Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 15
R æstingafólk sem ráðið hef­ ur verið til starfa fyrir Ólympíuleikana í Lundún­ um kvartar sáran undan að­ búnaði sínum. Búið er að koma upp afgirtri gámaþyrpingu þar sem fólkið mun búa meðan á leikun­ um stendur. Þarf fólk að sætta sig við að vera í gámi með allt að tíu öðrum einstaklingum. Þá hefur það verið gagnrýnt harðlega að aðeins eitt kló­ sett er fyrir hverja tuttugu og fimm starfsmenn og ein sturta fyrir hverja sjötíu og fimm. Gámarnir virðast einnig vera illa samsettir, ef marka má umfjöllun The Daily Mail, því í rigningum sem verið hafa undan­ farna daga hafa þeir míglekið. Hætti við „Ég trúði ekki eigin augum,“ seg­ ir Andrea Murnoz, 21 árs stúlka frá Madrid á Spáni, um það þegar hún kom fyrst á svæðið fyrir skömmu. Hún ætlaði að sækja um vinnu við þrif á á leikunum og kom til Bret­ lands gagngert til þess líkt og margir aðrir. Í umfjöllun The Daily Mail kemur fram að margir hafi ákveðið að afþakka störfin þegar þeir sáu að­ búnaðinn á svæðinu og snúið aft­ ur til heimalands síns. Þeir hafi ekki verið tilbúnir að eyða tíma sínum við þessar aðstæður og ekki verið til­ búnir til að greiða átján pund, eða 3.600 krónur, í leigu fyrir hvern dag á gámasvæðinu. Skítug klósett „Þegar ég sá þessi stóru stálhlið og þennan háa turn á miðju svæðinu þá fór ég ósjálfrátt að hugsa um fanga­ búðir,“ segir Andrea sem kom til Bret­ lands með tveimur vinum sínum. Vinir hennar fengu vinnu við þrif á leikun­ um en sjálf ákvað hún að sækja ekki um þegar hún sá aðstæðurnar sem fólkið bjó við. „Ég íhugaði að sækja um en ég hætti við. Vinir mínir fengu vinnu en ég held að þeir sjái eftir því núna,“ segir hún. Í umfjöllun blaðsins er tekið fram að þeir sem skrifi und­ ir samning við fyrirtækin sem sjá um ræstingar séu bundnir þagnarskyldu. Þá megi þeir ekki fá heimsóknir á gámasvæðin af öryggisástæðum. Þrátt fyrir að starfsmenn megi ekki tjá sig við fjölmiðla náði blaðið tali af ungum manni frá Ungverja­ landi sem fékk vinnu á svæðinu. Hann segir að aðstæður á gáma­ svæðinu séu slæmar en þar sem hann átti ekki í nein önnur hús að venda hafi hann ákveðið að slá til. „Þetta er eins og í fátækrahverfi,“ seg­ ir maðurinn sem er 24 ára. „Klósettin eru skítug og það er mjög lítið pláss hérna,“ bætir hann við. Ekki fangabúðir Það er fyrirtækið Spotless Inter­ national Services sem hefur umsjón með svæðinu og vísar talsmaður þess, Craig Lovett, gagnrýnisrödd­ um á bug. Hann segir að aðbúnað­ ur á svæðinu sé samkvæmt lögum og reglum og vísar því á bug að ekki sé nóg af sturtum og klósettum fyr­ ir starfsfólk. Þá sé boðið upp á af­ þreyingu fyrir starfsfólk á kvöldin og þeir hafi aðgang að interneti og heilbrigðisþjónustu. Þá komi starfs­ fólkið til með að vinna á vöktum og það muni létta á álaginu. „Þetta eru ekki fangabúðir og það er enginn neyddur til að vera hérna. Margt af okkar starfsfólki kemur frá svæð­ um þar sem atvinnuleysi er mikið og er mjög ánægt með að fá vinnu á Ólympíuleikunum. Auðvitað verða alltaf einhverjir óánægðir,“ segir hann. Hann viðurkennir að rigning hafi sett strik í reikninginn og viður­ kennir að sumir gámar hafi lekið. Fyrirtækið sé að vinna í því að leysa þau mál og vonast hann til þess að allir íbúar gámaþyrpingarinnar verði ánægðir. Færri morð eftir vopnahlé n Morðum fækkað um rúmlega helming á örfáum mánuðum E llefu morð voru framin á degi hverjum í El Salvador árið 2011 en undanfarna fjóra mánuði hefur þeim fækkað niður í fimm að meðaltali. Lög­ regluyfirvöld í El Salvador rekja þessa fækkun til vopnahlés sem tvö stærstu gengi landsins, Calle 18 og Mara Salvatrucha, sömdu um í mars síðastliðnum. Vopna­ hléð