Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn Í slendingar mega enn sem komið er vera þakklátir fyrir það hvernig hefur gengið að komast út úr brim- skafli bankahrunsins. Örlagadís- irnar hafa hagað málum þannig að atvinnuleysi er á undanhaldi og flestir mælikvarðar á hag þjóðarinn- ar eru jákvæðir. Þetta er að hluta til ríkisstjórninni að þakka þótt öðrum þræði hafi ytri aðstæður svo sem vel- gengni í viðskiptum við aðrar þjóðir skipt miklu. Það er innantómur áróður að halda því fram að efnahagsbatinn hér hafi átt sér stað þrátt fyrir ríkisstjórn- ina. Lýðskrumarar vilja ekki í neinu þakka ríkisstjórninni. Það er óboð- legur málflutningur. Það kann rétt að vera að batinn hafi verið hægari en efni stóðu til vegna þess að rík- isstjórnin hefur verið löskuð af inn- byrðis átökum. Það kemur skýrt fram í örlögum kvótamálanna þar sem hin boðaða bylting endaði í hálfgerðu yfirklóri og vandræðagangi. Og það kemur fram í vandræðaganginum í kringum stjórnlagaþing og boðað- ar lýðræðisumbætur þess. Af ein- hverjum stórundarlegum ástæðum er nú óvíst að þjóðin fái að kveða upp sinn dóm yfir breytingum á stjórnar- skrá. Það kemur einnig fram í því að skjaldborgin um fjárhag einstaklinga varð aldrei fugl né fiskur. Þess í stað nutu skuldakóngar fyrirtækjanna sérstakrar velvildar eins og sjá má af niðurfellingum á milljarðaskuld- um. Og það kemur fram í stöðugum núningi vegna aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. En þótt stjórnin hafi undanfarin ár skakklappast áfram þá eru teiknin góð. Það er sama hvar í flokki menn standa. Þeir verða að viðurkenna það sem vel er gert. Og það leikur enginn vafi á því að það er bjart yfir efnahag Íslands þessa dagana. Það má síð- an velta upp ástæðum þess að svo er komið. Hugsanlega skipti þar sköp- um að ríkisstjórnin fylgdi fyrirmæl- um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og tókst þannig að vinna sig út úr vonlítilli stöðu. En þrátt fyrir hin björtu teikn hag- vísanna eru dökk ský úti við sjón- deildarhringinn. Enginn veit hvern- ig deilunni um Icesave lyktar fyrir dómstólum. Þar gæti í versta falli ver- ið framundan gríðarlegt efnahagslegt áfall. Fari svo er ekki hægt að kenna ríkisstjórninni um. Það voru aðrir sem snéru þjóðarskútunni frá samn- ingaleiðinni og inn í dómsal. Þau mál skýrast í haust. Einnig er óljóst hvern- ig við ætlum að losa um gjaldeyris- höftin án þess að verða fyrir stórskaða. En hvað sem öðru líður væri ósann- gjarnt að þakka ekki þeim sem voru við stjórn þann ávinning sem hefur náðst í efnahagsmálum við illbæri- legar aðstæður. Jójó Davíðs n Staksteinar og leiðarar Morgunblaðsins hafa þótt á köflum illyrtir og skrifaður af mönnum sem vart vita sitt rjúkandi ráð. Davíð Oddsson rit- stjóri er al- mennt talinn höfund- ur þegar aursletturnar eru mestar. Á dögunum dylgjaði Davíð um Steingrím J. Sigfús- son og gaf til kynna að allir vissu hvað joðið í millinafni hans þýddi. Skildu einhverj- ir að þar væri um að ræða Júdas. Nú hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson, pró- fessor og húmoristi, bent á það að Davíð hafi meint Jójó! Þorgeir sólar- megin n Þorgeir Baldursson, að- aleigandi prentsmiðjunn- ar Odda, er svo sannarlega sólarmegin í viðskipta- lífinu. Fyr- irtæki hans var í mikl- um ógöng- um þegar bankar komu til hjálpar með gríðarlegum afskriftum. Milljarðar hurfu yfir peningamóðuna miklu. Og nú eru Þorgeir og félagar á fullu í fjárfestingum að nýju og voru síðast að kaupa upp fyrirtækið Plastprent. Ráðherrann og Karl n Ögmundur Jónasson inn- anríkisráðherra er einhver kjarkmesti stjórnmálamað- ur Íslands. Ráðherrann hefur