Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Side 8
8 Aðventan 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Gylltir tónar allsráðandi
J
ólalínur
stóru snyrti-
vöruhúsanna
eru sérlega glæsilegar í ár. Mest ber á
gylltum tónum eins og vant er um há-
tíðarnar en fjólublár litur er hins vegar vafa-
laust tískuliturinn í ár. DV rýndi í úrvalið
og fékk góð ráð frá förðunarfræðingunum
Kristínu Eddu Óskarsdóttur og Fríðu Maríu
Harðardóttur.
kristjana@dv.is
YSL
Norðurljós
Það er varla hægt að finna sér
fegurri innblástur en skínandi
norðurljós. Lloyd Simmon
förðunarmeistari segist hafa rifjað
upp æskuminningar um litadýrð
norðurljósanna. „Ég var heillaður
af sterkum litunum á stjörnu-
björtum næturhimni, grænum,
miðnæturbláum og fjólubláum með
slitri af perlumóður.
Dior
Glæsilegt jólaball
Jólalínan frá Dior er í anda glæsilegra balla sem
Dior hélt á fjórða og fimmta áratugnum þar
sem konur mættu í síðkjólum og með dýrindis
skart. Litir línurnar eru rauður og gylltur og
glæsi leikinn er nútímalegur. Naglalakkið er til að
mynda í perlutón sem er skemmtileg andstæða.
Guerlain
Leyndarmál
og sönn ást
Jólalína Guerla-
in-snyrtivöru-
hússins sækir
fyrirmynd sína í
ilm hússins, Liu.
Liu er óður til
kvenleika og
sannrar ástar
og fyrirmyndin
er kvenhetja
óperunnar
Turandot eftir
Puccini sem
segir af ungum þræl sem vill frekar láta lífið en að gefa upp nafn
eiganda síns, sem hún er ástfangin af.
Chanel
Klassík
og gull
Eclats du Soir de Chanel er nokkurs
konar endurtúlkun förðunarmeistara
snyrtihússins á klassískri línu Chanel,
Rouge Noir, en hann hefur bætt í gylltum
og bronsuðum tónum til hátíðarbrigða.
Clarins
Grískar
gyðjur
Jólalínan frá Clarins er
kölluð Odyssey og sækir
innblástur í grískar gyðjur.
Gylltir og náttúrulegir litir og
áferðarfalleg húð eru áherslur
línunnar í ár.
Ljóst og létt og svolítið sumar-
leg lína á miðjum vetri.
Esteé Lauder
Nútímaleg
og fersk
Jólalína Estée Lauder er nútímaleg og fersk.
Fjólubláir, bleikir og gylltir tónar eru í aðalhlut-
verki. Dökk augnlína, fersk húð og bleikir eða
brúnbleikir varalitir. Dökkfjólublátt naglalakk er
stjarna línunnar og þá eru grænir og fjólubláir tónar
í augnförðun glæsilegir. Hið svokallaða „smokey“
útlit er litríkara og fjólubláum og grænum tónum
bætt fínlega við.
MAC
Fínar pjattrófur og
syndsamlegar drósir
Hátíðarlínur MAC-snyrtivöru-
hússins eru Making Pretty og
Guilty Pleasures, ólíkar en
skemmtilegar línur. Í Making
Pretty er að finna fágaða og
háklassíska litatóna, kara-
mellulitaða og brúnrauða liti.
Útlit varanna er fínlegt og
pjattrófulegt, skreytt með
slaufum. Í Guilty Pleasures
er áherslan á glit og sterka liti á
augu en ljósari liti á varir.
Austræn blæbrigði Söguhetja Turandot, Liu, er innblásturinn í jólalínu Guerlain sem sendi líka frá sér ilm í anda hennar.
Óður til
kvenleika
Jólalína
Guerlain er
hádrama-
tísk og
falleg.
Stjarnan í línunni
Boréal Palette Polar
Night – Púður
Fegurð norðurljósanna
Skærir litir næturhiminsins í
línu YSL um jólin.
„Ég
var
heillaður
af sterkum
litunum á
stjörnu-
björtum
næturhimni.
Bobbi Brown
Leðurjakki og
bleikt
satín
Bobbi Brown fékk innblástur
sinn af svörtum mótorhjóla-
leðurjakka og flík úr fínlegu
bleiku satíni fyrir jólalínuna í
ár. Línan hefur fengið nafnið
kavíar og ostrur. Línan er
samsett af fimm varasölvum,
naglalakki og tvöföldum
maskara. Útlitið er rokkað
en fínlegt og mikil áhersla á
fallega húð.
Sanserað Shimmer
Brick frá Bobbi Brown til
að lýsa upp kinnbein.
Rokkað en
fínlegt Ljósar
varir, sanseraðir
augnskuggar og dökk
augnaumgjörð hjá
Bobbi Brown.
Ólíkar línur Making Pretty og Guilty
Pleasures frá MAC-snyrtivöruhúsinu eru
skemmtilega ólíkar.
Ljóst og létt
Andi grískra
gyðja svífur yfir
vötnunum.
Púður fyrir gyðjur
Það verður varla há-
tíðlegra púðrið. Gylltir
tónarnir eru fínlegir
og henta vel um vetur.
Gerviaugnhár Perludropar og gylltir kristallar.
Nútímaleg
glæsigella
Jólalínan er
fáguð og nú-
tímaleg í senn.
Hátíðleg lína
Línan frá Chanel
er einstaklega
hátíðleg.
Varaliturinn vinsæll Ein vin-
sælasta vara línunnar er dökkur, rauð-
brúnn varalitur sem hefur selst upp
hér á landi á nokkrum sölustöðum.