Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Page 21
Sport | 21Mánudagur 26. september 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
É
g er hæstánægður, bíll-
inn var frábær alla keppn-
ina og þegar við þurftum
að gefa í og slíta okkur
frá hópnum var það lítið
mál,“ sagði sáttur Sebastian Vet-
tel, ökuþór Red Bull í Formúlu 1,
en hann vann sitt níunda mót á
árinu þegar hann kom fyrstur í
mark í flóðljósunum í Singapúr
á sunnudaginn. Þetta var ní-
unda mótið sem Vettel vinnur
í ár en hann hefur nú 124 stiga
forystu á næsta mann í stiga-
mótinu, Jenson Button, sem
varð annar í Singapúr.
Það þýðir aðeins eitt: Vettel
vantar ekki nema eitt stig til þess
að verja heimsmeistaratitil sinn
frá því í fyrra. Eigi Vettel ekki
að verða meistari í ár þarf Jen-
son Button að vinna allar fimm
keppnirnar sem eftir eru og Vet-
tel ekki að fá eitt einasta stig.
„Ég elska þessa braut. Sér-
staklega eftir keppnina í fyrra
þar sem ég barðist við Alonso
allan tímann. Mér fannst ég
geta farið hraðar þá þannig að
ég nýtti þá reynslu og keyrði
vel núna. Þetta er ein erfiðasta
brautin á tímabilinu. Rakinn
fær okkur til að svitna og virki-
lega hafa fyrir hlutunum. Það
er gaman að komast í mark vit-
andi að maður hafi unnið fyr-
ir því,“ segir Vettel sem veit vel
af stöðunni sem hann er kom-
inn í. „Ég er afskaplega ánægð-
ur núna og það lítur út fyrir að
við getum fagnað mikið í næstu
keppni.“
Jenson Button varð annar, á
undan Mark Webber á Red Bull
sem varð þriðji. Hann var ekki
ánægður með hvernig hægfara
bílarnir viku ekki frá þegar búið
var að hringa þá. „Það er erfitt
að taka fram úr hérna og sér-
staklega þegar hægari bílarnir
sýna ekki nægilega virðingu og
hleypa okkur ekki fram úr. Ég
átti möguleika á lokahringn-
um en þá voru hægari gaur-
arnir þvílíkt að reyna að drífa
sig í mark þrátt fyrir að ég væri
búinn að hringa þá. Fyrir utan
þau vonbrigði var þetta ágætis
keppni hjá okkur,“ segir Jenson
Button.
Vettel vantar aðeins eitt stig
n Vann níunda mótið í Singapúr
Nánast komið Vettel þarf bara eitt stig í viðbót til að verða meistari.
Færri á
völlinn
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, viðurkennir að
slakt gengi hingað til á tíma-
bilinu sé stærsta ástæða þess
að aldrei hafi færri mætt á
Emirates-völlinn en núna um
helgina þegar Arsenal vann
Bolton, 3–0. Hann bendir þó á
að kreppan sé að bíta í fótbolt-
ann eins og annað. „Auðvitað
höfum við átt nokkra slæma
leiki og vissulega er þetta hluti
af því. En önnur ástæða er að
það eru miklir fjárhagserfið-
leikar í gangi úti um allt í Evr-
ópu og heiminum. Það eru
alltaf færri að mæta á völlinn
og því hef ég tekið eftir,“ segir
Wenger. „Horfið bara á alla
vellina á Englandi. Það verður
alltaf erfiðara og erfiðara að
selja sætin. Við erum kannski
sérstakt tilfelli þar sem úr-
slit okkar hafa verið svo slæm
undanfarið,“ segir Wenger.
Rooney
lengur frá
Wayne Rooney, framherji Eng-
landsmeistara Manchester
United, verður frá „lengur en
í viku“ vegna tognunar aftan í
læri en þetta upplýsti Sir Alex
Ferguson, stjóri United, eftir
1–1 jafntefli liðsins gegn Stoke
á laugardaginn. Rooney missir
af leik United gegn Basel í
Meistaradeildinni á þriðjudag-
inn sem og leiknum gegn ný-
liðum Norwich í úrvalsdeild-
inni næsta laugardag. „Þetta
eru ekki alvarleg meiðsli en ég
held að hann verði ekki til taks
í næstu viku. Ég held að hann
verði frá í meira en viku,“ sagði
Ferguson eftir leikinn gegn
Stoke. Rooney hefur farið frá-
bærlega af stað á tímabilinu og
er nú þegar búinn að skora níu
mörk í öllum keppnum, þar af
tvær þrennur. Óvíst er hvort
meiðsli Javier Hernandez
haldi honum frá leiknum gegn
Basel en hann fór af velli gegn
Stoke eftir þrjár mínútur.
