Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2011, Blaðsíða 2
„Þetta er auðvitað grafalvarlegt
ástand. Bæði fyrir okkur sem íbúa
hérna og ekki síst fyrir ferðamanna-
iðnaðinn, við erum mörg hérna sem
eigum allt undir honum,“ segir Elías
Guðmundsson, hótelstjóri á Hótel
Vík.
Skömmu eftir miðnætti aðfara-
nótt laugardags kom hlaup í Múla-
kvísl undan Mýrdalsjökli. Talsverð-
ur kraftur var í hlaupinu sem greip
með sér brúna yfir Múlakvísl og er
hringvegurinn því rofinn. Um tíma
var óttast að gos væri hafið í Kötlu
og er jafnvel talið að um lítilsháttar
kvikuinnskot hafi verið að ræða og
því hægt að tala um smágos.
Samkvæmt jarðeðlisfræðingnum
Magnúsi Tuma Guðmundssyni er
mjög erfitt að sannreyna hvort um
gos hafi verið að ræða en til að fá úr
því skorið þyrfti í raun að bora í gegn-
um ísinn á jöklinum. „Það yrði mjög
erfitt að sannreyna það.“
Að hans mati er mikilvægast að fá
samgöngur í samt horf, en nú þyk-
ir víst að þetta rumsk í Kötlu sé yfir-
staðið.
„Erum bara botnlangi“
Elías er búinn að vera á ferðinni síð-
an hlaupið átti sér stað en auk þess
að reka Hótel Vík er hann einnig
með verslun og veitingahús á sín-
um snærum. Hann segir að hlaup-
ið hafi sett stórt strik í reikninginn
og að áhrif hlaupsins væru nú þegar
merkjanleg.
„Það er búið að vera talsvert um
afbókanir nú þegar. Þetta er mjög
slæmt fyrir okkur hérna á Suðurlandi
og ég bara trúi ekki að það eigi að
taka tvær til þrjár vikur að opna veg-
inn á ný. Það er of langur tími og ég
tala ekki um því að núna erum við að
detta í háannatíma þegar við eigum
von á sem flestum ferðamönnum.
Nú erum við bara botnlangi við suð-
urströndina og það verður að laga
það sem fyrst.“
Þarf að byggja hærra
Bóndi úr Vestur-Skaftafellssýslu sem
vildi ekki láta nafns síns getið hafði
samband við DV. Hann sagði að það
væri vitað meðal almennings á svæð-
inu að hlaupið gæti í Múlakvísl og að
þá væri brúin í hættu. Hann sagði að
ef brúin hefði verið hækkuð um tvo
til þrjá metra hefði hún sennilega
haldið.
„Þetta var bara grínhlaup. Það var
enginn kraftur í þessu. Eina ástæðan
fyrir því að brúin fór er að hún var
byggð of lágt. Hún hefði haldið, hefði
hún verið hærri.“
Verður unnið dag og nótt
DV hafði samband við Ögmund Jón-
asson innanríkisráðherra sem sagði
að unnið yrði dag og nótt til að koma
upp brú yfir Múlakvísl til bráða-
birgða.
„Ég fór til Víkur í gær og átti fund
með fulltrúum Almannavarna og
Vegagerðarinnar. Það sem er á okk-
ar borði núna, eftir að ljóst er að allt
virðist vera með kyrrum kjörum í
jöklinum, er að koma samgöngun-
um í samt horf. Það verður unnið
dag og nótt að því að opna veginn á
nýjan leik.“
Ögmundur sagðist ekki geta sagt
með vissu hvenær bráðabirgðabrú-
in yrði komin í gagnið. Hreinn Har-
aldsson vegamálastjóri sagði í við-
tali á laugardag að slík framkvæmd
gæti tekið tvær til þrjár vikur en flest-
ir eru sammála um að það sé alltof
langur tími – þjóðvegurinn geti ekki
verið rofinn svo lengi á háannatíma
í ferðaþjónustunni. Samtök ferða-
þjónustunnar sendu frá sér fréttatil-
kynningu í gær þar sem þau furðuðu
sig á ummælum Hreins.
2 | Fréttir 11. júlí 2011 Mánudagur
„Það verður unn-
ið hverja einustu
stund uns umferð kemst
aftur á yfir Múlakvíslina.
M Ý R
D A
L S
S A
N
D
U
R
Vík
Hvolsvöllur
1
Katla
Mýrdalsjökull
Eyjafjallajökull
Skógar
Þórsmörk
Helstu leiðir jökulhlaupa úr Kötlu
DV GRAFÍK JÓN INGI
1
Séð yfir Múlakvísl Brúin er farin og hringvegurinn rofinn. Ljósmynd IngóLfur júLíusson
n Hringvegurinn rofnaði þegar jökulhlaup tók með sér brúna yfir Múlakvísl n Mikið áfall fyrir ferðamanna-
iðnaðinn n Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að unnið verði dag og nótt við að smíða nýja brú
„Grafalvarlegt ástand“
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is