Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Page 22
22 | Fólk 21. september 2011 Miðvikudagur
H
elsta bakland Hönnu
Birnu, kjarni áhrifa-
kvenna í Sjálfstæðis-
flokknum sem hefur
hist reglulega á veitingastaðn-
um La Primavera, leitar nú
að nýjum stað til að ráða ráð-
um sínum. Prímaverurn-
ar eru meðal annarra Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir,
fyrrverandi varaformaður,
Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir þingmaður, Gréta Ingþórs-
dóttir, starfsmaður flokksins,
og Ásdís Halla Bragadóttir,
fyrrverandi bæjarstjóri. Eins
og margir vita þá hefur veit-
ingastaðurinn La Primavera
hætt rekstri og eigendur stað-
arins, hjónin Leifur Kolbeins-
son matreiðslumeistari og Jón-
ína Kristjánsdóttir, einbeita sér
nú að því að byggja upp nýjan
veitingastað, Kolabrautina í
tónlistarhúsinu Hörpu.
„Við verðum bara að hefja
víðtækt rannsóknarstarf. Við
gætum að sjálfsögðu elt kokk-
inn og farið á Kolabrautina en
við erum engar kolakerlingar,“
segir Ásdís Halla Bragadótt-
ir og skellir upp úr. „Auðvitað
er mikil eftirsjá að La Prima-
vera og okkur þykir vænt um
að vera uppnefndar Príma-
verurnar – Kolakerlingarnar er
síðri kostur – og því er það svo
að þótt við munum líklega elta
kokkinn þá ætlum við að halda
viðurnefninu.“
Prímaverurnar þurfa nauð-
synlega á nýjum fundarstað að
halda enda eru blikur á lofti í
pólitísku landslagi og því þarf
væntanlega að leggja enn meir
á ráðin en aðra daga. Í nýlegri
könnun kemur fram að Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, naut ekki
mikils fylgis meðal kjósenda
flokksins. Einungis 24 prósent
þeirra vildu sjá Bjarna áfram
í formannsstólnum á meðan
51,4 prósent treystu Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, oddvita
borgarstjórnarflokksins, best
til formennsku. Þótt Hanna
Birna hafi enn ekki gefið upp
hvort hún gefi kost á sér, lætur
hún líklega. Bjarni Benedikts-
son hefur hins vegar lýst því
yfir að hann sækist eftir endur-
kjöri sem formaður flokksins.
Langar ekki
í sjónvarp
Vera Sölvadóttir, kvikmynda-
gerðarkona og einn stjórnanda
Djöflaeyjunnar, nýs menn-
ingarþáttar sem frumsýndur
er á miðvikudagskvöldi, segist
ekki hafa áhuga á því að eiga
sjónvarp. „Mig langar ekki vit-
und í sjónvarp,“ segir Vera sem
er meira fyrir að fara í kvik-
myndahús. Hún mun enda
fjalla um kvikmyndir í þættin-
um. „Ég held þetta verði mjög
skemmtilegt. Þórhallur verður
með leikhúshliðina, við Sigga
verðum með kvikmyndahlið-
ina og Guðmundur Oddur sér
um myndlistarhlutann. Þetta
verður svona þrískiptur þáttur.
Þetta verður örugglega mjög
skemmtilegt,“ sagði hún í við-
tali við DV nýlega, ánægð með
nýja starfið.
Fúll yfir brauð-
snauðum kúrum
Jói Fel gefur lítið fyrir megr-
unarkúra þar sem brauð er
sniðgengið. Jói er í viðtali í
fylgiriti Morgunblaðsins um
iðnað og lýsir því yfir að brauð
sé ekki óhollt. Þvert á móti sé
það kjarnafæða. Hann segist
í nokkurn tíma hafa bent á
það að spelt og hveiti séu ná-
kvæmlega það sama og heil-
korna spelt. Jói getur þó verið
ánægður með það að köku-
vísitalan er á uppleið en eins
og hann segir frá þá hefur
kökusalan loks tekið við sér
eftir hrun.
