Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Side 16
16 | Umræða 21. september 2011 Miðvikudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar.
Bókstaflega
Róbert og
mútugreiðslur
n Enn berast fréttir sem bendla fjár-
festinn Róbert Wessmann við mútu-
greiðslur. Stöð 2 sagði frá því á laugar-
daginn að forstjóri
bosníska lyfja-
fyrirtækisins
Bosnalijek hefði
vænt Róbert um
að reyna að bera
á sig fé. Fréttin
rifjar upp um-
fjöllun fjölmiðla
um fasteignavið-
skipti Róberts og Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar í Murcia á Spáni árið 2005.
Einn af starfsmönnum þeirra, Haukur
Harðarson, ræddi um það í skýrslu
um verkefnið að múta þyrfti spænsk-
um embættismönnum með tæplega
500 milljónum króna til að fá bygg-
ingarleyfi á svæðinu.
Klaufaleg ráðning
n Nýjasta mannaráðning Seðlabanka
Íslands er klaufaleg svo ekki sé meira
sagt. Þorgeir Eyjólfsson, fyrrverandi for-
stjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna
og starfsmaður MP Banka, hefur verið
ráðinn til bankans tímabundið sem
verkefnisstjóri við losun gjaldeyris-
hafta. Þorgeir var forstjóri lífeyris-
sjóðsins árið 2008 þegar hann skilaði
rúmlega 30 milljarða króna tapi fyrir
sjóðsfélaga sína með fjárfestingum í
Kaupþingi, Exista, Bakkavör og fleiri
fyrirtækjum.
Hallur undir Finn
n Hallur Magnússon, ráðgjafi hjá fyrir-
tækinu Spesíu og fyrrverandi starfs-
maður Íbúðalánasjóðs, er iðinn við að
taka upp hansk-
ann fyrir flokks-
bróður sinn Finn
Ingólfsson í fjöl-
miðlum. Fjöl-
miðlar mega vart
nefna Finn á nafn
án þess að Hallur
stökkvi upp til
handa og fóta og
verji ráðherrann fyrrverandi. Spyrja
menn sig nú að því af hverju þessi
umhyggja ráðgjafans fyrir Finni stafi.
Fyrir skömmu greindi DV frá því að
Hallur ætti í samstarfi við athafna-
manninn Engilbert Runólfsson og er
ekki ólíklegt að hann aðstoði einnig
fleiri fjársterka aðila.
Ólga innan Iceland
Express
n Starfslok Matthíasar Imsland hjá
Iceland Express eru enn ein vísbend-
ingin um ólgu innan ferðaþjónustu-
veldis Pálma Har-
aldssonar. Matthías
er þriðji háttsetti
stjórnandinn hjá
fyrirtækjum Pálma
sem lætur af störf-
um á skömmum
tíma. Áður höfðu
forstjóri Astra-
eus, Mario Fulgoni,
og Lára Árnadóttir, fjármálastjóri Ice-
land Express, látið af störfum nokkuð
snögglega. Ein möguleg skýring sem
hefur verið nefnd á forstjóraskipt-
unum hjá Iceland Express er sú að
Matthías eigi að taka við Astraeus.
Þessi skýring er þó fremur ólíkleg.
Sandkorn
V
iðskiptasiðfræðingurinn
Stefán Einar Stefánsson
og félagar hans í stéttar-
félaginu VR hafa ákveðið
að berjast gegn launamis-
rétti með því að gefa konum af-
slátt í búðum. Eru konur 90 prósent
menn? Spyr hann í auglýsingu í
blöðunum. Hann svarar með því að
gefa konum 10 prósent afslátt, sem
nemur skorti þeirra.
Þ
að er ekki óþekkt að þjóð-
félagshópar fái afslátt.
