Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 11
Fréttir 11Miðvikudagur 18. júlí 2012
n Úlfhildi og Magnúsi meinað að vera saman á Sólheimum n Bæði miður sín n Hún reyndi að svipta sig lífi
Trúlofað par
sliti í su dur
Eftir þann atburð tóku forsvars
menn Sólheima, í félagi við fóstur
foreldra Úlfhildar, ákvörðun um
að banna parinu alfarið að hittast
að sögn Úlfhildar. „Það varð al
ger sundrung eftir þetta,“ segir
Magnús en parið var að hittast í
fyrsta skipti eftir atburðinn. „Þegar
ég hitti Magga á föstudaginn (13.
júlí: innskot blaðamanns) hafði
ég ekki séð hann síðan í maí,“ seg
ir Úlfhildur sem þurfti að fara aftur
á Sólheima síðastliðinn sunnudag.
Hafnaði tilboðinu
Magnús segir að fyrir mánuði
síðan hafi framkvæmdastjóri
Sólheima, Guðmundur Ár
mann Pétursson, boðið hon
um til fundar við sig á kaffihúsi
á Selfossi. Segir Magnús að þar
hafi Guðmundur reynt að gera
við hann samkomulag þess efn
is að Sólheimar myndu fella nið
ur bensínskuldina gegn því að
hann sliti öllum samskiptum við
Úlfhildi. „Hann hélt að samband
okkar Úlfhildar væri ekki meira
virði en 125 þúsund kall,“ seg
ir Magnús sem datt ekki í hug að
gangast að tilboðinu. Honum hef
ur einnig liðið skelfilega eftir að
skilnaðinn. „Líf mitt er ein rjúk
andi rúst; ég hef ekkert fyrir stafni.
Ég geri ekkert annað en að vera í
tölvunni – búið.“ Úlfhildur tekur í
sama streng. „Ég mæti í vinnuna
og fer svo heim til mín og hef ekk
ert að gera. Svo fer ég að sofa.“
„Mælirinn fullur“
Þegar Úlfhildur komst að því, að
Guðmundur hefði boðið Magn
úsi ofangreindan samning varð
hún öskureið. „Þá varð mælirinn
fullur,“ segir Úlfhildur sem ákvað, í
samráði við unnusta sinn, að fara
með sögu sína í fjölmiðla með það
að markmiði að færa óréttlætið í
dagsljósið. Óvíst er, hvort þau fái
að hittast á ný.
„Þetta er ekki þitt mál – held ég,“
segir Guðrún Jóna Kristjánsdóttir,
forstöðumaður heimilissviðs Sól
heima, í samtali við DV og bætir
við: „Ég veit ekki hvers vegna þið
eruð að taka þetta upp.“ Aðspurð
hvort eðlilegt hafi verið, að bjóða
Magnúsi að fella niður skuld hans
gegn því að hann sliti tengslum við
unnustu sína sagði Guðrún: „Ég
ætla ekkert að tjá mig neitt. Þið
takið alltaf upp svona mál.“
Ekki náðist í Guðmund Ármann
Pétursson, framkvæmdastjóra Sól
heima, við vinnslu fréttarinnar
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. n
„Þetta er svo
ósanngjarnt; við
erum trúlofuð en ég
má samt ekki vera með
honum.
Stjórnendur Ein mikilvæg
forsenda þess að fyrirtæki hljóti
skuldaaðlögun er sú að stjórnendur
fyrirtækisins séu mikilvægir rekstri
þess. Þegar Davíð Oddsson tók
við ritstjórn tapaði Morgunblaðið
11.000 áskrifendum.
n Afskrifaði að lágmarki 664 milljónir af skuldum Árvakurs
Í
slandsbanki virðist ekki hafa far
ið að settum viðmiðum í meðferð
sinni á Árvaki, sem er útgáfufélag
Morgunblaðsins. Árvakur hefur
lækkað skuldir sínar við Íslands
banka um tæpan milljarð frá árinu
2010. Með varkárri lesningu á nýút
gefnum ársreikningi félagsins fyrir
árið 2011 má lesa hvar tæpar 665
milljónir voru afskrifaðar af skuldum
Morgunblaðsins. Þetta hefur vakið
upp spurningar og hafa sumir haldið
því fram að útgáfufélagið hafi hlotið
sérmeðferð hjá bankanum.
