Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Síða 6
S iðanefnd lækna braut siða­ reglur lækna þegar hún birti úrskurð í máli tveggja lækna, samkvæmt Huldu Hjartar­ dóttur lækni sem situr í siða­ nefndinni. „Það má alveg túlka það þannig,“ segir Hulda en bætir því að kannski megi taka tillit til þess að brotið var hreinlega yfirsjón en ekki ásetningur. Ávítti lækni fyrir sama brot Í umræddum úrskurði var annar læknirinn fundinn sekur um brot á 13. grein siðareglna, sem varðar trúnaðarsamband við lækna, vegna ummæla þar sem upplýsingar úr sjúkragögnum sjúklings komu fram. Siðanefndin birti síðan ummæl­ in með úrskurðinum og gerðist þar með sek um sama brot, en sjúkling­ urinn, Páll Sverrisson, las það síð­ an í fjölmiðlum að hann hefði ver­ ið greindur með vitræna skerðingu. Hann hafði aldrei heyrt af því áður og brá heldur betur í brún. Í kjölfar­ ið greindi hann frá því í DV að hann hygðist kæra siðanefndina til land­ læknis fyrir að birta þessi ummæli læknisins opinberlega. Úr varð að formaður siðanefndarinnar, Allan V. Magnússon, hringdi í Pál á þriðju­ dagsmorgun og baðst afsökunar fyr­ ir hönd nefndarinnar. Yfirsjón við yfirlestur „Okkur þykir þetta miður,“ segir Hulda. „Það var ekki ætlunin að við­ kvæmar upplýsingar kæmu fram. Ef þú last allan úrskurðinn var búið að fjarlægja tilteknar greiningar en það hefur misfarist að gera það alls stað­ ar. Þetta hefur farið framhjá okkur við yfirlestur. Þetta átti ekki að fara svona út og við munum fjarlægja þetta af vefnum. Við getum hins vegar ekki leiðrétt það sem er komið út á prenti, því miður. Og í sjálfu sér kemur ekkert meira frá okkur, það er ekkert annað sem við getum gert til að leiðrétta þetta.“ Aðspurð segir hún það afar mis­ jafnt hvaða afleiðingar það hafi fyrir lækna að brjóta siðareglur. „Oftast kveður siðanefndin upp sinn úrskurð sem hægt er að lesa í Læknablaðinu, sem öllum er frjálst að lesa. En það eru ekki endilega nein viðurlög við því.“ Harmar birtinguna Siðanefndin sendi einnig eftirfarandi bréf á alla fjölmiðla í morgun: „Í úr­ skurði Siðanefndar sem birtist í nýj­ asta hefti Læknablaðsins er haft eft­ ir lækni að tiltekinn sjúklingur hafi hlotið ákveðna greiningu. Ekki var ætlunin að upplýsingar þessar birt­ ust í úrskurðinum og harmar Siða­ nefnd það og hefur beðið hlutað­ eigandi velvirðingar á því. Rétt er að taka fram að Siðanefnd hefur engin gögn sem fjalla frekar um þessa full­ yrðingu læknisins.“ Afsökunarbeiðnin breytir engu Páll segir að afsökunarbeiðnin breyti engu. „Mér finnst eins og það sé ver­ ið að sópa þessu undir teppið. Það sem siðanefndin gerði situr enn eft­ ir. Þeir segja meira að segja að þeir hafi engin gögn í höndunum svo þessi læknir getur allt eins verið að ljúga þessu. Þannig að þegar for­ maður siðanefndar hringdi í morg­ un [þriðjudag] sagði ég honum að ég hefði ekkert við hann að tala og að ég ætla með þetta alla leið.“ Hann segir að Allan hafi viður­ kennt það í símanum að þetta væri brot á siðareglum. „Þó að siðanefnd­ in hafi ekki ætlað sér það fór hún engu að síður yfir strikið. Siðanefnd­ in þarf að svara fyrir það sem hún gerði.“ Páll á tíma hjá lögfræðingi á föstu­ daginn og er staðráðinn í því að kæra málið til landlæknis. „Það er stór­ mál að birta svona upplýsingar. Það er ekki þannig að þú getir bara sagt fyrirgefðu og þar með sé málinu lok­ ið. Ég kæri þetta, það er bara þannig.“ 6 | Fréttir 7. september 2011 Miðvikudagur BRIDS SKÓLINN - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Byrjendur ... 26. sept. ... 8 mánudagar frá 20-23 Framhald ... 28. sept. ... 8 miðvikudagar frá 20-23 - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - • Á haustönn er boðið upp á hefðbundið námskeið fyrir byrjendur og framhaldsnámskeið fyrir lengra komna. • Hægt er að mæta stakur, í pari eða í hóp. • Námskeið skólans eru haldin í húsnæði Bridssambands Íslands, Síðumúla 37 í Reykjavík. • Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna. • Sjá nánar á Netinu undir bridge.is/fræðsla. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Eignarhaldsfélagið Imagine Invest­ ments, sem er í eigu Bjarna Ár­ mannssonar fjárfestis, skilaði rúm­ lega 13 milljóna króna hagnaði árið 2010. Félagið tapaði rúmlega 240 milljónum króna árið 2009. Hagnaður félagsins er tilkominn vegna kröfu sem Imagine Invest­ ments eignaðist á móðurfélag sitt, Sjávarsýn, á árinu. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2010. Imagine Investments komst í umræðuna í september 2009 og október 2010 vegna fleiri hundruð milljóna króna afskrifta á skuld­ um félagsins. Imagine Investments skuldsetti sig í lok árs 2007 vegna kaupa á 12 prósenta hlut í Glitni Property Holding, fasteignafélagi í eigu Glitnis sem skráð var í Noregi. Fjárfesting Imagine Investments nam 970 milljónum króna og var fjármögnuð að mestu af Glitni. Meirihluti þessarar skuldar var afskrifaður hjá Glitni árið 2009 en Bjarni greiddi nokkra tugi milljóna króna upp í skuldina. Í ársreikn­ ingi Imagine Investments fyrir árið 2009 höfðu langtímaskuldir félags­ ins lækkað úr rúmum 800 milljón­ um króna og niður í 0. Á sama tíma, árið 2009, tók Bjarni sér 400 millj­ óna króna arð út úr Sjávarsýn, móð­ urfélagi Imagine Investments. Dótt­ urfélagið fékk því afskrifað á meðan móðurfélagið greiddi ríflegan arð. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2010 sýnir því enn frekar að félagið er komið fyrir vind. Bjarni á það áfram, þrátt fyrir afskriftirnar, og félagið sýnir nú jákvæða rekstrar­ stöðu eftir þessar afskriftir. ingi@dv.is Fékk hundruð milljóna króna afskrift 2009: Félag Bjarna skilar hagnaði Afskriftarfélag sýnir hagnað Félag í eigu Bjarna Ármannssonar, sem fékk nokkur hundruð milljóna króna skuldaafskrift árið 2009, skilaði hagnaði árið 2010. n Dæmdi lækni fyrir brot á siðareglum n Páll Sverrisson las í fjölmiðlum að hann væri með „vitræna skerðingu“ n „Okkur þykir þetta miður,“ segir læknir í siðanefnd Siðanefnd lækna braut siðareglur Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Þetta átti ekki að fara svona út og við munum fjarlægja þetta af vefnumSteinunn Valdís til innanríkisráðuneytis: Ráðin án auglýsingar Páll Sverrisson Segir að afsökunarbeiðni siðanefndar breyti engu, skaðinn sé skeður og hann ætli að kæra birtinguna til Landlæknis. 5. september sl. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrr­ verandi borgarstjóri og þingmaður, hefur verið ráðin í tímabundið starf í innanríkisráðuneytinu. Steinunn mun starfa hjá skrifstofu innviða við að sinna verkefnum tengdum fjarskiptamálum. Steinunn Val­ dís kemur inn í afleysingar, en hún tekur við starfinu af starfs­ manni ráðuneyt­ isins sem fer í námsleyfi næstu tólf mánuðina. Hún hóf störf í ráðuneytinu nú um mánaða­ mótin og var starfið ekki auglýst, þar sem um tímabundna ráðningu var að ræða og slíkar ráðningar þarf ekki að auglýsa, ef aðeins er ráðið í skemmri tíma en tólf mánuði. Sam­ kvæmt Jóhannesi Tómassyni, upp­ lýsingafulltrúa ráðuneytisins, var staðan ekki auglýst, en þess í stað notaðist ráðuneytið við umsóknir frá fólki sem sótti um stöðu verk­ efnastjóra í tveimur stefnumótunar­ störfum sem voru auglýst á vor­ mánuðum. „Það var seilst í þann bunka til að ráða starfsmenn í þetta starf. Þrátt fyrir að þetta hafi ekki verið auglýst var notaður efnivið­ ur úr þessum tveimur ráðningum,“ sagði Jóhannes og segir að ráðu­ neytið hafi hagað málunum þannig þar sem ráðningin sé aðeins tíma­ bundin. astasigrun@dv.is Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.