Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Síða 18
18 | Menning 26. september 2011 Mánudagur
Guðfinnur Sigurvinsson fjölmiðlamaður mælir með:
Dolly Parton
og notalegheit
É
g mæli með því að fólk sé al-
mennt í góðu skapi.
Ég mæli með bókinni ,,Eng-
an þarf að öfunda“ eftir Barböru
Demick sem fjallar um daglegt líf í
Norður-Kóreu.
Ég mæli með því að fólk sjái Dolly
Parton á sviði áður en það eða hún
deyr.
Ég mæli með reglulegum ferðum
í leikhúsið. Þó þú skiljir ekkert hvað
fram fer þá er í það minnsta smart að
segjast hafa verið þar.
Ég mæli með því að fólk leggi eitt-
hvað fyrir mánaðarlega og fari svo í
framandi ferðalag þegar nóg hefur
safnast.
Ég mæli með notalegheitum.
Ég mæli með því að mannkynið
hætti að ganga í jogging-göllum því
enginn veit ævina fyrr en öll er. Það
eru nöturleg endalok að deyja í jogg-
ing-galla.
Ég mæli með ódauðlegri tónlist
Ellýjar Vilhjálms.
Ég mæli líka með Elvis Presley.
Hann er fínn.
Ég mæli með því að boðskapur
jólanna eigi við alla daga.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
48
28
8
Bratislava – Sopron – Budapest
18.-23. október
Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir
Vínarborg og Györ
Skemmtileg 6 daga sérferð til Austurríkis og Ungverjalands. Dvalið í 2 nætur í Vínarborg, þar
sem fallegar byggingar og hallir setja sterkan svip á borgina. Vínarborg er þekkt fyrir að vera
mikil tónlistarborg og ber þann titil með reisn. Síðan er dvalið í borginni Györ í 3 nætur. Györ
er skammt frá landamærum Austuríkis og Slóvakíu. Einstaklega falleg og vinaleg borg og hefur
hlotið Evrópuverðlaunin fyrir varðveislu og viðhald sögulegra bygginga í gamla miðbænum.
Kynnisferðir um Vínarborg, Bratislava, Györ, Sopron og Budapest innifaldar í verði.
Netverð: 134.800 kr. á mann í tvíbýli 148.700 kr. á mann í einbýli
Innifalið: Flug til og frá Budapest, skattar, gisting á 3* hótelum í 6 nætur. Hálft fæði. Kynnisferðir um Vínar-
borg, Bratislava, Györ, Sopron og Budapest. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða.
Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
J
ú, ég varð heltekin af hruninu
og myndin fjallar um ís-
lenska efnahagshrunið út frá
sjónarhóli heldri konu,“ segir
kvikmyndaleikstjórinn Ís-
old Uggadóttir sem er nýflutt heim
úr mastersnámi við Columbia-há-
skóla þar sem hún lærði leikstjórn.
Stuttmynd Ísoldar Uggadóttur kvik-
myndaleikstjóra, Reykjavik Revolu-
tion, var frumsýnd á fimmtudaginn í
síðustu viku á og verður aftur sýnd,
sunnudaginn 2. október kl. 14.00 í
Bíó Paradís.
Námið litaðist af ónýtri krónu
Myndin fjallar að sögn Ísoldar um
konu sem verður fórnarlamb efna-
hagshrunsins á Íslandi árið 2008.
„Þetta er heldri kona sem er mjög
annt um sína mannvirðingu,“ segir
Ísold frá. „Hún er gerð sem loka-
verkefni í mastersnámi í leikstjórn
við Columbia-háskólann í New York.
Ég hóf nám í skólanum haustið 2008,
á sama tíma og krónan okkar var að
hrynja. Ég fylgdist mjög grannt með
hruninu og því sem var á seyði. Fyrir
vikið þá litaðist allt mitt nám af þess-
ari ónýtu krónu okkar. Mér varð ljóst
að lokaverkefnið mitt yrði að fjalla
um þetta.“
Ísold segist sem betur fer hafa
verið á námsstyrk frá Columbia-
skólanum þótt framfærslukostnað-
ur hafi verið lánaður af LÍN. „Leig-
an tvöfaldaðist og allur kostnaður.
Og svo skulda ég tvöfalt meira en
ég ætlaði mér. Það er svo fyndið,
það geta allir sótt um niðurfellingu
skulda en ekki af hluta námslána.
Þeir námsmenn sem voru úti í námi
á þessum tíma bera þungar klyfjar,
ég komst í gegnum þetta með herkj-
um,“ segir Ísold.
Komin heim í bili
Mynd Ísoldar hefur notið velgengni.
Ísold tók á móti Adrienne Shelley
verðlaununum fyrir besta kvenleiks-
tjórn í sumar og myndin hlaut góð-
ar viðtökur þegar hún var sýnd á
RIFF um helgina. Ísold segist nú flutt
heim í bili. Hún bjó úti í New York í
10 ár. „Ég er ánægð með góðar við-
tökur og ætla að fylgja myndinni út í
heim þegar RIFF er lokið. Ég er ann-
ars bara komin heim í bili, segir Ís-
old. „Það er gott að vera með athvarf
í Reykjavík en fara svo þangað sem
verkefnin taka mann. Maður vill ekki
setjast að á einum stað of lengi. Núna
finnst mér gaman að kynnast nor-
rænni kvikmyndagerð og allri um-
gjörð í kringum hana. Það eru eng-
ir ríkisstyrkir í Bandaríkjunum og
þeir öfunda okkur Norðurlandabúa
mikið af því.“
Framundan hjá Ísold er að snúa
sér að því að búa til kvikmynd í fullri
lengd. „Þetta er fjórða stuttmyndin
sem ég vinn þannig að það er kom-
in tími, finnst mér, til að vinna kvik-
mynd í fullri lengd. Nú er ég að móta
hugmyndir og í handritsvinnu. Það
má segja að ég sé útlærð,“ segir hún
og skellir upp úr.
Þrjár myndir sem Ísold
ætlar að sjá á RIFF
n We need to talk about Kevin:
Lynne Ramsay
n 31. August: Joachim Trier
n Eldfjallið: Rúnar Rúnarsson
Heltekin af hruninu
n Ísold Uggadóttir kvikmyndaleikstjóri sýnir mynd sína á RIFF n Myndin fjallar um heldri konu sem verður fórnar-
lamb efnahagshrunsins árið 2008 n Sjálf var Ísold að hefja mastersnám í New York þegar hrunið varð á Íslandi
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Heldri kona í hruninu Lilja
Þórisdóttir fer með hlutverk
heldri konu sem er annt um
orðspor sitt og er fórnarlamb
efnahagshrunsins 2008.
Útlærð í stuttmyndum
Ísold sýnir stuttmyndina
Reykjavik Revolution á
RIFF. Hún vinnur nú að
kvikmynd í fullri lengd.