Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Blaðsíða 18
18 | Menning 21. september 2011 Miðvikudagur Kómískir flugeldar í London Í talska skáldið Carlo Gold­ oni, sem uppi var á átj­ ándu öld, er einn af meisturum gamanleikja­ bókmenntanna. Hann er ekki jafnoki Molieres eða Shake­ speares, en næsti bær við, má segja. Leikur hans um trúð­ inn sem ræður sig hjá tveimur húsbændum, af því að hann er alltaf svo óskaplega svang­ ur, og stendur svo í ströngu við að koma í veg fyrir að upp um hann komist og húsbænd­ urnir hittist, hefur enst í hátt á þriðju öld. Hann var meira að segja sýndur hér í Iðnó fyr­ ir meira en fjörutíu árum, hét þá Tveggja þjónn og státaði af ungstirninu Arnari Jóns­ syni. Þrátt fyrir þunnan texta og söguþráð leynist kómískt sprengiefni í uppákomum og aðstæðum leiksins, sprengi­ efni sem er enn fullkomlega virkt í höndum þeirra sem með það kunna að fara. Það fór heldur ekki á milli mála í sýningu National Theatre í London á hressilega staðfærðri og umskrifaðri gerð leiksins eftir Richard Bean sem Sambíóin í Kringlunni buðu okkur upp á í síðustu viku. Þetta var fyrsta atriðið í útsendingadagskrá vetrarins frá National Theatre. Sýningin var frumsýnd í vor, var hlaðin stjörnum af hendi gagnrýn­ enda og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan. Hún er svo vinsæl að National ætlar að flytja hana yfir í West End síðar í haust, en þar er fyrir önnur sýning leik­ hússins, War Horse, sem enn er tækifæri til að sjá. Óhætt er að mæla með henni við hláturþyrsta landa sem eiga eftir að leggja leið sína til London. Að vísu er ákaflega margt í staðfærsl­ unni svo breskt að menn þurfa að vera vel að sér í breskum kúltúr, sögu og samfélagi, til þess að finna öll skotin sem dynja á salnum. En leikgleðin og fagmennskan á sviðinu er ósvikin og þakklátir áhorfend­ ur í hláturskrampa frá upp­ hafi til enda. Ungstirnið James Cord en glansar í aðalhlutverk­ inu og fær þéttan stuðning frá hópi leikenda sem eru margir engu síðri en hann. Og leik­ stjórn Sir Nicholas Hytners, eins þess færasta sem breskir eiga um þessar mundir, sýnir og sannar hvað leikhúsið get­ ur orðið sterkt þegar það þorir að gera grín að sjálfu sér – hvað sem öllu dýpra bókmennta­ gildi líður. n Ég fór að sjá Galdra­ karlinn í Oz á laugar­ dag­ inn og skemmti mér konunglega. Alveg frábær sýning með fallegum boðskap sem allir geta skemmt sér á. Allir leikararnir eru góðir og börnin í sýningunni eru fram­ úrskarandi. Mæli með henni. n Ég mæli með pítsunum á Eldofninum í Grímsbæ. Bestu pítsurnar í bænum. n Ég mæli með kjötsúpunni hennar mömmu. n Ég mæli með hamborgur­ unum á Stöðinni. n Ég mæli með laginu I Want the World to Stop með Belle and Sebastian en það kemur mér alltaf í gott skap á morgn­ ana. n Ég mæli með nýjustu Sveppa­ myndinni. Frábær mynd. n Ég mæli með Godfather, Deer Hunter, Midnight Cowboy og One Flew over the Cuckoo’s Nest. n Ég mæli með Pink Floyd og Bítlunum. n Ég mæli með bókinni Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson sem ég las í sumar og naut í botn. Ég mæli líka með yndislegri bók eftir Forr­ est Carter, Uppvöxtur Litla Trés sem ég var að ljúka við. Þessar bækur láta manni líða vel. n Ég mæli með leikaran­ um Philip Seymour Hoffman, sem er bestur í dag. n Svo mæli ég með allri inn­ lendri dagskrárgerð í sjón­ varpinu. Það er nánast sama hvað það er, ég elska að horfa á innlent efni, því þá finnst mér ég vera