Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Qupperneq 15
Ég var að springa Ég er sterk Ólafur Arnarson er í átaki til að losna við aukakílóin. – DV Það eru ekki alltaf jólin, Steingrímur Spurningin „Nei, ég ætla ekki í frí í haust. Mér finnst það vera sóun á tíma, mér finnst að við ættum frekar að leggja harðar að okkur í vinnunni. Við erum jú vinnuþjóð.“ Óttar Símonarson 19 ára nemi „Nei, ég er að vinna í allt haust.“ Grétar Þór Þórsson 19 ára starfsmaður í Spúútnik „Nei, en ég skoppaði heim til Akureyrar tvisvar.“ Almar Daði Kristjánsson 20 ára vinnur í móttöku á hóteli „Nei, ég fór ekki í frí og held að ég fari ekki.“ Máni Sigurðsson 22 ára vinnur í Krambúð „Ég er ekki búinn að fara í frí og fer ábyggilega ekki.“ Hálfdán Helgi Hálfdánarson 21 árs vinnur í Krambúð Fórst þú eða ætlar þú í frí í haust? 1 Systkinin afneita Línu: „Hún er ekki systir hans“ Lína Jia er sökuð um mansal á nuddstofu sinni og er óvinsæl hjá fjölskyldu sinni. 2 „Það er enginn svona vaxinn“ Í helgarblaði DV var fjallað um skugga- hliðar fyrirsætubransans. 3 Myndband af kynferðislegri misnotkun fór á netið Karlmaður þuklaði á sofandi konu í lest á Manhattan. 4 „Skuldar þjóðin honum eitthvað?“ Páll Magnússon útvarpsstjóri skýtur fast á Jón Ásgeir Jóhannesson. 5 Aldrei gefast upp! Fræga fólkið sem lét draum sinn rætast ræður öðrum heilt. 6 Íhugaði að yfirgefa kirkjuna Séra Jóna Lovísa Jónsdóttir var í opinskáu viðtali í helgarblaði DV. 7 Gary Glitter handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot Glysrokkarinn gamli enn talinn hafa brotið gegn börnum. Mest lesið á DV.is Dabbamiðjan M erkasti fræðimaður Íslands hefur talað. Svarthöfði sat agndofa við tölvuna er hann kom auga á fimlega smíðaða kenningu háskólamanns, sem skek- ur sjálfar stoðir veruleikans. Rétt eins og Kóperníkus og Galileo veittu jarðmiðjukenningunni náðarhögg- ið, þá hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson lagt sólmiðjukenn- inguna að velli. Með annarri hendi leysti Hannes ævafornan ágreining á sviðum allra fræða – spurningin um það hvar fjandans miðjan er hefur plagað mannkynið frá öndverðu. „Dabba- miðjan“ hefur dulist öllum fræði- bésusum fram að þessu, en Hannes kom auga á hana og dró fram í dags- ljósið. Jörðin, sólin og stjörnurn- ar snúast allar um Davíð Oddsson. „Auðvitað!“ hrópaði Svarthöfði yfir funheitri Dell-tölvunni. „Þetta er svo einfalt!“ Hannes bendir skilmerkilega á, að Davíð, vopnabróðir Svarthöfða og fyrrverandi forsætisráðherra, sé miðjan! Davíð réð hér lengi vel – og af þessu leiðir auðvitað: „Hafi hann ekki fært sig á miðjuna, þá hefur miðjan fært sig til hans.“ Með hreinni rökfræði – og þeirri duldu forsendu að miðjan leiti til valdhafa, ef og aðeins ef valdhafi heitir Dabbi – sýndi prófessorinn bráðgáfaði fram á sannleika Dabbamiðjukenn- ingarinnar. Svarthöfði var frá sér numinn af kæti, heimurinn hefði orðið myrkur ef einhver plebbi hefði reynst vera miðja heimsins. En Davíð, sem áður var vonarstjarna en nú fyrirmynd, er eini stjórnmálamaðurinn með viti. Loksins hefur Svarthöfði fundið fastan punkt í myrku feni afstæðis- hyggju og tilvistarvolæðis. „Jörðin hún snýst um Davíð Odds,“ söng skáldið, og Svarthöfði tekur undir. En líkt og flestir snillingar er prófessorinn góðláti stundum of djúpur fyrir þorra mankyns. „Ég er á miðjunni, mainstream,“ seg- ir hann. Svarthöfði skildi þetta ekki í fyrstu, „er hann þá á Dabba?