Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2011, Blaðsíða 3
„Samtök ferðaþjónustunnar lýsa
furðu sinni yfir viðtali við vegamála-
stjóra í gær þar sem hann sagði að
það myndi væntanlega taka 2 til 3
vikur að koma á umferð yfir Múla-
kvísl eftir að brúna tók af í jökul-
hlaupi. Stjórnendur fyrirtækja í
greininni trúa ekki að stjórnvöldum
sé alvara. Það er skýlaus krafa ferða-
þjónustunnar að öllum tiltækum
ráðum verði beitt til að opna leið yfir
Múlakvísl sem allra fyrst. Hver dagur
er mjög dýr þar sem ferðir um hring-
veginn er ein helsta söluvara ferða-
þjónustunnar.“
Í tilkynningunni er skorað á Ög-
mund Jónasson að beita sér af öllu
afli, þar sem um algert neyðarástand
sé að ræða. Ögmundur virðist vera
sömu skoðunar en hann sagði í við-
tali við DV að brúin yfir Múlakvísl
væri algjört forgangsmál.
„Ég get ekki sagt það með vissu en
ég hef heyrt talað um tvær vikur eða
svo. En ég legg áherslu á að við mun-
um vinna eins hratt og nokkur kostur
gefst og það verður unnið hverja ein-
ustu stund uns umferð kemst aftur á
yfir Múlakvíslina,“ sagði Ögmundur
að lokum.
„Alveg ótækt“
DV hafði samband við Ernu Hauks-
dóttur, framkvæmdastjóra Sam-
taka ferðaþjónustunnar. Hún sagði
að ferðaþjónustan gæti ekki unað
við vegrofið enda sé hringvegurinn
helsta söluvara ferðamannaiðnaðar-
ins á Íslandi.
„Það er alveg ótækt að vegurinn
verði rofinn í tvær til þrjár vikur. Við
tökum það bara ekki í mál. Það eru
skilaboðin sem við höfum komið til
stjórnvalda. Það verður að leita allra
mögulegra leiða til að opna veginn á
nýjan leik.“
Flestir rólegir
Margir brostu sennilega út í annað
þegar heyrðist af sóknarprestinum í
Vík í Mýrdal, Haraldi Kristjánssyni,
sem fór með þyrlu frá Vík til Kirkju-
bæjarklausturs en þar þurfti hann að
sjá um jarðarför. Haraldur segir að
þrátt fyrir að hlaupið hafi verið mikið
áfall þá virðist bæjarbúar vera hinir
rólegustu.
„Það má kannski segja að fólkið
sé farið að kannast við það að vera
undir miklu álagi. Þetta hlaup er
auðvitað mjög slæmt og stórt högg
fyrir ferðamannaiðnaðinn. Hér í Vík
höfum við þurft að þola ýmislegt, til
að mynda tvö eldgos með skömmu
millibili. En ég held að við komumst
yfir þetta, mikilvægast er að fá sam-
göngurnar aftur í lag og vonandi
verður það sem fyrst.“
Hræddari við Kötlugos
Haraldur segir að íbúar á Vík hafi
ekki verið óvenjulega óttaslegnir,
enda aðeins um lítið hlaup að ræða.
„Ég held að við yrðum þá hrædd-
ari við Kötlugos. Sú hætta er auðvitað
alltaf fyrir hendi og það vita allir sem
búa hérna við suðurströndina. En ég
held að fólk sé ekkert að stressa sig
of mikið á því heldur. Það eru til við-
bragðsáætlanir um hvað á að gera og
þær höfum við æft margoft. Þannig
að þar vitum við hvað við erum að
gera, eða við höldum það að minnsta
kosti. Það er skárra en ekkert.“
Fréttir | 3Mánudagur 11. júlí 2011
Arnþrúður Karlsdóttir neitar út-
varpskonunni Önnu Kristine Magn-
úsdóttur um að fá afrit af útvarps-
þáttunum sem hún gerði sem
dagskrárgerðarmaður á Útvarpi
Sögu. Anna Kristine á ótvíræðan höf-
undarrétt á þáttunum og hefur hún
beðið um aðstoð Blaðamannafélags
Íslands við að fá afrit af þáttunum
afhent frá Útvarpi Sögu. Eiginkona
Ólafs Þórðarsonar tónlistarmanns,
sem varð fyrir hrottalegri árás sonar
síns fyrir tæpum átta mánuðum, hef-
ur beðið um að fá þátt þar sem mað-
ur hennar var í viðtali afhentan en
ekki fengið. Anna Kristine segist allt-
af hafa fengið eintak af öllum sínum
útvarpsþáttum fyrir sig og viðmæl-
endur sína, nema á Útvarpi Sögu.
Höfundarrétturinn óumdeildur
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélagsins, staðfestir í samtali
við DV að Anna Kristine hafi leitað
til félagsins í tilraunum sínum til að
fá þættina afhenta. Hann segist hafa
reynt að hafa milligöngu um það en
að það hafi ekki tekist. „Þetta hefur
ekki skilað niðurstöðu ennþá. Það
er dálítið um liðið en ég þarf að taka
þetta mál upp aftur,“ segir hann að-
spurður hvernig málið standi í dag.
