Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2011, Page 12
12 | Fréttir 11. júlí 2011 Mánudagur
væri til í að skoða 2 milljarða lán ef
tryggingar og kjör væru ásættan
leg og að við fengjum fjármögnun
á þær. Viðar hefur svo rætt við Jón
Þóris hjá VBS og ætlar að ræða við
Styrmi hjá MP um aðkomu þeirra
með sömu fjárhæð. Ég sagði Viðari
að þeir þyrftu að bjóða eitthvað ann
að með Landic, þ.e. að Landic eitt og
sér væri ekki ásættanlegt.“
Viðar sendi stjórnendum Byrs
annað tilboð 27. mars þar sem
hann bað um fjögurra milljarða
kúlulán með vaxtaafborgunum á 6
mánaða fresti og veði í hlutabréf
um FL Group í Glitni. Vaxtakjör
áttu að vera 3,50 yfir Libor. Ragn
ar Z. var hins vegar ekki sáttur við
tilboðið og hafnaði því í tölvupósti
til samstarfsmanna sinna – búið
var að láta FL Group vita að félagið
fengi ekki meira en tveggja millj
arða króna lán. „Rugl [...] Vid eru
ekki að tala um 4, nema ad haldi
að VBS sé ad taka 2. Kjorin eru ut
ur korti.“ Ekkert varð því af þessari
lánveitingu Byrs til FL Group.
Stjórn FL Group
samþykkti viðskiptin
Eftir þetta er gat í tölvupóstsam
skiptunum sem DV hefur undir
höndum þar sem Byr og FL Group
virðast hafa komist að annars konar
samkomulagi um tilhögun lánanna
sem ekki er rædd beint í tölvupóst
samskiptunum: Glitnir átti að lána
Byr þrjá milljarða og Byr átti svo
að lána þrjá milljarða áfram til FL
Group. Svo virðist sem stjórnend
ur Byrs og FL Group hafi því komist
að þessu samkomulagi með öðrum
hætti en í tölvupóstum. Glitnir var
því í reynd að lána FL Group þrjá
milljarða í gegnum Byr.
Þessi staðreynd er afar áhugaverð
í ljósi þess að í skýrslu rannsóknar
nefndar Alþingis og fleiri gögnum
sem liggja fyrir koma fyrir margar
sannanir þess efnis að helstu stjórn
endur FL Group, sérstaklega Jón Ás
geir Jóhannesson stjórnarformað
ur, hafi verið skuggastjórnendur hjá
Glitni fyrir hrunið 2008.
Í gögnunum sem DV hefur
undir höndum kemur fram að
stjórn FL Group hafi samþykkt
lántökuna frá Byr. Um þetta segir
á undirrituðu skjali frá Bernhard
Bogasyni, starfsmanni FL Group
og ritara stjórnarinnar: „Það stað
festist hér með að þann 30. mars
2008 tók stjórn FL Group hf (FL)
ákvörðun um að heimila forstjóra
og eða fjármálastjóra félagsins að
semja við BYR sparisjóð (BYR) um
að BYR láni og FL fái að láni kr.
3.000.000.000 (þrjá milljarða).“
Fullyrða má að Jón Ásgeir og
aðrir stjórnarmenn í FL Group hafi
vitað af því að Glitnir hafi lánað Byr
á móti fyrir láninu frá sparisjóðn
um þar sem fyrir liggur að FL Group
nánast handstýrði Glitni eftir yfir
tökuna á Glitni í apríl 2007. Nokkur
dæmi eru tekin um þetta í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
DV hafði samband við Jón Ás
geir Jóhannesson til að spyrja
hann út í viðskipti FL Group við
Byr. Jón Ásgeir vildi ekki tjá sig um
þau og benti blaðamanni að spyrja
Jón Sigurðsson, fyrrverandi for
stjóra FL, um málið. „Bendi a Jon
Sig... Eg var ekki að reka fl á þess
um tíma þannig þú verður að bera
þessar spurningar undir þá sem
sáu um þessi mál. Þú hlýtur að
skilja það,“ sagði Jón Ásgeir í svari
sínu í tölvupósti.
Meðal þess sem DV lék forvitni
á að vita var af hverju FL Group
hefði legið svo á að fá lán frá Byr,
eða öðrum aðilum, á þessum tíma.