Kristinsson, þjálfari KR, í viðtali
við Stöð 2 Sport eftir að Íslands-
meistaratitillinn var kominn í
hús. Rúnar vann frábært afrek
með KR-liðið en þetta var hann
fyrsta heila tímabil. Hann tók
við liðinu í fyrra af Loga Ólafs-
syni og reif þá liðið úr kjallar-
anum og upp í hæstu hæðir.
„Ég tók við góðu búi frá Loga en
hann var búinn að vinna gott
starf fyrir KR,“ sagði Rúnar um
forvera sinn. Hann var þó á því
að rétt lið væri að hampa bik-
arnum. „Við spiluðum ekki vel í
þessum leik en ég held að besta
liðið hafi unnið mótið,“ sagði
hann. Aðspurður hvort hann
yrði áfram með KR játaði hann
því. „Að sjálfsögðu.“
Markvörðurinn Hannes Þór
Halldórsson gekk í raðir KR í
sumar frá Fram en sumarið hef-
ur verið draumi líkast fyrir hann.
Ekki bara vann hann tvöfalt með
KR heldur lék hann sinn fyrsta
landsleik fyrir Ísland. „Þetta er
það sætasta sem ég hef upp-
lifað,“ sagði hann í samtali við
Stöð 2 Sport. „Þetta er algjörlega
ólýsanlegt. Maður er enn bara
rétt að jafna sig á þessu en geðs-
hræringin er mikil. Þetta er eitt-
hvað sem mann hefur dreymt
um í mörg ár,“ sagði Hann-
es en um dýfu KR undir lokin
sagði hann: „Við vorum búnir
að byggja upp ágætis forskot en
það er ekki hægt að spila full-
komlega í gegnum heilt mót. Við
fórum bara nokkuð vel í gegn-
um lélega prógrammið og erum
verðskuldað sigurvegarar,“ sagði
Hannes Þór Halldórsson.
Barist á tveimur víg-
stöðvum
Tvennt er nú þegar ljóst á Ís-
landsmótinu. KR er besta lið-
ið og Víkingur það slakasta. KR
er meistari og Víkingur fallinn.
Enn er þó barist á tveimur víg-
stöðvum. Með 5-0 sigri Stjörn-
unnar á Val er Stjarnan komin í
baráttu um síðasta Evrópusæt-
ið. Stjarnan er þremur stigum
á eftir ÍBV og hefur hagstæðara
markahlutfall þannig að með
sigri í lokaumferð og hjálp frá
Grindavík sem mætir ÍBV í loka-
umferðinni geta Stjörnumenn
komist í Evrópukeppni. Vals-
menn eru aftur á móti úr leik í
baráttunni um Evrópusæti.
Botnbaráttan er einnig æsi-
spennandi en Blikar losuðu sig
loksins við falldrauginn með
sigri á Þór, 2-1, fyrir norðan.
Fram komst upp í níunda sæti
með sigri á Grindavík og Víking-
ur hélt Keflavík í fallbaráttunni
með sínum öðrum sigri í röð.
Grindavík er í verstu stöðunni
og mun falla tapi liðið gegn ÍBV
í lokaumferðinni en Grindavík,
Þór, Keflavík og Fram geta enn
öll fallið.
Bikarinn á loft KR er Íslandsmeistari 2011. MyNd: EVa Björk ÆgiSdóttir
dyggir áhorfendur Miðjan fékk að handleika bikarinn
MyNd: EVa Björk ÆgiSdóttir
Frábær Kjartan Henry er búinn að
vera magnaður fyrir KR í sumar.
MyNd: toMaSz kolodziEjSkiBestir á Íslandi KR-ingar eru bestir í ár .
MyNd: EVa Björk ÆgiSdóttir