Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Blaðsíða 6
Flögu
Boga
slitið
„Það er ekkert töff við einelti“
n Vinkonur berjast saman gegn einelti
É
g er ekki fórnalamb ég er „sur-
vivor“,“ skrifar Ingibjörg Aðal-
heiður Gestsdóttir, á Facebook-
síðu sína en hún og Anna Karen
Ellertsdóttir segist vera sterkari sem
einstaklingar eftir að hafa spyrnt fót-
unum við einelti. Þær stöllur segja
eineltið ekki hafa gert sig sterk-
ari, heldur baráttuna gegn því. Þær
deildu báðar sögum sínum á Face-
book fyrir helgina og vildu með því
sýna fórnarlömbum eineltis stuðn-
ing. Á vef DV.is má lesa greinar þeirra
beggja í heild sinni, en í báðum skrifa
þær á hjartnæman hátt um skelfi-
legar afleiðingar þess að vera tek-
inn fyrir í grunnskóla, jafnvel í tíma
þar sem kennari fylgist með. Ingi-
björgu var ítrekað bent á að leita til
sálfræðings vegna eineltisins, en hún
reyndi að fá skólann til að skilja að
hún væri ekki vandamálið heldur
gerendurnir.
„Af hverju þurfti ég að tala við
einhverja manneskju, ég gerði ekki
neitt, af hverju þarf þá að refsa mér?“
skrifar Ingibjörg. Anna segist hafa
verið ellefu ára þegar vinahópurinn
hennar ákvað skyndilega að leyfa
henni ekki að vera með þeim lengur.
Stelpurnar ákváðu einnig að enginn
annar í skólanum mætti leika við
hana og höfðu áhrif á önnur börn.
Því einangraðist hún mjög. „Eins og
flest allir sem hafa upplifað einelti
yfir langan tíma þá brotnar sjálfs-
myndin og ljótu og niðrandi orð ger-
endanna fara að verða sannleikur í
huga manns,“ segir Anna Karen.
Þær Anna og Ingibjörg eru vin-
konur sem báðar leggja stund á
félagsráðgjafarnám við Háskóla
Íslands. Þar hafa þær einbeitt sér
mjög að eineltismálum, enda er þetta
þeim hjartans mál. Þær segjast báðar
leitað eftir stuðningi og kjarki hvor
hjá annarri til að skrifa greinarnar, en
vonast til að þær geti orðið fleirum
innblástur, enda er „ekkert töff við
einelti“, eins og Anna Karen segir. n
6 Fréttir 1. október 2012 Mánudagur
Í
slenska svefnrannsóknafyrirtæk-
inu Flögu hf. hefur verið slitið og
hafa eignir félagsins verið greidd-
ar út til hluthafa. Flaga Group var
í eigu íslenska fjárfestisins Boga
Pálssonar, Exista og Kaupþings og
var skráð í Kauphöllinni þar til árið
2008. Bogi er sonur Páls Samúelsson-
ar, fyrrverandi eiganda Toyota-um-
boðsins á Íslandi. Slit félagsins áttu
sér stað í lok síðasta árs. Þetta kemur
fram í gögnum sem skilanefnd Flögu
Group, starfsmenn endurskoðenda-
fyrirtækisins KPMG, sendi til rík-
isskattstjóra í lok síðasta árs. Fyrir-
tækið hefur síðan verið brotfellt hjá
ríkisskattstjóra.
Keypti bandarískt félag fyrir
1.400 milljónir
Flaga hf. var stofnað árið 1988 af sál-
fræðingnum Helga Kristbjarnar-
syni og stundaði rannsóknir á svefn-
venjum fólks. Árið 2002 keypti Flaga
bandaríska svefnrannsóknarfyrir-
tækið Medcare Diagnostics fyrir um
1.400 milljónir króna. Þar með varð
fyrirtækið það stærsta á sviði hug-
búnaðar og tækja til svefnrannsókna
í heiminum. Medcare hafði áður
verið helsti keppinautur Flögu. Árið
2003 var fyrirtækið svo skráð í Kaup-
höll Íslands. Gengi hlutabréfa í Flögu
fór hæst í 8 á árunum þar á eftir.
