Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 13. febrúar 2012 Mánudagur
U
mboðin sem Bjarni Bene-
diktsson, þáverandi stjórn-
arformaður BNT og N1 og
núverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, fékk til að
veðsetja hlutabréfin í eignarhalds-
félaginu Vafningi voru send til Glitnis
klukkan 16.38 þann 11. febrúar 2008.
Þetta kemur fram í afriti af faxi með
umboðunum sem Gunnar Gunn-
arsson, lögmaður Milestone, sendi
til Glitnis þennan dag og DV hefur
undir höndum. Umboðin voru hins
vegar veitt vegna viðskipta sem sögð
voru hafa átt sér stað þann 8. febrú-
ar, þremur dögum áður. Dagsetning-
in á umboðunum var sömuleiðis 8.
febrúar 2008. Faxið sannar falsanir í
skjalagerðinni í Vafningsmálinu.
Lána- og veðsamningurinn sem
umboðin voru veitt til að ganga frá
til að Glitnir gæti lánað eignarhalds-
félaginu Vafningi rúmlega tíu millj-
arða króna voru hins vegar dagsettir
þann 8. febrúar. Bjarni Benediktsson
skrifaði undir veðsamninginn sem
dagsettur var 8. febrúar. Vafningur
tók við láninu frá Glitni til að end-
urgreiða Milestone þá rúmlega tíu
milljarða króna sem félagið hafði
notað til að endurgreiða bandaríska
fjárfestingabankanum lán Þáttar
International hjá bandaríska fjár-
festingabankanum Morgan Stanley
fjórum dögum áður. Morgan Stanley
hafði veitt Þætti International lán-
ið til að fjármagna hlutabréfakaup í
Glitni. Morgan Stanley hafði gjald-
fellt lánið nokkrum dögum áður.
Dagsett aftur í tímann
Afritið af faxinu til Glitnis er enn
ein sönnun þess að skjalagerðin í
Vafningsmálinu var unnin aftur í
tímann. Í faxinu stendur: „Til Glitn-
is banka hf. - Kirkjusandi 2 - 155
Reykjavík“ og var það sent úr faxn-
úmeri „+354 4141808“, númeri á
skrifstofu Milestone á Suðurlands-
braut, af Gunnari Gunnarssyni.
Neðst á fyrstu síðu umboðanna,
sem virðast hafa verið send til
Glitnis öll í einu, stendur hvenær
faxið var sent: „11/02 2008 16:38
FAX.“ Í faxinu stendur skýrum stöf-
um að það hafi verið 22 mínútur í
fimm þann ellefta febrúar 2008.
Umboðin sem Bjarni Benedikts-
son fékk til ganga frá viðskiptunum
fyrir hönd eignarhaldsfélaga skyld-
menna sinna, Hrómundar, Hafsilfurs
og BNT, voru lykilatriði í því að hægt
væri að ganga frá láni Glitnis til Vafn-
ings. Ástæðan er sú að umrædd félög
voru hluthafar í Vafningi og þurftu
að veita samþykki sitt fyrir veðsetn-
ingunni á hlutabréfum félagsins fyr-
ir láninu frá Glitni. Fyrst umboðin
sem veittu honum rétt til að veðsetja
hlutabréfin í umræddum félögum
voru send til Glitnis síðdegis þann
11. febrúar getur ekki verið að gengið
hafi verið frá láni Glitnis til Vafnings
þann 8. febrúar, þremur dögum áður.
Þrátt fyrir þetta var lána- og veð-
samningur Glitnis og Vafnings, sem
DV hefur undir höndum, dagsettur
þann 8. febrúar 2008.
Ákæran og dagsetningarnar
Í ákæru sérstaks saksóknara í Vafn-
ingsmálinu yfir þeim Lárusi Weld-
ing, bankastjóra Glitnis, og Guð-
mundi Hjaltasyni, fyrrverandi
framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs
bankans, sem gefin var út um miðjan
desember síðastliðinn, kemur fram
að skjalagerðin í Vafningsmálinu hafi
verið unnin aftur í tímann. Lárus og
Guðmundur eru ákærðir fyrir um-
boðssvik í málinu.
Í ákærunni segir að Lárus og Guð-
mundur hafi veitt lánið beint til Mile-
stone þann 8. febrúar en þann 12.
febrúar hafi verið útbúin skjöl þar
sem Vafningur var sagður hafa tek-
ið lánið þann dag. Í ákærunni segir
orðrétt: „Gögn málsins bera með sér
að látið var líta út fyrir að Vafning-
ur ehf. hefði tekið lánið í stað Mile-
stone ehf. 8. febrúar 2008, með því
að dagsetja lánasamninginn milli
Glitnis og Vafnings ehf. 8. febrúar
2008. Greiðslugögn og bókhald bera
hins vegar með sér lánveitinguna til
Milestone ehf. 8. febrúar 2008 og ráð-
stöfun andvirðisins af reikningi Mile-
stone til greiðslu láns Þáttar Inter-
national hjá Morgan Stanley.“ Faxið
sem Gunnar Gunnarsson sendi er
óræk sönnun fyrir því að umræddar
undirskriftir í Vafningsmálinu, und-
irskriftirnar á umboðunum, í veð-
samningnum og lánasamningnum,
eru ekki réttar.
