Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Qupperneq 4
Býður út eigin verkefni n 260 milljónir í aðkeypta þjónustu hjá Ríkisendurskoðun R íkisendurskoðun hefur eytt 260 milljónum króna í utan- aðkeypta þjónustu frá fjór- um endurskoðunarfyrirtækj- um hér á landi. Þetta kemur fram í svari stofnunarinnar við fyrirspurn DV um kostnað við þau verkefni sem Ríkisendurskoðun hefur falið öðr- um að vinna. Tölurnar miðast við tímabilið 2004 til 2011. Langstærstur hluti þessara fjármuna hefur farið til PricewaterhouseCoopers, eða PwC. Samtals hefur endurskoðunarfyrir- tækið fengið 123,4 milljónir króna vegna ýmissa verkefna frá stofnun- inni. Samkvæmt lögum á Ríkisend- urskoðun að sjá um að endurskoða ríkisreikning og þá aðila sem hafa með höndum rekstur eða fjárvörslu á vegum ríkisins. Stofnunin hefur hins vegar á liðnum árum útvistað þessum verkefnum til einkaaðila. Einn þessara aðila er Deloitte en einn eigenda þess fyrirtækis er Hall- dór Arason endurskoðandi og bróð- ir Sveins Arasonar ríkisendurskoð- anda. Viðskipti Ríkisendurskoðunar við Deloitte hafa á tímabilinu numið 39 milljónum króna. Það er tals- vert minna en viðskipti við PwC og KPMG en þau fyrirtæki hafa feng- ið meira en tvöfalda þá upphæð frá stofnuninni. Þar að auki hefur Rík- isendurskoðun falið fyrirtækjun- um að endurskoða nýju bankana. Greiðslur vegna endurskoðunar nýju bankanna eru þó inntar af hendi af bönkunum sjálfum en ekki Ríkisend- urskoðun þó að stofnunin hafi milli- göngu um greiðsluna. Ríkisendurskoðun stendur þessa stundina í svokölluðu örútboði á hluta verkefna stofnunarinnar. Áætl- að er að samningar sem undirrit- aðir verða í kjölfar þess verði vegna áranna 2013 til 2017. Til stendur að bjóða út enn fleiri verkefni hjá stofn- uninni. n 4 Fréttir 1. október 2012 Mánudagur Bjarni Benediktsson: Tillögur stjórnlagaráðs ólýðræðislegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur vænt- anlegar kosningar um ráðgefandi tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá vera ólýðræðislegar. Þetta sagði Bjarni á opnum fundi á Akureyri um helgina. Vikudagur.is gerir fundinum skil á vef sínum en þar kemur fram að Bjarni telji ákveðin öfl í þjóðfé- laginu eiga eftir að túlka niður- stöður kosninganna sem vilja þjóðarinnar, sama hver þátttakan í kosningunum verður. „Það furðar mig mjög hversu lítil umræða fer fram um væntan- legar kosningar, þjóðin virðist ekki taka þessu máli mjög alvarlega. Ég held að fólk trúi því ekki að til standi að fara í atkvæðagreiðslu sem muni kalla á stjórnarskrá á þeim grundvelli sem stjórnlagaráð hefur skilað af sér,“ hefur Vikudag- ur eftir Bjarna. Vann tæpar 40 milljónir Eigandi eins áskriftarmiða í Lottó er svo sannarlega lukkunn- ar pamfíll en hann var einn með allar tölurnar réttar í fimmföld- um potti á laugardag. Hlýtur hann rúmlega 39,5 milljónir í vinning. Átta miðaeigendur skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig tæplega 70 þúsund krónur. Tveir miðaeigendanna eru í áskrift en hinir keyptu sér miða á eftirtöldum stöðum; Hagkaupum, Furuvöllum á Akureyri, N1 við Ár- túnshöfða í Reykjavík, tveir miðar voru keyptir í Olís við Langatanga í Mosfellsbæ, einn í söluturninum við Hraunbergi í Reykjavík og einn í Hagkaupum í Garðabæ. Þrír voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fær hver um sig 100 þúsund krónur í vinning. Tveir voru í áskrift en einn miðinn var keyptur í N1 í Reykjanesbæ. Ríkisendurskoðun Er með eitt útboð í gangi þessa dagana. Mynd EyþóR ÁRnason E inn maður skráði 30 nýja fé- laga í Neytendasamtökin rétt áður en frestur til skráningar rann út á ársþing samtak- anna. Gjöld þessara einstak- linga voru greidd á einu bretti, samkvæmt heimildum DV. Sá sem greiddi fyrir félagsaðild þessara einstaklinga var sjálfur í framboði til stjórnar samtakanna en hafði hins