Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Page 21
Sport 21Mánudagur 29. október 2012
Mancini sagður valtur í sessi
n Púað á stjóra Manchester City um helgina
R
oberto Mancini er talinn
ansi valtur í sessi sem þjálf
ari Manchester City sam
kvæmt því sem haldið er
fram í ýmsum enskum miðlum en
um helgina slefaði lið hans aðeins
nauman sigur á heimavelli gegn
Swansea City og var púað á stjór
ann í lok leiks af stuðningsmönn
um liðsins. Þykir það enda léleg
stærðfræði enda himinn og haf
milli þessara tveggja liða. Er þetta
heldur ekki fyrsta liðið sem meist
ararnir lenda í bullandi vandræð
um með á leiktíðinni í deildinni
og sérstaklega er árangur liðsins
hingað til í Meistaradeild Evrópu
slakur. Þar sitja ensku meistararn
ir í neðsta sætinu í sínum riðli með
aðeins eitt stig eftir þrjá leiki. Má
heita kraftaverk úr þessu ef liðið
nær upp úr riðlinum úr því sem
komið er.
Mancini sjálfur virðist gera sér
grein fyrir að staða hans er veik
því fullyrt er í slúðurblaðinu Daily
Mail að hann hafi sagt eigendum
liðsins að taka af skarið; standa við
bak hans gegnum þykkt og þunnt
eða reka hann að öðrum kosti.
Segir frá því í blaðinu að hann
muni eiga fundi með eigendum
liðsins strax í vikunni.
Hluti af vandamálinu er þó
ekki aðeins óánægja stuðnings
manna liðsins heldur sú staðreynd
að Mancini þykir ekki hafa næga
stjórn á leikmönnum sínum. Frægt
er ósætti hans og Carlos Tevez á
síðustu leiktíð og upp á síðkastið
hefur Mario Balotelli lýst óánægju
með lítil og léleg samskipti við
stjórann.
Það breytir ekki því að Mancini
gerði City að enskum meisturum
á síðustu leiktíð og telja spek
ingar ólíklegt að hann fái sparkið.
Bent hefur verið á að stjórnunar
stíll Mancini er sá sami og hjá Alex
Ferguson sem stendur fastur fyr
ir séu leikmenn með múður. Það
gerir Mancini líka og þegar hver
einasti leikmaður liðsins er stór
stjarna á ekki að koma á óvart að
menn rjúki reglulega í fýlu. n
H
eitxxx Þrátt fyrir stórar yfir
lýsingar bæði evrópska og
alþjóða knattspyrnusam
bandsins á sínum tíma mið
ar hægt í rannsókn þeirra
á víðtæku veðmálasvindli víða í
evrópska boltanum sem upp komst
um veturinn 2010. Má heita að
hingað til hafi einungis rannsóknir
ítalskra aðila leitt til sakfellingar. Þyk
ir þó sannað að svindlið megi rekja til
glæpamanna í Asíu, af öllum stöðum,
og grunur leikur á að þeir stundi enn
svindl í stórum stíl. Afskaplega lítið
hefur verið fjallað um svindlið hér á
landi og kannski ekki allir sem vita
að í nóvember 2010 lék engin grunur
um neitt misjafnt í evrópska boltan
um. Það breyttist fyrir hreina tilviljun
og má reyndar líka segja að heimska
hafi komið mikið við sögu.
Hinn undarlegi leikur
Cremonese og Paganese
Upphafið má rekja til þess að
ítalskur íþróttafréttamaður, Ivan
Gighi hjá smáblaðinu La Provincia,
var að fylgjast með leik í ítölsku
þriðju deildinni milli Cremo
nese og Pagenese. Fyrri hálfleik
ur var ágætlega leikinn og í hléi var
lið Cremonese með tveggja marka
forystu í leiknum. Það per se kom
blaðamanninum ekki á óvart enda
Cremonese talið mun betra lið og
var mun ofar í deildinni á þessum
tíma. Seinni hálfleikur hófst einnig
bærilega en Gighi veitti því fljót
lega sérstaka athygli að mjög dró af
nokkrum leikmönnum Cremonese.
Fannst honum um tíma eins og hann
væri að horfa á leikinn í hægagangi.
Eftir samtal við lækni liðsins eft
ir leikinn skrifaði Gighi litla klausu
í blað sitt þar sem læknirinn stað
festi að undarlegur sjúkdómur hefði
stungið sér niður hjá liðinu. Fimm
leikmenn þess höfðu kvartað yfir
lasleika eftir leikinn og einn þeirra
var svo sljór að hann lenti í alvar
legu umferðarslysi á leiðinni heim
til sín. Voru þessir leikmenn send
ir á sjúkrahús til skoðunar til örygg
is þar sem í ljós kom töluvert magn
róandi lyfja. Forráðamenn Cremo
nese höfðu samband við lögreglu.
