Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Blaðsíða 16
D
ýrasta árskortið í líkamsrækt
fæst í Hreyfingu á 75.492
krónur en fast á hæla stöð-
inni kemur World Class.
Þetta er töluvert dýrara en
ódýrasta kortið sem fæst í Actic í
Kópavogi en þar má fá árskort í rækt-
ina á 38.990 krónur. Þetta gerir 48
prósenta verðmun á árskortum. Enn
meiri munur er á mánaðarkortum.
Stéttarfélög greiða niður
árskort
Eftir sumarið eru fjölmargir sem ætla
að taka sig á í ræktinni og DV athug-
aði því verð á líkamsræktarkortum
á nokkrum líkamsræktarstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu en verðin eru
fengin úr verðskrám þeirra. Ekki var
unnt að taka saman upplýsingar um
allar líkamsræktarstöðvar á landinu
og eins skal þess getið að ekki voru
skoðuð hin ýmsu tilboð sem stöðv-
arnar bjóða upp á en þau eru mörg
og neytendum er einnig ráðlagt að
athuga hvaða tilboð standa til boða
og hvort stéttarfélög þeirra greiði
niður kostnað vegna líkamsræktar-
korta. Eins var ekki gerð úttekt á að-
stöðu til líkamsræktar en ætla má að
íburðarmeiri stöðvar séu dýrari.
Mánaðarkort á 3.990 krónur
Athugunin leiddi í ljós að töluverð-
ur munur er á verði kortanna eft-
ir stöðvum en mestur verðmun-
ur reyndist vera 68,08 prósent á
mánaðarkortum. Reebok Fitness
býður upp á ódýrasta mánaðar-
kortið á 3.990 krónur en það er eina
greiðsluleiðin sem þar er boðið upp
á. Ekki er um bindingu að ræða og
fyrir þessa upphæð fá viðskiptavin-
ir aðgang að tækjasal og geta skráð
sig í tíma.
Eins og fyrr segir eru ódýrustu
árskortin í þessari könnun í Actic-
stöðinni í Kópavogi en ekki er úti-
lokað að hægt sé að finna árskort á
lægra verði. Þar er þó ekki hægt að
dreifa greiðslum á kortinu en flestar
stöðvarnar bjóða upp á slíkt. Það er
þó dýrari kostur þegar upp er stað-
ið.
Skólakortin
Margar líkamsræktarstöðvar bjóða
námsmönnum upp á ódýrari kort
en annaðhvort eru þau árskort eða
til 10 mánaða. Í þeim flokki er það
Actic- stöðin í Kópavogi sem býður
upp á lægsta verðið en árskort fyrir
námsmenn kostar þar 35.990 krón-
ur. Þar er einnig boðið upp á ung-
mennakort, hjónakort og kort fyrir
eldri borgara á lægra verði.
Flestar líkamsræktarstöðvarnar
bjóða námsmönnum upp á árskort
í áskrift. n
16 Neytendur 1. október 2012 Mánudagur
Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr.
Algengt verð 257,2 kr. 260,4 kr.
Höfuðborgarsv. 257,1 kr. 260,3 kr.
Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr.
Algengt verð 259,6 kr. 260,6 kr.
Melabraut 257,2 kr. 260,4 kr.
Eldsneytisverð dd. mmm
BenSín DíSilolía
Góð stemning og
vinalegt viðmót
n Lofið fær Te & Kaffi en DV fékk
eftirfarandi sent: „Ég get lofað Te &
Kaffi við Aðalstræti. Þar
er góð stemming og
vinalegt viðmót starfs-
manna. Kaffibollinn
er þó dýr, eins og
annars staðar í
Reykjavík.“
Kalt að
standa úti
n Lastið fær Ísbúð Vesturbæjar en
viðskiptavinur vill koma eftirfar-
andi á framfæri; „Það er alltaf röð
út á götu, það er svona upp á hvern
einasta dag. Þetta er vinsælasta
búð bæjarins og langflestir fá sér
þeyting en það er tímafrekt að búa
til slíkan ísrétt. Svo þetta er í raun
ástar-haturslast. Ísinn þar er ómót-
stæðilegur en eigendurnir mættu
bregðast betur við vinsældunum.
Það er kalt að standa úti!“
Stefán Magnússon eigandi ís-
búðarinnar segir að það sé rétt
að ísbúðin sé vinsæl. „Við rekum
þrjár ísbúðir á höfuðborgarsvæð-
inu en málin standa þannig að við
erum í rauninni með þann starfs-
mannafjölda á vakt sem kemst
fyrir. Það er takmarkað pláss sem
við höfum áður en starfsmenn
fara að þvælast hver fyrir öðr-
um. Við erum með 70 hörkudug-
lega starfsmenn svo við reynum
að hafa nægilegan fjölda á vakt til
að bregðast við viðskiptunum en
oft er erfitt að plana fyrirfram, til
dæmis hvenær er gott
veður og allir í ís-
hugleiðingum. Eins
og málin standa
núna erum við
að huga að því að
opna fleiri búð-
ir á höfuðborgar-
svæðinu til að bregðast
við þessari eftirspurn svo
vonandi horfir þetta til
bóta.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Ódýrast í ræktina
hjá Reebok Fitness
n Allt að 68 prósenta munur á árskortum í líkamsrækt n Dýrast í Hreyfingu
aftur í form Landsmenn
flykkjast í ræktina eftir sukk
sumarins.