„Í dag er
fólk aftur
farið að
kaupa
góðar
kökur.
Kökuvísital-
an er því klár-
lega á upp-
leið.“
Selst eins og
heitar lummur
Þriðja bók rithöfundar-
ins og fjölmiðlakonunnar
Tobbu Marinós, Lýtalaus,
hefur fengið góðar viðtökur
í bókabúðum eins og hinar
tvær. „Lýtalaus selst eins og
heitar lummur,“ segir Tobba
á Facebook-síðu sinni og það
eru engar lygar. Lýtalaus er
nú þegar komin upp í þriðja
sæti á metsölulista Eymunds-
sonar yfir Skáldverk og ljóð og
var einnig þriðja mest selda
bókin af öllum verkum í síð-
ustu viku. Í kvöld, miðvikudag,
hefst svo nýr sjónvarpsþáttur
hennar sem heitir einfaldlega
Tobba en það á að vera þáttur
um samfélagsrýni sem Tobba
ætlar að tækla á sinn einstæða
hátt.
H
eilsudrottningin Linda
Pétursdóttir lifir heil-
brigðu lífi. Hún æfir
um fjórum sinnum í
viku, borðar hollt fæði, mik-
ið af grænmeti og hefur misst
meira en 10 kíló síðastliðið
ár. Hún byrjaði að léttast með
markvissum æfingum en eft-
ir að hún kynntist speki nær-
ingarþerapistans, Lene Hans-
son, fór henni að ganga enn
betur.
Lene er nú stödd á Íslandi
og fræðir gesti Baðhússins
um það hvernig megi bæta
heilsuna og auka vellíðan.
Linda mælir eindregið með
því að íslenskar konur kynni
sér speki hennar og er hrifin
af áherslum Lene. „Þetta er
ekki matarkúr og ekki megrun
heldur breyting á lífsstíl,“ seg-
ir Linda. „Sjálf lifi ég afar
heilbrigðu lífi og borða holla
fæðu en með ráðleggingum
Lene gerði ég breytingar sem
skiptu sköpum og gerðu mér
kleift að ná markmiðum mín-
um.“
Linda segir æfingar þurfa
að fara saman við mataræðið
og að á endanum skipti sam-
setning fæðunnar meginmáli.
„Sé ráðleggingum Lene fylgt
er magn á grænmeti sjálfkrafa
stóraukið. Sjálf borða ég yfir-
leitt eingöngu grænmeti eða
ávexti fram að hádegi. Svo
blanda ég ekki saman prótín-
um og kolvetnum. Með þess-
um aðferðum og líkamsrækt
er ekki hjá því komist að létt-
ast,“ segir Linda.
Orkan hefur aukist
Linda segist finna mikinn
mun á sér. „Ég bý yfir mikilli
orku dags daglega og því kom
það mér á óvart að ég gæti
gert betur,“ segir hún og hlær.
„Ég tók þetta bara í rólegheit-
unum og árangurinn skilaði
sér jafnt og þétt. Öfgar henta
mér ekki.“
Linda geislar af gleði og
fegurð þessa dagana og ef-
laust er það ekki eingöngu
grænmetinu að þakka en eins
og DV sagði frá nýverið fann
hún ástina í örmum skoska
leikarans Tavs MacDougall.
n Linda Pétursdóttir missti meira en 10 kíló n Fór að ráðum dansks
næringar þerapista, Lenu Hansson n Langar til að miðla reynslu sinni
10 kílóum léttari
Hamingjusöm og í góðu formi
Linda Pétursdóttir hefur aldrei litið
betur út og mælir með því að fara
að ráðum Lene Hansson.
Prímaverur, en ekki kolakerlingar
n Hulduher Hönnu Birnu hittist á veitingastaðnum La Primavera sem hefur verið lokað
Aðal prímaverurnar Hanna Birna, Ásdís Halla Bragadóttir, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir.