Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Síða 20
20 | Sport 7. september 2011 Miðvikudagur Ekki mér að kenna n Fabio Capello tekur ekki á sig meiðsl Jacks Wilshere A rsenal-menn fengu slæm tíðindi um helgina þegar ljóst varð að miðjumað- urinn Jack Wilshere, yrði frá keppni vegna meiðsla í þrjá mánuði til viðbótar. Whilshere meiddist í lands- leik Englands og Sviss eftir að síðasta tímabili í ensku úrvals- deildinni lauk og hefur hann verið frá æfingum og keppni síðan vegna skaddaðra lið- banda. Wilshere hefur spilað þrátt fyrir sködduð liðbönd síð- an 2009 en það var ekki fyrr en í leiknum gegn Sviss sem hann þurfti að fara af velli. „Ég talaði við lækninn og veit að þetta eru meiðslin sem Jack spilaði með allt síðasta tímabil,“ sagði Capello á blaða- mannafundi fyrir leik Englands og Wales. „Hann meiddist vissulega í leiknum gegn Sviss en svo fór hann í frí. Ég veit ekki hvort hann hóf undirbúnings- tímabilið meiddur en allavega er búið að finna hvað er að hon- um núna.“ Capello neitaði að taka ábyrgð á því að einn besti mað- ur Arsenal verði frá næstu mán- uðina. „Þegar ég valdi Jack í leik- inn var hann heill. Í fótboltaleik geta menn meiðst. Ég veit að Arsenal er með marga menn meidda og vonast því til að Jack komi fljótt aftur. Hann er líka mjög mikilvægur leikmaður fyr- ir enska landsliðið,“ sagði Fabio Capello. tomas@dv.is United vildi ekki Rodwell Sir Alex Ferguson hafnaði til- boði Everton um að kaupa miðjumanninn unga, Jack Rodwell, þrátt fyrir að hafa íhugað 20 milljóna punda til- boð í hann í fyrra. Frammistaða hans á síðustu leiktíð varð þó til þess að áhugi Ferguson dvín- aði og keypti hann Phil Jones frá Blackburn í staðinn. Moyes bauð Rodwell til United til þess að safna fé fyrir leikmannakaup- um en hann vildi alls ekki missa stjörnur úr liðinu. Því miður fyrir hann missti hann Mikel Ar- teta til Arsenal á lokadegi félaga- skipta og fékk fyrir hann að því er talið 10 milljónir punda. Mourinho hrokafullur Knattspyrnugoðsögnin Johan Cruyff lýsir augnapoti Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, á að- stoðarþjálfara Barca, Tito Vilanova, sem hrokafullri aðgerð sem getulaus mað- ur framkvæmir. Mourinho gæti átt í vændum tólf leikja bann fyrir athæfið en Cruyff sem er goðsögn í lifanda lífi hjá Barca segir í viðtali við dagblað í Katalóníu: „Árátta hans hvað varðar Barcelona er farin yfir strikið.“ Ljungberg til Japans Sænski knattspyrnumaðurinn Freddy Ljungberg hefur samið við japanska liðið Shimizu S-Pulse en hann hefur verið að æfa með liðinu og gæti spilað með því sinn fyrsta leik á laug- ardaginn. Ljungberg, sem lengi lék með Arsenal, hefur verið að falla hratt niður stjörnu- himininn undanfarin ár. Eftir ofgreidda og ömurlega dvöl hjá West Ham fór hann til Banda- ríkjanna og átti síðan stutt stopp í Skotlandi áður en samdi við japanska liðið. Fabio Capello „Þegar ég valdi Jack í leikinn var hann heill. Í fótboltaleik geta menn meiðst.“ Boðað er til Aðalfundar Íþróttakennara- félags Íslands þann 17. september nk. klukkan 12:00–14:00 í veitingasal Nauthóls. Nauthóll, Nauthólsvegi 103, 101 Reykjavík. Kosnir verða nýir félagsmenn í stjórn félagsins og farið verður yfir starf félagsins síðastliðið ár og hvað er framundan. Allir félagsmenn velkomnir. Súpa og brauð í boði félagsins. Hvetjum sem flesta til að mæta, nýir sem eldri félagsmenn, allir geta komist í stjórn. Kær íþróttakveðja, Stjórn ÍKFÍ Aðalfundur ÍKFÍ Loksins sigur B ið íslenska landsliðs- ins í knattspyrnu eft- ir sínum fyrsta sigri í mótsleik í rétt tæp þrjú ár lauk í gær- kvöldi þegar Ísland vann Kýp- ur, 1-0, í undankeppni EM á Laugardalsvelli. Eina mark- ið skoraði framherjinn stór- efnilegi Kolbeinn Sigþórsson eftir góðan undirbúning Jó- hanns Bergs Guðmundssonar á vinstri kantinum. Hollensk samvinna þar á ferðinni en saman léku þeir hjá AZ í Hol- landi áður en Kolbeinn var keyptur til Ajax í sumar. Þótt Ís- land hefði ekki unnið alvöru- landsleik í tæp þrjú ár fram að leiknum gegn Kýpur hefur lið- ið oft spilað betur. Mikill los- arabragur var á vörninni sem þurfti oft að bjarga á síðustu stundu og þá fór liðið afar illa með mörg góð tækifæri í sókn- inni. Sigurinn þýðir þó að Ís- land innbyrðir þrjú stig og hefur nú fjögur stig allt í allt. Öll hafa þau fengist í leikjun- um tveimur gegn Kýpur. Kýp- ur er því á botni riðilsins með tvö stig og á leik gegn Dönum í lokaumferðinni á