Vottar að réttum
dagsetningum
Í faxinu eru undirskriftir Einars og
Benedikts Sveinssona, eigenda Hró-
mundar og Hafsilfurs, og stjórnar-
manna í BNT, þeim Jóni Benedikts-
syni, Gunnlaugi Sigmundssyni
og Bjarna Benediktssyni, þar sem
Bjarna er veitt heimild til að veð-
setja hlutabréf félaganna í Vafningi
fyrir láninu frá Glitni. Í texta um-
boðsins er vísað til veðsamningsins
sem Bjarni skrifaði undir sem sagð-
ur er hafa verið undirritaður þann
8. febrúar. Nú er hins vegar vitað að
þessi texti var ekki réttur heldur að
gengið hafi verið veð- og lánasamn-
ingnum nokkrum dögum síðar. Texti
umboðanna er því líka rangur.
Í umboðunum eru einnig vottar
að réttum dagsetningum þeirra en
undir þau rita meðal annarra Bjarni
sjálfur, Hermann Guðmundsson,
forstjóri N1, og Gunnar Gunnars-
son, lögmaður Milestone sem bjó
umboðin til og gekk frá skjölunum í
málinu. DV hefur áður sýnt fram á að
umboðin sjálf sem Bjarni fékk til veð-
setningarinnar á hlutabréfunum í
Vafningi hafi verið búin til að morgni
11. febrúar 2008, þremur dögum síð-
ar en dagsetning þeirra sýndi. Miðað
við þetta voru umboðin bæði gerð
eftir 8. febrúar 2008 auk þess sem
fyrir liggur að þau voru send til Glitn-
is eftir það, eða laust fyrir klukkan
fimm síðdegis. Samt voru öll skjölin
í lánaviðskiptunum Glitnis og Vafn-
ings dagsett þann 8. febrúar 2008 og
voru því í reynd fölsuð til að láta líta
út fyrir að lánið hefði verið veitt þann
8. febrúar 2008 en ekki 12. febrúar í
sama mánuði.
Bjarni Benediktsson hefur
ekki verið reiðubúinn til að svara
spurningum DV um tímasetningu
þeirra gerninga sem hann tók þátt í
í Vafningsviðskiptunum. DV hefur
ítrekað sent honum spurningarn-
ar með beiðni um svör, nú síðast
á sunnudaginn. Blaðið hefur hins
vegar ekki fengið nein svör frá for-
manninum. n
Fax til Glitnis sannar
falsanir í Vafningsmáli
n Vafningsumboðin dagsett aftur í tímann n Skrifuðu undir fölsuð skjöl í sakamáli
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Fax sannar falsanir Faxið frá Milestone
til Glitnis með umboðunum í Vafningsmálinu
staðfestir að umboðin sem Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk til
að veðsetja hlutabréfin í eignarhaldsfélaginu
Vafningi voru dagsett aftur í tímann.
Framkvæmdastjóri LSR:
Upplýsir
ekkert um
boðsferðir
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðs ríkis-
starfsmanna LSR, segist ekki sjá
ástæðu til þess að upplýsa um
dagsetningar boðsferða sem
starfsmenn sjóðsins fóru í fyrir
hrun í boði fyrirtækja. Hann
vill heldur ekki gefa upp hvaða
fyrirtæki buðu starfsmönnum
sjóðsins í ferðir. Haukur segir í
svari sínu að á árunum 2004–
2008 hafi sjóðurinn haft að jafn-
aði um tvo milljarða króna sem
honum bar að verja til fjárfest-
inga í hverjum mánuði.
„Á þessum árum fóru sex nú-
verandi og fyrrverandi starfs-
menn LSR í samtals 30 ferðir
út fyrir landsteinana þar sem
kostnaður var greiddur af öðrum
en sjóðnum. Í öllum tilfellum
var um kynningu á starfsemi eða
nýjum fjárfestingartækifærum
að ræða. Fundirnir voru haldnir
í Bandaríkjunum, Danmörku,
Englandi, Frakklandi, Hollandi,
Noregi, Rússlandi, Skotlandi,
Spáni,Tékklandi og Þýskalandi.
Skoðun á viðskiptum sjóðsins
í kjölfar þessara funda leiðir
ekkert í ljós sem tilefni gefur til
tortryggni. Á þriggja mánaða
tímabili í kjölfar hverrar ferðar
var sala hlutabréfa sem tengdust
þessum aðilum í þriðjungi til-
vika meiri en kaup. Í helmingi
tilvika voru kaup meiri en sala.
Er þetta í samræmi við það fyrr-
nefnda hlutverk sjóðsins að ráð-
stafa meiri fjármunum í hverjum
mánuði til kaupa á verðbréfum
en sölu úr eignasafni hans.“
Þá segir Haukur að stjórnend-
ur sjóðsins beri ábyrgð á fjár-
festingum hans og einnig hverjir
af starfsmönnum hans fari á
kynningarfundi vegna einstakra
fjárfestingatækifæra. Hann segir
að allar fjárfestingar hafi verið í
samræmi við lög.
Hann bendir einnig á að
afkoma sjóðsins í aðdraganda
hruns fjármálakerfisins sé í eðli-
legu samræmi við sambærilega
sjóði bæði hérlendis og víða í
nágrannalöndum. „Enda þótt
tjón sjóðsins hafi verið mikið
ber að hafa það í huga að eignir
hans voru og eru mestar allra líf-
eyrissjóða landsins og hlutfalls-
legt tap hans sambærilegt við
aðra.“