Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Blaðsíða 11
Fréttir 11Mánudagur 1. október 2012
Hirða Hagnaðinn
af vinnu annarra
n Aðstöðubrask í slitastjórn Glitnis n Sitja báðum megin við borðið n Hlunnfara þrotabúið og starfsmenn sína
„Eðli
rekstrar
er að hagnast
Kristinn sagðist vera í fríi og bað
um að hringt yrði síðar. Einka-
hlutafélag Kristins hefur hagnast
um meira en 50 milljónir króna á
ári frá hruninu árið 2008 og árið
2009 greiddi hann sér 56 milljónir
í arð út úr félaginu.
„Óforsvaranlegt“
DV hefur heimildir fyrir því að
önnur lögmannsstofa sem stýrði
þrotabúi fjármálafyrirtækis hafi
tekið ákvörðun um það á fundi
að það væri „óforsvaranlegt“
að þeir sem stýrðu þrotabú-
inu væru með sérstaka fulltrúa
í vinnu fyrir þrotabúið til að
græða á því sjálfir. Þessi til-
tekna lögmannsstofa ákvað
því að ráða löglærða full-
trúa beint í vinnu til þrota-
búsins þar sem slíkt væri
ódýrara fyrir búið. Í þessu
tiltekna búi var því ekki
hafður sami háttur á og
hjá slitastjórn Glitnis og
Landsbankans. Líkt og
heimildarmaður DV segir
hefðu stjórnendur þessa
tiltekna lögfræðifyrirtæk-
is auðveldlega getað gert
þetta líka og grætt á því
alveg eins og þeir sem
stýra þrotabúum Glitnis
og Landsbankans.
Eftirlitsleysi og
sjálftaka
Þessi þrjú dæmi sýna því
fram á það sem oft hefur kom-
ið fram um skila- og slitastjórn-
ir fjármálafyrirtækja á Íslandi:
Þó svo að Fjármálaeftirlitið, sem
er opinber eftirlitsstofnun, og Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hafi skip-
að skilanefndir og slitastjórnir yfir
hina föllnu banka þá hefur eftirlits-
leysi einkennt starfsemi þeirra. Þeir
lögfræðingar og endurskoðendur
sem setið hafa í þessum skilanefnd-
um og slitastjórnum hafa í reynd
getað stundað sjálftöku á eignum
þeirra án utanaðkomandi eftirlits.
Sumir þessara einstaklinga hafa
sýnt meira hóf en aðrir og til dæmis
sleppt því að maka krókinn með því
að græða persónulega sem milli-
liðir í sölu á vinnu annarra fyrir
þrotabúin. Líkt og kom fram í máli
Páls Eiríkssonar þá hefðu hann og
Steinunn getað sagt: „Við hefðum
alveg eins getað ákveðið að vinna
þessa vinnu sjálf.“
Skilanefndar- og slitastjórnar-
mönnum hefur því verið í sjálfsvald
sett að hversu miklu leyti hvort þeir
misnota aðstöðu sína við uppgjör
fjármálafyrirtækjanna til að græða
á því sjálfir. Sumum finnst ekk-
ert athugavert við að ganga langt í
þessu á meðan aðrir hafa ekki nýtt
sér aðstöðu sína til hins ýtrasta að
þessu leyti. Því er um að ræða rétt-
nefnda sjálftöku. n
Í sérflokki
Steinunn Guðbjarts-
dóttir og Páll Eiríks-
son hjá slitastjórn
Glitnis eru í sérflokki
hvað varðar greiðslur
til slitastjórnar- og
skilanefndar-
fólks á Íslandi.
Heildargreiðslur til
fyrirtækja þeirra
frá þrotabúi Glitnis
nema meira en 800
milljónum króna á
síðastliðnum þremur
árum.