Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Qupperneq 6
6 Aðventan 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Skemmtilegir jólamarkaðir
n Allir finna eitthvað við sitt hæfi
Jólaþorpið 10 ára
n Jólaþorpið í Hafnarfirði var reist í
tíunda skiptið á Thorsplani í miðbæ
Hafnarfjarðar á dögunum. Það reis
fyrst árið 2003 og er fyrir löngu orðið
ómissandi þáttur í jólahátíð Hafn
firðinga og raunar margra annarra
landsmanna.
Þorpið samanstendur af fagur
lega skreyttum jólahúsum þar sem
boðið er upp á handverk, hönnun,
heimabakaðar kökur, heimagerð
jólakort, konfekt, sultur og ann
að góðgæti, handmáluð kerti, jóla
kúlur, myndlist, skartgripi og að sjálf
sögðu kakó og bakkelsi. Fjölbreytt
skemmtidagskrá er á Jólasviðinu alla
opnunardaga. Jólaþorpið er opið
allar helgar til jóla frá klukkan 13
18, auk þess verður opið til 22.00 á
Þorláksmessu en þá verða hugljúfir
jólatónleikar um kvöldið.
Friðsælt og fallegt
n Jólamarkaður Skógræktarfélags
Reykjavíkur á Elliðavatni verður
opnaður laugardaginn 1. des
ember næstkomandi og verð
ur opinn allar helgar fram að
jólum frá klukkan 11 til 16.
Þar verður boðið upp á mik
ið úrval af íslensku hand
verki og hönnun í söluskúr
um. Á hverjum markaðsdegi
er kveikt upp í eldstæðinu
á Hlaðinu og harmónikku
sveitir leika nokkur lög. Auk
har mónikkusveita hafa kór
ar boðað komu sína og von
er á trúbadorum.
Í Gamla salnum svokallaða verður
hópur handverksfólks með vörur sín
ar og þar verður boðið upp á nýbak
aðar vöfflur og kakó. Og í Rjóðrinu,
sem er trjálundur rétt við Elliðavatns
bæinn, verður hægt að setjast á bekki
í kringum logandi varðeld. Jólamark
aðurinn á Elliðavatni er dásamlegur
staður til að losna við ys og þys borg
arinnar um stund og finna réttu
jólastemninguna í friðsælu og fallegu
umhverfi. Það tekur aðeins 15 mín
útur að aka frá miðbæ Reykjavíkur að
Elliðavatnsbænum í Heiðmörk.
Jólabærinn á Ingólfstorgi
n Jólabærinn á Ingólfstorgi verður
opnaður með pompi og prakt mið
vikudaginn 12. desember næstkom
andi, nánar tiltekið þann 12.12. 2012
klukkan 12.12. Viðburðadagskrá ligg
ur ekki fyrir en síðast þegar jólabær
inn var opnaður á Ingólfstorgi var
svo sannarlega nóg um að vera. Þar
gátu gestir keypt handunna og fallega
gjafavöru frá mörgum af hæfileikarík
ustu hönnuðum og handverksmönn
um landsins.
É
g er vön að baka í sveitinni
með mömmu. Hún er dug
leg, bakar alltaf sex, sjö
sortir, og ég aðstoða hana,“
segir Ugla Stefanía Jóns
dóttir, fræðslufulltrúi Samtakanna
78 og ritari Trans Íslands.
Ugla Stefanía segir smáköku
bakstur hluta af hennar jóla
undirbúningi. „Það verða að
vera jólakökur, þær búa til mikla
stemmingu og eru stór hluti af
undirbúningnum,“ segir hún
og bætir við að hún sé mikið
jólabarn. „Mér finnst jólin alltaf
jafn skemmti leg og aðalsportið
hjá mér er að skreyta jólatréð. Ég
þarf alltaf að hafa yfirumsjón með
því,“ segir Ugla sem býr í borginni
en dvelur alltaf í sveitinni hjá for
eldrum sínum yfir hátíðarnar.
Aðspurð segist hún að sjálf
sögðu líka borða smákökurn
ar. „Er það ekki partur af jólun
um, að vera alltaf að narta? Ég
er voðalega spennt að komast í
sveitina eftir að prófunum lýk
ur. Ég ætla að láta eina sort duga
hér í borginni en ætla svo að baka
meira í sveitinni. Ef mamma verð
ur búin þá heimta ég bara enn
fleiri sortir.“
indiana@dv.is
Engin jól
án smákaka
n Ugla Stefanía Jónsdóttir bakar alltaf með mömmu sinni í sveitinni„Mér finnst
jólin alltaf jafn
skemmtileg og aðal-
sportið hjá mér er að
skreyta jólatréð
„Það verða
að vera jóla-
kökur, þær búa til
mikla stemmingu
Hluti af jólaundir-
búningnum
Ugla Stefanía bakaði
súkkulaðibitakökur
sem eru í sérstöku
uppáhaldi hjá henni.
mynd sigtryggur Ari
Verum græn
um jólin
Við þurfum ekki að hætta að vera
meðvituð um umhverfið um jólin
því hægt er að kaupa jólapappír
sem er umhverfisvænn. Sem
dæmi má nefna pappír frá Guð
jóni Ó. sem er prentaður báðum
megin. Á annarri hliðinni skopp
ar jólakötturinn um örkina og
vitnað er í vísur Jóhannesar úr
Kötlum um jólaköttinn. Hin
hliðin skartar litríkum teikning
um af fatnaði og minnir okkur
á að sá fer í jólaköttinn sem
ekki fær nýja flík. Þessi pappír
ber Svaninn og er því góður til
endurvinnslu en benda má á að
hefðbundinn pappír með metall
itum, svo sem gyllingu eða silfur
árferð er ekki hæfur til endur
vinnslu.
ELDHEIT
ÍSLENSK
HÖNNUN
SVUNTA
HANSKI
HÚFA
Í HANDSKREYTTUM
GJAFAPOKA
Útsölustaðir:
Kokka - Dúka - Grillbúðin - Álafoss - 18 Rauðar Rósir - Þjóðminjasafnið -
Dalía - Blómasmiðjan - Garðheimar - Hús handanna, Egilsstöðum -
Pottar og Prik, Akureyri, Aðalbúðin, Siglufirði - Þröstur Ormsson, Ísafirði -
Motivo, Selfossi - Hverablóm, Hveragerði - Póley, Vestmannaeyjum.
Dreifing: Auntsdesign, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi - s. 618 - 3022
Kökur í krukku
Hér er stórgóð hugmynd að jóla
gjöf en fjölmargar útgáfur af
henni eru á netinu, til dæmis á
myrecipes.com. Hugmyndin er
að setja í lögum hráefni í köku
í krukkuna. Hún er svo skreytt
og á fallegan miða eru leiðbein
ingar um hvernig skuli baka
hana.
Súkkulaðibita kökur Uglu
n 150 gr smjör (lint)
n 165 gr sykur
n 50 gr púðursykur
n 1½ egg
n 225 gr hveiti
n 50 gr kókosmjöl
n ¾ tsk. matarsódi
n ¾ tsk. salt
n 200 gr suðusúkkulaði (bitar og spæni)
n 1 tsk. vanilludropar
Svo bara baka í 180°C í 10–12 mínútur.