Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Side 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 7. september 2011 Þ ór Saari, þingmaður Hreyf- ingarinnar, hefur lagt fram skriflega fyrirspurn á Al- þingi til Svandísar Svavars- dóttur, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, um kostaðar stöður við skóla á háskólastigi. Þór spyr hversu margar stöður við skóla á háskólastigi hafa verið kostaðar af fyrirtækjum, samtök- um eða stofnunum frá árinu 1995 og hversu lengi. Hann óskar eftir sundurliðun eftir skólum, auk upp- lýsinga um hverjir hafi gegnt um- ræddum stöðum og hversu lengi, svo og hver greiði kostnaðinn við þær. Ómarktækir háskólar „Það dúkkar upp reglulega um- ræða um hvers eðlis þessar stöður í háskólum eru sem eru kostaðar af fyrirtækjum eða stofnunum,“ segir Þór í samtali við DV. „Nýjasta dæm- ið er Helgi Áss Grétarsson sem er í einhverju fyrirbæri sem heitir Lagastofnun Háskóla Íslands, en launin hans og staðan hans eru greidd af LÍÚ. Þetta hefur verið við- loðandi vandamál hér á Íslandi í nokkuð mörg ár og á ekkert erindi inn í akademískt umhverfi; að pró- fessorar séu á launum hjá sérhags- munahópum í stað þess að vera á grundvelli akademísks umhverfis.“ Þór vill breyta þeim reglum sem heimila að hagsmunahópar geti keypt prófessorsstöður. „Hér á landi hefur staðan verið sú að LÍÚ hefur í mörgum tilfellum einfaldlega keypt sér álit og störf og prófessora Há- skóla Íslands.“ Hann nefnir dæmi um Hag- fræðistofnun Háskóla Íslands. „Ragnar Árnason hefur verið á launum hjá LÍÚ í áratugi. Hag- fræðistofnunin var lengi að hluta til fjármögnuð af LÍÚ. Háskóli Ís- lands er fyrir vikið að stórum hluta að verða ómarktækur sem aka- demískt fyrirbrigði. Mér finnst rétt að það verði gerð úttekt á þessu og að það komi í ljós hverjir þetta eru og síðan verði reynt að breyta þessu fyrirkomulagi.“ Hann segir að ekki þurfi annað en að lesa örfá álit frá þeim sem eru í kostuðum stöðum, þau séu ávallt í samræmi við hagsmuni þess sem kostar stöðuna. Fráleitt að hagsmunahópar geti keypt prófessorsstöðu Þór gengur svo langt að segja að sjávarútvegsdeild Háskólans á Akur eyri sé algjörlega ómarktæk sem akademísk deild. „Deildin er bara fjármögnuð af LÍÚ.“ Hann gagnrýnir einnig að oft sé það ekki skýrt í stöðuheitum viðkomandi háskólamanna að störf þeirra séu kostuð af öðrum. „Það kemur yfirleitt ekki fram í stöðunum sjálfum – til dæmis að Helgi Áss sé LÍÚ-prófessor við HÍ en það er vitnað í hann sem eitt- hvað átorítet í Lagastofnun Há- skóla Íslands. Mér finnst fráleitt að einkaaðilar og sérhagsmunahópar geti keypt sér prófessorsstöðu við háskóla.“ DV fjallaði um það árið 2010 að hugmyndir hefðu verið uppi um að Björgólfur Guðmundsson, þá- verandi aðaleigandi Landsbank- ans, myndi kosta prófessorsstöðu Tryggva Herbertssonar hjá HÍ. Ekkert varð af því. n Ekki er opinbert hvaða stöður í Háskóla Íslands eru kostaðar af hagsmunaaðilum n Þór Saari telur háskólann ómarktækan Helgi Áss Grétarsson Starf hans hjá Lagastofnun Háskóla Íslands er kostað af LÍÚ. Hagfræðistofnun „Ragnar Árnason hefur verið á launum hjá LÍÚ í áratugi,“ segir Þór Saari.„Deildin er bara fjármögnuð af LÍÚ. Þór Saari „Hér á landi hefur staðan verið sú að LÍÚ hefur í mörgum tilfellum einfaldlega keypt sér álit og störf og prófessora Háskóla Íslands.“ ég las bókina komst ég þó að því að hún er ekki skrifuð af íslenskum rit- höfundi. Á þeim tíma hvarflaði ekki að mér að ég fengi íslenskan her- bergisfélaga á heimavistinni í há- skólanum, eða að ég myndi fjárfesta í þessu landi. Ég held að þetta hljóti að vera örlögin. Fyrir mér er íslensk menning skáldsagnakennd, uppfull af fjöl- skyldutengslum, ríkri ljóðlist og þykkum söguþræði. Ég dáist að heiðarleika og hrein- skilni Íslendinga, það endurspeglar nánasta umhverfi þeirra og náttúru- öflin.“ „Ég mun vera vinur ykkar að eilífu“ Þekkirðu Íslendingasögurnar og hef- urðu lesið einhverjar þeirra? „Já, ég þekki þær. Njáls saga er í uppáhaldi hjá mér, sérstaklega lýs- ingarnar á því hvernig sambandi Njáls og Gunnars var háttað.“ Nú hefurðu komið til Íslands nokkrum sinnum og væntanlega fengið að smakka hefðbundinn ís- lenskan mat. Hver er uppáhalds ís- lenski maturinn þinn? „Ég hef tvisvar komið til Íslands og uppáhalds íslenski maturinn minn er kæstur hákarl og brenni- vín.“ Viltu segja eitthvað við íslensku þjóðina sem veltir fyrir sér hver þú ert? „Ég vil að þið vitið að ég elska Ísland mjög mikið. Alveg síðan ég las bókina um íslenska sjómann- inn, og kynntist íslenska herberg- isfélaga mínum í Peking-háskóla, honum Hjölla [Hjörleifi Sveinbirns- syni, innsk. blm.], og skólafélaga mínum Ragnari [ Baldurssyn], hef- ur ást mín á Íslandi vaxið og dýpk- að. Á ljóðahátíðinni á Íslandi í fyrra varð ég þess heiðurs aðnjótandi að hitta nokkur norræn ljóðskáld. Það var ógleymanleg upplifun fyrir mig þegar ég komst í beina snertingu við sál þessa dásamlega lands. Hvort sem fjárfestingar mínar á Íslandi munu ganga eftir eða ekki mun ást mín á Íslandi vara að ei- lífu, tengsl mín við landið munu ekki rofna og vinátta mín og gam- alla bekkjarfélaga minna mun aldrei taka enda. Ég vil upplýsa íslensku þjóðina um það að ég mun halda áfram að vera aðdáandi ykkar og aðdáandi landsins, ég mun vera vinur ykkar að eilífu, takk fyrir!“ „Þá mátti ég þola ýmiss konar niðurlægingu, en ég komst af líkt og einmana, hrakinn úlfur. Háskólamenn greiddir af lÍÚ Ég er ekki hættulegur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.