Ástæðan fyrir afslættinum
er yfirleitt sú að viðkom-
andi hópar eiga erfiðara
en aðrir. Þannig fá börn og aldr-
aðir afslætti hér og þar, vegna þess
að þessir hópar eru viðkvæmari en
aðrir og eiga líkamlega erfiðara með
að afla sér tekna. Stefán Einar hefur
nú sett konur í þann flokk.
Í
Bandaríkjunum fá þeldökkir
aðeins 75 prósent af launum
hvítra. Kannski væri hægt að
bjóða upp á 25 prósent blökku-
mannaafslátt í búðunum þar?
Tekjur í Efra-Breiðholti eru
bara 80 prósent af tekjum
fólks í Vesturbænum. Eigum
við að hafa Breiðholtsafslátt?
Tekjur Keflvíkinga eru aðeins
um 65 prósent af tekjum Sel-
tirninga. En svo kemur að því
að hvergi er meiri ójöfnuður
en á Seltjarnarnesi. Þannig
gæti tekjulágur Seltirningur
réttilega átt að fá afslátt líka.
Þess fyrir utan gæti verið nið-
urlægjandi fyrir fullfrískt og
fullorðið fólk úr tekjulágum
sveitarfélögum að fá afslátt í
búðum.
1
0 prósenta afsláttur-
inn fyrir konur er auð-
vitað táknrænn og
ekki til langframa. En
hann er fyrst og fremst
táknrænn um að konur séu
ekki 100 prósent menn.
Þær séu ekki borgunar-
menn fyrir fullu verði. Til að
undirstrika að þær séu öðruvísi
er þeim veitt sérmeðferð, eins og
þær séu hamlaðar.
Þ
að er eitt að konur fái ekki
jafnhá laun og karlar, en
annað að gera þær að
þiggjendum með því að
gefa þeim afslátt.
Þ
að sem konur eru að biðja
um er andstæðan við það
sem Stefán Einar veitir
þeim. Konur þurfa ekki
afslátt, heldur rétt laun.
Konur vilja fá sömu meðferð og
aðrir, en ekki sérmeðferð. Það er
ekki verið að biðja um gjöf heldur
réttlæti. Og kannski smá virðingu.
Afsláttur Af rétt-
læti fyrir konur
„Hann fékk
sér lax að
borða í
aðalrétt en
ég veit ekki
hvað hann fékk
sér í forrétt.“
n Stjörnukokkurinn Hrefna Rósa
Sætran fékk Hollywood-stjörnuna Ben
Stiller á veitingastaðinn sinn. – DV
„Nú eru allir grunsamlegir
sem keyra um og nú
fylgjast allir með.“
n Sigurþór Gíslason bóndi á Meðalfelli í
kjós, en hestaníðingar hafa beitt hross
Sigurþórs ofbeldi. – DV
„Þetta verður rosaleg
vinna og ég þarf að skoða
hvaða bakhjarla ég hef.
Ég tel mig hafa margt í
þetta starf.“
n Jóhanna Magnúsdóttir íhugar
forsetaframboð. – DV
„Það er eitt
að vinna mót
en það er
annað að
vinna með
svona stæl.“
n Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunn-
ar, en Stjörnustúlkur eru íslandsmeistarar
og burstuðu Breiðablik 5–0. – DV
„Þetta hrökk
út úr mér,
meiningar-
laust sem slíkt
og ekki ætlað
til að niðurlægja neinn
eða meiða.“
n Björn Valur Gíslason segir að hann
hefði ekki átt að nota orðið „forsetaræ-
fill“ í ræðustól þingsins. – mbl.is
Er stefnan tekin á
Hollywood?
„Það er aldrei að vita. Það er um að
gera að halda öllu opnu.“ unnið er að
gerð heimildamyndar um Herbert
Guðmundsson tónlistarmann
en hann er þekktastur fyrir
smellina Can´t Walk away
og Hollywood. Það eru
myndatökumennirn-
ir Friðrik grétarsson
og Ómar Sverrisson
sem fylgja Her-
bert hvert fótmál
þessa dagana.