hluti af heild. Rúnar Freyr mælir með Innlend dagskrárgerð og kjötsúpa Jón Viðar Jónsson leikminjar@akademia.is Leikrit One Man, Two Guvnors eftir Carlo Goldoni og Richard Bean Leikstjóri: Nicholas Hytner Sambíóin í Kringlunni 15. september í beinni útsendingu frá National Theatre Fyrir hláturþyrsta Óhætt er að mæla með sýningunni við hláturþyrsta landa sem eiga eftir að leggja leið sína til London. Þ etta er fjölskyldu­ leikrit. Öldruð móð­ ir, þrjú uppkomin börn hennar, einn sonur og tvær dæt­ ur. Plús tengdasonur, sá er giftur eldri dótturinni. Þann­ ig er persónugalleríið. Leik­ ið af Kristbjörgu Kjeld, Mar­ gréti Vilhjálmsdóttur, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, Atla Rafni Sigurðarsyni og Baldri Trausta Hreinssyni. Öflugum leikurum undir stjórn öflugs leikstjóra sem leikhúsið leyf­ ir að kalla til öfluga aðstoð­ armenn, toppmenn hvern á sínu sviði. Útkoman eftir því: vel unnin sýning, góð stund í leikhúsinu, ljúf og notaleg. Kannski fulljúf og nota­ leg? Já, það kann að vera. Því að vissulega er hér tæpt á þó nokkrum fjölskylduharm­ leik. En einungis tæpt á. Ekki kafað í neitt. Ég hef sterk­ lega á tilfinningunni að höf­ und hafi langað til að skrifa drama, en ekki komist lengra en að skrifa fjölskyldu­ kómedíu, sorglega og jafnvel pínulítið beitta, það skal ját­ að, en kómedíu samt. Svona eitthvað í ætt við Stundar­ friðinn hans Guðmundar Steinssonar sællar minning­ ar. Annars er það frekar andi Jökuls Jakobssonar sem svíf­ ur hér yfir vötnum. Gamall unnandi Jökuls kann því vel. Leikurinn um Pétur Mand­ ólín, Herbergi 213, kemur sérstaklega upp í hugann – eða Vandarhöggið sem ýmsa sveið undan. Jökull er sjálf­ sagt aðeins nafn í hugum flestra af yngri kynslóð, jafn­ vel innan leikhússins sjálfs, það hefur gengið svona og svona með uppeldisstarfið hjá þeim sem bera ábyrgð á því, sýnist mér. En Jökull er meira en nafn fyrir mér og minni kynslóð. Þess vegna finnst mér gott að sjá að hann liggur ekki alveg kyrr (og ég leyfi mér að nota tækifærið og skjóta því að, innan sviga, að leikritið hans um son skó­ arans og dóttur bakarans hefur leitað á hug minn und­ anfarið í kjölfar umræðna um umdeilda landsölu á há­ lendi Íslands; kannski eitt­ hvað sem þið í leikhúsunum mættuð líta á við tækifæri, því þið viljið nú vera í takt við tímana, veit ég). Svartur hundur prests­ ins er leikrit af því tagi sem maður vill ekki segja of mik­ ið um, til þess að spilla ekki fyrir þeim sem eiga eftir að sjá það. En þá verður um leið erfiðara að gagnrýna, tala skýrt og skorinort um þá annmarka og þær veilur sem maður þykist koma auga á. Eftir að hafa horft einu sinni á leikinn, nóta bene. Í upp­ hafi er látið í veðri vaka að fjölskyldan litla lumi á leynd­ armáli, einhverju sem eng­ inn vill tala um. Samskiptin eru svona eins og gerist og gengur í dysfúnksjónal fjöl­ skyldum: menn setja hver annan í hlutverk, heimta að ákveðnum munstrum sé fylgt, munstrum sem þegj­ andi samkomulag á að ríkja um og sá sterkasti í fjölskyld­ unni fylgir eftir og byggir yfirráð sín á; ef einhver rýf­ ur þau munstur fer allt í bál og brand. Bældar tilfinning­ ar, ótti, heift og hatur brjót­ ast fram. Við erum búin und­ ir að eitthvað slíkt gerist, en fyrri hlutinn líður án þess að nokkuð gerist. Það er lát­ ið sem dansað sé á einhverri brún, en við finnum aldrei almennilega fyrir nærveru hennar, hvað þá að þarna sé nokkurt hengiflug, hyldýpi að