Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Síða 22
Eva María stefnir á 10 km
n Fjölmiðlakonan hleypur fyrir veik börn
É
g sé árið 2009 í ljóma en
þá gat ég hlaupið tíu kíló-
metra á klukkustund. Ég
hef ekki getað það síðan
en mig langar til þess og er
þess vegna byrjuð að hlaupa á
ný,“ segir fjölmiðlakonan Eva
María Jónsdóttir sem stendur
fyrir Einstöku hlaupi á Hlaup-
ársdag, þann 29. febrúar.
Eva María setti sér það
markmið að ná fyrri hlaupa-
getu fyrir hlaupársdag. „Ég
ákvað að halda mitt hlaupárs-
dagshlaup og bjóða vinum
mínum að hlaupa með. Svo
var haft samband við mig frá
félaginu Einstökum börnum,
stuðningsfélagi barna með
sjaldgæfa sjúkdóma, en dag-
urinn er einmitt alþjóðlegur
dagur þeirra. Ég tók að sjálf-
sögðu vel í það samstarf, enda
þurfum við öll að vera meðvit-
uð um að í okkar litla samfé-
lagi eru 200 fjölskyldur barna
með sjaldgæfa sjúkdóma og líf
þeirra er mjög litað af veikind-
um barnanna.“
Eva María viðurkennir að
henni þyki margt skemmti-
legra en að hlaupa. „Mér
finnst mjög erfitt að hlaupa en
ég bý með hjartalækni og sam-
kvæmt honum eru hlaup góð
aðferð til að reyna á hjarta-
vöðvann, en sá vöðvi þarf líka
sitt viðhald og æfingu. Eftir að
maður er kominn á ákveðinn
aldur verður maður að passa
sig að hlaupa ekki fram úr sér
og vera svo kannski óhlaup-
hæfur þegar kemur að hlaup-
ársdegi.“
Eva María hefur stofnað
viðburð undir nafninu Ein-
stakt hlaup á Facebook þar
sem fólk getur skráð sig og
safnað áheitum sem svo renna
til Einstakra barna. „Þar er
hægt að skoða hlaupaleiðina.
Í fyrstu átti þetta einungis að
vera tíu kílómetra leið en við
ákváðum að bæta við fimm
kílómetrum svo fleiri gætu
tekið þátt,“ segir Eva María
sem hefur ekki ennþá tekist
að klára tíu kílómetrana. „Ég
er komin upp í 7,5 km en verð
að standa mig svo áheitin skili
sér,“ segir hún og bætir við að
það verði hlaupið sama hvern-
ig viðrar. „Ég er búin að horfa
á hlaupara í allan vetur í fárán-
legu fannfergi svo við hljótum
að geta lufsast út þennan eina
dag. Ef það verður snjóbylur
þá íklæðist maður skíðagalla
og gengur þetta.“
Aðspurð um hlaupaæðið í
samfélaginu veltir hún vöng-
um: „Ég held að fólk þrái að
gera erfiða hluti og fara út fyrir
þægindarammann. Svo, þegar
maður er orðinn ákveðið góð-
ur, fer endorfínið að flæða og
maður upplifir sig ósigrandi.
Það er ekki enn komið hjá mér
en ég man eftir þessari tilfinn-
ingu og ætla mér að upplifa
hana aftur. Þetta gerist hægt
en maður kemst alltaf nær
henni við hvert hlaup.“
indiana@dv.is
22 Fólk 13. febrúar 2012 Mánudagur
Sirrý berfætt
í garðinum
Fjölmiðlakonan vinsæla
Sigríður Arnardóttir býr vel í
Skerjafirðinum og svo virðist
sem garðurinn hennar komi
vel undan vetri ef marka má
Facebook-síðu hennar. „Vor-
tilfinning í dag. Fór berfætt
út í garð að gefa fuglunum
(varð bæði blaut og köld en
það var þess virði) og græn-
kálið hefur lifað veturinn vel
af. Kemur grænt og góm-
sætt undan snjónum. Mjög
skemmtilegt að borða græn-
kál úr garðinum á þessum
snjóþunga vetri. Og jarðar-
berjaplönturnar hafa dreift
vel úr sér og lofa góðu. Nátt-
úran kemur stöðugt á óvart.“
Getur sleikt á
sér olnbogann
Lilja Katrín Gunnarsdótt-
ir, ritstjóri Séð og Heyrt, er
ákaflega gamansöm kona.