Bréfin hríðféllu í verði
Árið 2007 byrjuðu hlutabréf Flögu að
hríðfalla í verði og í janúar 2008 stóðu
þau í 0,56 og hafði verðið aldrei verið
jafn lágt frá árinu 2003. Markaðsvirðið
á bréfunum var þá aðeins rétt rúm-
lega helmingurinn af nafnverði hluta-
bréfa og einn sextándi af því sem það
var við útboð. Þá sagði Bogi í viðtali
við DV: „Hlutabréfamarkaðurinn hef-
ur verið að lækka mikið og það þarf
mjög litla lækkun í verðmætum til að
prósentan verði há.“
Flaga rambaði á barmi gjaldþrots
haustið 2008 eftir fall viðskiptabanka
félagsins og eins af eigendunum,
Kaupþings. Í byrjun árs 2009 voru
fluttar af því fréttir að hlutabréf Flögu
væru í reynd einskis virði.
Tæplega 75 milljónir til hluthafa
Í gögnunum um slit félagsins kem-
ur fram að engin krafa hafi borist
skilanefndinni frá kröfuhöfum vegna
slitanna á félaginu. Allar eignir fé-
lagsins, tæplega 75 milljónir króna,
rúmlega 610 þúsund dollarar, runnu
því til hluthafa Flögu Group, Emblu
Systems Inc., sem er bandarískt
móðurfélag þess: „Engar kröfur bár-
ust skilanefnd vegna slita félags-
ins og er því til úthlutunar til hlut-
hafa félagsins allt eigið fé félagsins á
slitadegi, USD 610.898.“ Undir slit fé-
lagsins ritaði Bogi Pálsson fyrir hönd
hluthafa. n
„Engar kröfur bár-
ust skilanefnd
vegna slita félagsins og er
því til úthlutunar til hlut-
hafa félagsins allt eigið fé
félagsins á slitadegi.
n Svefnrannsóknafyrirtæki sem var í Kauphöllinni í fimm ár
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Kauphöll Íslands Flaga var tekin úr Kauphöll Íslands eftir að hlutabréf félagsins hrundu
í verði árið 2008.
Fyrirtæki
fæðast
Í ágústmánuði voru skráð 122 ný
einkahlutafélög hér á landi sem er
nokkur aukning frá sama mánuði
á síðasta ári þegar 110 ný einka-
hlutafélög voru stofnuð. Þetta
kemur fram í tölum sem Hagstofa
Íslands birti á föstudag. Fyrstu átta
mánuði mánuði ársins var fjöldi
nýskráninga 1.180, en það er tæp-
lega 7 prósenta aukning frá sama
tíma í fyrra þegar 1.105 fyrirtæki
voru skráð. Flest einkahlutafélög-
in sem stofnuð voru í ágúst voru í
fasteignaviðskiptum. Í júlímánuði
síðastliðnum voru hins vegar
skráð 136 ný einkahlutafélög, flest
í heild- og smásöluverslun.
Keyptu
bandarískt
félag Flaga keypti
bandaríska svefn-
rannsóknafyrirtækið
Medcare Diagnostics
fyrir 1.400 milljónir
króna árið 2003. Bogi
Pálsson var stjórnar-
formaður Flögu.
Halda upp á
130 ára afmæli
Flensborgar
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
fagnar 130 ára afmæli í dag,
mánudag. Af því tilefni er Flens-
borgardagurinn haldinn hátíðleg-
ur. Fagnað verður meðal annars
með því að fella niður allt venju-
legt skólastarf þennan dag og
skemmta sér þess í stað í Íþrótta-
húsinu við Strandgötu. Auk af-
mælisins markar dagurinn upphaf
nýs árs geðræktar, sem er þriðja
þema verkefnisins Heilsueflandi
framhaldsskóla. Jón Jónsson kíkir
i heimsókn auk þess sem óvænt
atriði verður sýnt sem mun koma
skemmtilega á óvart, að því er
fram kemur í tilkynningu frá skól-
anum.
Neituðu að
hafa ekið
bifreiðinni
Töluverður erill var hjá lögreglu-
mönnum á höfuðborgarsvæðinu
á laugardag og aðfaranótt sunnu-
dags. Mikið var um útköll vegna
hávaða og minni háttar pústra.
Sex ökumenn voru stöðvaðir
vegna gruns um ölvun við akstur.
Einn er grunaður um að hafa ver-
ið undir áhrifum vímuefna undir
stýri.
Lögreglan í Kópavogi hafði af-
skipti af þremur aðilum á bifreið,
sem bilaði þegar þeir óku henni
ógætilega yfir hraðahindrun.
Mennirnir voru ölvaðir og neituðu
allir að hafa ekið bifreiðinni. Þeir
voru vistaðir í fangageymslu á lög-
reglustöðinni á Hverfisgötu vegna
frekari rannsóknar.
Grimmilegt einelti Báðar lentu Anna Karen og Ingibjörg í alvarlegu einelti. Þær segja þó
að eineltið þurfi ekki að stöðva fólk, heldur eigi það að halda sínu striki.