Markvörðurinn vitlausi
Nokkrir mánuðir liðu án tíðinda en
lögregla fékk staðfestan þann grun
að umræddum leikmönnum hefði
verið byrluð ólyfjan í hálfleik um
rædds leiks. Þar var um að ræða
róandi lyf, Minias, og það í stór
um skömmtum. Var talið víst að
lyfið hefði verið blandað í drykki
sem voru í búningsklefanum í leik
hléi. Grunur féll á markvörð liðsins,
Marco Paolino, sem ýmsir sögðu
hafa hagað sér undarlega í mark
inu í fjölda leikja liðsins. Var tekin
sú ákvörðun að hlera síma viðkom
andi og grunur lögreglu fékkst stað
festur. Paolino hafði reynt að hafa
áhrif á úrslit leiksins, en reyndar ár
angurslaust, og fengið sérstaklega
greitt fyrir það. En lögreglan, sér til
furðu, komst sömuleiðis að því að
Paolino var bara eitt lítið hjól í stórri
keðju svindlara og frekari rannsókn
leiddi í ljós að svindlið náði upp í
efstu deildir á Ítalíu og reyndar mun
víðar.
Lögregla lætur til skarar skríða
Það var svo í júní 2011 sem ítalska
lögreglan lét fyrst til skarar skríða og
handtók fjölda fólks og skömmu síð
ar framkvæmdi lögregla í Ungverja
landi einnig handtökur á þarlend
um knattspyrnumönnum. Kom flatt
upp á marga að meðal þeirra hand
teknu var fyrirliði Lazio, Stefano
Mauri, auk þess sem þjálfari Juvent
us, Antonio Conti, og landsliðsmað
urinn Domenico Criscito voru yfir
heyrðir og fengu stöðu grunaðra.
Fleiri áttu eftir að lenda í klóm lög
reglu og þeirra frægastir voru lands
liðsmaðurinn Cristiano Doni og
ekki síður Guiseppi Signori sem
lengi var einn af þeim frægustu í
ítalska boltanum. Með öðrum orð
um; svindlið náði víða.
Höfuðpaurinn í Malasíu
Þó vitað sé um leikmenn í minnst sjö
löndum sem þátt tóku með einum
eða öðrum hætti í svindlinu ganga
grunaðir höfuðpaurar enn lausir.
Svindl hefur verið uppgötvað á Ítal
íu, Möltu, Sviss, Finnlandi auk fyrr
verandi austantjaldslanda á borð
við Ungverjaland. Rannsókn hefur
leitt lögregluyfirvöld á slóðir manna
í Malasíu og þykir sannað að svindl
með einum eða öðrum hætti hafi
verið í gangi í um fimm til sex ára
skeið hið minnsta.
Ekki öll kurl komin til grafar
Rannsókn er hvergi nærri lokið og
enn eru að koma í ljós hversu víð
tækt umrædd svindl var. Síðast fyrir
helgina var lið Napoli sektað og
nokkrir leikmenn þess liðs 2009 og
2010 kærðir fyrir svindl í leik liðsins
gegn Sampdoria þann vetur. Lítið
hefur þó gerst frekar í Malasíu og
ekkert gengið að komast í tæri við
þá sem taldir eru hafa skipulagt og
staðið fyrir svindlinu. n
n Fjöldi leikmanna í mörgum deildum Evrópu sekur um veðmálasvindl
Svindl og Svín-
arí í boltanum
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Enginn Ribery
Þjálfari Paris Saint Germain, Carlo
Ancelotti, ítrekar áhugaleysi sitt á að
fá Franck Ribery til liðsins og seg
ir alls ekki verið að skoða tilboð í
kappann sem er á mála hjá Bayern
München. Blöð í Frakklandi hafa þó
ítrekað flutt fregnir af því að Ribery
sé á óskalista PSG. Sömuleiðis hef
ur Ribery sjálfur haft á orði að hann
vilji fara að snúa heim til Frakklands
og enda ferilinn þar. Ribery er þó
aðeins 29 ára, með samning til 2016.
Frá leik Juventus
og Napoli á Ítalíu
Innan raða beggja
félagsliða stóðu
leikmenn í veðmála-
svindli á árum áður
og fengu sektir fyrir.
Hitnar undir þeim ítalska
Hjá milljarðaliði Manchester City er gerð
krafa um árangur. Mancini er sagður valtur
í sessi.
Úrslit
Enski boltinn
Everton - Liverpool 2–2
0–1 Baines sjm. (14.), 0–2 Suarez (20.), 1–2 Osman
(22.), 2–2 Naismith (35.)
