Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 16. janúar 2012 Mánudagur
Hirða verðmætin –
skilja skuldir eftir
n Svava Johansen rekur tískuverslanir utan hins ofurskuldsetta NTC n Byggingarisar halda eignum þrátt fyrir milljarða gjaldþrot
S
tjórnendur skuldugra og
illa stæðra fyrirtækja eiga
mjög auðvelt með að stofna
ný einkahlutafélög og færa
reksturinn yfir á þau en skilja
skuldirnar eftir í gömlu félögunum.
Fjölmörg dæmi eru um að lands-
þekktir stjórnendur stórra fyrirtækja
hafi farið þessa leið. Svava Johansen,
einatt kennd við verslunina 17, rek-
ur til að mynda tískuvöruverslanir á
þremur kennitölum á sama tíma og
aðalfélag hennar, NTC, er gífurlega
skuldsett.
Lög gegn kennitöluflakki
Árið 2010 lagði Lilja Mósesdóttir al-
þingismaður fram frumvarp fyrir Al-
þingi sem hafði það að markmiði að
sporna við kennitöluflakki. Margrét
Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfing-
arinnar, var meðflutningsmaður að
frumvarpinu. „Hugmyndin var að ef
þú kæmir og ætlaðir að stofna fyrir-
tæki, þá væri tékkað á þér. Síðan kom
í ljós að reglurnar eru í raun og veru
þannig en það eru engir sem tala
saman í kerfinu,“ segir Margrét við
DV.
Málið fór því inn á borð efnahags-
og viðskiptaráðuneytisins. Margrét
lagði fram skriflega fyrirspurn á Al-
þingi fyrir um þremur mánuðum til
þess að spyrjast fyrir um hvað ríkið
væri að gera til þess að sporna við
kennitöluflakki. Hún hefur enn ekki
fengið svar.
Margrét segist þekkja dæmi þess
að bankar hafi hreinlega ráðlagt
fólki að skipta um kennitölu og skilja
opinberar skuldir og skuldir við er-
lenda kröfuhafa eftir í gamla skuld-
uga fyrirtækinu, færa eignir yfir í
nýtt félag svo það geti síðan staðið í
skilum við bankann. Þeir sem sem
skipta um kennitölur hafa viljandi
blóðmjólkað félög sem stefna í gjald-
þrot og síðan haldið þeim í þrotaferli
mjög lengi svo að skiptastjóri komist
ekki í þrotabúið. Þá hafa stjórnend-
urnir tækifæri til þess að hreinsa all-
ar eignir út úr ónýta félaginu og færa
yfir í nýtt félag.
Vandinn í kerfinu sé að ólík-
ar stofnanir á borð við Þjóðskrá og
skattstjóra tali ekki nægilega saman
og hafi ekki aðgang að gögnum hvors
annars, að mati Margrétar.
Bitnar á mörgum
Almennt er það þannig að afleið-
ingar stórra gjaldþrota og kennitö-
luflakks eru þær að kröfuhafar, þeir
sem átt hafa í viðskiptum við félögin
sem fara í þrot, tapa þeim pening-
um sem þeir áttu inni. Þannig getur
gjaldþrot eins umsvifamikils fyrir-
tækis haft þær afleiðingar að afkoma
fjölmargra annarra og smærri fyrir-
tækja veikist verulega. Eðli málsins
samkvæmt getur það komið niður á
mýmörgum fjölskyldum og einstak-
lingum; til dæmis í formi atvinnu-
missis eða skertra launa.
Hér síðar í greininni eru rakinn
nokkur dæmi um eigendur fyrir-
tækja sem skipt hafa um kennitölur
á fyrirtækjum sínum þegar harðnað
hefur á dalnum.