var fljótt að skila sér því þann 14. apríl síðastliðinn var ekkert morð framið í landinu. Það hafði ekki gerst í þrjú ár. „Við erum ekki að afvopnast. Við verðum alltaf krimmar. Við höfum gengið í gegnum hluti sem hafa breytt okkur. Morð eru sóun á mannslífum,“ segir Victor Garcia, 39 ára meðlimur Calle 18­gengis­ ins, í samtali við Reuters. Garcia situr nú í fangelsi þar sem hann af­ plánar tuttugu og átta ára dóm fyr­ ir morð. Glæpagengjunum Calle 18 og Mara Salvatrucha, einnig þekkt sem MS13, er að stórum hluta stjórnað úr fangelsum landsins af hátt settum meðlimum. Meðlim­ ir samtakanna hafa lengi eldað grátt silfur saman og barist um yf­ irráð á svæðum í El Salvador sem svo skapa þeim tekjur með fíkni­ efnasölu og viðskiptum með þýfi. Til að sanna gildi sitt þurfa með­ limir oft að fremja ódæðisverk – svo sem morð – á meðlimum annarra samtaka. Vopnahléið milli þessa stóru glæpagengja sem teygja anga sína víða um heim hefur vakið talsverða athygli. Þannig voru 30 meðlim­ ir samtakanna færðir úr öryggis­ fangelsum yfir í fangelsi þar sem meira frjálsræði ríkir skömmu eftir að tilkynnt var um vopnahléið. Þar njóta þeir ýmissa forréttinda og fá til að mynda heimsóknir frá fjöl­ skyldum sínum. Mauricio Funes, forseti El Salvador, þvertekur hins vegar fyrir að samningar hafi verið gerðir við gengin. Erlent 15Miðvikudagur 18. júlí 2012 Sóun á mannslífum Victor Garcia er meðlimur í Calle 18-genginu sem samdi um vopnahlé við erkióvin sinn, Mara Salvatrucha. Snákur á klósettinu Tuttugu og átta ára konu frá Sviss, Aniku Bauer, brá í brún þegar hún kom auga á snák á baðherbergi sínu á dögunum. Í ljós kom að snákurinn, 70 sentímetra langur, hafði sloppið frá nágranna henn­ ar á hæðinni fyrir ofan. Henni var ennþá meira brugðið þegar hún komst að því að snákurinn hafði sloppið í ársbyrjun og því allar lík­ ur á að hann hafi haldið til á heim­ ili hennar undanfarna sjö mánuði. Bauer er búsett í Allschwil í Sviss og var meindýraeyðir fenginn til að fjarlægja snákinn. Mein­ dýraeyðirinn sýndi honum misk­ unn og sleppti honum út í skógi. Mubarak í grjótið Saksóknarar í Egyptalandi hafa krafist þess að Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti landsins, verði fluttur af sjúkrahúsi og í fangelsi. Mubarak var dæmdur í lífstíðar­ fangelsi á dögunum vegna dauða fólks í mótmælunum sem geisuðu í landinu á síðasta ári. Heilsu hans hrakaði mjög eftir að dómurinn var kveðinn upp og var jafnvel talið að hann væri við dauðans dyr. Heilsa hans hefur hins vegar batnað töluvert undanfarna daga og telja saksóknarar að heilsa hans sé nógu góð til að hann geti hafið afplánun. Karlar í flest ný störf Karlar fylla átta af hverjum tíu nýjum störfum sem orðið hafa til í Bandaríkjunum frá því í júní­ mánuði 2009. Þetta kemur fram í umfjöllun bandaríska blaðsins The Los Angeles Times. Þar kem­ ur fram að 2,9 milljónir starfa hafi orðið til eftir að efnahagsniður­ sveiflunni lauk sumarið 2009. Skýringin á þessu er að hluta til sú að mörg ný störf hafa skapast í iðnaði þar sem karlar hafa ver­ ið – og eru – fyrirferðarmeiri en konur. Þá misstu einnig fleiri karl­ ar en konur vinnuna þegar efna­ hagslægðin var hvað dýpst. n Aðbúnaður ræstingafólks á Ólympíuleikunum harðlega gagnrýndur 75 manns deila sömu sturtunni „Klósettin eru skítug og það er mjög lítið pláss hérna. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Sofið í kojum Starfsfólk hefur kvartað undan plássleysi en eins og sést hér sefur starfs- fólk í kojum og deilir gámum með allt að tíu öðrum. Þétt byggð Mikið hefur rignt í Lundúnum að undanförnu og hefur það sett strik í reikninginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.