Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Blaðsíða 15
Neytendur | 15Mánudagur 26. september 2011
Veldu bestu raftækin
Besta myndavélin
Canon EOS 600D
Í umsögn EISA segir meðal annars að um sé að
ræða notendavæna myndavél á hagstæðu verði.
Upplausnin sé framúrskarandi (18 MP) og eiginleikar
vélarinnar geri það að verkum að hún henti áhuga-
ljósmyndurum vel. Hún sé búin fullri HD-vídeó-
myndavél og hafi tengi fyrir hljóðnema. Vélin sé búin
hreyfanlegum LCD-skjá og hún fari vel í hendi. Með
vélinni sé auðvelt að fanga myndir í góðum gæðum.
Verð í Nýherja 154.900 kr.
Besta þrívíddar-
sjónvarpstækið
Philips
46PFL9706
Þetta sjónvarp frá Philips velur
EISA sem besta þrívíddartækið á
markaðnum í dag. Fram kemur í
umsögninni að það sé sama hvaðan
horft sé á tækið, þrívíddarmyndin sé
nánast alveg óbjöguð, ólíkt flestum
öðrum þrívíddartækjum. Í stuttu
máli séu gæði myndarinnar eins
góð og tæknin leyfi í dag, myndin
sé óhreyfð og stöðug. Í umsögninni
segir að gæði tækisins séu frábær og
verðið sé óvenju lágt í Evrópu miðað
við þau.
Verð hjá Sjónvarps -
miðstöðinni
600–700.000 kr. (væntan-
legt)
Besta LCD-sjónvarpstækið
Sony Bravia
KDL-55hx920
Í umsögn EISA segir að sjónvarpið sé virkilega vel hannað
og fallegt og sé stofustáss, jafnvel þegar slökkt er á því.
Það sé greinilega hannað með það að markmiði að það
smellpassi inn í nútíma tæknivætt heimili. Myndgæðin
séu framúrskarandi, svarti liturinn eins svartur og hann
geti verið án þess að það bitni á myndgæðunum. Super
Bit Mapping (SBM) tækni frá Sony auki myndgæðin
þegar spilaðir eru hefðbundnir 16-bita mynddiskar.
Sjónvarpið skili betri og skarpari litum, sérstaklega í
andlitum. Þá er tekið fram að loksins sé valmöguleikinn á
þrívídd innifalinn í verðinu.
Verð í Sony Center 749.990 kr.
Besti myndavélasíminn
Sony Ericsson
Xperia arc/arc S
Fram kemur í umsögn EISA að síminn sé einstak-
lega nettur og rúmist afar auðveldlega í vösum.
Hann sé mjög fagur á að líta. Síminn er með 4,2
tommu skjá með LED-baklýsingu. Myndavélin
er 8,1 MP og þykir skila frábærum myndum við
erfið birtuskilyrði – í 16:9 sniði. Síminn tekur upp
hreyfimyndir í háskerpu. Android-stýrikerfi (v2.3)
er innbyggt í símann en hann er ýmist með 1 GHz
eða 1,4 GHz örgjörva. Síminn er auðvitað útbúinn
fyrir 3G, GPS, WiFi og Bluetooth. HDMI-tengi er á
símanum svo hægt er að horfa á myndbönd og
myndir á sjónvarpsskjá í gegnum símann.
Verð hjá Símanum 99.900 kr.
Besti samskiptasíminn
HTC Cha Cha
Ef þú ert að leita að síma sem virkar vel til að nota á
Facebook, Twitter og öðrum samskiptamiðlum ættirðu
að velja HTC Cha Cha að mati EISA. Í umsögn segir að
síminn sé mjög glæsilegur og í honum sé QWERTY-
lyklaborð sem auðveldi mjög samskipti. Með símanum
sé auðvelt að hlaða inn og deila myndum, spjalla við
vini, senda tölvupóst og hlusta á tónlist. Síminn sé
ótrúlega einfaldur í notkun. Myndavélin er fimm MP.
„Með þennan síma á þér mun þér líða eins og þú sért
tengdur heiminum,“ segir í umsögninni.
Verð hjá Hátækni 64.995 kr.
Löguðu ekki
verðmerkingu
Sex fyrirtæki á Akranesi og fjögur í
Borgarnesi höfðu í byrjun september
ekki bætt úr ófullnægjandi verðmerk-
ingum þrátt fyrir tilmæli Neytenda-
stofu til fyrirtækjanna í byrjun ágúst.
Fyrirtækin sem um ræðir á Akranesi
eru Verslunin Nína, Frumherji, Apó-
tek Vesturlands og veitingastaðirnir
Galito, Gamla Kaupfélagið og Thai-A.
Í Borgarnesi höfðu Skeljungur, Land-
námssetur Íslands, Bifreiðaþjónusta
Harðar og Hyrnan ekki brugðist við
bréfi Neytendastofu. Stofnunin kann-
aði verðmerkingar í verslunum og
þjónustufyrirtækjum á Akranesi og í
Borgarnesi daganna 3.–8. ágúst. Alls
voru 85 fyrirtæki heimsótt í þessum
byggðarkjörnum. Ellefu fyrirtæki af
tuttugu og einu brugðust við erindi
Neytendastofu og lagfærðu verð-
merkingarnar. Stofnunin hótar því að
þeir sem ekki hafi bætt úr verðmerk-
ingunum gætu átt viðurlög yfir höfði
sér.
Flutningur á gasi
kostnaðarsamur
„[...]akstur með gas er svo dýr að
það er ekkert vit í að reyna að fjölga
færanlegum stöðvum til að auka
dreifingu þar sem verð á gasinu
myndi hækka um 40–70%,“ segir í
svari N1 til Neytendasamtakanna
um metangas. Á vefsíðu samtakanna
er fjallað um að N1 sé eini aðilinn
sem selji metangas og það aðeins á
einum stað í Reykjavík. Röskun varð
á afgreiðslu gass á sölustaðnum á
Bíldshöfða í síðustu viku eftir óhapp.
Í kjölfarið hafi eigendur metanbíla
kvartað til samtakanna vegna slæms
aðgengis að eldsneyti. Sögusagnir
séu uppi um að metangasið í Álfs-
nesi sé við að þrjóta. Í svörum N1
kemur fram að ráðist hafi verið í fjár-
festingar á árinu til að auka afköst
og birgðarými framleiðslunnar.
Til standi að auka það magn sem
haugarnir geti skilað af sér en ekki
hafi tekist að semja við Sorpu til að
tryggja afgreiðslu í gegnum gaslögn-
ina sem til er, til framtíðar.
Mundu að
ryðverja
Enginn bíll er byggður með það
fyrir augum að hann standist
danska (og íslenska) loftslagið og
saltburð á vegi og götur að vetr-
arlagi. Því ætti að ryðverja alla
nýja bíla áður en þeir eru teknir
í notkun. Þetta kemur fram á
heimasíðu FÍB þar sem vitnað er
í pistil á vef FDB, systurfélags FÍB
í Danmörku.
„Loftslagið hér á Íslandi er
ekki ólíkt því danska og sömu-
leiðis saltburðurinn á götur og
vegi að vetrarlagi, þannig að
ryðvörn er ekki síður þörf hér á
landi en þar. Ef þú vilt að nýi bíll-
inn þinn endist lengi þá skaltu
láta ryðverja hann strax þegar
þú kaupir hann nýjan, enda þótt
kostnaðurinn sé lítt skemmti-
leg viðbót við verðið. Þótt dýrt sé
skilar ryðvörnin sér síðar meir í
rekstrinum og ekki síst þegar bíll-
inn er seldur,“ segir á vef FÍB.