Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 7. september 2011 Miðvikudagur Gekk út af fundi með Ögmundi n Ráðherra átti fund með aðstandendum manna sem fundust látnir við Daníelsslipp n Ragnar varð „heiftarlega vondur“ og gat ekki setið undir orðum ráðherra É g gekk bara út af fundinum eft­ ir tvær mínútur,“ segir Ragn­ ar Kristján Agnarsson, bróðir Einars Þórs Agnarssonar sem fannst látinn ásamt félaga sín­ um, Sturlu Steindóri Steinssyni, í stolnum bíl við Daníelsslipp 1. mars árið 1985. „Ég labbaði bara út því ég varð svo heiftarlega vondur,“ bætir hann við. Ragnar var boðaðar á fund Ögmundar Jónassonar innanríkis­ ráðherra ásamt systkinum sínum og börnum Sturlu eftir að DV fjallaði, í ágúst, um baráttu þeirra fyrir því að fá andlátsmálið endurupptekið. „Morð á Íslandi eru réttlætanleg“ Lögregla lauk rannsókn andlátsmáls Einars og Sturlu á sínum tíma á þeim forsendum að um sjálfsvíg hefði verið að ræða þrátt fyrir að ýmislegt benti til annars. Aðstandendur Einars og Sturlu hafa alla tíð verið fullvissir um að þeir hafi verið myrtir og hafa bar­ ist fyrir endurupptöku málsins sleitu­ laust í fjögur ár. Fundurinn fór fram síðastlið­ inn föstudag og urðu aðstandendur hinna látnu vægast sagt fyrir miklum vonbrigðum með niðurstöðu hans. „Mín greining er bara sú að morð á Íslandi eru réttlætanleg. Það er bara ekki sama hver er drepinn og af hverjum,“ sagði Ragnar í samtali við DV skömmu eftir að hann gekk út af fundinum og var hann í töluverðu uppnámi. Ákvörðun ríkissaksóknara staðfest Tilefni fundarins var að fara yfir úr­ skurð stjórnsýslukæru sem Ragnar lagði fram í apríl árið 2010 þar sem hann, fyrir hönd aðstandenda, kærði ákvörðun ríkissaksóknara frá árinu 2009 um að synja endurupptöku and­ látsmálsins. Í úrskurði ráðuneytis­ ins, sem DV hefur undir höndum, er ákvörðun ríkissaksóknara staðfest. Þá er vísað frá þeim kærulið þar sem Ragnar krefst þess að opinber rann­ sókn fari fram á viðbrögðum ríkis­ lögreglustjóra og starfsmanna hans frá því að aðstandendur hófu baráttu sína, fyrst fyrir því að fá gögn máls­ ins afhent og síðar fyrir endurupp­ töku þess. Í úrskurði ráðuneytisins er þó tekið fram að framkvæmd lögregl­ unnar við rannsókn málsins hafi ver­ ið ámælisverð. Ríkissaksóknari synjaði endur­ upptöku málsins á sínum tíma á þeim forsendum að ekkert benti til að dauða Einars og Sturlu hefði bor­ ið að með refsiverðum hætti. Ýmis ný gögn höfðu þó komið fram í mál­ inu og hafði Ragnari tekist að hafa uppi á vitnum sem ekki hafði verið rætt við eftir líkfundinn árið 1985. Þá hafði lögreglustjóraembættið á höf­ uðborgarsvæðinu gert alvarlegar at­ hugasemdir við rannsókn málsins í mörgum liðum. Lætur ekki staðar numið Ragnar segir það fyrsta sem Ögmund­ ur hafði orð á á fundinum hafi ver­ ið hvað málið væri gamalt. Ragnar segir málið þó ekki gamalt fyrir að­ standendur, heldur þvert á móti, því hafi alla tíð verið haldið lifandi, eins og hann orðar það, enda staðfest að málið hafi aldrei verið rannsakað al­ mennilega. „Það eina sem ég sagði var að undir þessu ætlaði ég ekki að sitja. Það væri útilokað að ég ætlaði að sitja undir því að þeir ætluðu að loka mál­ inu,“ segir Ragnar. Fundinn sátu, ásamt Ögmundi og aðstandendum, Ragnhildur Hjalta­ dóttir, ráðuneytisstjóri og löglærður fulltrúi ráðherra. „Ég sá að þeim var brugðið og ég er ekki neitt viss um það að ég sé hættur þó að þessi niðurstaða verði,“ segir Ragnar. Hann segist ætla að fara yfir málið með lögmanni og hugsan­ lega reyna að fá að fara með málið út úr landinu. „Ég er ekki tilbúinn að láta staðar numið því að þarna er ver­ ið að kæfa málið of fljótt.“ Ósáttur við orðalag Ragnar er ekki bara ósáttur við úr­ skurð ráðuneytisins heldur er hann einnig ósáttur við ákveðið orðalag sem þar er notað. Til að mynda er orðið „sögusagnir“ notað yfir það sem Ragnar kallar vitnisburð. Hann sættir sig ekki við að framburður vitna vegi ekki þyngra en svo að hann sé kallaður sögusagnir. Þrátt fyrir að úrskurðurinn sé ekki sá sem aðstandendur vonuðust eft­ ir þá er loksins komin niðurstaða í kærumálið sem lá inni á borði ráðu­ neytisins í eitt og hálft ár. Á þeim tíma kvartaði Ragnar í tvígang til umboðs­ manns Alþingis vegna seinagangs ráðuneytisins. Úrskurði var upphaf­ lega lofað í október árið 2010 en síð­ an 7. júní 2011. Það var hins vegar ekki fyrr en DV fjallaði um það sem Ragnar kallaði „þöggun ráðuneytis­ ins“ að skriður komst á málið. „Það eina sem ég sagði var að undir þessu ætlaði ég ekki að sitja. Fundur með ráðherra Systkini Einars – Ævar, Erna og Ragnar – taka hér við úrskurði ráðuneytisins vegna stjórnsýsluákæru sem þau lögðu fram. Þau urðu vægast sagt fyrir vonbrigðum með niðurstöðuna. MynD GunnaR GunnaRsson Vettvangur Einar og Sturlu voru ennþá inni í bílnum þegar myndin var tekin. