Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Page 10
10 Fréttir 16. janúar 2012 Mánudagur
S
igríður Jónsdóttir, fyrrverandi
eiginkona Karls Werners-
sonar, eiganda Lyfja og heilsu
og fyrrverandi eiganda Mile-
stone, krefur hann um rúmar
850 milljónir króna vegna vanefnda á
skilnaðarsamningi þeirra. Aðalmeð-
ferð fór fram í málinu í Héraðsdómi
Reykjavíkur síðastliðinn föstudag.
Karl og Sigríður skildu árið 2004 en
umræddur samningur, sem tekist er
á um, var þó ekki gerður fyrr en árið
2007.
Sigríður var ósátt við skilnaðar-
kjörin frá upphafi og segist hafa barist
fyrir leiðréttingu á þeim þessi þrjú ár,
án þess að Karl hafi sýnt viðleitni til að
koma til móts við kröfur hennar.
Sigríður sjálf gaf skýrslu fyrir dómi
en það gerði Karl hins vegar ekki.
Hann mætti þó í dómsal.
Skilnaðurinn kom Sigríði í opna
skjöldu
„Við skiljum árið 2004. Ég varð fljótlega
ósátt við samninginn og það vissi Karl,“
sagði Sigríður í skýrslutöku fyrir dómi.
Hún sagði Karl hafa lofað sér ákveð-
inni upphæð sem væri nógu há til þess
að hún gæti eingöngu lifað á vöxtun-
um og þyrfti aldrei að snerta höfuð-
stólinn. Sú reyndist ekki raunin og
því krafðist hún leiðréttingar. Sigríður
er ekki í vinnu og kveðst vera óstarf-
hæf. Má því ætla að það sé henni mjög
mikil vægt að Karl standi við samning-
inn gagnvart henni.
„Skilnaðurinn kom mér í mjög
opna skjöldu og ég var í miklu áfalli. Ég
var illa inni í þessu og illa undirbúin til
samninga.“ Til að undirstrika hve skiln-
aðurinn var henni mikið áfall sagð-
ist hún ekki hafa munað eftir því hvað
stóð í skilnaðarpappírunum nokkrum
vikum eftir að hún skrifaði undir þá.
Sigríður tók jafnframt fram að í þau 14
ár sem hún og Karl voru saman þá hafi
hann ávallt séð um fjármál þeirra. Þá
var hún óánægð með þann lögmann
sem aðstoðaði hana við skilnaðinn.
Um leið og hún áttaði sig á því að
skilnaðarsamningurinn var ekki í sam-
ræmi við það sem hún taldi sig eiga
rétt á, reyndi hún að fá málið tekið upp
aftur. Sigríður sagðist hafa borið mál-
ið undir nokkra lögmenn sem töldu
það gott en vildu þó ekki taka það að
sér. „Karl var rísandi stjarna og það var
almennt andrúmsloftið í þjóðfélag-
inu að fara ekki gegn þeim,“ sagði hún
til útskýringar á því hvers vegna hún
taldi lögmenn ekki hafa viljað taka mál
hennar að sér á sínum tíma.
Fékk aðstoð við eignastýringu
Sigríður sagði að árið 2007 hefði þó
orðið einhver hugarfarsbreyting hjá
Karli sem varð til þess að hann féllst á
hún fengi leiðréttingu á skilnaðarkjör-
unum. Það var þó ekki í formi beinna
greiðslna frá Karli eins og Sigríður ósk-
aði eftir heldur var um að ræða aðstoð
við eignastýringu að undirlagi hans.
Sigríður fékk rúmar 300 milljónir
að láni hjá Glitni í Lúxemborg og lagði
inn í ávöxtunarsjóð hjá Askar Capital.