Segist hafa farið að viðmiðum
Inntur eftir svörum segir Íslands
banki, lánardrottinn Árvakurs, að
mál Morgunblaðsins hafi verið af
greidd samkvæmt almennum
vinnuramma, sem taki mið af Beinu
brautinni svokölluðu. Beina braut
in er eitt þeirra úrræða sem Íslands
banki býður fyrirtækjum við fjár
hagslega endurskipulagningu og
kemur til viðbótar hefðbundnum
úrræðum. Við nánari eftirgrennslan
virðist þó sem bankinn hafi ekki far
ið eftir eigin viðmiðum í málinu, ef
marka má þau viðmið sem birt eru á
vefsvæði bankans.
Skuldir of háar
Samkvæmt lykilforsendum skulda
aðlögunar hjá Íslandsbanka má
skuld fyrirtækisins ekki vera of há. Í
upplýsingum sem fengust hjá bank
anum um Beinu brautina og skulda
aðlögun kemur fram að Beina braut
in sé fyrst og fremst fyrir lítil eða
meðalstór fyrirtæki með skuldir
undir einum milljarði. Skuldir Ár
vakurs á árinu 2010, fyrir seinni af
skrift, voru rúmlega 1.633 milljónir.
Þetta brýtur í bága við viðmið bank
ans.
Árið 2011 voru skuldir bankans
rúmlega 634 milljónir. Með því að
taka inn í reikninginn afborganir af
lánum sést hvar 994 milljónir af lán
um Morgunblaðsins hafa horfið. Á
móti er gert ráð fyrir 335 milljóna
hækkun á afborgunum árið 2012,
sem ætla má að hafi verið skilyrði fyr
ir afskriftinni. Hrein afskrift er því lík
lega rúmlega 664 milljónir.
Afskriftin of há
Samkvæmt viðmiðum Beinu
brautarinnar er hægt að fá
tímabundna ívilnun skulda. Skilyrði
gegn því að fá slíka niðurfellingu er
að nýtt hlutafé komi inn í fyrirtækið
og fyrirtæki getur ekki fengið slíka
ívilnun oftar en einu sinni. Umfang
niðurfellingarinnar fer eftir magni
hins nýja hlutafjár og eftir því hversu
lengi ívilnunin verður í gildi.
Samkvæmt viðmiðum bankans
sem birt eru á vefsíðu hans er stærsta
ívilnunin sú sem er yfir sem stystan
tíma, til allt að sex mánaða. Hún get
ur verið allt að helmingi þess nýja
hlutafjár sem fært er inn í fyrirtækið.
Hlutafjáraukningin í Árvakri árið
2011 hljóðaði upp á 500 milljónir og
kom hún frá móðurfélagi Árvakurs.
Samkvæmt þeim tölum átti félagið
rétt á 250 milljóna króna ívilnun til
hálfs árs. Samkvæmt varkárri lesn
ingu ársreiknings hins vegar, er af
skriftin 664 milljónir. Það virðist þá
sem svo að tekið hafi verið mið af öllu
hlutafé félagsins frá upphafi, sem er
1.221 milljón, en það er eina talan
sem að kemur heim og saman við
hina raunverulegu afskrift. Afskrift
sem nemur helmingi alls hlutafjár
frá upphafi myndi nema rúmum 610
milljónum.
Rekstur sé metinn lífvænlegur
Ein lykilforsenda þess að fá skulda
aðlögun hjá Íslandsbanka er sú að
rekstur fyrirtækisins sé metinn líf
vænlegur að lokinni endurskipulagn
ingu. Ekki verður lagt mat á það hvort
rekstur Árvakurs sé lífvænlegur en
ljóst er að fyrirtækið hefur verið rek
ið með hundruða milljóna tapi – árið
2011 með 205 milljóna tapi – og það
var eftir miklar hagræðingar. Útgáfu
dögum blaðsins var ekki fækkað að
ráði á milli 2010 og 2011 og starfs
mannafjöldi var skertur einungis
óverulega.
Björn Valur Gíslason alþingis
maður varpaði fram þeirri spurn
ingu við DV hvort bankinn gerði
kröfu um hagræðingu í rekstri. „Það
er spurning hvort einstaklingar fái
sömu meðferð og hvort einhverjar
almennilegar kröfur hafi verið gerðar
um endurskipulagningu rekstursins.
Gerir til dæmis bankinn aldrei kröfu
um það að lélegir stjórnendur – eins
og hlýtur að vera í þessu tilviki – víki?“
sagði hann við blaðamann. Forsend
an er að reksturinn sé lífvænlegur,
en engar mannabreytingar hafa ver
ið gerðar, hvorki við fyrstu afskrift né
við aðra.