Hann tekur undir með Önnu varð-
andi höfundarréttinn á þáttunum.
„Að mínu viti er það ekki spurning,“
segir hann aðspurður hvort Anna
Kristine eigi ekki ótvíræðan höfund-
arrétt á þáttunum.
Konu Ólafs langar að eiga afrit
af viðtalinu
„Blaðamannafélagið hefur reynt að
tala við hana,“ segir Anna Kristine
aðspurð hvernig málið standi í dag.
„Viðmælendur hafa alltaf fengið af-
rit af viðtalinu við sig sjálfa og ég líka.
Kona Ólafs Þórðarsonar heyrði aldrei
viðtalið sem ég átti við hann um jól-
in 2009 og langar mikið til að eiga
þetta. Þar er mikið um hann og hans
barnæsku,“ segir hún. „Sameiginleg
vinkona hennar og Arnþrúðar hefur
beðið hana um að fá afhentan geisla-
diskinn en hún neitar því.“ Í viðtalinu
fór Ólafur yfir ævi sína og ræddi um
fólkið í kringum sig. Ræddi hann
meðal annars um son sinn, sem
seinna réðst á hann með alvar-
legum afleiðingum.
Starfaði fyrir Arnþrúði í tíu
mánuði
Arnþrúður sagði Önnu Kristine
upp störfum óvænt 13. september
í fyrra en Anna stjórnaði útvarps-
þættinum Milli mjalta og messu á
sunnudagsmorgnum. Arnþrúður
tilkynnti Önnu með tölvupósti að
hún þyrfti að afboða viðmælendur
því þátturinn yrði ekki oftar á dag-
skrá. Í tölvupóstinum sagði með-
al annars: „Menn vilja sjá harðari
fréttatengda umfjöllun á þessum
tíma eins og Bylgjan gerir og ég hef
Anna mín verið að tala þínu máli
en varð alveg undir í þessu þ.e.a.s.
á þessum útsendingartíma.“ Síðan
þá hafa deilurnar um útvarpsþætt-
ina staðið og sér ekki enn fyrir end-
ann á þeim.
Kona Ólafs fær
ekki afrit af viðtali
Heldur þáttunum
Arnþrúður Karlsdóttir vill ekki
afhenda neinum þættina.
n Anna Kristine Magnúsdóttir stendur í deilum við Útvarp Sögu
vegna eigin útvarpsþátta n Hefur ekki fengið afrit af þáttunum
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Kona Ólafs
Þórðarsonar heyrði
aldrei viðtalið sem ég átti
við hann um jólin 2009
og langar mikið til að
eiga þetta.
Starfsmönnum
bannað að fara
á netið
Starfsmönnum á Útvarpi Sögu er bannað
að skoða netmiðla og hlusta á útvarpið
á vinnutíma. Þessar reglur voru kynntar
starfsmönnum á miðvikudag, sama
dag og DV fjallaði um starfsmannamál
útvarpsstöðvarinnar. Ekki hefur náðst
í Arnþrúði Karlsdóttur, útvarpsstjóra á
Útvarpi Sögu, vegna málsins. Sam-
kvæmt heimildum DV voru starfsmenn
stöðvarinnar, sem eru rúmlega 20 talsins,
boðaðir á fund með Svanhildi Ásgeirs-
dóttur, markaðsstjóra stöðvarinnar, þar
sem þessi nýbreytni var tilkynnt. Arn-
þrúður sat sjálf ekki fundinn.
Í DV á miðvikudag, sama dag og starfs-
mannafundurinn á útvarpsstöðinni var
haldinn, var fjallað um uppsögn Hauks
Holm, fréttastjóra stöðvarinnar, og
Sigurðar Þ. Ragnarssonar, veðurfræðings
og starfsmanns fréttastofunnar. Þá var
farið yfir sérstæðar aðferðir Arnþrúðar
við að segja upp starfsfólki sínu en hún
hefur ýmist sent því SMS-skilaboð eða
tölvupóst með uppsögn. Þá voru einnig
birt ummæli sem Arnþrúður lét falla í
tölvupósti til lögmanns síns þar sem hún
kallaði brottrekið starfsfólk sitt rusl.
Aldrei verið vandamál fyrr en núna Anna Kristine segist alltaf
hafa fengið útvarpsþætti sína afhenta en hún var um árabil með þátt
sinn Milli mjalta og messu í Ríkisútvarpinu. Mynd RAKel ÓSK SiguRðARdÓttiR
„Grafalvarlegt ástand“
Sótsvartur jökull Eldgos undangenginna ára hafa sett svip sinn á jökulinn.
Ljósmynd LandheLgisgæsLan
Sig í jöklinum Á myndinni má sjá hvernig jökullinn hefur sigið. Ljósmynd LandheLgisgæsLan