Sjálf átti hún að leggja um 170 milljón-
ir króna á móti inn í sjóðinn. Það gerði
hún hins vegar ekki enda átti hún það
fjármagn ekki til, að eigin sögn. Karl
lofaði Sigríði fastri 12,5 prósenta ávöxt-
un sem greiða átti út þann 1. apríl ár
hvert. Þá lofaði hann henni 9 milljóna
króna greiðslum ársfjórðungslega.
Sigríður leit á gjörninginn sem að-
gerð Karls til að bæta skilnaðarkjör-
in án þess að leggja beint til fjármagn
sjálfur.
Átti á fá fjórar einkaþotuferðir á
ári
Sigríður og Karl eiga ennþá saman
þriggja hæða sumarhöll í Lucca í Tosk-
anahéraði á Ítalíu. Samkvæmt heim-
ildum DV keypti Karl sumarhöllina á
sex milljónir evra þegar góðærið stóð
sem hæst. Það var því hluti af skilnað-
arsamningnum að hann kostaði fjórar
ferðir fyrir hana með einkaþotu til og
frá Lucca á hverju ári. Ef hann gerði
það ekki þá átti Sigríður að fá auka-
ávöxtun á fé sínu í sjóðnum hjá Askar
Capital.
Árið 2008 var umræddum sjóð hins
vegar lokað og fénu úr honum skilað til
eigenda sinna. Þar með voru forsend-
ur samningsins brostnar og Sigríður
hefur ekki fengið greitt út það ávöxt-
unarfé sem hún átti að fá úr sjóðnum.
Karl ber við að hafa ekki vitað að af því
að sjóðnum hefði verið lokað, þrátt
fyrir að hafa á þeim tíma verið stjórn-
arformaður Askar Capital. Fram kom
fyrir dómi að Karl teldi Sigríði sjálfa
hafa tekið peningana út úr sjóðnum og
hafði hann lýst yfir óánægju sinni yfir
því við hana.
Mikið um frammíköll
Jón Scheving Thorsteinsson var
fulltrúi Sigríðar í samningsgerðinni
árið 2007 og aðstoðaði hana í viðskipt-
unum við Askar Capital. Hann gaf
skýrslu fyrir dómi og sagði að Sigríð-
ur hefði hvorki sjálf sent inn né feng-
ið uppsögn á samningnum við Askar
Capital. Það hefði því ekki verið farið
eftir ákvæðum samningsins um lög-
mæta uppsögn hans.
Jón benti á að öllum hefði átt að
vera ljóst að Askar Capital stæði illa á
þessum tíma og því hefði verið hægt
að bjóða þeim sem áttu peninga í um-
ræddum sjóði upp á önnur úrræði
þegar honum var lokað. Ólafur Eiríks-
son, lögmaður Karls, var ósáttur þess-
ar yfirlýsingar Jóns og bað dómara um
að stoppa hann af. Töluvert var um
að lögmenn beggja aðila gripu fram
í fyrir hvor öðrum til að krefjast þess
að spurningar væru umorðaðar eða
vegna þess að þeim fannst eitthvað
málinu óviðkomandi.
Krafan ætti að vera rúmlega
milljarður
Dómkröfur Sigríðar skiptast í tvo þætti;
að Karl greiði henni meinta gjaldfallna
skuld frá árunum 2008 til 2011 og til
vara að staðið verðið við greiðslur í
framtíðinni samkvæmt samningnum
sem hún telur vera viðbót við skiln-
aðarsamning þeirra frá árinu 2004.
Karl ber því hins vegar við að samn-
ingurinn sem gerður var árið 2007 hafi
ekkert með skilnað þeirra hjóna að
gera. Þá gerir Sigríður einnig kröfu um
að Karl sjái henni áfram fyrir fjórum
einkaþotuferðum til og frá Lucca á ári.
Lögmaður Sigríðar, Þórður Boga-
son, tók fram fyrir dómi að krafan um
850 milljónir króna væri sanngjörn því
samkvæmt mati dómkvadds mats-
manns væri upphæðin í raun um 1,1
milljarður króna.
