Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Qupperneq 18
18 | Menning 7. september 2011 Miðvikudagur
F
innbogi (Sveinn Ólafur
Gunnarsson) og Alfreð
(Hilmar Guðjónsson)
hafast við í strigatjaldi
uppi á heiði á sunnan
verðum Vestfjörðum einhvern
tímann á níunda áratugnum.
Þeir sinna viðhaldi alveg ein
staklega fáfarins vegar, negla
stikur og mála þúsundir strika
dag hvern. Finnbogi er eldri,
hyggur á nám í þýsku og hlust
ar gjarnan á hipparokk liðins
áratugar. Alfreð er yngri, hygg
ur mestmegnis bara á frekari
uppáferðir og dillar sér þess á
milli við nýjustu poppsmelli
þess tíma. Þeir eru dyntóttir
og sérvitrir hvor á sinn hátt og
virðast ekki eiga margt sameig
inlegt annað en það að Finn
bogi á í ástarsambandi við
systur Fredda.
Það er ekki að furða að
samveran gangi erfiðlega hjá
þeim, vinnandi rútínukennda
vinnu í einangrun óbyggð
anna, sofandi, étandi og ger
andi nánast allt hvor ofan
í öðrum. Hvor um sig er að
ganga í gegnum ýmislegt og
lífið býður þeim upp á upplif
anir sem hafa mikil áhrif á þá
og þeirra samband. Skyndi
lega þurfa þeir á einhverjum
að halda, hverjum sem er í
raun, og úrvalið af félagsskap
er nú ekki mikið uppi á há
heiði.
Myndin fer hægt af stað þar
sem framvindan silast áfram í
tilbreytingarlitlum vinnugöll
um og umhverfi. Það er ef
laust viljandi gert í samræmi
við aðstæður þeirra sem bjóða
ekki sjálfkrafa upp á mikil og
fjörug ævintýri. Hvernig teygt
er á tökum er stíll sem venst
fljótlega og eftir því sem við
kynnumst félögunum betur
fáum við dýpt í karakterana og
þyrstir í frekari kynni.
Helgarnar bjóða upp á pásu
frá rúnki á fjalllendi og Freddi
skiptir út tímalausum verka
mannagallanum fyrir stór
glæsilega múnd eringu, sem er
kórónuð með síðri kápu sem
undirstrikar tíðarandann. Þeir
eiga það til að fá sér lögg og þá
dunar vel valinn tónlist þess
tíma. Freddi bætir um betur
og fleygir í eina af skemmti
legri danssenum íslenskrar
kvikmyndasögu, vel djassaður
upp fatalega þar sem hann fer
hamförum úti í rassgati.
Þorsteinn Bachmann leikur
viðkunnanlegan vörubílstjóra
sem kíkir reglulega við í landa
sötur og kjaftæði. Þar birtist
frábær týpa sem á drjúgan hlut
í stórskemmtilegu frasaúr
vali myndarinnar. Hápunkt
ar myndarinnar eru eflaust
trúnólengjur þeirra Fredda
og Finnboga af dramatískum
djammsögum og ástarsorg.
Þær eru verulega vel teknar,
klipptar og niðurinn í ánni er
hækkaður í hljóðblöndun til
að undirstrika tilfinningar sem
þar birtast. Myndin byggist svo
mikið upp á tali og tónum að
sem betur fer er hljóðvinnsla
til fyrirmyndar sem og áferð al
mennt.
Útlit myndrammans er
eins og aðstæður þeirra, lit
lítil, lágstemmd og raunsæ
náttúrufegurð sem er óra
fjarri þeim túristabæklingi
sem birtist iðulega í íslensk
um myndum. Ekki að það sé
neitt að því að sýna fallega ís
lenska náttúru en það er bara
enginn Gullfoss á þeirri heiði
sem myndin gerist á.
Myndin er dramatísk, fynd
in og sannferðug. Það er erfitt
að vera tveir fastir saman uppi
á heiði við þessar aðstæður.
Eflaust er álíka erfitt að gera
80 mínútna mynd um það,
sem er borinn upp af tveim til
tölulega nýreyndum leikurum
í grámyglulegu umhverfi. Án
þess að stytta sér leið gengur
frumraun Hafsteins Gunnars
vel upp og það er kraftaverki
líkast að fá þessa uppskeru úr
jafnhrjóstugri jörð. En Haf
steinn á engu að síður ennþá
eftir að gera sína bestu mynd.
Erpur
Eyvindarson
Bíómynd
Á annan veg
Leikstjórn og handrit: Hafsteinn
Gunnar Sigurðsson.
Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson,
Hilmar Guðjónsson, Þorsteinn
Bachmann
85 mínútur
Kristjana Stefáns
á Eyrarbakka
Söngvaskáldin Uni og Jón
Tryggvi halda nú af stað með
eftirmiðdagshausttónleika
röð á heimili sínu Merki
gili á Eyrarbakka. Lofa þau
skemmtilegri hauststemningu
á komandi vikum. Það verða
Kristjana Stefánsdóttir og
Ómar Guðjónsson ásamt Jón
asi Sig sem hefja tónleikaröð
ina næstu helgi, sunnudaginn
11. september klukkan 16.00.
Nóbelsskáld
í heimsókn
Nóbelsskáldið Herta Müller
kemur á Bókmenntahátíðina í
Reykjavík og skáldsaga hennar
Andarsláttur kemur út á ís
lensku í þýðingu Bjarna Jóns
sonar. Herta ræðir um skáld
skap sinn í Norræna húsinu
fimmtudaginn 8. september
klukkan 12 og föstudagskvöld
ið 9. september les hún upp úr
bókinni í Iðnó.
Kynlífsbiblían
Út er komin bókin Kynlífs
biblían, grundvallarrit um
ástaratlot. Biblía þessi er sögð
vera leiðarvísir elskenda að
frábæru kynlífi. Höfundur
bókarinnar er Susan Crain
Bakos en hún hefur tekið
viðtöl við þúsundir karla og
kvenna um kynlífshegðun og
viðhorf þeirra til kynlífs. Í bók
inni eru reynslusögur sem pör
munu geta samsamað sig við
og dregið lærdóm af. Þýðandi
bókarinnar er Bergsteinn Sig
urðsson.
V
ið byrjuðum á bréfa
skriftum við dansarana,
þá æfðum við á Skype
og svo hittumst við og
þá komum við Lovísa inn í ferl
ið og hönnuðum umgjörðina,“
segir Halla Ólafsdóttir, dans
ari og danshöfundur. Halla út
skrifaðist frá sænsku ballett
akademíunni í Stokkhólmi
árið 2004. Þá stundaði hún
meistaranám í kóreógrafíu við
University College of Dance í
Stokkhólmi og er nú stödd hér
á landi til að taka þátt í Reykja
vik Dance Festival sem fer fram
í Tjarnarbíói og stendur til
sunnudagsins 11. september.
Halla stofnaði danssam
steypuna Samsuðuna með
dansaranum Lovísu Ósk Gunn
arsdóttur og saman hafa þær
þróað verk frá árinu 2005. „Við
reynum að gera eitt dansverk
á ári, það er stundum erfitt þar
sem við erum hvor í sínu land
inu. Við þróumst og breytumst
með hverju verkefni en erum
alltaf að breyta um vinnuað
ferðir. “
Halla og Lovísa kynna verkið
What a Feeling á danshátíðinni.
„Við teljum að tími kaldhæðn
innar sé liðinn og að einlægn
in sé mikilvæg. Við viljum fara
svolítið til baka og vinna verk
sem byggja á tilfinningu sem
er hrein, langanir og þrár ef til
vill. Þær fengu til liðs við sig
þrjá danshöfunda, Berglindi
Pétursdóttur, Cameron Corbett
og Sögu Sigurðardóttur, og gáfu
þeim ákveðna forskrift. Dans
höfundarnir þrír fengu svo tíma
til þess að semja sinn eigin dans
eftir forskriftinni.
En hvernig var að æfa á
Skype? „Það er auðvitað betra
að hittast í eigin persónu, við
vorum ekki að dansa á Skype,“
segir Halla og hlær.
Verkið verður sýnt í Tjarn
arbíói miðvikudaginn 7. sept
ember kl. 19.00 og fimmtudag
kl.19.00.
kristjana@dv.is
Kynnir verkið What a Feeling
Halla Ólafsdóttir myndar Sam-
steypuna með Lovísu Gunnarsdóttur
og saman kynna þær nýtt verk á
Reykjavik Dance Festival.
Æfðu í gegnum Skype
n Halla Ólafsdóttir og Lovísa Gunnarsdóttir segja tíma kaldhæðninnar lokið
Leiðsögn
með Huldu
Gallerí Ágúst býður upp á
óformlega leiðsögn með
listakonunni Huldu Vil
hjálmsdóttur, laugardaginn
10. september næstkom
andi. Hulda tekur á móti
gestum og gangandi milli
kl. 14–16 og leiðir áhuga
sama um sýningu sína
Mynd af henni sem nú
stendur yfir í Gallerí Ágúst.
Sýningin hefur vakið mikla
hrifningu og er greini
legt að Hulda á sér marga
trygga aðdáendur.
Góð spretta á
kvikmyndahausti
Efnilegur leikstjóri Hafsteinn
Gunnar Sigurðsson hefur gert sína
fyrstu kvikmynd í fullri lengd með
miklum sóma.
Raunsæ Myndin er dramatísk, fyndin og sannferðug.