Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 11. júlí 2011 Mánudagur
n Tölvupóstar sýna leynimakk sparisjóðsins Byrs og FL Group n Byr vildi ekki lána FL Group
árið 2008 n Viðhorf Byrs breyttist þegar FL Group bauð sjóðnum milljarða lán á móti
Eignarhaldsfélagið FL Group,
stærsti eigandi Glitnis, lét bank-
ann lána sér þrjá milljarða króna
í gegnum sparisjóðinn Byr í mars
2008. FL Group var komið í erfið-
leika vegna endurfjármögnun-
ar félagsins þegar þetta var og gat
ekki fengið meira lánað frá Glitni
þegar þarna var komið sögu. Við-
skiptin fóru þannig fram að Glitnir
lánaði Byr þrjá milljarða króna og
fékk svo sömu upphæð lánaða frá
Byr. Þetta kemur fram í tölvupóst-
um, fundargerðum, lánasamning-
um og fleiri gögnum sem DV hefur
undir höndum.
FL Group var komið í talsverða
erfiðleika í lok árs 2007. Félagið
hafði tapað tæplega 70 milljörðum
króna árið 2007 og Hannesi Smára-
syni, þáverandi forstjóra FL Group,
var ýtt út úr félaginu í desem ber
það ár. Í desember átti sér stað
hlutafjáraukning í félaginu upp á
15 milljarða, ný stjórn var kjörin og
Jón Sigurðsson tók við af Hannesi
sem forstjóri. Þá lá einnig ljóst fyrir
að FL Group þyrfti að draga sam-
an seglin í ljósi tapreksturs og kom
slíkt fram í máli stjórnarformanns
FL Group, Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, á hluthafafundi FL Group
sem haldinn var um miðjan des-
ember 2007. Því var ljóst að róður
FL Group yrði erfiður árið 2008.
Heimildir DV herma að stjórn
sparisjóðsins Byr hafi sent ábend-
ingu um viðskipti Byrs og FL Gro-
up til bæði Fjármálaeftirlitsins og
sérstaks saksóknara eftir hrun.
Þetta var gert vegna gruns um að
refsiverð háttsemi hefði átt sér
stað í viðskiptunum. Samkvæmt
heimildum DV hefur Fjármála-
eftirlitið ekki kært málið form-
lega til sérstaks saksóknara eftir
að ábendingin barst. Málið er því
væntanlega enn í vinnslu hjá Fjár-
málaeftirlitinu og sérstökum sak-
sóknara.
Tóku milljarða út úr
Glitni í mars
Strax í mars 2008, um svipað leyti
og gengið var frá umræddum lána-
viðskiptum í gegnum Byr, leitaði
FL Group til dæmis í hirslur Glitn-
is eftir sex milljarða króna láni til
að greiða upp skuld við banda-
ríska fjárfestingarbankann Morg-
an Stanley. FL Group hafði tek-
ið lánið frá Morgan Stanley til að
fjárfesta í hlutabréfum í Glitni árið
2007. Um þetta er fjallað í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Ástæðan fyrir því að FL Group
þurfti að leita í sjóði Glitnis eftir
endur fjármögnun var sú að vegna
slæmrar stöðu félagsins átti það í
erfiðleikum með að fá lánafyrir-
greiðslu annars staðar en hjá Glitni
á þessum tíma. Þessi tregða ann-
arra fjármálafyrirtækja til að lána
FL Group á þessum tíma kemur
reyndar skýrt fram í viðbrögðum
stjórnenda Byrs þegar FL falaðist
fyrst eftir láni frá sjóðnum.
Um þessa endurfjármögnun
Glitnis á láni Morgan Stanley til FL
Group segir í skýrslunni: „Í mars
2008 var FL Group að leita eftir
endurfjármögnun á 10% eignar-
hlut sínum í Glitni sem Morgan
Stanley hafði fjármagnað. Fram
kemur í fundargerð áhættunefndar
Glitnis, 25. mars það ár, að félagið
hafi greitt verulega inn á lánið hjá
Morgan Stanley en í lok árs 2007
voru heildarskuldir FL Group við
Morgan Stanley rétt tæpir 30 millj-
arðar króna (en líklega var ekki
allur hluti þess vegna Glitnisbréf-
anna). Á fundinum var ákveðið að
veita FL Group 50 milljóna evra
lán (þá tæpir 6 milljarðar króna) til
að greiða upp síðasta hluta láns-
ins við Morgan Stanley.“ FL Group
fékk því gálgafrest út af þessari
lánafyrirgreiðslu frá Glitni.
Annað sambærilegt dæmi um
notkun FL Group á Glitni er fjárfest-
ing eignalausa félagsins Consen-
sus í framvirkum skuldabréfum FL
fyrir átta milljarða króna árið 2008.
Hugsanlegt er að tilgangur fjárfest-
ingar Consensus hafi verið sá að
fara fram hjá reglum fjármálamark-
aðarins um hámarkslánveitingar til
einstakra aðila. Samkvæmt skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis var
Glitnir búinn að lána FL Group svo
mikið að bankinn gat ekki lánað fé-
laginu meira vegna þessara reglna
um stórar áhættuskuldbindingar.
Fjárfesting Consensus, og ann-
arra eignarhaldsfélaga, í skulda-
bréfum FL Group fyrir samtals
12 milljarða gerði það hins veg-
ar að verkum að Glitnir gat þar
með lánað FL Group meira. Rann-
sóknarnefnd Alþingis vísaði máli
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Eins og fram hefur
komið í samtölum
þá er samningur okkar
við Glitni forsenda þessa
samnings og honum hef-
ur ekki verið lokið.
Glitnir lánaði
milljarða í
GeGnum BYr
Atburðarásin í mars 2008
1. mars
FL Group hefur samband
við Byr og óskar eftir allt að
8 milljarða láni með veði í
bréfum Landic Property
7. mars
Ragnar Z. Guðjónsson
ræðir við Jón Sigurðsson og
hafnar lánsbeiðni FL Group
12. mars
Viðar Þorkelsson
biður Byr um 6 millj-
arða króna lán fyrir FL
Group. Byr tekur ekki
vel í hugmyndina.
28. mars
Búið að ákveða að
Byr fái jafnhátt lán á
móti frá Glitni
31. mars
Stjórn Byrs greint
frá samningunum.
Stjórnin samþykkir
samninga.
31. mars
Skrifað undir
lánasamningana 1. apríl
Byr greiðir
FL Group
milljarðana
þrjá
30. mars
Samningar takast
um lánveitingarnar
milli Byrs, FL Group
og Glitnis