Viðar sagði peninginn koma
frá þeim
Eftir þetta tóku við viðræður í
tölvupóstunum um lánaskilmála
á lánunum frá Glitni til Byrs og frá
Byr til FL Group. Svo virðist sem
engin bein skil hafi verið á milli
Glitnis og FL Group í þessum við
skiptum og tóku starfsmenn Glitn
is ekki beinan þátt í þeim. Þar sem
Byr ætlaði sér að græða á lánavið
skiptunum með vaxtamuninum á
milli lánsins frá Glitni og lánsins
til FL Group var þetta afar mikil
vægt fyrir sparisjóðinn og í reynd
hvatinn að viðskiptunum. Hvati
FL Group var einfaldlega að ná sér
í fjármuni með einhverjum hætti
sem fyrst og því skiptu tugir millj
óna til eða frá kannski litlu máli
fyrir félagið.
Eftir að fyrir lá að Glitnir myndi
lána Byr og að Byr myndi svo lána
FL Group þurfti að drífa samn
ingana í gegn. Svo mikið lá á hjá
FL Group að klára samningana við
Byr að FL Group ýtti mjög á eftir
málinu líkt og Carl sagði í tölvu
pósti til Ragnars og Magnúsar Ægis
þann 29. mars:
„Þeir pressa á svar við samn
ingnum í dag og Viðar sagði að
þeir væru með lögfræðinga á
fullu... Viðar ætlar svo að hringja
í mig aftur í dag og ræða kjörin.
Reyna að pressa.“
Viðar og Carl héldu áfram að
skiptast á skoðunum um vextina
á láninu frá Byr. Mat Viðars var að
Byr ætti að geta lánað FL Group á
þeim kjörum sem hann nefndi þar
sem FL Group bæri í reynd ábyrgð
á því að Glitnir lánaði Byr milljarða
á móti; svo góð virðast ítök FL Gro
up í Glitni hafa verið.
„Varðandi vaxtakjörin teljum
við 375 bp eðlilega marginu og
lántökugjald max bp í ljósi þess
að fjármagnið sem lagt er til er fyr
ir okkar tilstilli og um lágmarks
vinnu að ræða við dílinn. Þið hljót
ið að geta komið til móts við okkur
í þessu máli,“ sagði Viðar.
Carl sagðist í tölvupósti til Við
ars vera jákvæður gagnvart við
skiptunum og að þau ættu að geta
styrkt bæði Byr og FL Group: „Per
sónulega er ég jákvæður gagnvart
þessum viðskiptum og tel að þau
geti styrkt báða aðila til framtíðar.“
Lánið frá Glitni forsenda
Byrslánsins
Lánasamningur Byrs og FL Group
var tilbúinn þann 30. mars. Byr ýtti
hins vegar á eftir því við FL Group
að Glitnir lyki við lánasamning
inn vegna lánsins frá bankanum
til Byrs áður en sparisjóðurinn
gæti gengið endanlega frá greiðslu
lánsins.
„Eins og fram hefur komið í
samtölum þá er samningur okkar
við Glitni forsenda þessa samnings
og honum hefur ekki verið lokið.“
Byr lánaði FL Group því aðeins
vegna þess að sparisjóðurinn fékk
jafnhátt lán frá Glitni á móti.
Athygli vekur að Byr kom þess
ari ábendingu á framfæri við FL
Group en ekki Glitni enda eru eng
in bein samskipti á milli Byrs og
Glitnis í þeim gögnum sem DV hef
ur undir höndum. FL Group virðist
því hafa séð alfarið um samninga
viðræðurnar við Byr vegna millj
arða króna láns frá Glitni.
Byrslánið speglað
Ragnar Z. sendi stjórnarmönnum
í Byr, þeim Agli Ágústssyni, Guð
mundi Inga Jónssyni, Jóni Þor
steini Jónssyni og Magnúsi Ár
manni, tölvupóst daginn eftir,
þann 31. mars, þar sem hann til
kynnti þeim að gengið hefði ver
ið frá lánveitingunni til FL Group
deginum áður. Lánið var það hátt
að það þarfnaðist staðfestingar frá
stjórn sparisjóðsins. Í tölvupóst
inum rakti Ragnar Z. aðdraganda
lánveitingarinnar:
„Þann 1. mars sl. óskaði FL
Group hf. lánafyrirgreiðslu frá
okkur allt að fjárhæð 8 milljörð
um króna með veði í hlutabréf
um Landic Properties. Eftir fundi
með FLmönnum og yfirferð
ar lánanefndar Byrs og að höfðu
samráði við stjórnarformann Byrs
var ákveðið að bjóða þeim allt að
3 milljörðum króna í lánafyrir
greiðslu gegn tryggingum í Glitni.