meðan Ólaf- ur Jóhannesson stýrir íslenska liðinu í síðasta skiptið í Portú- gal í byrjun október. Vantaði gæði í sóknina Þar sem Ísland skoraði svo snemma í leiknum þurftu Kýpverjar strax að breyta leik- skipulagi sínu og reyna að sækja meira. Leikurinn opn- aðist því meira en búist var við fyrir Ísland sem leysti oft vel úr erfiðum stöðum og kom sér í góð færi upp við vítateig gest- anna. Þar vantaði þó oftar en ekki meiri gæði í lokasend- inguna og fóru íslensku strák- arnir oft hryllilega illa með úr- valsmöguleika upp við mark Kýpverja. Ólafur gerði seint breytingar í leiknum og var að vonast eftir að annað mark dytti inn. „Við vorum orðn- ir þreyttir og þeir líka en þetta var góður sigur,“ sagði Ólafur Jóhannesson í viðtali við RÚV eftir leikinn. „Það var spurn- ing um að taka Kolbein eða Eið út af en á móti kemur að þeir eru baneitraðir þannig að ég lifði frekar lengi í voninni um að þeir myndu skapa eitthvað.“ „Þetta var ekki skemmti- legasti leikur sem ég hef spilað og ekki sá besti,“ sagði fyrirlið- inn Eiður Smári Guðjohnsen. „Það sem situr eftir eru úrslitin og það var alveg kominn tími til. Spilamennskan mátti vera betri og hraðari. Mér fannst þegar við komumst í 1-0 eins og að við ætluðum bara að halda því. Sjálfstraustið hefur svo sem ekkert verið í hæstu hæðum hjá liðinu.“ Frábær frumraun Hannesar Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon gerði sig sekan um slæm mistök í leiknum gegn Noregi á föstudaginn þar sem hann færði Noregi vítaspyrnu á silfurfati sem varð sigurmark leiksins. Um leið fékk hann gult spjald og opnaði þar með dyrnar fyrir Hannesi Þór Hall- dórssyni, markverði KR, til að standa á milli stanganna gegn Kýpur þar sem Gunnleifur Gunnleifsson er meiddur. Hannes hefur verið frábær með KR í sumar, en liðið er efst í Pepsi-deildinni, og hann tók það sjálfstraust greinilega með sér inn í leikinn. Fram- an af þurfti hann mest megn- is að eiga við fyrirgjafir og vera mættur á réttum tíma út úr markinu. Það allt leysti hann fullkomlega. En þegar kom að því að verja var hann heldur betur betri en enginn. Hann varði eðli málsins samkvæmt öll skotin sem komu á mark- ið, þar af tvö algjör dauðafæri í seinni hálfleik, einn gegn sóknarmanni, þegar varnar- leikur Íslands var orðinn ansi losaralegur. Stefán Logi þarf heldur betur að hafa áhyggjur af byrjunarliðssæti sínu eftir þessa frammistöðu Hannesar. „Þetta er alveg æðisleg til- finning. Það er ekki hægt að neita því,“ sagði Hannes bros- andi út að eyrum í viðtali á RÚV. „Það var smá stress í manni til að byrja með en svo fór það og þetta varð bara eins og hver annar leikur. Þeir sluppu svo í gegn þarna tvisvar undir lokin og það er alltaf gaman þegar manni tekst að vera fyrir því,“ sagði hann hógvær. Ömurlegu tímabili Ólafs lýkur í Portúgal Eins og áður segir stýrir Ólafur Jóhannesson íslenska lands- liðinu í síðasta skipti föstu- daginn 7. október gegn Crist- iano Ronaldo og félögum frá Portúgal. Það verður sautj- ándi mótsleikur Ólafs með ís- lenska landsliðið en hingað til hafa unnist tveir sigrar í sext- án leikjum. Gegn Makedón- íu í október 2008 og svo gegn Kýpur á þriðjudagskvöldið. Undir stjórn Ólafs hefur liðið oft spilað ágætis fótbolta en stigin hafa heldur betur látið á sér standa. Hann fékk fleiri æfingaleiki en forverar hans en virtist alltaf vera að móta liðið, alveg fram undir það síðasta. Leit er þó hafin að eft- irmanni Ólafs og eru þar Roy Keane og Lars Lagerbäck tald- ir líklegir arftakar. Það er bara vonandi að arftaki Ólafs þurfi ekki að bíða í þrjú ár á milli sigra. Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Knattspyrna n Ísland vann Kýpur 1-0 n Þriggja ára bið eftir sigri í mótsleik lokið n Hannes Þór Hall- dórsson fór á kostum í sínum fyrsta landsleik n Tveir sigrar í sextán alvörulandsleikjum Ísland - Kýpur 1-0 1-0 Kolbeinn Sigþórsson (4.). Ísland: Hannes Þór Halldórsson, Birkir Már Sævarsson, Hallgrímur Jónasson, Kristján Örn Sigurðsson, Hjörtur Logi Valgarðsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Helgi Valur Daní- elsson, Birkir Bjarnason (Björn Bergmann Sigurðarson 83.), Jóhann Berg Guðmundsson (Matthías Vil- hjálmsson), Eiður Smári Guðjohnsen, Kolbeinn Sigþórsson (Alfreð Finn- bogason 83.) Undankeppni EM Frábær frumraun Hannes Þór Halldórsson fór á kostum í sínum fyrsta landsleik. MYND FÓTBOLTI.NET

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.