Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Qupperneq 3
samfélaginu allt frá bankahruninu að upplýst yrði hversu mikið eign- ir voru niðurfærðar þegar þær fóru á milli nýju og gömlu bankanna. Afar litlar upplýsingar hafa þó ver- ið gefnar um það. Þó kom fram fyrr í þessum mánuði að yfirtekin útlán nýju bankanna þriggja hafi numið 1.513 milljörðum króna. Kom það fram í svari sem fékkst frá Steingrími J. Sigfússyni fjár- málaráðherra við fyrirspurn Guð- laugs Þór Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um efnahags- reikninga nýju bankanna. Líkt og DV greindi frá síðasta föstudag hafa Arion banki, Ís- landsbanki og Landsbankinn skil- að 163 milljarða króna hagnaði frá því í október 2008. Erfitt er hins vegar að sjá í þeim töflum sem fylgja með frétt í dag að bankarn- ir hafi verið að hækka útlánasöfn sín mikið frá því að nýju bankarnir voru stofnaðir. Þannig hafa lán til fyrirtækja lækkað um átta prósent frá stofnun nýju bankanna og lán til heimila lækkað um 17 prósent. Eini liðurinn sem hefur verulega hækkað eru útlán til fyrirtækja í samgöngum og flutningum sem hafa hækkað úr 15 milljörðum króna í rúma 40 milljarða króna. Skuldir eignarhaldsfélaga niðurfærð um 85 prósent Eins og sjá má í töflum með frétt eru niðurfærslur á útlánum útlist- aðar nokkuð ítarlega. Athyglisvert er að sjá að útlán til eignarhaldsfélaga lækka úr 1.700 milljörðum króna í september 2008 í 380 milljarða millj- arða króna mánuði síðar. Er um að ræða 80 prósenta lækkun. Frá októ- ber 2008 þar til í júlí á þessu ári lækka síðan útlán til eignarhaldsfélaga úr 380 milljörðum króna í 277 milljarða króna. Heildarlækkun á útlánum til þeirra nemur því nærri 85 prósent- um frá því í september 2008. Vert er að geta þess að þetta eru upplýs- ingar um útlán til eignarhaldsfélaga innanlands. Inni í þessum tölum eru ekki útlán vegna fjárfestinga í lönd- um eins og Bretlandi, Danmörku og Noregi þar sem íslenskir útrásar- víkingar voru stórtækir fyrir banka- hrunið. Einnig er athyglisvert að út- lán til fjármálafyrirtækja hafa lækkað um 90 prósent. Fóru þau úr 580 millj- örðum króna í september 2008 í 66 milljarða króna í júlí 2011. 30 prósenta niðurfærsla í sjávarútvegi Útlán til sjávarútvegsfyrirtækja lækk- uðu úr 410 milljörðum króna frá september 2008 í 300 milljarða króna í október 2008 eða um 27 prósent. Í júlí á þessu ári voru skuldirnar síðan komnar niður í 290 milljarða króna og hafa því samtals lækkað um nærri 30 prósent frá september 2008. Það sem skekkir þessar tölur mikið er sú staðreynd að margir af stærstu eig- endum sjávarútvegsfyrirtækja voru einnig stórir þátttakendur á íslensk- um hlutabréfamarkaði í gegnum önnur eignarhaldsfélög sem ekki koma að rekstri sjávarútvegs. Þannig má nefna að útgerðar- maðurinn Guðmundur Kristjáns- son, sem kenndur er við Brim, fékk fimm milljarða króna lán hjá Lands- bankanum í desember 2006. Veitti bankinn félaginu Hafnarhóli lánið til að kaupa 4,2 prósenta hlut í fjárfest- ingabankanum Straumi-Burðarási. Var lánið veitt í gegnum Landsbank- ann í Lúxemborg. Félagið Hafnarhóll var lýst gjaldþrota í fyrra og fundust engar eignir í félaginu upp í skuldir sem voru þá komnar í 9,5 milljarða króna. Svona fjárfestingar hafa lík- lega verið bókfærðar á eignarhalds- félög en ekki sjávarútvegsfyrirtæki enda um alls ólíka starfsemi að ræða. Útlán fyrirtækja lækka um 50 prósent Athyglisvert er að sjá að lán til fyr- irtækja lækka minna en til heim- ila. Lækkuðu lán fyrirtækja úr 2.100 milljörðum króna í september 2008 í 1.200 milljarða króna í október 2008. Í dag nema útlán til fyrirtækja hins vegar 1.130 milljörðum króna og þannig hafa lán til fyrirtækja lækk- að um nærri 50 prósent frá septem- ber 2008. Önnur útlán sem vekja athygli eru lán til byggingastarfsemi, verslunar og þjónustu. Lán