Forsenda lánveitingarinnar var
jafnframt að að einn af viðskipta
bönkunum myndi útvega Byr pen
inga til að lána áfram til FL.“
Seinna í tölvupósti hans kom
fram að lánsfjárhæðin væri 3 millj
arðar króna, lántökugjaldið væri 2
prósent, vaxtaálagið 4,5 prósent og
að útborgunardagur lánsins væri
31. mars. Svo sagði Ragnar:
„Á móti þessu láni tökum við
lán hjá Glitni banka sem speglar
ofangreinda lánveitingu. Glitn
ir lánar okkur með 2% vaxtaálagi
auk 1% lántökugjalds [...] Hreinn
vaxtamunur okkar á ofangreindri
lánveitingu er 3% á ári.“ Byr sá
því fram á að græða 90 milljónir
í vaxta mun á ári auk 30 milljóna
í lántökugjald við gerð samning
anna, líkt og kom fram í tölvupósti
Carls: „Ekki slæmt það,“ sagði
hann. Skrifað var undir lánasamn
ingana þennan sama dag.
„Vúhú“: Gengið frá greiðslunni
Gengið var frá greiðslunni dag
inn eftir samkvæmt tölvupósti eins
starfsmanna Glitnis til Carls þann
1. apríl en Viðar hafði þá ýtt á eftir
því að greiðslan á láninu yrði klár
uð: „Vinsamlega klárið greiðsluna,“
sagði hann. Starfsmaður Byrs sem
millifærði peninga til FL Group
staðfesti að gengið hefði verið frá
henni:
„Vúhú! Ég er þá búin að ganga
frá greiðslunni til þeirra, mikill
léttir: ) Meðfylgjandi er AKSkvitt
unin, þið ráðið hvort þið sendið
hana áfram til Viðars. En greiðslan
er a.m.k. komin til þeirra :)“ Þann
ig tók FL Group þrjá milljarða út úr
Byr og lét Glitni leggja þrjá millj
arða inn í Byr í staðinn.
Lánið og veðið frá Glitni
Veðið fyrir láninu frá Byr til FL
Group var í hlutabréfum FL Group í
Glitni en félagið átti bréfin í gegnum
hollenska dótturfélagið FL Group
Holding Netherlands B.V. Þetta
kemur fram í fundargerð hollenska
félagsins sem DV hefur undir hönd
um sem og í veðsamningnum á milli
Byrs og hollenska félagsins. Áhætta
Byrs vegna lánveitingarinnar til FL
Group var því á endanum bund
in við hlutabréf FL Group í Glitni.
Með þessu móti náði að FL Group
að endurfjármagna sig tímabundið,
kaupa sér gálgafrest um skeið.
Þetta var gert með stuðningi frá
Glitni í að minnsta kosti þremur
tilfellum á fyrsta helmingi ársins
2008 þar sem enginn, þar á með
al Byr, vildi lána FL Group fjár
muni á eðlilegum forsendum. Þess
vegna var féð sótt inn í Glitni þegar
í harðbakkann sló.
Ekki náðist í Viðar Þorkels
son, sem í dag er forstjóri korta
fyrirtækisins Valitors, við vinnslu
fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar til
raunir.
„Þið hljótið að geta
komið til móts við
okkur í þessu máli.
Viðhorf Byrs breyttist Byr vildi upphaflega ekki lána
FL Group í mars 2008. Viðhorfið breyttist svo þegar þeim
bauðst að fá jafnhátt lán frá Glitni á móti 3 milljarða láni frá
Byr til FL. Ragnar Z. Guðjónsson og Magnús Ægir Magnússon
voru sparisjóðsstjórar Byrs og skrifuðu upp á lánið til FL.