Southampton - Tottenham 1–2
0–1 Bale (4.), 0–2 Dempsey (16.), 1–2 Rodriguez
(66.)
Newcastle - WBA 2–1
1–0 Ba (36.), 1–1 Lukaku (55.), 2–1 Cisse (90.)
Chelsea - Man Utd 2–3
0–1 Luiz sjm. (4.), 0–2 Persie (12.), 1–2 Mata (44.),
2–2 Ramirez (53.), 2–3 Hernandez (75.)
Aston Villa - Norwich 1–1
1–0 Benteke (27.), 1–1 Turner (79.)
Arsenal - QPR 1–0
1–0 Arteta (84.)
Reading - Fulham 3–3
1–0 Leighterwood (26.), 1–1 Ruiz (61.), 1–2 Baird
(77.), 2–2 McCleary (84.), 2–3 Berbatov (88.), 303
Kanu (90.)
Stoke - Sunderland 0–0
1–0 Pablo (65.), 2–0 Michu (67.), 2–1 Boyce (69.)
Wigan - West Ham 2–1
1–0 Ramis (8.), 2–0 McArthur (42.), 2–1 Tomkins
(90.)
Man City - Swansea 1–0
1–0 Tevez (61.)
Staðan
1 Chelsea 9 7 1 1 21:9 22
2 Man.Utd. 9 7 0 2 24:13 21
3 Man.City 9 6 3 0 18:9 21
4 Tottenham 9 5 2 2 17:13 17
5 Everton 9 4 4 1 17:11 16
6 Arsenal 9 4 3 2 14:6 15
7 Fulham 9 4 2 3 19:14 14
8 West Ham 9 4 2 3 13:11 14
9 WBA 9 4 2 3 13:11 14
10 Newcastle 9 3 4 2 11:13 13
11 Swansea 9 3 2 4 14:13 11
12 Liverpool 9 2 4 3 12:14 10
13 Stoke 9 1 6 2 8:9 9
14 Sunderland 8 1 6 1 6:8 9
15 Wigan 9 2 2 5 10:16 8
16 Norwich 9 1 4 4 7:18 7
17 Aston Villa 9 1 3 5 7:14 6
18 Reading 8 0 4 4 11:17 4
19 Southampton 9 1 1 7 14:26 4
20 QPR 9 0 3 6 7:18 3
Spænski boltinn
Espanyol - Malaga 0–0
Southampton - Tottenham 1–2
0–1 Bale (4.), 0–2 Dempsey (16.), 1–2 Rodriguez
(66.)
Zaragoza - Sevilla 2–1
1–0 Postiga (36.), 2–0 Sapunaru (45.), 2–1 Medal
(70.)
Betis - Valencia 1–0
1–0 Sevilla (9.)
Celta - Deportivo 1–1
1–0 Bermejo (8.), 1–1 Dominguez (28.)
Rayo - Barcelóna 0–5
0–1 Villa (19.), 0–2 Messi (47.), 0–3 Xavi (79.), 0–4
Fabregas (80.), 0–5 Messi (88.)
Levante - Granada 3–1
1–0 Martins (12.), 2–0 Martins (60.), 3–0 Rios (73.),
3–1 Arabi (84.)
Athletic - Getafe 1–2
0–1 Rodriguez (12.), 0–2 Vasquez (58.), 1–2 Jose
(90.)
Atlético - Osasuna 2–1
1–0 Miranda (31.), 2–0 Garcia (35.), 2–1 Lamah (42.)
Mallorca - Real Madrid
leik ekki lokið þegar DV fór í prentun
Staðan
1 Barcelona 9 8 1 0 29:11 25
2 Atl.Madrid 9 8 1 0 22:9 25
3 Málaga 9 5 3 1 13:5 18
4 Real Betis 9 5 1 3 13:13 16
5 Levante 9 5 1 3 12:14 16
6 Real Madrid 8 4 2 2 16:7 14
7 Sevilla 9 4 2 3 12:11 14
8 Getafe 9 4 1 4 10:12 13
9 R.Zaragoza 9 4 0 5 9:11 12
10 Mallorca 8 3 2 3 10:9 11
11 Valencia 9 3 2 4 11:12 11
12 R.Valladolid 8 3 1 4 12:9 10
13 Celta 9 3 1 5 10:11 10
14 Rayo Vallecano 9 3 1 5 11:22 10
15 R.Sociedad 8 3 0 5 8:12 9
16 Ath.Bilbao 9 2 2 5 12:19 8
17 Granada 9 2 2 5 8:15 8
18 Dep. La Coruna 9 1 4 4 14:20 7
19 Espanyol 9 1 3 5 11:15 6
20 Osasuna 9 1 2 6 8:14 5