aldrei farið troðn- ar slóðir eins sjá má af samskipta- sögu hans við Steingrím J. Sigfússon. Nú síðast kom ráðherrann flestum á óvart þegar hann gerði Karl Sigurbjörnsson, burthrakinn biskup, að sér- stökum skjólstæðingi sín- um. Ögmundur hélt honum kveðjuhóf og mærði hann fyrir árangur í starfi. Met- flótti var úr Þjóðkirkjunni á valdatíma Karls sem þótti einstaklega gleyminn og klaufskur í starfi. Áfallahjálp Óla n Siðfræðingurinn og verka- lýðsformaðurinn Stefán Ein- ar Stefánsson særði blogg- ritstjórann harðskeytta, Ólaf Arnarson, djúpt þegar hann tók ekki undir kveðju hans í snobbsam- sæti á Hótel Sögu og gekk frá borði sínu. Þetta varð til þess að Ólafur skrifaði grátbólgna grein á vefsíðu sína, timarim.is, þar sem hann bar leiðindi sín á torg og lagði til reiðistjórnunar- námskeið fyrir formanninn. Sjálfur virtist hann þurfa áfallahjálp. Með lausnir á öllu Góðan daginn Reykjavík … Russell Crowe þegar hann vaknaði í Reykjavík. – Twitter Hin björtu teikn „Lýðskrumarar vilja ekki í neinu þakka ríkisstjórninni F ramundan er þjóðaratkvæða- greiðsla um nýja stjórnarskrá. Og þó. Tillaga þingsins um að kos- ið verði eigi síðar en 20. október í haust kann að vera ónóg því hún til- tekur ekki nákvæmlega kjördag. Hann þarf að ákveða með þriggja mánaða fyrirvara og frestur til þess rennur út í vikunni. Óvissa er um hver skuli sjá um þá tilkynningu, þingið, forseti þess eða ráðherra. Þannig er málið hugsan- lega í uppnámi. Þessi staða afhjúpar tvennt. Annars vegar handvömm Al- þingis, hins vegar eineltistilburði í garð nýrrar stjórnarskrár. Leggjast gegn lýðræðisumbótum Sú ákvörðun stjórnarmeirihlutans að færa þjóðinni nýja stjórnarskrá og halda verkferlinu utan þings var lof- orð, tilkomið í andrúmslofti banka- hrunsins. Nú, þegar rykið er sest, skeyta stjórnmálamenn minna um þann frelsisanda sem bærist með þjóðinni. Rætur þeirra eru innan kerfisins, ekki utan þess. Stjórnar- andstaðan, að Hreyfingunni undan- skilinni, hefur lagst gegn öllum lýð- ræðisumbótum og bíður þess eins að taka landið aftur kverkataki. Of margir stjórnarliðar eru samdauna andstöð- unni. Samkvæmt skoðanakönnunum eru miklar líkur á jákvæðni þjóðar- innar gagnvart nýrri stjórnarskrá stjórnlagaráðs en meðan það liggur ekki fyrir í þjóðarkosningu er enginn skuldbundinn. Einmitt sú staða hugnast Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki og víst, að komist þeir til valda muni ný stjórnarskrá ekki líta dagsins ljós. Hin raunverulega þrískipting valds Fylking sú sem andæfir nýrri stjórn- arskrá stjórnast af þeim hagsmunum sem una sér best við óbreytt ástand. Tengslin blasa við. Afdankaðar gam- alær stjórnmálanna sitja í arfabeði bankanna og gera það í skjóli ára- langrar meðvirkni. Sú meðvirkni hef- ur beinst að fjármagnseigendum, ekki síst þeim sem lagt hafa eignarhald sitt á fiskimiðin með dyggri aðstoð löggjafans. Enda beinast afskrift- ir bankanna að fjármagnseigendum en ekki almenningi. Þessi hringekja tryggir alþingismönnum endurkjör, útgerðinni arðinn og bönkunum um- sýsluna. Framangreint samspil hefur um árabil fært fjármagnseigendum lykil- stöðu í hendur. Engar þjóðfélagsum- bætur eru hér gerðar í trássi við þá. Þeir manna þingið og þingið mannar bankana. Þetta er hin raunverulega þrískipting valds á Íslandi. Ný stjórn- arskrá umbyltir þessu. Loforð þings- ins um þjóðaratkvæðagreiðslu í haust skal því standa. Einelti í garð nýrrar stjórnarskrár Kjallari Lýður Árnason Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 18. júlí 2012 Miðvikudagur Johnny Naz ætlar að leysa vandamál Íslendinga. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.