Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Qupperneq 20
Tengsl
snyrtivara og
sykursýki
Efni sem notuð eru í algengar
snyrtivörur sem konur nota dag-
lega geta hugsanlega aukið líkur á
sykursýki, ef marka má niðurstöð-
ur nýrrar rannsóknar. Vísinda-
menn við háskólann í Uppsöl-
um í Svíþjóð hafa varað við því að
ákveðin efni sem notuð eru bæði
í plast- og snyrtivörur til að auka
sveigjanleika og gagnsæi, geti ver-
ið hættuleg.
Sænskir vísindamenn telja að
sé efnið notað í snyrtivörur, líkt og
brúnkukrem, andlitskrem og ilm-
vötn geti það aukið líkur á sykur-
sýki 2 svo um munar. Rannsóknin
tók til þúsund 65 ára einstaklinga
og var fylgst með blóðsykrinum
hjá þeim á fastandi maga.
Aðrir áhættuþættir sykursýki 2,
líkt og reykingar, magn kólesteróls
í blóði og hár blóðþrýstingur voru
teknir inn í myndina.
Skerðu matinn
niður
Menn njóta matar betur ef hann
er skorinn niður í bita. Að þessu
hafa vísindamenn við Arizona-
ríkisháskólann komist að. Sam-
kvæmt niðurstöðum rannsóknar
þá virðist matur skorinn niður í
hentuga stærð sem auðvelt er að
stinga upp í sig einnig virka meiri
um sig og veita meiri magafylli en
matur sem framreiddur er í heilu
lagi. Það skiptir engu máli hvort
máltíðirnar eru jafn stórar og inni-
haldi jafn margar hitaeiningar.
Rannsóknin fór þannig fram
að 301 háskólanema voru gefn-
ar beyglur sem annaðhvort höfðu
verið skornar niður eða voru í
heilu lagi. Tuttugu mínútum eft-
ir að nemarnir höfðu borðað
beyglurnar var þeim boðið upp
á fría máltíð. Til að komast að
niðurstöðum rannsökuðu vísinda-
mennirnir hve mikið var eftir af
beyglunum og hve mikið nemarn-
ir borðuðu af fríu máltíðinni sem
þeir fengu síðar.
Ekki sofa
of mikið
Of mikill eða of lítill svefn get-
ur valdið andlegri hnignun
hjá eldri konum og jafnvel ýtt
undir Alzheimers-sjúkdóminn
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar vísindamanna við
Brigham and Women‘s-sjúkra-
húsið í Boston. Fimmtán þús-
und konur, sjötíu ára og eldri,
tóku þátt í rannsókninni. Hún
leiddi í ljós að þær konur sem
sváfu í fimm klukkutíma eða
minna komu verr út úr sálræn-
um og andlegum prófum en
þær sem sváfu í sjö klukkutíma
á nóttu.
Það virðist hins vegar vera
jafn slæmt að sofa of mikið
því þær konur sem sváfu í níu
klukkutíma eða meira á nótt-
unni komu einnig illa út úr
prófunum. Sjö tíma nætursvefn
virðist því vera hinn hæfilegi
meðalvegur.
Kúra saman í
gegnum sKype
É
g hefði aldrei haldið að ég gæti
orðið ástfangin af manni sem ég
hef aldrei hitt en svo er það bara
hægt greinilega,“ segir hin nýtrú-
lofaða Helena Björk Þrastardótt-
ir alveg í skýjunum. Samband Helenu
og unnusta hennar, hins bandaríska
Augustine Bernard Quillia, er heldur
óvenjulegt þar sem þau hafa aldrei hist
í eigin persónu þrátt fyrir að hafa ver-
ið saman í um sjö mánuði. Þau munu
að öllum líkindum ekki hittast fyrr en
í vetur þegar hann flytur hingað til
lands, en þau stefna á að búa saman
á Ísafirði þar sem Helena býr núna
og starfar sem bókasafnsvörður. Aug-
ustine er búsettur á Manhattan í New
York svo það verða heldur betur við-
brigði fyrir hann að koma.
Kynntust á Facebook
„Við kynntumst í gegnum Facebook,
sem er frekar fyndið. Ég átti vin á Face-
book sem var ekki manneskja held-
ur var þetta svona tónlistarfyrirbæri.
Var alltaf að skrifa um tónlist og svona.
Hann var vinur þessarar síðu líka og
þau póstuðu youtube-link sem hann
kommentaði á og ég kommentaði
líka. Svo bara einhvern veginn fórum
við að tala saman út frá því. Þetta var
svona algjör tilviljun,“ segir Helena um
það hvernig þau kynntust. „Við vorum
bara að spjalla um tónlist til að byrja
með og svo sagði hann mér að honum
fyndist ég voðalega sæt og mér fannst
hann voðalega sætur líka og svo ein-
hvern veginn þróaðst það bara. Við
vorum búin að tala saman í mánuð
þegar ég bað hann um að vera kærast-
inn minn,“ segir hún hlæjandi. Helena
er vön því að taka af skarið og veit hvað
hún vill. Það borgaði sig líka heldur
betur í þetta skiptið því hann sagði já
og sjö mánuðum síðar svífa þau ný-
trúlofuð um á bleiku skýi, í sitthvorri
heimsálfunni þó.
Deit tvisvar í viku
Parið getur eðlilega ekki ræktað sam-
bandið með því að að fara út að borða,
í leikhús eða bíó líkt og flest önnur pör
gera. Þau hafa að mestu leyti samskipti
í gegnum samskiptaforritið Skype.
„Við tölum saman alla daga í gegn-
um Skype, skrifumst á og svo erum við
með föst deit tvisvar í viku þar sem við
tökum vídeó á kype, þannig að ég hef
alveg séð hann.“ Aðspurð hvort þau
sitji þá fyrir framan tölvuna og spjalli
eða reyni að gera eitthvað annað
saman segir hún það misjafnt. „Stund-
um erum við að spjalla og stundum
erum við að hanga með kveikt á því og
ég er að gera mitt og hann er að gera
sitt og svo spjöllum við einstöku sinn-
um. Bara svona eftir því í hvernig skapi
við erum,“ útskýrir Helena sem getur
ekki beðið eftir að fá að ganga hönd í
hönd með unnusta sínum um götur
Ísafjarðarbæjar.
Skiptust á náttfötum
Helena viðurkennir að það sé allt ann-
að en auðvelt að vera í fjarsambandi,
sérstaklega í svona langan tíma. „Þetta
er ógeðslega erfitt,“ segir hún og leggur
mikla áherslu á orðið ógeðslega. „Þetta
er það erfiðasta sem ég hef gert. Ég er
oft alveg bara að missa vitið. Ég mæli
ekki með þessu fyrir neinn. Til dæm-
is að liggja einn í rúminu á nóttunni.
Maður væri alveg til í að hafa hann við
hliðina á sér. Við sofum samt stundum
saman. Kveikjum á tölvunni og för-
um bæði að sofa,“ segir hún hálffeim-
in. „Við reynum að gera allt sem við
mögulega getum. Ég sendi honum bol
sem ég svaf í og hann sendi mér bol
þannig við gátum fundið lyktina hvort
af öðru. Það er allt mögulegt.“
Vinirnir ekki tilbúnir
Helena segir fjölskyldu sína og marga
vini hafa ákveðnar efasemdir um sam-
bandið og vilji lítið tala um það. Fólki
finnst það eitthvað ekki ekta eða alvöru
af því við höfum ekki hist. Það er samt
alveg mjög ekta og alvöru. Ég er meira
að segja vinur foreldra hans á Face-
book.“ Helena segir samband hennar
og Augustine alveg jafn ekta og önn-
ur sambönd. „Eini munurinn er sá að
við getum ekki hist og snert hvort ann-
að. Ég er alveg búin að ná að kynnast
honum mjög vel af því við tölum svo
mikið saman, en mörgum finnst þetta
eitthvað halló.“ Flestir hafa þó óskað
henni til hamingju. Hún reynir að láta
það ekki á sig fá enda ástfangin upp
fyrir haus. „Kærasta bróður míns, hún
er alltaf til staðar fyrir mig. Hún þekk-
ir alla söguna mína og kærastans míns.
Ég röfla í henni ef það er eitthvað.“
Aðspurð hvort sambandið hafi
gengið snuðrulaust fyrir sig allan tím-
ann segir hún það ekki alveg hafa
verið þannig. Það hafi oft komið fyr-
ir að hún hafi grátið yfir samskiptum
þeirra. „Af því við skrifumst svo mik-
ið á, þá er stundum ekki alveg hægt að
vita hvernig hinni manneskjunni líður
eða hvað hún er að meina og það hefur
oft orðið misskilningur. Þetta er rosa-
lega erfitt. Ég mæli engan veginn með
svona fjarsambandi.“
„Erum við þá trúlofuð núna?“
En hvernig bar trúlofunina að? „Hann
var búinn að minnast á það fyrir ein-
hverju síðan að hann væri voðalega
ástfanginn af mér og að hann gæti
alveg ímyndað sér að eyða restinni
af lífinu með mér og mér fannst það
voðalega frábært. Svo vorum við eitt-
hvað að tala saman í gær (innsk. blm:
á sunnudaginn) og ég sagði við hann
að ég væri mikið til að eyða mínu lífi
með honum líka. Hann svaraði bara,
frábært, æðislegt, ég líka og svo sagði
ég svona í djóki hva erum við þá trú-
lofuð núna?“ Helena segir hann hafa
hlegið í fyrstu en svo bara sagt já.
„Þetta byrjaði sem grín og varð svo
að alvöru. Við erum rosa góðir vinir
þannig við getum alveg djókað í hvort
öðru.“
Ekkert stressuð, bara spennt
Helena segir Augustine mjög spennt-
an að koma hingað til lands en hún
hefur þó örlitlar áhyggjur af því að
hann fái smá sjokk yfir breytingun-
um og að honum gæti leiðst ef hon-
um gengur illa að fá vinnu. „En hann
er búinn að tala um að hann sé orðinn
leiður á að vera þar (innsk. blm: í New
York). Svo það er kannski bara fínt.“
Augustine er tónlistarmaður og
semur sína eigin tónlist, það var því
sameiginleg ákvörðun þeirra að það
væri auðveldra fyrir hann að koma
hingað til lands heldur en fyrir Helenu
að fara til New York þar sem hún hefur
fasta vinnu á Ísafirði.
Hún hefur engar áhyggjur af sam-
bandi þeirra þegar hann kemur. „Ég er
eiginlega bara ógeðslega spennt,“ seg-
ir Helena og það má eiginlega segja að
það ískri í henni af spenningi. „Ég er
ekkert stressuð yfir því að hitta hann,
bara spennt.“
solrun@dv.is
Nýtrúlofuð Helena er í skýjunum og ástfangin upp fyrir haus. Hún hlakkar mikið til þegar unnusti hennar flytur hingað til lands næsta
vetur, en þá munu þau hittast í fyrsta skipti.
n Helena er trúlofuð manni sem hún hefur aldrei hitt í eigin persónu
20 Lífsstíll 18. júlí 2012 Miðvikudagur
„Ég sendi honum
bol sem ég svaf í
og hann sendi mér bol
þannig við gátum fundið
lyktina hvort af öðru