Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Side 4
4 Aðventan 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Jól hinna efnaminni
n Hver Íslendingur eyðir 43.000 í jólainnkaup n DV skoðar hvernig má komast af með minna
H
vort sem þú ert mjög
trúuð manneskja eða
ekki, þá eru jólin rót-
gróin hefð hjá íslensku
þjóðinni, enda hefur
einhvers konar jólahald verið
á Íslandi frá upphafi byggðar.
Þessi tími ljóss og friðar gleður
okkur og hlýjar á myrkasta og
kaldasta tíma ársins. Í hugum
margra fylgir þó mikið jólastress
á kostnað ánægjunnar, ekki
síst vegna erfiðra fjárhagsað-
stæðna. Samkvæmt saman-
tekt Rannsóknaseturs versl-
unarinnar er búist við að hver
Íslendingur eyði um 43.000
krónum í jólainnkaupin. Margir
hafa þó ekki þessa fjárhæð í
handraðanum til að eyða um
jólin. En það eru mörg ráð til að
spara aurinn í jólaútgjöldum
og svo lengi sem fólk man eftir
að eyða tíma saman og
gleðjast, þá verða
jólin hátíðleg.
Það er hugurinn
sem gildir
Það er auðvelt að
eyða um efni fram
í gjafir fyrir jólin.
Verðlagið er hátt og
maður vill gera vel
við fjölskylduna og
vini sem eiga það
líka svo skilið. En
fjárhagslegt and-
virði gjafanna er
ekki það sem jólin
snúast um og það
má gefa góðar gjafir
sem kosta ekki um
of, enda er það hug-
urinn sem gildir.
Heimabakstur og loforð
Fyrir bókaunnandann má finna
góða bók á fornbókasölu eða nytja-
markaði, bækur eru alltaf jafn góð-
ar, hvort sem þær koma í plasti eður
ei. Ungt par með lítil börn myndi
gleðjast yfir að fá popp, kók og ávís-
un á pössun svo þau komist í bíó.
Eins er gott ráð að gefa heilum fjöl-
skyldum sameiginlega gjöf í stað
þess að gefa hverjum og einum.
Heimalöguð sulta, kex, smákökur
ásamt súkkulaði og kerti er gjöf sem
öll fjölskyldan getur notið saman
á jóladagsmorgni. Það sama á við
um góðan geisladisk eða spilastokk
og heimalagað konfekt og fleira í
þeim dúr.
Ljóð og prjónaskapur
Pör geta líka sparað í jólaútgjöld-
um með því að setja sér hámark eða
ákveðið að hafa gjafirnar heima-
tilbúnar. Heimagerð ljóðabók eða
handprjónaður trefill gleðja meira
en margt keypt í búð því gjafirnar
sýna tímann og umhyggjuna sem
fóru í þær.
Ein stór gjöf
Stórfjölskyldur og vinahópar geta
tekið sig saman og ákveðið að hver
og einn gefi aðeins eina gjöf. Þá
eru öll nöfnin sett í pott og hver
dregur nafn þess sem hann mun
gefa jólagjöf það árið. Þetta getur
orðið að bráðskemmtilegri hefð,
þar sem hægt er að leggja mikið
upp úr hugsuninni á bak við gjöfina
ár hvert.
Það er gott ráð að fara vel yfir
lista þeirra sem þú gefur gjafir,
stundum er þar fólk sem þú hefur
ekki lengur mikið samband við en
gefur alltaf gjöf af gömlum vana. Þá
er upplagt að færa viðkomandi yfir
á jólakortalistann og skrifa honum
fallega jólakveðju í staðinn. Til að
komast hjá vandræðalegum að-
stæðum er best að láta viðkomandi
vita af þessu fyrir jólin og líklegt er
að hún sýni þessu fullan skilning
og verði að sama skapi fegin að
minnka einnig útgjöldin sín.
Góðverk eru góð verk
En það er hægt að gleðja fólk á
fleiri vegu en með peningum. Þótt
hver og einn ætti að sjálfsögðu að
leggja sig fram um að gera góðverk
allt árið um kring þá er sérstaklega
mikilvægt að muna eftir þeim á
þessum tíma ársins.
Góðgerðastofnanir
eru með margt til
sölu, jólakort, pappír
og margt fleira en
það má leggja sitt af
mörkum án þess að
það kosti nokkuð. Það
er einnig góðverk að
bjóðast til að fara í
búð fyrir gömlu kon-
una á efri hæðinni,
moka stéttina fyrir
fótafúinn frænda eða
einfaldlega að skafa
líka af bílnum við
hliðina á þínum eftir
snjóbyl. Það er ótrú-
legt hvað það er hægt
að gleðja marga með
einföldum verkum
sem kosta mann ekkert nema tíma
og ekki sakar að finna sjálfur fyrir
gleðinni sem fylgir því að láta gott
af sér leiða.
Hjálpaðu til
Það er staðreynd að mörg heim-
ili þurfa að reiða sig á aðstoð
frá hjálpar samtökum á borð við
Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstofn-
un kirkjunnar og Heimilishjálp. Ef
þú átt eitthvað aflögu um jólin þá
taka þessar stofnanir á móti allri
hjálp fegins hendi. Starfsmenn
fyrirtækja hafa undanfarin ár í
auknum mæli tekið sig saman og
afþakkað jólagjafir frá vinnu-
veitanda og óskað eftir því að
andvirðið renni til hjálpar-
stofnana. Margt smátt gerir
eitt stórt og þegar allir leggja
sitt af mörkum tryggir það að
gleðileg jól verði haldin á sem
flestum heimilum landsins.
Gleðin verður að minningum
Fljótlegasta og besta leiðin til
að komast í alvöru jólaskap en
einfaldlega sú að vera góður
við náungann og að eyða tíma
með þeim sem þér þykir vænt
um. Það er næsta víst að börn-
in munu halda í minninguna
um daginn sem öll fjölskyldan
skellti sér út á snjóþotu eða í snjó-
kast og endaði hlæjandi við eldhús-
borðið með heitt kakó mun lengur
en hversu margir legókubbar hafi
komið upp úr jólapökkunum.
Ragnhildur Lára Finnsdóttir
„Fyrir bókaunnandann má finna
góða bók á fornbókasölu
Jólakveðjur Fallega skrifaðar
jólakveðjur koma í stað gjafa.
Gleðin er mikilvægust Búðu til góðar og gleðirík-ar minningar, þannig verða jólin góð.
Heimagert
Heimalöguð sulta
og heimabakað kex
slær alltaf í gegn.
Dregið upp úr potti Stórfjölskyldur og vinahópar geta tekið sig saman og ákveðið að hver og einn gefi aðeins eina gjöf. Þá eru öll nöfnin sett í pott og hver dregur nafn þess sem hann mun gefa jólagjöf það árið.