Hún brá á leik á Facebook-
síðu sinni nýverið þar sem
hún sýndi fram á að hún gæti
sleikt á sér olnbogann. Það
væri fjörugt andrúmsloftið á
vinnustöðum landsins ef all-
ir yfirmenn tækju afslappað
viðhorf Lilju Katrínar til fyrir-
myndar.
n Greta Salóme kom, sá og sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins
Sigraði á heimavelli
É
g er í skýjunum,“ voru
fyrstu viðbrögð Gretu
Salóme Stefánsdóttur,
sigurvegara í Söngva-
keppni Sjónvarpsins á
laugardag. Greta Salóme Stef-
ánsdóttir kom, sá og sigraði í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
en hún átti tvö lög í úrslita-
keppninni. Aðeins einn annar
höfundur átti jafn mörg lög í
keppninni en sjö lög kepptu til
úrslita á laugardagskvöldið.
Sigurlagið heitir Mundu
eftir mér og var flutt af Gretu
Salóme og Jóni Jósep Snæ-
björnssyni, sem oftast er kall-
aður Jónsi, auk bakradda-
söngvara. Greta Salóme, sem
er fiðluleikari, sló svo ræki-
lega í gegn í flutningi lagsins
en hún lék á fiðluna í miðju
laginu.
Söng á heimavelli í Hörpu
Segja má að Greta Salóme hafi
verið á heimavelli í Hörpu.
Hún er fiðluleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands en hljóm-
sveitin hefur aðsetur í húsinu.
„Ég náttúrulega þekki þetta
hús bara út frá Sinfóníunni og
það er ótrúlegt að fá að gera
þetta hérna í þessu glæsilega
húsi. Samt voru þetta pínu
ókannaðar slóðir,“ segir Greta
aðspurð hvort hún hafi ekki
verið á heimavelli.
Jónsi er hins vegar viss um
að reynsla Gretu hafi hjálpað
þeim mikið. „Já, hún gerði
það. Við þurftum að taka
mjög snögga ákvörðun rétt
áður en við fórum á svið og
hún tók alveg svakalega góða
ákvörðun byggða á reynslu
sinni,“ segir Jónsi um hvernig
reynsla Gretu skilaði sér í
atriðinu. „Þetta er svolítið
djúsí,“ segir hann aðspurður
hvernig hafi verið að syngja
í Hörpu en þetta var í fyrsta
sinn sem hann stígur þar á
svið.
Bjuggust ekki við sigri
„Ég bjóst ekki við því. Ég skal
viðurkenna alveg eins og er að
ég bjóst ekki við neinu,“ segir
Jónsi. Aðspurð segist Greta
heldur ekki hafa búist við sigri
í keppninni. Mikill undirbún-
ingur liggur á bak við lagið og
flutning þess í keppninni og
er ljóst að Greta Salóme mun
leggja allt í sölurnar til að ná
sem bestum árangri í Eurovisi-
on-keppninni sjálfri. Hún sá
sjálf um sviðsetningu á báðum
lögunum sem hún var með í
úrslitakeppninni.
„Ég held að við ræðum það
á næsta fundi,“ segir Greta um
hvort hún hafi strax í huga ein-
hverjar breytingar á laginu.
Greta og Jónsi sungu lagið á
íslensku en síðustu ár hefur
það tíðkast að framlag Íslands
í Eurovision sé flutt á ensku.
Jónsi tekur í sama streng og
Greta og segir að öll einbeiting
þeirra hafi beinst að úrslita-
kvöldi Söngvakeppninnar hér
heima.
Hafa ekki hugsað lengra
Mikil umræða hefur verið
undanfarið um hvort Ísland
eigi að draga sig úr Eurovision
vegna mannréttindabrota sem
meðal annars samtökin Am-
nesty International hafa bent á
að séu framin við undirbúning
keppninnar. Keppnin fer fram
í Bakú, höfuðborg Aserbaíd-
sjan í maí.
Greta Salóme segist ekki
hafa gert upp við sig hvort
hún sem lagahöfundur sigur-
lagsins muni draga sig úr
keppninni. „Nei, ég skal alveg
segja það að ég er búin að
leggja mig fram um að kynna
mér ekki þessar fréttir vegna
þess eins að ég hafði ákveðið
að einbeita mér algjörlega að
þessu kvöldi, Söngvakeppni
Sjónvarpsins, sem er algjör-
lega óskylt Aserbaídsjan eins
og er,“ útskýrir Greta. „Ég
ákvað að hugsa ekki svona
langt.“
Salurinn stútfullur Það var setið í hverju sæti í Eldborgarsal Hörpu þegar
úrslit söngvakeppninnar fóru fram á laugardag.
Skáluðu með keppendum
Strákarnir sem fluttu lagið Hey
skáluðu með öðrum keppendum
þegar flutningi allra laganna var
lokið.
Eva María Eva María man eftir tilfinningunni sem góður hlaupari upplifir og
vill gjarnan upplifa hana aftur.
Sætur sigur Greta Salóme fagnaði
innilega með félögum sínum sem fluttu
lagið Mundu eftir mér með henni.