Spurningin
Svarthöfði
Fátækir í Framsókn
G
amli Framsóknarflokkurinn
var annálaður fyrir það að
þar voru menn til þess að
auðgast persónulega. Auð-
vitað átti það ekki við um
alla flokksmenn en helstu lykilmenn
flokksins voru því marki brennd-
ir. Sá sem best hefur komið ár sinni
fyrir borð er auðmaðurinn Finn-
ur Ingólfsson sem steig fátækur inn
í stjórnmálin. Hann hófst til þeirra
metorða að verða ráðherra og vara-
formaður flokks síns. Seinna var
hann skipaður seðlabankastjóri og
loks snéri hann baki við opinberum
störfum og haslaði sér völl í einka-
geiranum þar sem hann hafði sank-
að að sér eigum. Finnur var einn lyk-
ilmanna einkavæðingar bankanna
þar sem tveggja banka góssi var skipt
bróðurlega á milli stjórnarflokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn úthlutaði
Landsbankanum til einkavina sem
komu frá Rússlandi, en Framsókn-
arflokkurinn sá um Búnaðarbank-
ann sem féll í eigu S-hópsins, úrvals-
deildar flokksmanna. Ráðherrann
og seðlabankastjórinn fyrrverandi
hefur síðan haldið vel utan um hluta
eigna sinna og fengið afskrifaðar
verulegar skuldir.
Meðal þeirra sem nutu sérlega
góðs af stjórnmálunum er fjölskylda
Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi
formanns Framsóknarflokksins,
sem í dag á milljarða króna eftir
einkavæðingu VÍS og íslensku fiski-
stofnanna. Fjölskyldan hefur fengið
afskrifaðar háar upphæðir þótt millj-
arðaeignir séu til staðar. Aðstoðar-
maður Halldórs, Björn Ingi Hrafns-
son, gekk inn í Kaupþingsbanka og
fékk tugi milljóna króna að láni fyrir
félag sitt, Caramba, gegn haldlitlum
tryggingum. Fjöldi minni spámanna
í flokknum fékk mola sem hrukku
af borðum hákarla flokksins. Þetta
var hin íslenska spilling í hnotskurn.
Menn fóru í pólitík til að koma hönd-
um yfir eigur almennings og nýta
þær í eigin þágu. Því skal ekki haldið
fram að leiðtogar Framsóknarflokks-
ins hafi aðhafst eitthvað ólöglegt.
Slíkt hefur ekki verið sannað. Það
breytir því ekki að fnykinn leggur af
gjörðum þeirra.
Það væri ósanngjarnt að nefna
eingöngu hina umdeildu í Fram-
sóknarflokknum. Til eru heiðarlegar
undantekningar á borð við Guðna
Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og
formann, sem kom út úr stjórnmál-
unum án þess að hafa auðgast sýni-
lega. Þá hefur vissulega orðið bylting
í flokknum þar sem gamla klíkan er
horfin á braut. Ekki er ástæða til vé-
fengja heiðarleika Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar sem nú situr á for-
mannsstóli.
Gamla Framsóknarklíkan þrífst
enn vel. Finnur sinnir eigum sínum
sem eru milljarðavirði. Halldór er í
opinberu starfi sem framkvæmda-
stjóri norrænu ráðherranefndar-
innar. Aðrir forkólfar eru svo dreifð-
ir um atvinnulífið. Sumir þeirra bíða
færis að komast aftur yfir lyklana
að fjárhirslum almennings. Það má
aldrei verða. Þjóðinni er nauðsynlegt
að jarða gamla Framsóknarflokkinn
rétt eins og önn-
ur spillingaröfl
og lyfta stjórn-
málunum á
æðra plan.
Það er lág-
marks-
krafa til
einstak-
linga sem
hasla sér
völl í póli-
tík að þeir
þekki og virði
það hlutverk
sitt að þjóna
fólkinu án
þess að
hirða eig-
ur þess.
„Fnykinn leggur af
verkum þeirra.