til fyrirtækja í bygg- ingastarfsemi hafa lækkað úr 183 milljörðum króna í september 2008 í 78 milljarða króna í júlí á þessu ári sem gerir nærri 60 prósenta lækk- un. Enda hefur samdráttur í bygg- ingaiðnaðinum verið gríðarlegur frá bankahruninu og fáar greinar fund- ið eins mikið fyrir samdrætti í efna- hagslífinu. Lán til verslana lækka úr 315 milljörðum króna í september 2008 í 135 milljarða króna í júlí árið 2011 eða um nærri 60 prósent. Þá lækka lán til fyrirtækja í þjónustugeiranum úr 940 milljörðum króna í september 2008 í 470 milljarða króna í júlí 2011 eða um 50 prósent. Þó umræddar tölur frá Seðla- bankanum um útlán innlánsstofn- ana til viðskiptavina sinna gefi nokkuð góða mynd af þeim breyt- ingum sem hafa orðið á útlánasafni bankanna til innlendra aðila verður það þó að teljast nokkur galli að ein- ungis er um heildartölur að ræða. Því er ekki hægt að upplýsa hvaða breytingar urðu nákvæmlega á milli gömlu bankanna þriggja Glitnis, Kaupþings og Landsbanka og síðan þeirra banka sem tóku við af þeim. Þess skal þó getið að umræddar töl- ur sem DV birtir eru opinberar töl- ur sem bönkunum ber að upplýsa Seðlabankann um í hverjum mán- uði og því ættu þær að gefa nokk- uð nákvæma mynd af útlánasafni þeirra. Fréttir | 3Mánudagur 26. september 2011 Mun Meira svigrúM til að afskrifa hjá alMenningi Skuldir heimilanna við lánakerfið 2000 til 2007: 2000 2005 2007 Br/00–07 Bankakerfi 164 544 835 508% Ýmis lánaft. (t.d. ILS) 334 369 493 148% Lífeyrissjóðir 56 92 130 232% Tryggingafélög 13 9 4 35% LÍN 47 69 85 182% Alls 614 1.084 1.547 252% Skuldir heimila við lánakerfið 2000 til 2007* Útlán innlánsstofnana til innlendra viðskiptavina 2008–2011 Sept. 2008 Okt. 2008 Júlí 2011 Lækkun Innlendir aðilar, alls 5.488 2.249 2.034 63% Fjármálafyrirtæki 584 204 66 89% Eignarhaldsfélög 1.703 381 277 84% Fyrirtæki 2.118 1.225 1.130 47% Heimili 1.032 585 487 53% Þar af íbúðalán 607 311 269 56% Landbúnaður 37 24 25 32% Sjávarútvegur 410 299 291 29% Byggingastarfsemi 183 102 78 57% Verslun 316 175 134 57% Samgöngur og flutn. 52 15 41 20% Þjónusta 941 505 472 50% Ríkisjóður/stofnanir 0,4 21 223 - Sveitarfélög/ stofnanir 17 11 18 -7% *Allar tölur í milljörðum króna ** Þetta eru upplýsingar fyrir eftirfarandi fjármálafyrirtæki: Landsbankann, Arion banka, Íslandsbanka, MP banka, Byr, Sparisjóð Siglufjarðar, Sparisjóð Norðfjarðar, Sparisjóð S- Þingeyinga, Sparisjóð Ólafsfjarðar, Sparisjóð Þórshafnar og nágr., Sparisjóð Strandamanna, Sparisjóð Vestmannaeyja, Sparisjóð Bolungarvíkur, Sparisjóð Svarfdæla og Sparisjóð Höfðhverfinga. Útlán innlánsstofnana 2008–2011* 43 prósenta hlutdeild 2008 en 25 prósenta 2011: Bankarnir minni á fasteignamarkaði L íkt og flestir muna urðu Kaup- þing, Íslandsbanki (síð- ar Glitnir) og Landsbankinn mjög stórir aðilar í fjármögn- un íbúðakaupa á Íslandi frá haust- inu 2004 og allt til falls bankanna í október 2008. Í september 2008 er talið að útlán þeirra vegna fasteigna- lána hafi numið um 607 milljörðum króna. Á þeim tíma námu lán vegna fasteignakaupa um 1.400 milljörðum króna og voru stóru bankarnir þrír því með um 43 prósent af markaðin- um. Á þeim tíma var Íbúðalánasjóð- ur (ÍLS) einungis með 33 prósenta hlutdeild af íslenska fasteignalána- markaðinum. Staðan í dag er þó orðin allt önn- ur. Í júlí 2011 námu heildarlán vegna íbúðakaupa heimila um 1.135 millj- örðum króna. Þar af nema lán hjá Íbúðalánasjóði 660 milljörðum króna og því er ÍLS kominn með 60 prósenta hlutdeild á fasteignalána- markaðinum. Hlutur Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans er einungis um 24 prósent í dag. Það skýrist líka af mikilli niðurfærslu á útlánum þeirra vegna fasteignalána í bókhaldi þeirra. Þó Íbúðalánasjóð- ur hafi líka farið í afskriftir eru þær miklu lægri en þær sem gerðar voru