Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Qupperneq 17
Á
undanförnum vikum hef-
ur verið mikil umfjöllun um
kappakstur og annan háska-
akstur í íslenskum fjölmiðl-
um. Tilefnið er nokkur tilvik
sem átt hafa sér stað og hafa haft af-
drifaríkar afleiðingar. Þeir sem starfa
að auknu öryggi í umferðinni geta
ekki undir neinum kringumstæðum
sætt sig við að fólk láti lífið eða slasist
alvarlega. Það á alltaf við, en ekki síst
þegar ungt fólk sem undir eðlilegum
kringumstæðum ætti að eiga fram-
tíðina fyrir sér deyr.
Slíkir atburðir hafa gríðarleg áhrif
í samfélaginu. Þetta fólk á fjölskyldu,
vini og skólafélaga. Missirinn er
óbætanlegur. Og hlutverk þeirra sem
starfa að forvörnum er að finna leiðir
til að koma í veg fyrir þessi slys. En er
það hægt?
Almenningsálitið á Íslandi beinist
gegn slíku aksturslagi. Fólk fordæm-
ir þá hættu sem menn skapa með
hegðun sinni. Það sættir sig ekki við
að eiga á hættu að mæta slíkum ein-
staklingum í umferðinni. Hvar sem
fólk kemur saman eru þessi atvik til
umræðu. Og allir spyrja, hvað er til
ráða?
Hvað hefur verið gert?
Það er gott að menn geri sér grein
fyrir hvað hefur verið gert og hvað
gert er nú. Öll ökukennsla í landinu
hefur verið endurskoðuð og stórefld.
Lögð er áhersla á að styrkja viðhorf
unga fólksins og gera því grein fyrir
um hvað umferðin getur snúist. Það
er lífið sjálft. Þá hafa ökuprófin ver-
ið efld.
Lengi voru tryggingafélög með
námskeið fyrir unga ökumenn,
sem samkvæmt mælingum skil-
uðu umtalsverðum árangri. Um-
ferðarstofa kom að því starfi und-
ir lokin. Á undanförnum misserum
hefur Umferðarstofa staðið fyrir
fræðslu í framhaldsskólum, þar sem
sýnt er fræðsluefni sem ætlað er að
vekja ungmennin til umhugsunar
og í beinu framhaldi fara fram um-
ræður og skoðanaskipti. Viðurlög
við hættulegu aksturslagi hafa ver-
ið hert, einkum gagnvart þeim sem
hafa bráðabirgðaökuréttindi og búa
yfir takmarkaðri akstursreynslu. Þeir
sem brjóta af sér geta átt von á að
vera settir í akstursbann og í fram-
haldinu þurfa þeir að sækja nám-
skeið og gangast undir skriflegt og
verklegt ökupróf. Þessu fylgir mikill
kostnaður. Við skoðun á árangri af
þessu kemur í ljós að þetta hefur um-
talsverð áhrif, en menn verða að vera
vakandi á verðinum og gera allt sem
hægt er til að bjarga mannslífum.
Þáttur fjölmiðla í forvörnum
er mikilvægur
Eins og fyrr segir er það skýr afstaða
almennings að hraðakstur og kapp-
akstur sé óásættanlegur. En sú af-
staða hefur ekki komið til af sjálfu
sér. Eðlilega blöskrar fólki hversu
mörg slys eiga sér stað og velta fyrir
sér hvað sé hægt að gera til að koma í
veg fyrir þau. Hins vegar má alls ekki
gleyma hlut fjölmiðla sem áhrifa-
valda. Margir þeirra, þar á meðal
ekki síst DV, hafa lagt áherslu á öfga-
lausa og vandaða umfjöllun um þau
atvik sem átt hafa sér stað og ekki
hefur gleymst að varpa ljósi á afleið-
ingarnar. Það er enginn vafi að slík
framsetning hefur áhrif til batnaðar
og kemur í veg fyrir óæskilegt akst-
urslag.
Það sem skiptir mestu máli er
gildismat fólks. Það þarf að gera sér
grein fyrir hvað slysin geta haft í för
með sér og hverju þau breyta í dag-
legri tilveru.
Það þarf að leggja áherslu á
hversu mikils virði líf okkar og heilsa
er og það verðum við að hafa í huga
áður en það verður um seinan.
Oft heyrast raddir þess efnis að
takmarka eigi ökuréttindi ungs fólks.
Þannig megi það ekki vera á ferð á
tilteknum tímum sólarhringsins,
ekki vera með farþega í bílnum og
einnig er stundum talað um að tak-
marka eigi hestaflafjölda þeirra bíla
sem það stjórnar. Slíkt er erfitt í fram-
kvæmd, þar á meðal að hafa eftirlit
með því. Þess vegna er góð kennsla
og góður undirbúningur fyrir öku-
próf það sem mestu máli skiptir. Að
byggja upp virðingu fyrir umferð-
inni. Nauðsynlegt er að fyrirmynd-
irnar séu traustsins verðar. Þegar for-
eldrar aka ekki samkvæmt lögum er
hætt við að börnin þeirra geri slíkt
hið sama. Þannig má segja að þeir
séu einn mikilvægasti þátturinn við
mótun ungra ökumanna.