steypast ofan í. Við fáum aldrei þennan hnút í magann eins og undir góðum sýning­ um á til dæmis Pinter, nú eða Jökli. Eftir hléið lifnar held­ ur yfir. Móðirin, sem er hér kölluð „ættmóðir“ þótt ætt­ boginn sé smár, tekur mál­ in í sínar hendur. Krist­ björg dómínerar sviðið með sinni sterku og hlýju nær­ veru, húmor sem nýtur sín ekki síst í blæbrigðum svips og raddar. Dómínerar á rétt­ an hátt, án fyrirhafnar eða frekju, stelur engri athygli frá hinum sem eru í raun­ inni alveg jafngóðir og hún, bara yngri, hafa ekki enn öðlast þessa dularfullu og heillandi yfirburði sem löng reynsla, innsæi og uppsöfn­ uð lífsviska gefa snillingun­ um. Fjölskylduleyndarmálið er dregið fram hægt og bít­ andi. Hér hefur ýmsu verið sópað undir teppin og nóg af ryki í skúmaskotum, sé vel að gáð; okkur er meira að segja sýnt það í léttri stílfærslu leikmyndarinnar. Að lokum komumst við að því hvern­ ig í pottinn er búið, hvern­ ig stendur á glæsikjólnum sem Móðirin brýtur saman og setur ofan í ferðatösku við upphaf leiks. Þá eru all­ ir tilbúnir í jarðarförina – og slæðudansinn sem botnar sýninguna. Og manni er eig­ inlega slétt sama þó að fjöl­ skylduleyndarmálið reynist sálfræðilega ekki nógu vel undirbyggt af höfundinum. Þá er ég að tala um leiklausn­ ina sjálfa, þá sem ég vil helst ekki segja ykkur hver er. Að hún svífur þarna í lausu lofti, rétt eins og slæðurnar. Já, þetta er mjög snyrti­ lega gert allt saman. Smekk­ legt og fágað. Kristín er sterk­ ur leikstjóri, sem fyrr segir, líklega of sterk fyrir sterka höfunda. Suma sterka höf­ unda, alltént. En góð í texta sem eru ekki þétt teiknað­ ir, heldur opnir í endana, og kveikja í einhverju hjá henni sjálfri – því auðvitað er Krist­ ín líka skáld. Hvernig væri, Tinna, nú eða Magnús Geir, að bjóða henni að takast á við Guðmund Steinsson næst? Til dæmis Hjartslátt? Því að hann liggur enn óbættur hjá garði, eins og fleira eftir Guð­ mund. Alla okkar frábæru leikara þyrstir í frábær verk­ efni, verkefni sem leyfa þeim að sýna hvað í þeim býr, gefa okkur stórar stundir í leik­ húsinu. Þið gefið þeim ekki alltof mörg tækifæri til þess, hvorugt ykkar – ef maður á að vera hreinskilinn við ykk­ ur! Að lokum: ég er fyrir mína parta sáttur við breyttan sýn­ ingartíma í Þjóðleikhúsinu. En það hefði þurft að kynna hann betur og helst að breyta honum í samvinnu við Borg­ arleikhúsið. Ég vona að þessi breyting festist í sessi. Þá er meiri tími fyrir þær samræð­ ur og það samkvæmislíf sem fyrir mörgum er ómissandi hluti af góðri leikhúsferð. Slæðudans í Kassanum Jón Viðar Jónsson leikminjar@akademia.is Leikrit Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir Leikmynd: Elín Hansdóttir Búningar: Helga Björnsson Sviðshreyfingar og dans: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir Tónlist og hljóðmynd: Gísli Galdur Þorgeirsson Ljós: Halldór Örn Óskarsson Sýnt í Þjóðleikhúsinu „ Í upphafi er látið í veðri vaka að fjölskyldan litla lumi á leyndar- máli, einhverju sem enginn vill tala um. Atli Rafn og Kristbjörg Kjeld í hlutverkum sínum „Kristbjörg dómínerar sviðið með sinni sterku og hlýju nærveru, húmor sem nýtur sín ekki síst í blæbrigðum svips og raddar.“ Andi Jökuls Jakobssonar svífur yfir vötnum „Gamall unnandi Jökuls kann því vel. Leikurinn um Pétur Mandólín, Herbergi 213, kemur sér- staklega upp í hugann – eða Vandarhöggið sem ýmsa sveið undan.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.