Græðir á BS-Trading
Í tilfelli tískuvöruveldisins NTC hafa
nákvæmlega sömu eigendur og
stjórnendur stofnað annað einka-
hlutafélag, BS-Trading ehf., sem
rekur verslunina Outlet 10 í Faxa-
feni. Svava Johansen er skráður 100
prósenta eigandi í NTC en maður
hennar Björn K. Sveinbjörnsson er
titlaður framkvæmdastjóri á vef fyrir-
tækisins. Undir merkjum NTC reka
þau margar af vinsælustu tískuvöru-
verslunum landsins og hafa um 12
prósenta markaðshlutdeild á tísku-
vörumarkaðnum. Fyrirtækið hefur
hins vegar verið ofurskuldsett eftir
að lán í erlendri mynt, rétt fyrir hrun,
stökkbreyttust og fóru að sliga fyrir-
tækið.
Þrátt fyrir að hagnaður hafi verið á
rekstrinum hefur Svava tæpast verið
í stöðu til að greiða sér arð út úr fyr-
irtækinu vegna himinhárra skulda.
Tvö ár í röð hafa endurskoðendur
fyrirtækisins gert fyrirvara um rekstr-
arhæfi félagsins, með öðrum orðum
– reksturinn hefur hangið á bláþræði.
NTC hefur reyndar verið í skuldavið-
ræðum við Landsbankann sem átti
að ljúka fyrir áramót. Miðað við að
höfuðstóll erlendra lána yrði lækk-
aður um 40 prósent hefðu skuldirnar
lækkað um 544 milljónir króna. Out-
let 10 er lágvöruverðstískuverslun
sem selur einkum föt sem áður voru
til sölu í verslunum NTC. Ekki er vit-
að um fyrirkomulagið á viðskiptum
milli þessara tveggja tengdu fyrir-
tækja, en NTC selur BS-Trading föt-
in á lágu verði. Að minnsta kosti er
rekstur BS-Trading mjög góður og
um 30 milljóna króna hagnaður varð
af rekstrinum árið 2010. Skuldir eru,
þvert á það sem gerist innan NTC,
mjög lágar. Fullyrða má að ef rekstur
Outlet 10 væri á sömu kennitölu og
rekstur verslana NTC, þá væri hagn-
aður NTC meiri og fyrirtækið þar af
leiðandi í betri stöðu til að standa
undir skuldbindingum sínum. Með
þessu rekstarmódeli tekst Svövu og
Birni hins vegar að hagnast mjög vel
á systurfyrirtæki NTC sem er raunar
að mestu háð viðskiptum við versl-
unarveldið. Þar sem rekstur BS-
Trading er góður og skuldir viðráð-
anlegar, er ekkert því til fyrirstöðu
að Svava og Björn geti tekið milljóna
króna arðgreiðslur úr félaginu.
Rekur verslanir á annarri
kennitölu
Svava Johansen á einnig 100 prósenta
hlut í félaginu Sautján ehf., sem var
stofnað árið 2009. Í október sama ár,
þegar Svava hafði nýlega stofnað fé-
lagið, var hún spurð út í félagið í sam-
tali við DV. „Ég hélt að ég ætti þetta
félag fyrir, en áttaði mig á að svo var
ekki. Ég kippti því strax til mín. Þetta
er félag sem ég tel að sé verðmætt
út af nafninu og ég vil ekki að neinn
annar eignist það.“ Aðspurð sagðist
Svava ekki búast við mikilli starfsemi
í kringum Sautján ehf. á næstunni.
„Kannski einhvern tímann seinna,“
sagði hún en tók fram að allar versl-
anir og starfssemi yrði áfram rekin
undir nafni NTC.
Ekki liðu nema tæpir þrír mán-
uðir frá því Svava svaraði á þessa
leið, þar til Sautján ehf. sótti um hjá
Einkaleyfa stofu fyrir skráningu vöru-
merkisins Karakter. Í greinagerð
Einkaleyfa stofu segir: „Umsækjandi
bendir á að merkið hafi verið skráð í
tengslum við opnun nýrrar verslunar í
eigu Sautján ehf.“ Verslunin sem vísað
er til heitir Karakter og er í Smáralind.
