Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Qupperneq 6
6 Fréttir 16. janúar 2012 Mánudagur „Ekki á okkar vegum“ n Facebook-notendur blekktir með gylliboði Þ essi leikur er ekki á okk- ar vegum“ segir Björgvin Björgvinsson, vefstjóri hjá Epli.is, umboðsaðila Apple á Íslandi. Meira en þús- und Íslendingar hafa „líkað“ við Facebook-síðu í von um að vinna spjaldtölvu. Á síðunni er því lofað að þegar ákveðinn fjöldi hafi „lík- að“ við síðuna muni einn hepp- inn fá iPad 2-spjaldtölvu að gjöf frá Epli.is. Leikurinn er hins vegar ekki á þeirra vegum eins og Björg- vin segir og segir hann að málið sé litið alvarlegum augum. „Við sáum þetta seint í gærkvöld [þriðjudags- kvöld] og brugðumst hratt við að tilkynna síðuna“ segir Björgvin en málið er nú á borði Facebook í Bandaríkjunum eftir því sem DV kemst næst. „Við skoðuðum Facebook-skil- málana og mál sem þessi. Samkvæmt Facebook er eina leiðin til að stöðva þetta að smella á „Report Page“ eða „Tilkynna síðu“ sem er vinstra megin á viðkomandi síðu. Við ætlum að at- huga með að ná beinu sambandi við þá áður en þessi síða verður stærri“ segir Björgvin um hverjar aðgerð- ir Epli.is hafa verið í kjölfar þess að þeir uppgötvuðu síðuna. Björgvin vill ekki segja til um hvort atvikið eigi eftir að hafa einhver áhrif á markaðs- setningu fyrirtækisins í framtíðinni á Facebook en þetta er í fyrsta skipti sem fyrirtækið lendir í vandræðum á borð við þessi. Þeir muni reyna að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Freistandi Facebook í Banda- ríkjunum skoðar nú málið. Verður ekki þing- flokksformaður U ppreisn Árna Páls Árnason- ar, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, á flokks- tjórnarfundi Samfylkingar- innar um áramótin hefur hleypt illu blóði í þingmenn flokks- ins. Hann er ekki sagður njóta stuðn- ings félaga sinna í embætti þing- flokksformanns. Sjálfur hefur Árni Páll ekki lýst yfir áhuga á embættinu og því óvíst hvort hann kæri sig um það. Þótt starf þingflokksformanns sé nokkuð virðingarhlutverk er það fyrst og fremst þjónustuhlutverk sem tekur gríðarlegan tíma. Ef til vill er það svo að Árni Páll meti stöðu sýna sterkari án þeirra skuldbindinga sem starfinu fylgja. Embættið þykir al- mennt séð ekkert sérstaklega eftir- sóknarvert. Samkvæmt heimildum DV hafa einhverjir þingmenn flokksins þeg- ar lýst sig algjörlega andsnúna því að Árni Páll verði verðlaunaður með nokkru embætti eftir uppþot sitt. Einn viðmælandi DV taldi ljóst að uppþot yrði í þingflokknum ef Jó- hanna legði til að Árni yrði þing- flokksformaður. Hún er þó ekki sögð sérstaklega áhugasöm um slíkt. Jóhanna undraðist heift Árna Jóhönnu Sigurðardóttur, formanni Samfylkingarinnar, er sagt brugð- ið vegna þeirrar heiftar sem birtist á flokksstjórnarfundi Samfylking- arinnar. Hún er sögð hafa búið sig undir einhverja óánægju með að Árna Páli þyrfti að fórna svo losna mætti við Jón Bjarnason úr sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Óánægjan með breytta ráðuneyt- isskipan er sögð hafa komið henni í opna skjöldu. Fleiri en einn þing- maður Samfylkingarinnar hafa staðfest við DV að þingmönnum flokksins hafi verið ljóst að það væri nánast óhugsandi að atvinnuráðu- neytið færi til Samfylkingarinnar. Einn viðmælandi blaðsins sagði það augljóst að VG sem er flokk- ur andvígur Evrópusambandsaðild hefði aldrei gefið Samfylkingunni eftir ráðuneyti landbúnaðar og sjáv- arútvegs. Það hefði þýtt að landbún- aðar- og sjávarútvegsráðherrastóll- inn hefði fallið í skaut aðildarsinna, eins og það var orðað. Það hefði VG hvorki viljað né getað vegna afstöðu sinnar til Evrópusambandsins. Málið ku reglulega hafa komið til tals í þingfokki Samfylkingarinnar nokkrum mánuðum fyrir breyting- arnar. Niðurstaðan var alltaf sú að afar ólíklegt væri að Samfylkingin fengi nýtt atvinnuráðuneyti. Niður- staða viðmælenda er sú að málið hafi verið spunnið upp á fundinum svo litið gæti út fyrir að óánægjan tengd- ist