eftir að fasteignalán voru færð frá gömlu bönkunum til þeirra nýju. Fasteignalán á Íslandi 2008 og 2011: September 2008 Hlutdeild GLB/KB/LSB 607 43% Íbúðalánasjóður 455 24% Lífeyrissjóðir 156 11% Sparisjóðir 136 10% Annað 44 3% Samtals 1.398 100% *Allar tölur í milljörðum króna Júlí 2011 Hlutdeild Íbúðalánasjóður 661 58% ARION/ISB/NBI 270 24% Lífeyrissjóðir 178 16% Sparisjóðir 24 2% Annað 2,4 0,2% Samtals 1.398 100% *Allar tölur í milljörðum króna Fasteignalán* Þátttaka lífeyrissjóða á fasteignamarkaði: Stór hluti skuldabréfa hjá lífeyrissjóðum Þ egar rætt er um afskriftir af fasteignalánum hjá íslenskum íbúðaeigendum gleymist oft að ræða um það hversu stór- ir lífeyrissjóðirnir eru á skuldabréfa- og lánamarkaði. Til útskýringar þá má segja að íslenskir lífeyrissjóðir séu stærstu kaupendur á svokölluð- um HFF-bréfum sem eru skuldabréf sem Íbúðalánasjóður gefur út til þess að fjármagna sig. Eftir bankahrunið og með tilkomu gjaldeyrishafta hafa fjárfestingarmöguleikar lífeyrissjóð- anna snarminnkað og má segja að frá haustinu 2008 hafi lífeyrissjóðirn- ir nánast keypt öll HHF-skuldabréf sem Íbúðalánasjóður gefur út. Eins og sjá má í töflu með frétt hefur hlut- deild lífeyrissjóðanna í fasteignalán- um landsmanna stóraukist frá því fyrir hrun. Í september 2008 áttu þeir um 23 prósenta hlut í fasteignalán- um landsmanna en í dag er sú hlut- deild kominn í 52 prósent. Sept. 2008 Júlí 2011 Hlutur lífeyrissjóða í HFF-bréfum heimila 171 416 Lán lífeyrissjóða til sjóðsfélaga sinna 156 178 Heildarupphæð fasteignalána á Íslandi 327 594 Prósentuhlutur lífeyrissjóða í fasteignalánum 23% 52% *Allar tölur í milljörðum króna Þátttaka lífeyrissjóða á fasteignamarkaði* Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki: Bestu upplýsingar sem komið hafa fram G uðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir að afhjúp- un DV á upplýsingum um breytingu á útlánum bankanna til innlendra aðila á milli september og október 2008 sýni fram á mjög góða blaðamennsku hjá DV. „Þetta eru bestu upplýsingar sem hafa komið fram um leiðréttingar lána á milli gömlu og nýju bankanna. Það er augljóst að stjórnvöld hafa gert það sem þau hafa getað til að halda þessum upplýsingum frá almenn- ingi,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við DV. Hann tekur fram að það svar sem barst frá Steingrími J. Sigfús- syni fjármálaráðherra nú í sept- ember við fyrirspurn sinni um af- skriftir bankanna hafi verið af mjög skornum skammti í samanburði við þær upplýsingar sem birtast í DV í dag. „Það er mjög alvarlegt ef ekki er hægt að treysta upplýsing- um frá ráðherra,“ segir Guðlaugur. Minnir hann á að árið 1996 hafi Jóhanna Sigurðardóttir, sem nú situr sem forsætisráðherra, sagt þegar hún fékk svar frá þáverandi félagsmálaráðherra að það hafi verið ámælisvert og ófyrirleitið. „Þar koma fram villandi og bein- línis rangar upplýsingar þannig að við jaðrar að um beina fölsun á staðreyndum sé að ræða,“ sagði Jóhanna af því tilefni. Segir Guð- laugur að þau vinnubrögð sem Jó- hanna hafi þar lýst séu orðin að vinnureglu hjá henni og hennar ríkisstjórn. Hann segir að samkvæmt þeim upplýsingum um lækkun á útlán- um bankanna sem DV birtir í dag hafi íbúðalán hjá viðskiptavinum gömlu bankanna verið niðurfærð um nærri 50 prósent þegar þau fóru til nýju bankanna. „Mér þykir sýnt að það verði að fá Ríkisendur- skoðun eða annan óháðan aðila til að fara yfir málið þannig að rétt- ar upplýsingar liggi fyrir. Ég mun beita mér fyrir því að það verði gert þegar þing kemur saman,“ segir Guðlaugur Þór að lokum. „Það er alvarlegt og ætti að setja í lög að afskriftir yfir ákveðnu hámarki ættu að vera gerðar opinberar. „Það er mjög al- varlegt ef ekki er hægt að treysta upplýs- ingum frá ráðherra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.