vegar ekki erindi sem erfiði í kosn- ingunum sem fóru fram á laugardag. Átján framboð komu fram á fundin- um til viðbótar við tillögur uppstill- ingarnefndar. Fjórir sem ekki voru á lista nefndarinnar hlutu kosningu. Hallarbyltingin mistókst Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað- ur Fjölskylduhjálpar Íslands, var ein þeirra sem skráðu sig á síð- ustu stundu í samtökin. Eins og DV greindi frá á föstudag herma heim- ildir blaðsins að hún hafi verið einn af leiðtogum hópsins sem gerði til- raun til hallarbyltingar. Hún komst ekki í stjórn samtakanna en tengda- sonur hennar, Húni Jóhannesson, var kjörinn í stjórnina. Heimildir DV herma einnig að Ásgeir Örn Þórðar- son, sem hefur starfað sem sjálf- boðaliði hjá Fjölskylduhjálp Íslands sem Ásgerður Jóna stýrir, sé sá sem sá um skráningar 30 nýrra félags- manna í samtökin. Þeir einstaklingar sem gengu í samtökin á síðustu stundu fyrir árs- þingið þurftu að greiða hálft félags- gjald. Félagsgjaldið er 4.950 krón- ur en þar sem langt er liðið af árinu þurftu nýju félagsmennirnir aðeins að greiða 2.475 krónur. Félagsgjöld þessara 30 einstaklinga sem skráðir voru á sama tíma námu 74.250 krón- um. Ekki liggur fyrir hvort Ásgeir Örn hafi bæði skráð félagsmennina og greitt félagsgjöldin en heimildir DV herma þó að félagsgjöldin hafi verið greidd á einu bretti. Heimildarmað- ur DV sem þekkir vel til málsins sagði að ekki lægi fyrir hver hefði greitt fé- lagsgjöldin. óvinveitt yfirtaka DV greindi frá því í helgarblaði sínu að síðustu tvo dagana áður en frestur til að ganga í samtökin – og öðlast þannig þátttökurétt á ársþinginu – rann út, gengu á bilinu 50 til 60 nýir meðlimir í samtökin. Heimildar- maður blaðsins sagði að mikið stæði til. „Þetta er ekkert annað en óvin- veitt yfirtaka,“ sagði heimildarmað- urinn en hann var einn þeirra sem fengu símtal þar sem þeir voru beðn- ir að slást með í för og safna fleirum. Hann lýsti þessu sem yfirvofandi hallarbyltingu. Þeir aðilar sem DV hefur rætt við í tengslum við málið hafa ekki getað bent á hver tilgangur- inn með hallarbyltingunni átti að vera.  Á þinginu, sem haldið er ann- að hvert ár, er ekki kosið um formann heldur aðeins um það hverjir myndi stjórn. Hefð er fyrir því að lagður sé fram listi með nöfnum sem alla jafna er samþykktur án mótbára. Vilhjálmur komst inn Verkalýðsforkólfurinn Vilhjálmur Birgisson komst í stjórnina en hann var meðal þeirra sem skráðu sig í samtökin á síðustu stundu. Hann sagði í athugasemdum við frétt DV af fundi samtakanna á laugar- dag að hann hefði verið hvattur til að bjóða sig fram. „Ég vil bara taka það skýrt fram að ég var ekki að taka þátt í neinni hallarbyltingu, mál- ið er að til mín leitaði fólk og spurði hvort ég vildi gefa kost á mér í stjórn Neytendasamtakanna og ég varð við þeirri beiðni,“ sagði hann. Hann sagði ástæðuna fyrir því að hann hefði verið tilbúinn að gefa kost á sér vera þá að samtökin gætu látið til sín taka, meðal annars vegna afnáms verðtryggingarinnar. Ásgerður Jóna sagði í athugasemdum við sömu frétt að hún hefði verið ein þeirra sem hefðu sett sig í samband við Vil- hjálm. Í athugasemdunum hafnaði hún því að til hefði staðið að gera hallarbyltingu í samtökunum. Ekki náðist í Ásgerði Jónu við vinnslu fréttarinnar. n Félagsgjöld greidd fyrir þrjátíu manns n Hallarbylting í Neytendasamtökunum mistókst n Smalað í samtökin„Ég var ekki að taka þátt í neinni hallarbyltingu. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Tengd Ásgerður Jóna og sá sem skráði 30 nýja félags- menn í Neytendasamtökin á síðustu stundu tengjast í gegnum Fjölskylduhjálp Íslands. Mynd sigTRygguR aRi Í stjórninni Vilhjálmur er einn þeirra nýju félagsmanna sem kosnir voru í stjórn Neyt- endasamtakanna um helgina. Mynd sigTRygguR aRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.