ekki aðeins persónulegum metn- aði einstaka þingmanna. Formannsslagurinn hafinn Árni Páll er þó sagður á nokk- urri siglingu í sínu kjördæmi og í Norðausturkjördæmi og hefur ver- ið duglegur að funda með flokks- félögum þessa dagana. Árni Páll var þannig einn frummælenda á nýársspjalli Samfylkingarinnar á Akureyri. Þar sker Árni sig nokkuð úr en á fundinum voru þau Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rún- arsson og Jónína Rós Guðmunds- dóttir, þingmenn kjördæmisins auk Árna Páls. Aðspurð sagði Hel- ena Karlsdóttir, formaður Sam- fylkingarinnar á Akureyri, fund- inn ekki hafa tengst óánægju með brotthvarf Árna Páls úr ríkisstjórn. Hún sagði nokkuð síðan Árni Páll lofaði að mæta á fund hjá félaginu en hann hafi hingað til ekki komist vegna anna. Árni Páll var einnig gestur á laugardagskaffi í Reykjanesbæ þann 14. janúar síðastliðinn. Á vef Samfylkingarinnar má sjá að fleiri fundir eru í undirbúningi. Viðmælendur DV segja ljóst að formannsslagurinn sé hafinn hjá Árna Páli. Flest bendi þó til þess að landsfundur verði ekki fyrr en snemma á þessu ári. Árni sé að öll- um líkindum að byggja upp tengsl- anet og koma sinni sögu af flokks- tjórnarfundinum á framfæri innan flokksins. Ekki náðist í Árna Pál við vinnslu fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is n Illa skipulögð uppreisn Árna hefur sprungið framan í hann n Nýtur ekki stuðnings þingmanna Samfylkingarinnar n Jóhanna undraðist heiftina á flokksstjórnarfundi Næsti formaður? Svo gæti farið að Árni Páll taki við keflinu af Jóhönnu Sigurðardóttur. „Viðmælendur DV segja ljóst að for- mannsslagurinn sé haf- inn hjá Árna Páli. Pólitíkin í Kópavogi: Bæjarstjór- inn rekinn Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, hefur verið tilkynnt að starfskrafta hennar sé ekki lengur óskað. Formaður bæjarráðs Kópa- vogs, Guðríður Arnardóttir, sem er oddviti Samfylkingarinnar, til- kynnti henni um þetta. Meirihlut- inn fundaði á sunnudagskvöld- ið um framtíð bæjarstjórans en Guðrún hafði ekki fengið form- legt uppsagnarbréf þegar þetta er skrifað. Allt bendir þó til þess að hún missi starfið. „Það hefur lengi verið ljóst að Guðríði langar í stólinn. Hún hef- ur horft á þetta embætti löngunar- augum,“ segir Ármann Kr. Ólafs- son, leiðtogi Sjálfstæðismanna í Kópavogi, sem heyrði fyrst af málinu síðdegis á sunnudag. Málið hefur þó ekki komið form- lega inn á borð bæjarstjórnar- innar. Ármann segist hafa skynjað það innan bæjarstjórnarinnar að bæjarstjórinn hafi ekki notið fulls stuðnings Guðríðar. „Þetta er ótrúlegt í því ljósi að helsta kosn- ingaloforð K-listans var að ráða skyldi faglega í starfið en ekki pólitískt.“ Áður en Guðrún tók við bæjar- stjórastólnum var hún embættis- maður hjá bænum. Hún var ráðin í starfið eftir síðustu sveitarstjórn- arkosningar af meirihlutanum sem samanstendur af fulltrúum Lista Kópavogsbúa, Samfylking- arinnar, Vinstri grænna og Næst besta flokksins. Samkvæmt heim- ildum RÚV er mikill titringur inn- an meirihlutans og eru ekki allir sem treysta Guðrúnu til áfram- haldandi starfa. Samkvæmt RÚV hefur einnig komið til tals að stækka meiri- hlutann og taka Framsóknarflokk- inn inn í samstarfið. Það myndi þýða að Sjálfstæðisflokkurinn, sem lengi hefur farið með völd í Kópavogi, muni sitja einn eftir í minnihluta. Tilefnislaus hnífstunga Karlmaður á þrítugsaldri kom á slysadeild í Fossvogi um mið- nætti eftir hnífstungu frá óþekkt- um árásarmanni. Maðurinn tjáði starfsfólki slysadeildarinnar að hann hafi verið staddur fyrir utan verslun í Glæsibæ þegar hann fann fyrir stungunni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gat maðurinn lýst klæðn- aði gerandans en virðist ekki hafa þekkt árásarmanninn. Árásin er talin hafa verið tilefnislaus. Mað- urinn fékk að fara heim að lokinni aðhlynningu en skurðurinn mun ekki hafa verið djúpur. Gerand- inn var ófundinn þegar DV fór í prentun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.