Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Blaðsíða 8
N okkrir handfærabátar í eigu útgerða innan Sam­ taka íslenskra fiskimanna héldu til veiða á þriðju­ dagsmorgun þrátt fyrir að hafa ekki yfir aflaheimildum að ráða. Sjómennirnir kvótalausu sem réru á miðin telja að þeir séu í full­ um rétti til þess að veiða, þar sem hvergi í lögum um fiskveiðistjórn sé þess getið að skip verði að ráða yfir aflamarki. Svo lengi sem smá­ bátarnir, sem réru á þriðjudag, séu með veiðileyfi, þá séu sjómenn­ irnir kvótalausu í fullum rétti til að stunda fiskveiðar. Komi til þess að skipin verði svipt veiðileyfum fyr­ ir að veiða án aflaheimilda munu Samtök íslenskra fiskimanna standa þétt við bakið á á þeim útgerðum og stefna stjórnvöldum fyrir dómstól­ um. Þar til það verður gert ætla þeir að róa áfram til fiskjar. „Við teljum okkur vera í fullum rétti til að róa“ Jón Gunnar Björgvinsson, formaður Samtaka íslenskra fiskimanna, segir sjómennina ekki hafa brotið nein lög. „Við höfum verið að bíða eft­ ir viðbrögðum stjórnvalda við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2007 um kvótakerfið. Aðgerðir stjórnvalda eru nákvæm­ lega ekki neinar og það lítur ekki út fyrir að það sé verið að breyta lögum um stjórn fiskveiða á nokkurn skap­ aðan hátt. Það frumvarp sem sjávar­ útvegsráðherra lagði fyrir á Alþingi í vor breytir ekki kerfinu eða tekur á þeim vandræðum sem mannrétt­ indanefndin finnur að kerfinu.“ Að því sögðu telja Samtök ís­ lenskra fiskimanna tímabært að grípa til aðgerða og halda þessu máli áfram. „Við teljum okkur vera í full­ um rétti til að róa enda það eina sem segir í lögum um stjórn fiskveiða er að skilyrði sé að menn hafi almennt veiðileyfi til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni. Það segir hvergi í lög­ um um stjórn fiskveiða að menn­ irnir þurfi að hafa aflamark eða afla­ heimildir. Þetta er grundvallaratriði og í okkar stjórnsýslu er allt leyft sem er ekki bannað. Ef þetta ætti að telj­ ast lögbrot þá þyrfti einfaldlega að standa í lögunum að bannað sé að stunda veiðar án aflaheimilda.“ Jón Gunnar segir það ekki vera tilviljun að sjómennirnir kvótalausu réru til fiskjar nú. „Sameinuðu þjóð­ irnar eru að taka fyrir ástand mann­ réttindamála á Íslandi í næsta mán­ uði og meðal annars viðbrögðin við áliti mannréttindanefndar. Þetta er gert til að halda málinu áfram.“ Birgir Haukdal, sjómaður í Sand­ gerði, er einn þeirra sem réru til fiskj­ ar á þriðjudag. Hann segist ekki ótt­ ast afleiðingar þess að róa kvótalaus á miðin. „Nei, það geri ég ekki. Ég er bara orðinn úrkula vonar um að nokkuð verði fyrir okkur gert. Álit mannréttindanefndarinnar er virt að vettugi, algjörlega með öllu. Jóhanna og Steingrímur lofuðu fyrir kosn­ ingar að þau myndu koma á frjáls­ um handfæraveiðum ef þau kæmust til valda. Nú eru þau ein í stjórn og efndir eru engar.“ Hann segist gera sér grein fyrir því að slíkar mótmælaveiðar geti mögu­ lega haft afleiðingar fyrir hann. Veið­ in á þriðjudag var hins vegar ekki með besta móti. „Ég landa þremur ufsum og verð ákærður. Það eru allar líkur á því.“ 8 | Fréttir 21. september 2011 Miðvikudagur Athugasemd frá Þór Saari Í leiðréttingu við frétt í blaðinu þar sem kom fram að Ragnar Árnason hefði verið forstöðu­ maður Hagfræðistofnunar er ekki rétt með farið af minni hálfu. Það rétta er að hann hefur verið for­ maður stjórnar Hagfræðistofn­ unar. Með bestu kveðju, Þór Saari Þingmaður deilir á prest Sigmundur Ernir Rúnarsson, þing­ maður Samfylkingar, gagnrýn­ ir Friðrik Schram, prest Íslensku Kristskirkjunnar í Reykjavík, vegna umdeildra ummæla hans um sam­ kynhneigða. Í aðsendri grein í Frétta­ blaðinu á þriðjudag skrifaði Frið­ rik að samkynhneigð væri í lagi svo lengi sem kynlífinu væri sleppt. Kyn­ líf samkynhneigðra væri „ekki rétt“ að hans mati. DV hefur áður greint frá því að Reykjavíkurborg hafi hætt að styrkja söfnuðinn vegna skoðana Friðriks á samkynhneigðum. „Og svo heldur þessi maður því blákalt fram að mikill meirihluti „kristinna manna um heim allan“ sé sömu skoðunar; altso að samlíf sam­ kynhneigðra sé „ekki rétt.