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Bílasalar ákærðir fyrir fjárdrátt: Seldu bíla sem þeir áttu ekki Tveir eigendur bílasölu hafa verið ákærðir af lögreglustjóranum á höfuð­ borgarsvæðinu fyrir fjárdrátt. Mönn­ unum er gefið að sök að hafa á ár­ unum 2008 og 2009 dregið sér eða bílasölu sinni þrjár bifreiðar sem voru annars vegar á kaupleigusamningi við Avant og hins vegar Lýsingu, látið rífa þær niður og selt eða ráðstafað á ann­ an hátt varahlutum úr þeim með þeim afleiðingum að bifreiðarnar voru verðlausar þegar fjármögnunarfyrir­ tækin fengu umráð yfir þeim aftur. Mennirnir sem eru báðir um fer­ tugt eru ákærðir í sameiningu í fyrsta ákærulið fyrir að hafa sem eigendur og daglegir stjórnendur bílasölunn­ ar dregið sér, eða bílasölunni, tvær bifreiðar af gerðinni Mazda CX7 og Mazda MX5, látið rífa þær niður og selt úr þeim varahluti. Bílasalan hafði umráð yfir bifreiðunum samkvæmt kaupleigusamningum við Avant hf. Þegar kom að því að Avant átti að fá umráð yfir bifreiðunum aftur voru þær hins vegar verðlausar. Avant vill að tvímenningarnir verði dæmdir til refsingar og til að greiða fé­ laginu 6,4 milljónir króna í bætur. Í síðari ákærulið er annar mann­ anna ákærður fyrir fjárdrátt með því að hafa dregið sér eða bílasölu sinni Ford Mustang­bifreið sem var í eigu Lýsingar en maðurinn hafði umráð yfir samkvæmt kaupleigusamningi við Lýsingu hf. Maðurinn lék þá sama leik og lýst var hér að ofan. Lýsing kref­ ur manninn um tæplega 3,5 milljónir króna í skaðabætur. Viðurlög við brotunum geta varðað allt að sex ára fangelsi. Málið gegn tve­ menningunum var þingfest í Héraðs­ dómi Reykjavíkur á þriðjudag. mikael@dv.is sundrað og selt Um er meðal annars að ræða Mazda MX5-bifreið, sambærilega þessari. Fjárdráttur konunnar í meginatriðum Byggingarvöruverslanir 254.857 kr. Tölvu- og tæknivörur 650.380 kr. Innleystir tékkar 3.102.238 kr. Millifærslur á eigin reikninga 998.989 kr. Gjafakort í verslunarmiðstöð 60.000 kr. Flug og annað í útlöndum 109.285 kr. annað 1.209.670 kr. Fjárdráttur konunnar Dró sér fé Kona á fertugsaldri hefur verið ákærð fyrir að draga sér fé sem bókari og gjaldkeri hjá fasteignasölunni Hraun­ hamri í Hafnarfirði. Talið er að fjár­ drátturinn nái samtals rúmum sex milljónum króna. Mál konunnar var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á mánudag. Farið hefur verið fram á að konan verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar auk þess að greiða fasteignasölunni til baka allt það fé sem hún dró sér auk dráttar­ vaxta. Talin eru upp 24 atriði þar sem konan er talin hafa ólöglega dregið sér fé frá fyrirtækinu. Hún er talin hafa keypt vörur á kostnað fyrirtækisins þar á meðal gjafakort og flugmiða til útlanda. „Andvirði úttekinna vara var fært á viðskiptareikning Hraunham­ ars hjá fyrirtækjunum en ákærða sá um greiðslur til þessara fyrirtækja af bankareikningi félagsins. Ákærða leyndi úttektunum með því að setja greiðsluseðla sem fylgiskjal í bókhald félagsins er hún gjaldfærði þess­ ar úttektir sem kostnað á félagið en fjarlægja um leið afrit reikninganna þar sem fram kom hvaða vörur voru teknar út,“ segir í ákærunni. Konan millifærði einnig beint af bankareikningi fasteignasölunnar og inn á eigin reikning eða reikning starfsmannafélags fyrirtækisins, sem hún var prókúruhafi að og reikning í eigu fyrirtækis sem að hluta er í eigu eiginmanns hennar. Henni er einnig gefið að sök að hafa greitt 3 milljónir fyrir fasteign sem hún hafði sjálf fjárfest í með pen­ ingum sem hún millifærði af reikn­ ingi fasteignasölunnar. Konan hafði prókúru á reikninginn. Áður en sú millifærsla var gerð millifærði hún 2 milljónir inn á reikning Hraunhamars, sem hafði milligöngu um fasteigna­ kaupin. Þannig dró konan sér milljón króna beint af reikningi fyrirtækisins. Einnig leikur grunur á að konan hafi dregið sér tæplega 695.000 með því að gefa út tékka út á bankareikn­ inga fasteignasölunnar án heim­ ildar, 2,1 milljón með því að tileinka sér tékka í eigu fasteignasölunnar og 222.000 með því að blekkja stjórnar­ formann fasteignasölunnar til að gefa út tékka sem hún er talin hafa innleyst í nokkrum bönkum og ráðstafað and­ virði þeirra í eigin þágu. adalsteinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.