Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2011, Blaðsíða 14
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 11. júlí 2011 Mánudagur
Flúðir
Tjaldsvæði er nýlega komið á nýjan
stað á Flúðum rétt við Litlu Laxá.
Mjög góð aðstaða og skemmtilegar
nýjungar eins og flugdrekavöllur og
blakvellir.
Verð:
1.100 krónur fyrir fullorðna
500 krónur fyrir 13–16 ára
Frítt fyrir 12 ára og yngri
23 ára aldurstakmark
Rafmagn 600 krónur
Frítt í sturtur
n n n n n n n n
laugavatN
Alltaf sígilt og gott. Um að gera að
prófa nýja gufubaðið á Laugavatni
líka.
Verð:
850 krónur fyrir fullorðna
450 krónur fyrir 6–16 ára
Frítt fyrir 5 ára og yngri
450 krónur fyrir örorku- og ellilífeyrisþega
18 ára aldurstakmark
Hægt að kaupa gas
Rafmagn 550 krónur
n n n n n n n n
galtalækur
Opnaði aftur í fyrrasumar eftir smá
hvíld. Hefur verið endurnýjað að
einhverju leyti en er eftir sem áður
frábærlega staðsett.
Verð:
800 krónur fyrir fullorðna
Frítt fyrir 16 ára og yngri
600 krónur fyrir eldri borgara
Sturta 500 krónur
Rafmagn 500 krónur
18 ára aldurstakmark
n n n n n n n
HerjólFsdalur,
vestmaNNaeyjum
Verð:
700 krónur fyrir fullorðna
Frítt fyrir 12 ára og yngri
Rafmagn 500 krónur
n n n n n n
vík í mýrdal
Skemmtilegt svæði alveg við þjóð-
veginn.
Verð:
750 krónur fyrir fullorðna
Frítt fyrir 13 ára og yngri
500 krónur fyrir eldri borgara
Aldurstakmark 18 ára
Rafmagn 400 krónur
18 ára aldurstakmark
n n n n n n n
n Tjaldstæði landsins eru hátt í 200 talsins n DV gerði könnun á verði og aðstöðu á
nokkrum völdum tjaldstæðum n Töluverður munur er á dýrasta og ódýrasta tjaldstæðinu
Bestu tjaldstæðin
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Það er ódýrast að gista á tjaldstæð-
inu í Sandgerði en nóttin þar kostar
einungis 500 krónur á mann í tjaldi
og 600 krónur í húsbíl eða fellihýsi,
auk þess sem frítt er fyrir börn yngri
en 10 ára. Algengara er að fólk þurfi
að borgA um 1.000 krónur á mann
fyrir nóttina á tjaldstæðum en verð á
nætur gistingu fyrir börn er afar mis-
jafnt. Á mörgum stöðum er þó ókeyp-
is fyrir börn innan ákveðins aldurs.
Dýrasta tjaldstæðið er í Breiðavík á
Vestfjörðum þar sem nóttin kostar
1.500 krónur á mann.
Þetta eru niðurstöður úr óform-
legri könnun sem DV gerði á tjald-
stæðum landsins. Geir Gígja, eig-
andi tjalda.is var DV innan handar
og gaf álit sitt á þeim tjaldstæðum
sem hann er kunnugur. Eins eru
upplýsingar um tjaldstæði og mynd-
ir fengnar hjá tjalda.is. Þeir sem ætla
að skella sér í tjaldútilegu eru einn-
ig hvattir til að kynna sér tjaldstæð-
in á tjalda.is eða tjald.is en auk þeirra
eru fleiri síður þar sem fjallað er um
tjaldferðalög.
Mikið úrval tjaldstæða
Það má ætla að tjaldstæðin á landinu
séu hátt í 200 en um 150 ferðaþjón-
ustuaðilar eru með skráð tjaldsvæði
í gagnagrunni Ferðamálastofu. Það
eru þó einungis þeir aðilar sem hafa
tilskilin leyfi til reksturs tjaldsvæða.
Það var því ekki mögulegt að taka
saman upplýsingar um verð og að-
stöðu á öllum tjaldstæðum landsins
og því einungis nokkur þeirra skoð-
uð hér.
Flokkun Ferðamálastofu
Á síðunni tjalda.is má finna upp-
lýsingar um tjaldstæði landsins,
staðsetningu, aðstöðu og verð. Þar
má einnig sjá hvernig tjaldstæðin
eru flokkuð eftir flokkunarviðmiði
Ferðamálastofu Íslands. Aðeins um
45 prósent tjaldsvæða á landinu hafa
verið flokkuð en tjaldsvæðin ákveða
sjálf hvernig þau flokkast og gefa sér
eina til fimm stjörnur og fer það eft-
ir þjónustu á staðnum. Gestir tjald-
svæðisins geta síðan látið Ferða-
málastofu eða tjaldsvæðið vita ef þeir
eru ósáttir við flokkunina. Stjörn-
ur við nöfn tjaldstæðanna hér sýna
áðurnefnda flokkun en eins og fyrr
segir þá eru ekki öll tjaldstæði lands-
ins flokkuð.
n WC n Heitt vatn n Kalt vatn n Rafmagn n Aðstaða til losunar affallsvatns og seyru af húsbílum n Sturta n Leiktæki n Hundar n Eldunaraðstaða n Aðstaða fyrir fatlaða
Suðurland
Hvar má og hvar
má ekki tjalda
n Leyfilegt er að tjalda við aðalvegi og
á óræktuðu landi yfir nótt. Ef tjalda á
nærri húsum þarf að fá leyfi landeig-
enda. Alltaf þarf leyfi ef tjöldin eru fleiri
en þrjú og tjalda á lengur en í þrjá daga.
n Leyfilegt er að tjalda við vegi utan
hins almenna vegakerfis ef ekki gilda
sérstakar reglur um svæðið sem ferðast
er um.
n Leyfilegt er að tjalda nálægt þjóð-
vegi á óræktuðu landi. Ef á að tjalda á
ræktuðu landi þá þarf alltaf að fá leyfi
landeigenda.
n Alltaf ber að fylgja reglum hvers tjald-
svæðis ef þær eru til.
n Landeigendur geta bannað ferða-
mönnum að tjalda á viðkvæmum
svæðum þar sem hætta er á jarðvegs-
skemmdum.
n Ef landeigendur eru með tjaldsvæði
á landi sínu hafa þeir heimild til þess að
rukka fyrir þá þjónustu.
n Alltaf ber að skilja við tjaldsvæði í
sama ástandi og að því var komið.
UppLýSinGAr AF cAMpinG.iS