Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Síða 20
20 | Sport 21. september 2011 Miðvikudagur Vonast eftir góðri mætingu n Ísland mætir Belgum í undankeppni EM 2013 Þ ær eru með vel skipu- lagt lið sem spilar þétta vörn og sækir hratt,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu, um næstu mótherja í undankeppni EM 2013, Belga. Íslandi mætir Belgíu á Laugardalsvellinum á fimmtudagskvöldið klukkan 19.30. Sigurður segir Belgana vera með þriðja besta liðið í riðlinum og því þurfi okkar stúlkur að vera á tánum. „Þær eru með hættulega framherja sem við þurfum að vita af líka. Belgar hafa verið að ná góðum úrslitum. Þær unnu bæði Rússland og Suð- ur-Kóreu. Þær virðast vera þriðja besta liðið í riðlinum, lið sem við þurfum klárlega að leggja okkur fram við til að sigra. Þetta verður erfiður leikur því þetta er betra lið en þau sem við höfum verið að mæta. Lið eins og Slóvenía, Grikkland og Serbía. Belg- ar eru klassa fyrir ofan þau,“ segir Sigurður Ragnar. Ísland vann frækinn og sögulegan sigur á sterku liði Noregs á laugardaginn og kom sér þar í góða stöðu í riðlinum þó hann sé aðeins nýhafinn. „Það var frábær leikur af okkar hálfu. Von- andi getum við haldið áfram að spila svona vel. Mikilvæg- asti leikurinn er samt alltaf sá næsti en það er margt mjög gott sem við getum tekið úr Noregsleiknum. Sá sigur tel- ur samt lítið ef við vinnum ekki Belga,“ segir Sigurður Ragnar, en stelpurnar okk- ar ætla sér efsta sætið í riðl- inum og þar af leiðandi sæti á EM. „Það hefur allt frá byrj- un verið yfirlýst markmið að vinna riðilinn. En ætlum við okkur að gera það þá þurfum við að vinna alla þessa leiki.“ Mætingin var þokkaleg á Noregsleikinn en Sigurður vonast eftir talsvert fleirum á fimmtudagskvöldið. „Ég myndi alltaf vilja sjá fleiri. Það er alla vega nóg pláss í stúkunni,“ segir hann létt- ur. „Við erum þakklát þeim sem komu á Noregsleikinn en laugardagseftirmiðdagur er erfiður leiktími. Við von- umst til þess að fleiri komi og styðji liðið á fimmtudag- inn,“ segir Sigurður Ragn- ar Eyjólfsson, sem hefur úr allri sinni sveit að velja nema hvað hann segir Katrínu Óm- arsdóttur tæpa. tomas@dv.is Sigurður Ragnar Eyjólfsson vill sigur Markmið stúlknanna er sigur í riðlinum. Modric fær nýjan samning Luka Modric, leikmaður Tottenham, sem var svo ná- lægt því að ganga í raðir Chel- sea í sumar fyrir 40 milljónir punda, er nú við það að fá nýjan risasamning hjá Totten- ham. Modric virðist vera bú- inn að gleyma sumrinu en hann átti flottan leik og skor- aði glæsilegt mark í 4–0 bursti Spurs á Liverpool um helgina. „Ég held að stjórnarformaður- inn fari nú að ræða við hann um nýjan samning. Og ef hann er 40 milljóna punda virði sem leikmaður hlýtur hann að fá samning sem er í samræmi við það. Ekki förum við að borga honum eins og leikmanni sem er fimm milljóna punda virði, er það?“ segir Redknapp. Button til Ferrari? Bretinn Jenson Button, öku- þór McLaren í Formúlu 1, er sagður vera á leið til Ferr- ari fyrir keppnistímabilið 2013. McLaren ætlar að nýta sér klásúlu í samningi But- tons og halda honum áfram á næsta ári en eftir það getur hann farið hvert sem hann vill. Button er sagður hafa mikinn áhuga á að keyra fyrir Ferrari 2013 og þykir líklegra en ekki að hann taki sæti Felipe Massa fyrir það tímabil. Button varð heimsmeistari fyrir tveimur árum þegar hann keyrði fyrir Brawn GP sem breyttist síðar í Mercedes en í dag er hann liðsfélagi Lewis Hamilton hjá McLaren. Mayweather heimtar lyfjapróf Sagan endalausa í boxheim- inum um mögulegan bardaga tveggja bestu hnefaleikakappa heims, Floyds Mayweather Jr. og Mannys Pacquiao er orðinn þreyttari en Ronaldo til Real og Fabregas til Barca-sögurnar til samans. Eftir sigur Mayweat- hers á Victor Ortiz um helgina fór allt aftur að stað og von- ast nú menn til að sjá þessa tvo loksins berjast. Mayweat- her var þó ekki lengi að drepa þær sögur því hann heimtar að Pacq uiao gangist undir lyfja- próf eins og alltaf. „Pacquiao verður að koma sínum málum í lag,“ segir Mayweather. V ið erum að detta inn í leikjatörn núna – loks- ins,“ segir Arnar Grét- arsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá gríska liðinu AEK, en uppnám hefur verið í grísku úrvalsdeild- inni þar sem nokkur lið hafa sætt rannsókn lögreglu