Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Side 15
Svona á að geyma ber Séu ber sem vaxa í náttúrunni ekki borðuð eða sultuð strax eru nokkr- ar leiðir til að geyma þau og þetta á við um flest ber. Þó er ekki gott að þurrka mjög stór ber. *Frosin ber Berin eru lögð í plastglas og vatni hellt yfir svo yfir fljóti. Þessu er síðan lokað með plastfilmu og sett í frysti. Þannig geymast berin fersk langt fram á næsta ár. Einnig hægt að setja þau í litla samloku- poka, hella vatni í og binda þétt fyrir með bandi. *Sæt ber allt árið Berjunum er velt upp úr sykri eða hrásykri, sett í plastpoka og fryst. *Þurrkuð ber Berjunum er sturtað í ofnskúffu sem búið er að leggja bökunar- pappír á. Sett í ofn og kveikt undir á 50 gráður í nokkra klukkutíma. Ágætt að hafa ofninn örlítið opinn af og til svo rakinn fari út.Gott er að snúa nokkrum sinnum en ekki nauðsynlegt. Berin þorna og verða „þurrkuð ber“ sem eru þvílíkt lost- æti og geymast allt árið. Neytendur | 15Miðvikudagur 7. september 2011 Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun Ræktið eigið grænmeti Margir Íslendingar eru farnir að rækta sitt eigið grænmeti og spara þar með pening. Fyrir þá sem settu niður grænmeti í vor og eru nú komnir með mikla uppskeru er ekki úr vegi að útbúa gott grænmetissoð. Í soðið má nota stilka og ytri blöð af hvítkáli, blómkáli eða blöðin af spergil- káli. Ýmislegt annað má nota svo sem gulrótarblöð, rætur og villijurtir. Það eina sem þarf að athuga er að það sé óskemmt og blöðin falleg. Blöðin gagnast vel í soð þó að þau þyki ekki nógu fín í almenna matreiðslu. Þetta má sjóða í hálftíma eða lengur, sía svo vökvann frá og sjóða hann niður um þriðjung eða helming í opnum potti. Soðið má síðan frysta og eiga til matar- gerðar í vetur. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Blóm: Blómin fallegu og litskrúðugu eru ekki einungis fyrir augað. Mörg þeirra má nota í salat eða tegerð: Fjóla er afbragðs tejurt. Fjólan er fjölær, blómstrar mikið en það þarf að hlúa örlítið að henni í garð- inum og skapa henni vaxtarrými. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Morgunfrú er meðal annars notuð í pott- rétti og soð til að auka á næringargildi. Nokkur blóm í súpur og kássur ljá þeim dýpt og bragð en einnig er hægt að strá blómblöðum yfir hrísgrjón áður en þau eru soðin og virkar það þá líkt og að nota saffran. Blómblöðin eru einnig til- valin til að dreifa yfir salat. Blómin eru þurrkuð í te og blómbotninn þá skilinn frá svo þorni fljótar. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Kamilla vex vel hér á landi og sagt hefur verið að heimaræktað kamillublóm sé á við heilan tepoka úr búð. Kamillan róar og það er gott að leggja kamillubakstur á augun. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Fíflar eru góð matjurt og eru blöðin mest notuð hrá í salat. Einnig er hægt að sjóða þau í súpum og nota í pottrétti. Blöðin má leggja í vatn í nokkrar mínútur áður en þau eru sett í pott, það dregur úr remmu. Blaðstöngullinn er beiskari en laufið sjálft og það grófasta af honum má rífa burt. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Berjamór: Öll þekkjum við berin góðu sem gaman er að tína á haustin. Flestir hafa farið í berjamó og fyllt fötur af bláberjum og krækiberjum. Það eru þó líklega færri sem vita að vel er hægt að tína aðrar tegundir og nota í matar- eða sultugerð. Stikilsber hafa þann kost að fuglar láta þau að mestu í friði. Hægt er að tína þau af jörðinni ef þau hafa fallið af runnum því þau mygla ekki strax eins og önnur ber. Gott er að setja þau í pott með jafnmiklu af sykri, kanilstöng og dálitlu af vatni. Þau eru svo soðin þar til blandan þykknar. Berin þykja góð í chutney eða súrsætar samsuður. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Hrútaber eru alvillt og farin að láta miklu meira á sér bera. Bæði af því kjarr- og skógvöxtur hefur aukist og sauðkindin nær ekki að hreinsa lág- lendisgróðurinn. Þau eru svolítið beisk og því eru þau betri með kjöti en með sætindum. Þau fást ekki í verslunum og það gerir þau eftirsóknarverð. Reyniber eru ekki einungis stórkostlegt haustskraut heldur er líka hægt að nota þau til matar. Gott ráð til að vinna á beiskjunni er að frysta þau fyrst og láta síðan liggja í vatni í þrjá sólarhringa. Skipta þarf um vatnið daglega. Svo má sjóða berin í súpu með þeyttum rjóma eða gera úr þeim mauk. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir Sólber eru svolítið sérstök en annaðhvort vilja menn þau ekki eða skynja bragðið næstum sem nautn. Nýtt kvæmi af sólberjarunnum, sem hefur borist til landsins, gefur mikið af sér og vex auðveldlega. Sólberjasafi er best þekktur af afurðum sólberja. Blöðin eru til dæmis notuð til að auka brjóstamjólk. Ef ég næ ekki að borða öll sólberin hrá frysti ég þau upp á gamla mátann með því að velta þeim upp úr svolitlum hrásykri eða sulta þau heil. Mynd: Guðrún TryGGvadóTTir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.