Athygli vekur hins vegar að á vefsíðu
NTC er því haldið fram að verslunin
sé í raun og veru í eigu NTC – hvergi er
minnst á Sautján ehf. Fleira athyglis-
vert er að finna í úrskurði Einkaleyfa-
stofu, því þar er einnig upplýst að
Sautján ehf. eigi einnig merkið Kúltúr,
en samnefnd herrafataverslun er rek-
in í Kringlunni. Hið sama gildir um
þá verslun á heimasíðu NTC þar sem
Kúltur er sett undir hatt þess. Svava
hefur ekki svarað spurningum blaðs-
ins um Sautján ehf.
Kennitöluflakk
World Class-hjóna
Hjónin Björn Leifsson og Hafdís
Jónsdóttir eiginkona hans byggðu
upp líkamsræktarveldið World Class.
Eftir að hafa lagt undir sig stóran
hluta markaðarins hér á landi, höfðu
þau uppi enn stærri áform og réðust
í útrás þar sem þau ætluðu að opna
stöðvar í Danmörku. Í samstarfi við
Straum-Burðarás opnuðu þau keðju
líkamsræktarstöðva sem hét Equi-
nox og þegar mest lét voru starfrækt-
ar þrettán stöðvar undir því heiti í
Danmörku. Verkefnið gekk þó ekki
sem skyldi og lauk með þeim hætti
að Straumur viðskiptabanki tók til
sín Equinox og náði að selja keðjuna
til erlendra aðila en skuldirnar stóðu
þó eftir. Þegar skuldirnar voru farnar
að sliga Þrek ehf., rekstrarfélag World
Class, þá var því félagi leyft að fara í
þrot og hjónin keyptu rekstur World
Class út úr þrotabúinu og greiddu
fyrir aðeins 25 milljónir króna. Björn
vildi sjálfur meina að hann hefði
keypt reksturinn á 274 milljónir þar
sem hann mat það sem kvöð að taka
við viðskiptavinum stöðvarinnar.
Hins vegar námu skuldir Þreks 2,2
milljörðum þegar það varð gjald-
þrota. Skiptastjóri þrotabúsins sagð-
ist viss um að kaupsamningurinn
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Spurningar DV til Svövu
DV spurði Svövu Johansen út í rekstur NTC og Sautján ehf.
n 1. Hvaða verslanir eru reknar af félaginu Sautján ehf. sem er í þinni eigu?
n 2. Hvers vegna eru verslanirnar reknar á þessari kennitölu?
n 3. Hvenær hóf Sautján ehf. verslunarrekstur?
n 4. Með hvaða hætti var þetta gert? Keypti Sautján ehf. verslanirnar af NTC eða er
um að ræða nýjar verslanir sem Sautján ehf. stofnaði?
NTC BS-TraDiNg
Fyrir dómstólum Þegar rekstrarfélag
World Class var að þrotum komið var nýtt
félag stofnað. Reksturinn var svo seldur
langt undir matsverði.
Sævar færði húsið á konuna Skart-
gripaverslunin Leonard er rekin á sinni þriðju
kennitölu í eigu sömu aðila.
16 milljarðar afskrifaðir Gylfi Héðins-
son og Gunnar Þorláksson, kenndir við Bygg,
áttu saman eignarhaldsfélagið CDG.
„Þannig getur
gjaldþrot eins um-
svifamikils fyrirtækis haft
þær afleiðingar að af-
koma fjölmargra annarra
og smærri fyrirtækja veik-
ist verulega.
Svava í 17 Rekstur NTS
hefur hangið á bláþræði
undanfarin ár. Systurfyrirtæki
félagsins hagnast þó vel.
n NTC í eigu Svövu Johansen er hlaðið skuldum. Hún stofnaði svo með eiginmanni
sínum annað félag, BS-Trading, sem rekur Outlet 10. NTC selur nýja félaginu ódýran
varning sem er svo seldur í Outlet 10. BS-Trading skilar góðum hagnaði og skuldar lítið.
Svava er því í góðri stöðu til að greiða sér arð út úr því félagi.