Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Page 4
4 Fréttir 16. janúar 2012 Mánudagur Höfnunin ekkert einsdæmi n ÁTVR hafnaði reynslusölu á bjór vegna áletrunar á umbúðum Þ að koma upp tilvik þar sem áfengistegundum er hafnað vegna þess að áletranir á um- búðum fara gegn ákvæðum reglugerðar um vöruval og sölu áfeng- is,“ segir Örn Stefánsson, innkaupa- stjóri Vínbúðanna. Eins og greint var frá í helgarblaði DV hafnaði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) um- sókn Vífilfells ehf. um reynslusölu á bjórnum Black Death. Valgeir Tóm- as Sigurðsson, framkvæmdastjóri Black Death, er afar ósáttur við þessa ákvörðun ÁTVR, en það er Vífilfell sem sér um að brugga bjórinn. Í bréfi sem ÁTVR sendi Vífilfelli kom fram að ástæða höfnunarinn- ar væri sú að áletrunina „Drink in Peace“ [drekkið í friði, innskot blaða- manns] væri að finna á umbúðunum. Vísað er í reglugerðir um umbúðir og áletranir á áfengi en þær kveða á um að umbúðir megi einungis inni- halda skilaboð er tengjast vörunni, gerð hennar eða eiginleikum. „Á að banna þetta fyrir að segja að þetta sé drykkjarhæft,“ sagði Valgeir í helgar- blaði DV en hann hefur unnið að því að markaðssetja Black Death um all- an heim frá árinu 1978. „Eini staður- inn í heiminum þar sem maður er löðrungaður er af íslenska ríkinu,“ sagði Valgeir harðorður. Örn segir hins vegar að ÁTVR sé einungis að fara eftir settum reglum. „Það koma auðvitað upp álitamál, en eins og ákvæðið segir mega þessar áletranir ekki innihalda annað en það sem tengist vörunni. Í þessu tilviki var gerð athugasemd við þetta og óskað eftir að þessu yrði breytt,“ segir Örn. Ákvörðun ÁTVR er kæranleg til fjármálaráðuneytisins og sagðist Val- geir ætla að fara alla leið með málið. einar@dv.is Útsala 30 - 70% Falleg olíumálverk í úrvali á einstökum verðum Allt orginal málverk Hafnað Örn segir að vissulega komi upp álita- mál. Reglugerðir séu hins vegar skýrar hvað varðar skilaboð á umbúðum áfengistegunda. R annsókn lögreglunnar á meintri líkamsárás íþrótta- fréttamannsins Hjartar Júl- íusar Hjartarsonar á sam- starfskonu sína, Eddu Sif Pálsdóttur, íþróttafréttamanns á RÚV, er enn í gangi, en Edda Sif kærði Hjört fyrir líkamsárás í síð- ustu viku í kjölfar atviks sem átti sér stað á Grand Hótel. Unnið að sáttum Samkvæmt heimildum DV eru þreifingar á milli lögmanna Eddu Sifjar og Hjartar um að ljúka mál- inu með sátt. Á samkomulagið að felast í því að Edda Sif dragi kæruna til baka, gegn því að Hjörtur viður- kenni að hafa ráðist á hana og beitt hana ofbeldi. Ekki er vitað hvort eða hvenær af samkomulag verður á milli þeirra, en eins og DV hefur greint frá höfðu þau átt í óformlegu sambandi. Eins og áður hefur verið greint frá hefur Hirti verið vikið úr starfi sem íþróttafréttamaður á RÚV, en þar hafði hann starfað frá 2007. Til stóð að Hjörtur sæi um EM-stofuna, nú þegar Evrópumótið í handknatt- leik hefst, en Baldvin Þór Bergsson virðist hafa hlaupið í skarðið og sér um þættina í stað Hjartar. Heyrðu skarkala Eins fram kom í síðasta helgarblaði DV á líkamsárásin á að hafa átt sér stað á Grand Hótel í síðustu viku eftir að fram fór val á íþróttamanni ársins, en Hjörtur hafði stýrt beinni útsendingu frá samkomunni fyrr um kvöldið. Eftir að útsendingu lauk hélt gleðskapurinn áfram en þar voru samankomnir, auk íþróttafólks, flestir af íþróttafrétta- mönnum landsins. Þegar líða tók á kvöldið heyrðu nokkrir af þeim gestum sem sátu við langborð, þar sem margir af íþróttafréttamönn- unum voru samankomnir, skark- ala og urðu þess varir að Hjörtur hvarf á brott og sömuleiðis Edda Sif sem fór samkvæmt heimildum DV upp á bráðamóttöku í fylgd ann- ars starfsmanns RÚV. Samkvæmt heimildum DV var það starfsmað- urinn sem fylgdi henni á sjúkrahús- ið sem hvatti Eddu Sif til að kæra Hjört. Óljóst um réttmæti uppsagnar Þeir starfsmenn RÚV sem DV hef- ur talað við segjast allir