Stjórnendur séu mikilvægir
fyrir framtíðarrekstur
Önnur forsenda fyrir skulda
aðlögun er sú að stjórnendur
fyrir tækisins séu mikilvægir fyrir
rekstur þess. Líkt og áður segir var
félagið rekið með miklu tapi og
þegar núverandi ritstjórn tók við
sögðu um ellefu þúsund áskrif
endur upp áskrift að blaðinu. Tek
ist hefur að stemma lítillega stigu
við stórfelldu tapi en reksturinn er
ekki enn kominn á réttan kjöl. Það
er því opin spurning hvort núver
andi stjórnendur Árvakurs séu með
ritstjórnarstefnu sinni mikilvægir
fyrir framtíð blaðsins. Þar að auki er
hugtakið „mikilvægt“ opið til túlk
unar og í því er óneitanlega falið
ákveðið huglægt mat þeirra sem að
málinu koma.
Stærsta lánið vegna
prentsmiðju
Stærsta lán Árvakurs er tilkomið
vegna hátæknilegrar prentsmiðju
í Hádegismóum. Það hljóðaði upp
á nærri 2,8 milljarða króna, en það
var veitt með veði í prentsmiðjunni
sjálfri. Þess má geta að sala á fyrr
verandi höfuðstöðvum Morgun
blaðsins hljóðaði upp á 2,1 millj
arð. Það er því augljóst að hér er
um gríðarstóra fjárfestingu að ræða.
Afskriftin gefur félaginu drjúgan
afslátt af umræddu láni og er að
minnsta kosti ekki hamlandi fyrir fé
lagið á samkeppnismarkaði. Önnur
lán Árvakurs hjá Íslandsbanka voru
fjárfestinga og rekstrarlán, samtals
upp á tæpar 800 milljónir, sem veitt
voru af Glitni, sem síðar varð Ís
landsbanki. n
Lánasamsetning Árvakurs hf.
árið 2009, fyrir allar afskriftir
Lánveitandi Fjárhæð
Lán vegna prentsmiðju Glitnir (Íslandsbanki) 2.760 millj. veðlán
Önnur veðlán Glitnir (Íslandsbanki) 444 millj. veðlán
Fjárfestinga- og
rekstrarlán Glitnir (Íslandsbanki) 332 millj. óveðtryggt*
Fjárfestinga- og
rekstrarlán Landsbankinn 897 millj. óveðtryggt*
Samtals: 4.433 millj.
*Með Með ábyRgð eignARHAldSfélAgA HlutHAfA
n Af þessum tæplega 4,5 milljarða skuldum
hafa að minnsta kosti 3,4 verið afskrifaðir.
Svör Íslandsbanka vegna árvakurs:
Afskriftir einstaklinga algengari
Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, svaraði fyrirspurn blaða-
manns um mál Árvakurs: „Bankinn er lögum samkvæmt bundinn trúnaði um málefni
viðskiptavina sinna og getur því ekki tjáð sig um málið að öðru leyti en þessu.
Reglur um skuldaaðlögun útiloka ekki að þeim sé beitt í fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu fyrirtækja með heildarskuldir yfir 1 milljarð króna og eru fjölmörg dæmi um að slíkt
hafi verið gert. Bankinn hefur það að leiðarljósi að hámarka endurheimtur sínar eins og
kemur fram í sameiginlegum verklagsreglum fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endur-
skipulagningu fyrirtækja og eru þá bornir saman mismundi valkostir sem bankinn stend-
ur frammi fyrir við skuldauppgjör fyrirtækja og sú leið valin sem metin er hagkvæmust
að teknu tilliti til svo sem byggðarsjónarmiða. Að auki fylgir bankinn almennum lögum
svo sem samkeppnislögum við úrvinnslu í skuldamálum fyrirtækja og er undir eftirliti
sérstakrar eftirlitsnefndar Alþingis.
Íslandsbanki hefur birt tölur um afskriftir og leiðréttingar á skuldum bæði einstaklinga
og fyrirtækja í árshlutauppgjörum sínum. Á fyrsta fjórðungi ársins höfðu um 18.200
einstaklingar og um 3.000 fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á
skuldum frá stofnun bankans sem nemur um 370 milljörðum króna. Í kafla um fjárhags-
lega endurskipulagningu í áhættuskýrslu bankans kemur fram að eftirgjafir sem ekki
tengjast gjaldþrotum nema um 17 prósent af upphaflega lánasafninu fyrir fyrirtæki en
26 prósent fyrir einstaklinga.“
Viðmiðin sVeigð
Vegna ÁrVakurs
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is