Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Blaðsíða 15
Neytendur 15Mánudagur 13. febrúar 2012
Sparaðu með kaupum á netinu
Nýr fjölskyldumeðlimur
Það getur verið dýrt að koma sér
upp startpakka með nýju barni.
MyNd Photos.coM
n Margar verslanir selja vörur sínar á netinu n Hægt að gera góð kaup n Meira vöruúrval n Kauptu barnavörur á netinu og sparaðu mikið
Barnavörur mun
ódýrari á netinu
Dæmi um kaup á netinu
Sumir hlutir eru jafndýrir keyptir á netinu og hér heima. Þó þeir séu
mun ódýrari erlendis gera skattar, tollar og flutningskostnaður
það að verkum að lítill eða enginn munur er á verði. Dæmi um
þetta eru Dr.Martins-skór sem fást í GS skóm en þar kostar parið
28.900 krónur. Sömu skór kosta 18.810 krónur á netversluninni
Asos. Þó það sé hægt að fá þá ódýrari þá er miðað við Asos sem
sendir vörur til Íslands. Þegar reiknaður hefur verið sendingar-
kostnaður auk tolla og skatta munu þeir á endanum kosta 28.865
krónur.
Annað dæmi eru Hunter-stígvél sem seld eru
í Geysi en þar kosta þau 25.900 krónur. Hægt
er að kaupa þau á um það bil 80 dollara
sem gera um 10.000 krónur. Kaupir þú
þau í gegnum ShopUSA munu þau á
endanum kosta þig 21.116 krónur og
sparar þú þar af leiðandi nokkur þúsund
krónur.
Það skal tekið fram að þessi verð fengust eftir stutta skoðun
á netinu og því góðir möguleikar á að finna þessar vörur á lægra
verði. Enn og aftur er fólk hvatt til að gefa sér góðan tíma við leit
að óskavörunni á netinu.
skattur og gjöld
Allar vörur sem sendar eru til landsins bera virðisaukaskatt sem þarf að greiða og er
hann 25,5 prósent. Þar að auki þarf að greiða toll af ákveðnum vöruflokkum en þar má
nefna að þegar skór og fatnaður er keyptur að utan leggst 15 prósenta tollur ofan á en
á snyrtivörur, DVD-myndir og tölvuleiki leggst 10 prósenta tollur. Það sama á við um
barnavagna og kerrur. Á heimasíðu tollstjóraembættisins má finna reiknivél þar sem
auðvelt er að reikna út hve mikið mun bætast við upphaflegt verð þegar tollar og önnur
gjöld eru greidd. Eins er vert að nefna að þegar reiknivélin er notuð þarf að setja inn
flutningskostnað inn í heildarupphæð þar sem það er tekinn tollur af þeirri upphæði líka.
Það er því ekki nóg að setja inn verð á vörunni sem þú hefur hug á að kaupa því þá færðu
of lágan toll á vöruna.
að margar verslanirnar senda ekki
vörur til Íslands. Sem dæmi má
nefna að hvorki amazon.com né
amazon.co.uk senda vörur til Ís-
lands fyrir utan bækur, diska leik-
föng og hugbúnað. Signý segir að
það sé að hluta til ástæða þess að
ShopUSA varð til. Þjónustan sé
hugsuð til að gefa neytendum á Ís-
landi kleift að njóta vöruúrvals-
ins á bandarískum markaði og taka
við þar sem þeirra þjónustu slepp-
ir. Þó er rétt að taka fram að því
miður er ekki hægt að versla á öll-
um bandarískum vefsíðum. Sumar
þeirra henda þér út og þá er lausn-
in að leita bara að sömu vöru annars
staðar. Að síðustu er vert að nefna
að með kaupum í gegnum ShopUSA
getur fólk látið safna saman fyrir sig
í eina sendingu mörgum pöntunum
og tekið til Íslands sem eina send-
ingu og í því felst meiri hagkvæmni
en margur áttar sig á. n
Rimlarúm
Stork Craft Tuscany
Netverslun: The Modern
Bedroom
Verð: 21.680 kr.
Bílstólapoki
J Cole Infant Arctic Bundle Me
Netverslun: Wayfair
Verð: 11.338 kr.
Skiptiborð
Delta Harlow
Netverslun: Walmart
Verð: 8.697 kr.
Barnavagn
Icoo Targo
Netverslun: Albee Baby
Verð: 50.422 kr.
Dýna
Twilight 6“ DaVinci furniture
Netverslun: Amazon
Verð: 6.555 kr.
Bílstóll
Chicco KeyFit 30, Adventure
Netverslun: Drugstore
Verð: 19.159 kr.
Matarstóll
Tripp Trapp
Netverslun: Baby Catalog
Verð: 5.294 kr.
Þ
að er hægt að spara töluverðan
pening með því að kaupa ýmsar
barnavörur á netinu en könnun
DV leiddi í ljós rúmlega 100.000
króna mun á nokkrum vörum sem
foreldrar kaupa þegar von er á barni. Í
umfjöllun um kostnað við að eignast barn
í Íslandi í dag í síðustu viku kom fram að
nýbakaðir foreldrar gætu þurft að reiða
fram tæpar 370.000 krónur fyrir ýmsar
nauðsynjavörur. Þar voru hlutir eins og
barnabílstóll og barnavagn og DV ákvað
því að skoða hvað sambærilegur pakki
mundi kosta ef hann væri pantaður á
netinu og fluttur heim með ShopUSA.
Hér er um óformlega könnun að ræða.
Tekið var niður verð á sjö af þeim hlutum
sem kannaðir voru í Íslandi í dag hjá Baby-
Sam en ekki hlutir svo sem samfellur,
gallar og pelar. Hlutirnir sem um ræðir eru
hvorki þeir dýrustu né ódýrustu sem fund-
ust við stutta skoðun á netinu og ekki var
tekið tillit til gæða þeirra. Sá fyrirvari er
settur á að barnavagninn sem um ræðir
frá Bandaríkjunum er í raun vagn og kerra
saman og því er kerrustykkið haft með á
listanum yfir vörur keyptar á Íslandi.
BabySam
Barnavagn 128.900 kr.
Bílstóll 32.193 kr.
Rúm 49.990 kr.
Dýna 15.990 kr.
Skiptiborð 19.990 kr.
Bílstólapoki 9.990 kr.
Matarstóll 17.900 kr.
samtals* 274.953 kr.
*Verð tekiN saMaN í íslaNdi í dag
Samtals fyrir flutning: 123.145 kr. Samtals eftir flutning með ShopUSA 202.000 kr.