Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Síða 23
E rt þú meðal þeirra sem lesa stjörnuspána sína á hverjum degi í þeirri von að glöggva sig á því hvað dagurinn muni bera í skauti sér? Eða trú- irðu að stjörnumerkin geti sagt til um persónuleika fólks? Það kann að koma á óvart að vitneskja um það í hvaða blóðflokki fólk er gæti veitt þér sömu nytsamlegu upplýsingarn- ar og stjörnumerkin. Það hefur vissulega ekki verið vísindalega sannað, en Japanir trúa því almennt að blóðflokkar geti sagt til um ýmis persónueinkenni fólks. Allt frá geðslagi þínu og hvernig þér lyndir við annað fólk, til þess hvern- ig elskhugi þú ert og hvað er best fyr- ir þig að borða. Blóðflokkur A Oft er talað um að einstaklingar í blóðflokki A séu eins og bændur, þeir eru tillitssamir og mjög tryggir. Þeir eiga það til að vera dulir og tregir við að tjá tilfinningar sínar. Einstaklingar í þessum blóðflokki eru margir hverjir taugaveiklað- ir, óþolinmóðir og eiga erfitt með svefn. Þeir eru vel mjög hæfir til að gegna leiðtogastöðum en gætu hins vegar veigrað sér við það út af stressinu og álaginu sem því fylgir. Persónueinkenni: Íhaldssemi, ómann- blendni, hlédrægni, þolinmæði og fullkomn- unarárátta. Lestir: Þráhyggjuárátta, meðvitaðir um sjálfa sig og stundum stífir og þrjóskir. Mataræði: Einstaklingar í blóðflokki A dafna best sem grænmetisætur, að sögn læknisins Peter D‘Adamo, höfundar bókarinnar Eat right for your type. „Margir eiga erfitt með að breyta úr venjulegu kjöt- og kartöflumataræði yfir í sojaprótín, korn og grænmeti. Það er hins vegar mikilvægt fyrir hina viðkvæmu A-týpu að neyta matarins í eins náttúrulegu ástandi og hægt er, ómengaðs, fersks og lífræns. Blóðflokkur B Einstaklingar í blóðflokki B eru skilningsríkir og eiga auðvelt með að setja sig í spor annarra. Þar sem þeir eru hálfgerð kamelljón og einstak- lega sveigjanlegir þá er yfirleitt gott að eiga þá að vinum. Þessi lýsing á þó frekar við um konur. Karlmenn í blóðflokki B hafa ekki jafn gott orð- spor og eru sjaldan taldir heppilegir sem makar. Þeir eiga það til að vera lauslátir, sjálfselskir og hverfulir. Þeir sem eru í blóðflokki B hafa allt önnur persónueinkenni en þeir sem eru í blóðflokki O og A. Þá eru þeir móttækilegir fyrir öðrum sjúk- dómum, eiga að vera á öðru matar- æði og stunda annars konar hreyf- ingu. Persónueinkenni: Skapandi, sveigjanlegir sjálfstæðir, bjartsýnir og ástríðufullir. Lestir: Gleymnir og stundum óábyrgir. Mataræði: Meltingarkerfi einstaklinga í blóð- flokki B þolir ýmislegt, en þeir ættu þó að forð- ast kjötmeti á borð við kjúkling, naut og svín, að sögn D‘Adamo. Þrátt fyrir að kjúklingakjöt sé magurt leggur hann mikla áherslu á að B-týpur forðist það. Blóðflokkur AB Einstaklingar í blóðflokki AB eru gjarnan heillandi og vinsælir. Þeir hafa ekki áhyggjur af óþarfa hlutum og þykja stundum andlega þenkj- andi, jafnvel sérvitringslegir. Þeir sem eru í þessum blóðflokki láta yfirleitt höfuðið stýra gjörðum sínum frekar en hjartað. Það get- ur verið erfitt að vera AB-týpa, því þessir einstaklingar virðast eiga erfitt með að aðlaga sig öðrum. Ef þeim finnst þrengt að sér brjótast þeir út og gera hlutina á sinn hátt. Persónueinkenni: Rólegir, yfirvegaðir, innhverfir og skynsamir. Lestir: Gagnrýnir, óákveðnir, fáskiptnir og eiga erfitt með að fyrirgefa. Mataræði: Meltingarkerfi einstaklinga í blóð- flokki AB er viðkvæmt og þeir ættu að forðast kjúklinga-, nauta- og svínakjöt. Þeir mega hins vegar borða eins mikið og þeir vilja af sjávarfangi, tófú og mjólkurvörum, ráðleggur D‘Adamo. Blóðflokkur O Einstaklingar í blóðflokki O eru náttúrulegir leiðtogar og oft góðir íþróttamenn. Þeir eru mannblendn- ir, ástríðufullir og tjá sig mikið. O- týpur eru mjög metnaðarfullar og óhræddar við að taka áhættu. Persónueinkenni: Metnaðarfullir, sjálfs- öruggir og traustir. Lestir: Hrokafullir, ónærgætnir og hégómlegir. Mataræði: Magurt kjöt, kjúklingur og fiskur hentar best meltingarkerfi O-týpunnar. Einstaklingar í O-blóðflokki ættu hins vegar að takmarka neyslu á brauði og korni, ráðleggur D‘Adamo. Lífsstíll 23Mánudagur 1. október 2012 Tattoo – varanleg förðun Lækjargata 34c, Hfj. Fylgstu með okkur á facebook S: 571-4300 Tattoo - varanleg förðun Augabrúnir – eyeliner - varalína Hér má sjá augabrúnir fyrir og eftir meðferð. Notast er við svokallaða „hair stroke“ aðferð þar sem teiknuð eru hár í augabrúnirnar sem gefur þeim fallegt og náttúrulegt útlit. Ath. „eftir“ myndirnar eru teknar strax eftir tattoo-ið og eiga brúnirnar eftir að jafna sig og lýsast töluvert. Tattoo-ið er endurmetið eftir 4-6 vikur og lagfærðar eftir þörfum. Tattoo – varanleg förðun Lækjargata 34c, Hfj. Fylgstu með okkur á facebook S: 571-4300 Tattoo - varanleg förðun Augabrúnir – eyeliner - varalína Hér má sjá augabrúnir fyrir og eftir meðferð. Notast er við svokallaða „hair stroke“ aðferð þar sem teiknuð eru hár í augabrúnirnar sem gefur þeim fallegt og náttúrulegt útlit. Ath. „eftir“ myndirnar eru teknar strax eftir tattoo-ið og eiga brúnirnar eftir að jafna sig og lýsast töluvert. Tattoo-ið er endurmetið eftir 4-6 vikur og lagfærðar eftir þörfum. Augabrúnir 25.000 kr. Eyeliner 19.500 kr. Varir 19.500 kr. Lagfæring á gömlu tattoo 10.500 kr. Lestu úr blóðinu Blóðflokkarnir geta gefið svipaðar upplýsingar og stjörnumerkin. n Blóðflokkarnir segja til um persónuleika n Náttúrulegir leiðtogar í blóðflokki O Blóðið veitir upplýsingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.