vegna ólöglegrar starfsemi á borð við hagræðingu úrslita leikja. Búið er að dæma Olympiakos Volou, liðið sem AEK átti að mæta í fyrstu umferð, niður í kjall- ara gríska boltans en AEK spil- aði loks sinn fyrsta leik um síð- astliðna helgi og vann. „Fyrsta leiknum var frestað og svo er búið að breyta öllu fram og til baka. Við erum að spila leik sem var frestað á morgun [í dag] en það var ekki hægt að spila hann um síðustu helgi því forsætis- ráðherra landsins var með ráð- stefnu og þurfti 7.000 lögreglu- menn. Því fengum við enga gæslu. En núna erum við að fara að spila leiki á fimmtudögum og sunnudögum næstu vikurnar og getum þá vonandi farið að koma okkur á ról,“ segir Arnar. Ekki komið á hreint hvaða lið spila Gríska úrvalsdeildin er sextán liða deild en eftir að tveimur liðum var hent niður í kjallar- ann er pláss fyrir tvö ný. Arn- ar segir ekki komið á hreint hvað eigi að gera í málunum og deildin sé byrjuð þó enn sé mögulegt að tvö önnur lið komi upp. „Ég vona að þetta fari að ráðast. Þetta hefur nátt- úrulega áhrif alveg niður í neðri deildirnar. Þetta er búið að vera vandamál því lið verða að vita í hvaða deild þau eiga að spila. Bæði liði sem féllu í fyrra væru alveg til í að koma aftur upp. Þau verða samt að fá að vita það sem fyrst því það er allt annað að safna tekjum ef þú átt að spila í efstu deild en ekki næst efstu. Þá er hægt að gera mun stærri samninga,“ segir Arnar. Mikið skorið niður Arnar segir fjárhaginn hjá AEK vera að komast í stand en fé- lagið hefur þurft að skera mikið niður. „Eins og mörg lið í Evr- ópu höfum við verið í vand- ræðum fjárhagslega. Við höf- um verið að gíra niður kostnað þannig að endar nái saman. Þessi stjórn er að bera byrði fyrr- verandi stjórnar sem gerði stóra samninga og þar voru alls kon- ar vandamál. Það gerir hlutina mjög erfiða. Ætli við séum ekki búnir að skera kostnað við liðið niður um 30 prósent á milli ára, þrátt fyrir að skattar hafi hækkað úr 21 prósenti í 45. Einnig höf- um við náð að lækka stjórnunar- kostnað um 35 prósent. Það sem vantar eru bara meiri tekjur og í því er stjórnin að vinna,“ seg- ir Arnar sem var einmitt með glóðvolga fjárfesta í heimsókn þegar DV ræddi við hann. Stuðningsmenn í Grikklandi eru blóðheitir og vilja vinna peningaliðin, Panathinaikos og Olympiakos, þó að fjárhags- grundvöllur sé ekki til staðar fyrir því. „Hörðustu stuðnings- mennirnir eru ekkert að hugsa um hvernig staðan er nákvæm- lega núna. Við eigum bara allt- af að vinna stórliðin. Menn hlusta ekki á neinar vangaveltur um peningaleysi þrátt fyrir að við séum ekki með sömu fjár- hagslegu getu og fyrir nokkr- um árum. Smám saman held ég samt að aðrir séu að átta sig á því að við erum búnir að skera niður og reynum að gera það besta úr því sem við höfum,“ segir Arnar. Ekki valtur í sessi Fyrir skömmu bárust af því fréttir að Arnar væri valtur í sessi sem knattspyrnustjóri en hann segir það byggt á misskilningi. „Það er auðvitað skrifað mikið um mann hérna. Málið er, held ég, að menn vissu ekki alveg stöðu mála. Ég gerði upphaflega fimmtán mánaða samning þeg- ar ég kom og hann rann út í júní. Þá gerði ég annan þriggja mán- aða samning en í honum var klásúla þess efnis að ef ég væri enn í vinnu 15. júlí framlengd- ist samningurinn sjálfkrafa um ár. Ég er því með samning til 30. júní 2012,“ segir Arnar, sem seg- ir Eið Smára Guðjohnsen vekja lukku hjá öllum. „Það eru allir mjög ánægðir með hann. Hann stóð sig mjög vel úti í Georgíu þegar við kom- umst inn í Evrópudeildina. Síð- asta sunnudag lék allt liðið bara illa, en við unnum samt. Hann hefur verið til fyrirmyndar inn- an sem utan vallar og allir hafa verið mjög ánægðir með hann hingað til. Hlutirnir eru bara rétt að detta í gang hérna en það eru miklar væntingar gerðar til hans og ég er viss um að ef hann kemur sér í almennilegt stand muni hann gera vel fyrir okkur,“ segir Arnar Grétarsson. n Tímabilið hjá AEK loksins að fara á fullt n Nóg af leikjum framundan heima og í Evrópu n Enn óvíst hvaða lið spila í efstu deild n Fjárhagurinn erfiður og búið að skera mikið niður DeilDin enn Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Knattspyrna í uppnámi Loksins að fara af stað AEK spilar tvo leiki á viku næstu vikurnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.