Umræða | 17Mánudagur 26. september 2011
Hvað finnst þér að lögreglumenn ættu að vera með í grunnlaun á mánuði?
„Mér finnst að þeir ættu að vera með um
400.000 á mánuði.“
Hrund Hauksdóttir
49 ára blaðamaður
„Ekki minna en 500.000, því þeir vinna
ótrúlegt starf.“
Þórunn Stefánsdóttir
62 ára blaðamaður
„300.000 í grunnlaun.“
Gunnar Reynir Antonsson
68 ára viðgerðarmaður stöðumæla
„Miklu meira en þeir eru með.“
Auður Halldórsdóttir
29 ára vinnur á upplýsingamiðstöð ferða-
manna
„Þeir ættu að vera með eitthvað á milli
400.000–500.000 á mánuði.“
Páll Frímann Árnason
20 ára nýstúdent
1 Besti vill Hönnu Menn í Besta flokknum er sagðir óska þess að
Hanna Birna Kristjánsdóttir nái
kyndlinum af Bjarna Benediktssyni.
2 Forréttindi að vinna með syn-inum Tónlistarmaðurinn Herbert
Guðmundsson samdi lag með syni
sínum, Svani.
3 320 milljarðar til að losna við kröfuhafa Virði annarra kröfuhafa í
bönkunum en ríkisins er metið á 320
milljarða króna
4 Von Trier sér ekki eftir ummæl-um um nasista Danski leikstjórinn
sér ekki eftir að hafa sagst hafa
samúð með Adolf Hitler, enda hafi
hann verið að grínast.
5 Þjófar stálu þremur tonnum af vínberjum í Þýskalandi Vínberin
eru notuð til að framleiða hágæða-
rauðvín.
6 Pítsusendill barinn í Kópavogi í nótt Þrír til fjórir menn réðust á og
börðu pítsusendil fyrir utan Pizzuna í
Núpalind aðfaranótt sunnudags.
7 Safna fyrir unga bræður sem misstu báða foreldra sína Efnt
hefur verið til söfnunar fyrir bræð-
urna Júlíus og Jóel sem misstu báða
foreldra sína með skömmu millibili.
Mest lesið á dv.is
Myndin Haust í höfuðborginni Það var heldur kuldalegt um að litast í höfuðborginni þegar meðfylgjandi mynd var tekin
fyrir skemmstu. Miðað við veðurspá næstu daga er veturinn þó ekki væntanlegur alveg strax. Mynd GunnAR GunnARSSon
Maður dagsins
Vinirnir eru
fyrirmynd
Ási Már Friðriksson
Ási Már Friðriksson er einn af þremur nýjum
þáttarstjórnendum Nýs útlits á Skjá Einum.
Ása fannst lítið mál að taka við af Karli
Berndsen enda sé um nýjan þátt að ræða
með nýjum áherslum. Ási hefur alltaf haft
áhuga á tísku en hann elskaði Eddie og
Patsy úr Absolutely Fabulous þegar hann
var krakki.
Hver er maðurinn?
„Ási Már Friðriksson, fatahönnuður, þáttar-
stjórnandi og starfsmaður hjá Eskimo.“
Hvar ert þú alinn upp?
„Ég var alinn upp á Siglufirði.“
Hvað drífur þig áfram?
„Óseðjandi löngun til þess að sanna mig
drífur mig áfram.“
Átt þú þér fyrirmynd?
„Já. Vinir mínir eru mínar fyrirmyndir.“
uppáhaldssjónvarpsþáttur?
„Uppáhaldsþættirnir mínir eru True Blood
og Glee. Ég er algjör „Gleek“.“
Hvenær vaknaði áhugi þinn á tísku?
„Ég hef nú alltaf haft áhuga á tísku, ég
meina þegar ég var krakki elskaði ég Eddie
og Patsy úr Absolutely Fabulous!“
uppáhaldshönnuður?
„Uppáhaldsfatahönnuðirnir mínir hér heima
eru Eyglo, Yr, Rey og Aftur en annars er það
Givenchy.“
Varst þú ekkert hræddur við að feta
í fótspor Kalla Berndsen?
„Alls ekki enda er þetta nýr þáttur með
nýjum áherslum.“
Hvaða fræga einstakling vildir þú
helst taka í yfirhalningu?
„Sinead O’Connor.“
Hvað er framundan?
„Nú er bara að að halda áfram að taka upp
þættina og einnig flytja inn í íbúðina sem ég
er búinn að vera að gera upp.“
Fordæmum ofsaakstur í umferð
Dómstóll götunnar
„Það þarf að gera
sér grein fyrir hvað
slysin geta haft í för með
sér og hverju þau breyta í
daglegri tilveru.
Sigurður Helgason
Sérfræðingur á Umferðarstofu
Aðsent