Karl vill meina að samningurinn sé
gagnkvæmur og ef annar aðilinn fylgi
honum ekki þá beri hinum aðilanum
ekki skylda til standa við sína hlið. Þar
sem Sigríður hafi ekki staðið við það
að leggja 170 milljónir inn á ávöxtun-
arsjóðinn, þá hafi hún ekki staðið við
sinn hluta samningsins.
Lögmaður Karls, Ólafur Eiríksson,
telur það vera jafnframt ágreinginsmál
hvort samningurinn hafi verið þess
eðlis að hann skyldi standa við hann
„no matter what.“
Útúrsnúningur og þvættingur
Í málflutningi sínum benti Þórður á
að það væri óumdeilt að Karl og Sig-
ríður hefðu verið í hjónabandi. Þegar
því lauk hafi hann gefið henni ákveð-
in loforð sem hann hafi ekki staðið við
hingað til. Hann hafi ekki sýnt neina
tilburði eða vilja til að ná sátt í málinu.
Þórður telur það vera útúrsnúning
og þvætting að halda því fram að Karl
hafi boðið Sigríði aðstoð við eignastýr-
ingu af góðmennsku sinni líkt og hann
virðist vilja meina.
Þá tók hann fram að ekki hefði verið
sýnt fram á að Karl gæti ekki efnt sam-
komulagið vegna afleiðinga banka-
hrunsins, og því ósanngjarnt af Sigríði
að krefjast þess, líkt og Karl vill meina.
Eignir metnar á milljarð
Karl er núverandi forstjóri og eig-
andi Lyfja og heilsu sem gengur vel,
en um er að ræða stærstu keðju lyfja-
búða hér á landi sem telur 63 búðir
undir merkjum bæði Lyfja og heilsu
og Apótekarans.
Karl átti áður fjárfestingarfélag-
ið Milestone með systkinum sínum,
Steingrími og Ingunni, en Werner
Rasmusson faðir þeirra fyrirfram-
greiddi þeim arf árið 1999 með því
skilyrði að þau settu peningana í
eignarhaldsfélag sem þau áttu sam-
an. Karl átti þó stærstan hlut í Mile-
stone, eða 41 prósent. Milestone
átti meðal annars tryggingafélagið
Sjóvá og fjárfestingarbankann Askar
Capital. DV greindi frá því snemma
árs 2009 að eignir Karls hefðu verið
metnar á um 65 milljarða króna þeg-
ar útrásin stóð sem hæst árið 2007.
Karl fór þó ekki varhluta af efnahags-
kreppunni, en Milestone varð gjald-
þrota í september árið 2009 eftir að
kröfuhafar höfnuðu nauðasamning-
um. Samkvæmt álagningu árið 2010
námu eignir Karls tæpum 1,1 millj-
arði króna umfram skuldir.
Eiginkonan vildi
lifa á vöxtunum
n Fyrrverandi eiginkona Karls Wernerssonar krefst leiðréttingar á skilnaðarsamningi þeirra n Skildu árið
2004 en nýr samningur gerður árið 2007 n Sigríður var í miklu áfalli vegna skilnaðarins n Vill 850 milljónir„Skilnaðurinn kom
mér í mjög opna
skjöldu og ég var í miklu
áfalli. Ég var illa inni í
þessu og illa undirbúin til
samninga.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Karl var rísandi stjarna
og það var almennt
andrúmsloftið í þjóðfélaginu
að fara ekki gegn þeim
Heilsar Ágætlega virtist fara á með Þórði Bogasyni, lögmanni Sigríðar, og Karli áður en
aðalmeðferðin hófst.
Mætti fyrir dóm Karl Wernersson var
viðstaddur aðalmeðferð í skuldamáli sem fyrr-
verandi eiginkona hans höfðaði á hendur honum
vegna vanefnda á skilnaðarsamningi þeirra.