MynD photoS.coM
Verð á líkamsræktarkortum
Árskort Áskrift Mánaðarkort Skólakort athugasemdir
Actic Sundlaug Kópavogs 38.990 kr. 35.990 kr. Einnig ungmennakort, hjónakort og kort fyrir eldri borgara
Reebok Fitness 3.990 kr. Einungis boðið upp á mánaðarkort.
Veggsport 59.900 kr. 5.250 kr. 10.900 kr. 42.900 kr. Skólakort gildir í 12 mánuði.
Hress Hafnarfirði 64.990 kr. 5.990 kr. 11.990 kr. 46.990 kr. Skólakort gildir í 12 mánuði.
Sporthúsið 61.900 kr. 5.490 kr.* 12.900 kr. 50.999 kr. Skólakort gildir í 12 mánuði.
Hreyfing 75.492 kr. 6.990 kr.** 11.900 kr. 4.990 kr.*** Skólakort gildir í 12 mánuði.
Baðhúsið 62.900 kr. 12.500 kr. 49.900 kr. 5.490 kr.*** Skólakort gildir í 10 mánuði.
World Class 73.250 kr. 6.800 kr. 9.990 kr. 58.600 kr. Skólaárskort 5.440 kr. á mánuði.
*hér er innifalinn kaupauki, SjÁ heiMaSíðu **MiðaSt við grunnaðilD ***aðeinS til í ÁSkrift
Mishátt gjald fyrir kattahald
n neytendasamtökin skoðuðu innheimtu sveitarfélaga
K
attareigandi á Akureyri greið-
ir hátt í 70 þúsund krónur til
bæjarins fyrir að eiga kött í tíu
ár og kattareigandi í Fjarða-
byggð greiðir 95 þúsund krónur. Sá
sem á kött í Kópavogi, Mosfellsbæ,
Dalvík eða Hafnarfirði greiðir hins
vegar ekkert til sveitarfélagsins. Þetta
kemur fram í könnun sem Neytenda-
samtökin gerðu á dögunum um gjöld
vegna katta- og hundahalds. Óhætt
er að segja að það sé æði misjafnt eft-
ir sveitarfélögum.
Flest sveitarfélög innheimta gjald
af hundaeigendum og færst hef-
ur í vöxt að einnig sé innheimt gjald
vegna katta. Í frétt Neytendasamtak-
anna kemur fram að engu sé líkara
en tilviljun ráði því hvert gjaldið er
hverju sinni.
Nítján sveitarfélög, af þeim 42
sem Neytendasamtökin skoðuðu,
innheimta ekkert gjald af katta-
eigendum. Sjö þeirra innheimta
einungis skráningargjald – gjald sem
er innheimt við skráningu kattarins –
og er það allt frá 1.750 krónum upp
í 15.000 krónur. Sex sveitarfélög inn-
heimta bæði skráningar- og árgjald
– gjald sem er innheimt ár hvert
meðan dýrið lifir – og tíu sveitar-
félög innheimta einungis árgjald.
Misjafnt er hvað er innifalið í ár-
gjaldinu. Í sumum sveitarfélögum er
ormahreinsum, ábyrgðartrygging og
heilbrigðisskoðun innifalin en í öðr-
um sveitarfélögum er lítið eða ekk-
ert innifalið. Sem dæmi má nefna
að á Akureyri, þar sem árgjald er
6.000 krónur, og á Súðavík, þar sem
árgjaldið er 4.000 krónur, er ekk-
ert innifalið í árgjaldinu en í Skaga-
firði er ormahreinsun, örmerking
og ábyrgðartrygging innifalin í ár-
gjaldinu sem er 4.000 krónur.
Í svari frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga við fyrirspurn Neyt-
endasamtakanna kemur fram að
grunnreglan sé sú að þjónustugjöld
megi ekki vera hærri en sem nem-
ur sannanlegum kostnaði við fram-
kvæmd þjónustunnar. Þetta þýð-
ir með öðrum orðum að gjöldin
mega ekki verða að skatttekjum fyr-
ir sveitarfélagið, að sögn Neytenda-
samtakanna. n
gjaldtakaÍ sumum sveitarfélögum er ekkert innheimt vegna kattahalds en annars staðar
er verðið nokkuð hátt, til dæmis í Fjarðabyggð.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is