“ Að gefnu tilefni vil ég ekki að svona söfnuður njóti styrkja úr mínum vasa; að mannréttindasvið Reykjavíkurborgar noti minn hluta útsvarsins til að byggja upp starf af þessu tagi. Það tel ég „ekki rétt“,“ seg­ ir Sigmundur Ernir á bloggsíðu sinni. Slys rakið til hraðaksturs Lögreglan á Akranesi segir framburð vitna benda til þess að alvarlegt mót­ orhjólaslys sem varð í bænum í síð­ ustu viku megi rekja til ofsaaksturs. Slysið varð á Faxabraut á Akra­ nesi þegar ökumaður mótorhjólsins ók á kantstein með þeim afleið­ ingum að hann kastaðist í götuna. Maðurinn slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akranesi. Hjólið var mjög illa farið eftir slysið og voru skráningarnúmer tekin af því samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi.  Dópuð með barn í bílnum Kona um þrítugt var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu á mánudag og reyndist hún vera undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barn hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni var móðirin handtekin og flutt á lög­ reglustöð. Kvótalausir réru til fiskjar „Ég er bara orðinn úrkula vonar um að nokkuð verði fyrir okk- ur gert. n Kvótalausir sjómenn ætla að veiða þar til þeir verða sviptir veiðileyfi n „Álit mannréttindanefndarinnar er virt að vettugi“ n Telja sig vera í fullum rétti Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Jón Gunnar Björgvinsson „Aðgerðir stjórnvalda eru nákvæmlega ekki neinar og það lítur ekki út fyrir að það sé verið að breyta lögum um stjórn fiskveiða á nokkurn skapaðan hátt.“ Kostnaður vegna fangaflutninga hefur tvöfaldast: 50 milljónir króna í fangaflutninga Kostnaður Fangelsismálastofnun­ ar vegna fangaflutninga innanlands hefur meira en tvöfaldast á síðustu tíu árum. Samkvæmt tölum sem fram komu í svari innanríkisráðherra, Ög­ mundar Jónassonar, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um kostn­ að vegna fangaflutninga nam kostn­ aður vegna þeirra alls 52,6 milljónum króna á síðasta ári. Til samanburðar var kostnaðurinn 21,7 milljónir árið 2001. Tölurnar ná ekki yfir fangaflutn­ inga hjá lögreglunni heldur einungis yfir flutninga fanga á vegum Fangelsis­ málastofnunar. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að kostnaðurinn sé margþætt­ ur. „Þetta er kostnaður vegna yfir­ heyrslna á föngum í gæsluvarðhaldi, vegna túlkaþjónustu, flutnings fanga í dómsal og ferðakostnaðs lögfræðinga í opinberum málum,“ segir Páll um kostnað vegna fangaflutninga innan­ lands. Á sama tímabili, frá 2001 til 2010, hefur kostnaður vegna fangaflutninga á milli Íslands og annarra landa marg­ faldast. Árið 2001 nam kostnaðurinn 1,4 milljónum króna en árið 2010 var kostnaðurinn kominn upp í 10,7 millj­ ónir. Langstærstur hluti þessa kostn­ aðar stafar af brottvísun fanga frá land­ inu og felst meðal annars í kostnaði við flugmiðakaup fyrir fangana og stund­ um kostnaði við að senda fylgdar­ mann með föngum til að tryggja að þeir fari af landi brott. Sé rýnt í tölurnar kemur í ljós að langmestur kostnaður vegna fanga­ flutninga á milli Íslands og annarra ríkja er kostnaður við flutning á föng­ um til og frá Litháen. Sá kostnaður nam 13,3 milljónum króna á tíma­ bilinu. Næstmestur kostnaður hefur hlotist af fangaflutningum á milli Pól­ lands og Íslands, eða um 7,6 milljón­ ir króna, og þar næst er það kostnað­ ur við fangaflutninga á milli Rúmeníu og Íslands, eða um 4,7 milljónir króna. Í svari Ögmundar við fyrirspurninni er skýrt tekið fram að löndin endurspegli ekki þjóðerni þeirra fanga sem þangað eru fluttir. Ítalía er tekin sem dæmi en kostnaður við fangaflutninga á milli Ítalíu og Íslands hefur á tímabilinu numið 1,8 milljónum króna án þess að nokkur Ítali hafi verið vistaður í ís­ lenskum fangelsum. adalsteinn@dv.is Aukinn kostn- aður Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að kostnaðurinn sé margþættur, meðal annars vegna túlkaþjónustu og flutnings fanga til og frá dómsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.