheimum n Bæði miður sín n Hún reyndi að svipta sig lífi
Trúlofað par
sliti í su dur
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
„Ég missi ekki bara
ástina mína, held-
ur einnig marga bestu vini
mína.
Forboðin ást Magnús og
Úlfhildur eru trúlofuð en fá
ekki að vera saman.
Mynd Jónatan GRétaRSSon
Varð strax hrifin Magnús og Úlfhildur trúlofuðu sig á aðfangadag árið 2006. Árið 2008
fór að síga á ógæfuhliðina en þá missti Magnús vinnuna á Sólheimum.