“ spurði Svarthöfði sig hissa. En eftir djúpa umhugsun skildi hann um- mælin. Líkt og einn grískur snilling- ur ætlar Hannes að hreyfa jörðina. „Gefðu mér fastan punkt til þess að standa á, og ég skal færa jörðina,“ sagði Arkímedes svo eftirminnilega í gamla daga. „Gefðu mér Davíð, og ég skal hreyfa heiminn,“ á Hannes við. Á aðalfundi LÍÚ í liðinni viku er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni, at- vinnuvega- og nýsköpunarráð- herra: „Af hverju á að veita sérstakan skattaafslátt, svona eins og á mat og menningu, þegar forríkur Ameríkani gistir á Hótel Holti í júlí?“ Ég skil vel hvert Steingrímur er að fara og skil vel að hann ásamt öðrum í ríkisstjórninni hafi þurft að taka rík- isfjármálin föstum tökum og meðal annars hækka skatta. Það var óhjá- kvæmilegt eftir Hrunið. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er lagt til að virðisaukaskattur á gistingu verði hækkaður og sem og vörugjöld á bíla- leigubíla. Hvorutveggja kemur illa við lykilatvinnugreinar í ferðaþjónustu á Íslandi sem mun hafa víðtækar af- leiðingar og kannski afdrifaríkastar fyrir ferðaþjónustu á landsbyggðinni. En er ekki bara eðlilegt eins og Steingrímur nefnir að forríkir Ameríkanar borgi toppverð fyrir dvöl sína á Hótel Holti í júlí? Jú, auðvitað, væri best ef alltaf væri júlí og stærstur hluti ferðamanna til Ís- lands væru forríkir Ameríkanar. Þá væri það ekki tiltökumál að gera fyrrgreind- ar skattabreytingar. En svo er því miður ekki. Það eru ekki alltaf jólin. Raun- veruleikinn er annar. Í raun eru upp- grip í ferðaþjónustunni enn aðeins í tvo mánuði á ári og lítið brot af ferðamönn- um til Íslands er forríkt. Rússnesku stelpurnar sem leigðu bíl hjá Dollar Thrifty Saga Car Rental Iceland í sumar, voru búnar að safna fyrir ferðinni í þrjú ár og sváfu í bílnum allan tímann þar sem þær höfðu ekki efni á gistingu telj- ast a.m.k. ekki til forríkra Ameríkana. En þær munu tala um Ísland og Íslands- ferðina næstu áratugina. Svo ánægðar voru þær. Það er eflaust svigrúm til hækkana þessa tvo vinsælustu mánuði ársins en örugglega ekki hina tíu. Ekki enn sem komið er. Íslensk ferðaþjónusta er rétt lögð af stað upp í vegferð þar sem lögð er áhersla á að lengja ferðamanna- tímabilið og auka tekjur af ferðamönn- um. Þetta er langtímaverkefni en strax sjást merki um góðan árangur hvað varðar fjölgun ferðamanna yfir vetrar- tímann sem landsbyggðin nýtur góðs af. En þeir eru samt enn aðeins brot af þeim fjölda sem kemur yfir sumartím- ann. Betur má ef duga skal. Það er því ljóst, þó maður skilji vel þörf stjórnvalda á auknum tekjum í rík- iskassann, að þessi aðgerð er alls ekki tímabær og gæti auðveldlega drepið í fæðingu þann vaxtarsprota sem vetrar- ferðamennskan er. Ávinningur af vetrar- ferðamennsku er gríðarlega mikill þjóð- hagslega, ekki síst fyrir ríkissjóð sjálfan. Það væri óskandi að langtíma- stefnumörkun væri meira ráðandi í gjaldtöku gagnvart ferðaþjónustunni sem á langa ferð fyrir höndum. En tæki- færin og möguleikarnir eru gríðarlegir ef rétt er á haldið og í framhaldi tekju- möguleikar fyrir ríkissjóð. Vinsamlegast hugsið þetta til enda. Líf við vitann Vitinn á Skarfabakka í Reykjavík er vinsæll viðkomustaður þar sem útivistarfólk hefur iðulega viðkomu á heilsubótargöngu sinni á meðan aðrir sjá sér leik á borði og renna fyrir fisk með stórbrotið útsýni fyrir framan sig þegar Viðey og fjallgarðurinn í norðri skarta sínu fegursta. Mynd Sigtryggur ariMyndin Svarthöfði Umræða 15Mánudagur 29. október 2012 Þær voru óþarflega léttklæddar Haraldur Leifsson framkvæmdastjóri Würth á Íslandi um vörukynningu fyrirtækisins. – DV Af blogginu Egill Jóhannsson Séra Jóna Lovísa Jónsdóttir þurfti að berjast fyrir sjálfsmynd sinni. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.