vera slegn- ir vegna málsins og að margir taki það nærri sér, þar sem Hjörtur var vel liðinn innan stofnunarinnar og á þar marga góða vini og kunningja. Margir hafa gagnrýnt hvernig stað- ið var að uppsögninni og segja að eðlilegra hefði verið að setja Hjört í tímabundið leyfi á meðan málið væri rannsakað af lögreglu. Ljóst er að uppsögnin er á gráu svæði en málið á sér engar hlið- stæður þar sem RÚV er nú sjálfstætt hlutafélag í 100 prósenta eigu ríkis- ins og óljóst hvort að lög um rétt- indi og skyldur ríkisstarfsmanna eigi við um starfsmenn RÚV. Sam- kvæmt þeim lögum hefði Hjörtur Júlíus fyrst átt að fá skriflega áminn- ingu og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en honum var sagt upp störf- um, þar sem brottrekstur hans teng- ist ekki niðurskurði. Hins vegar hef- ur aldrei reynt á það áður hvaða réttindi starfsmenn RÚV hafa í mál- um sem þessum. RÚV telur sig þó vera í fullum rétti og svaraði fyrir- spurn DV á þá leið að fyrirtækinu sé ekki skylt að fara eftir lögum um réttindi og skyldur starfsmanna rík- isins: „Framkvæmd uppsagna er í samræmi við gildandi kjarasamn- inga viðkomandi stéttarfélags og al- mennar reglur vinnuréttar um slit ráðningarsamninga.“ Hvorki náðist í Eddu Sif né Hjört Júlíus við vinnslu fréttarinnar. n Þreifingar á milli lögmanna Eddu Sifjar og Hjartar um sátt n Lögmaður Hjartar vill að Edda dragi kæruna til baka n Edda vill að Hjörtur viðurkenni árásina„Á samkomulagið að felast í því að Edda Sif dragi kæruna til baka, gegn því að Hjörtur viðurkenni að hafa ráð- ist á hana og beitt hana ofbeldi. Unnið er að sáttUm á milli eddU og Hjartar Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Iðnaðarsalt í mat: Listinn birtur Mörg stærstu matvælafyrirtæki landsins eru á lista yfir þau fyrir- tæki sem notað hafa iðnaðarsalt í framleiðslu sína. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftir- liti Reykjavíkur en þar segir að þann 14. nóvember 2011 hafi komið í ljós við eftirlit Matvælastofnunarinnar að Ölgerðin dreifði iðnaðarsalti til matvælaframleiðslu. Í tilkynning- unni segir að framleiðsla, dreifing og geymsla saltsins valdi því að það eigi ekki að nota til manneldis. Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur fór þá fram á að öllum kaupendum yrðu sendar upplýsingar þar sem fram kæmi að um væri að ræða að iðnað- arsalt en ekki salt sem ætlað væri í matvælaframleiðslu. Eins hafi Heil- brigðiseftirlitið óskað eftir upplýs- ingum um geymslu og framleiðslu saltsins. Með tilkynningunni vill Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur leiðrétta þann misskilning að það hafi neitað að gefa upp lista yfir til hverra Öl- gerðin hafi dreift umræddu salti. Eins segir að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vilji ítreka að það sé ekki sammála stjórnsýsluákvörðun- um Matvælastofnunar eftir að það uppgötvast að Ölgerðin dreifi iðn- aðarsalti í stað salts til manneldis. „Í fyrsta lagi hefði Matvælastofnun átt að vísa málinu til Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur þar sem Ölgerðin er með starfsleyfi hjá því og í öðru lagi er það mat Heilbrigðiseftirlitsins, að Matvælastofnun hefði ekki átt að heimila Ölgerðinni að halda áfram að selja birgðir sínar af iðnaðar- salti til notkunar við matvælafram- leiðslu.“ Lista yfir fyrirtækin má sjá á DV.is. Brenndist á Austri Stúlka á tvítugsaldri tvítugt brenndist á hendi og líkama þegar eldur blossaði upp í et- anólarni á veitingastaðnum Austri í Reykjavík um níuleytið á laugardag. Stúlkan er starfs- maður á veitingastaðnum og var að kveikja upp í arninum þegar slysið varð. Hún var flutt á slysadeild í Fossvogi til að- hlynningar en ekki er vitað hversu alvarleg brunasár hún hlaut að því sem segir á visir.is. Samkomulag í bígerð? Ekki er útilokað að kæran verði felld niður en það er þó alls ekki víst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.